blaðið - 08.02.2006, Side 2

blaðið - 08.02.2006, Side 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 blaðiö blaðiðwa Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur Sími: 510 3700 •www.vbl.is FRÉTTASÍMI: 510 3799 netfang: frettir@bladid.net AUGLÝSINGADEILD: 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net Ríkið fer í mál við olíufélögin Mbl.is Á ríkisstjórnarfundi í gær- morgun var tekin sú ákvörðun að fela ríkislögmanni að hefja skaðabótamál gegn olíufélögunum vegna ólöglegs verðsamráðs. ,Þetta er sameiginleg tillaga mín og dómsmála- og samgöngu- málaráðherra um að halda uppi skaðabótakröfu," sagið Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra. Ríkislögmanni falið verkið Árni M. Mathiesen sagði að ríkislögmanni yrði falið það verkefni að reka mál gegn olíufé- lögunum fyrir dómstólum. „Þessi ákvörðun byggist á niðurstöðum Samkeppnisráðs um ólögmætt sam- ráð óháð ákvörðun olíufélaganna að kæra þann úrskurð,“ sagði Árni. Ríkislögmanni verður falið að reka málið fyrir dómstólum og Árni sagði að það myndi koma í ljós hver upphæðin er þegar krafan verður lögð fram. Segir aðkomu Sjálfstæðisflokksins að málinu vera einkennilega Dagur B. Eggertsson telur mikilvœgt að halda pólitík fyrir utan lóðaumsóknir tveggja byggingafyrirtœkja í landi Úlfarsfells. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstœðisflokksins, vísar öllum vangaveltum um pólitíska hagsmunagœslu á bug. Smáragarður, eignarhaldsfélag Byko, hefur sótt um sömu lóð í landi Úlf- arsfells og byggingavöruverslunin Bauhaus AG. Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi, telur aðkomu Sjálf- stæðiflokksins að málinu einkenni- lega. Umsóknirnar verða teknar fyrir á fundi skipulagsráð Reykjavík- urborgar í dag. Málinu frestað Eins og fram kom í fréttum í síðasta mánuði sótti þýska verslunarkeðjan Bauhaus AG um að byggja 20 þús- und fermetra byggingavöruverslun í landi Úlfarsfells við Vesturlandsveg. Skömmu áður en taka átti málið til afgreiðslu í skipulagsráði Reykjavík- urborgar sótti Smáragarður, eignar- haldsfélag Byko, eftir sömu lóð. Að beiðni Hönnu Birnu Kristjáns- dóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðis- Dagur B. Eggertsson Hanna Birna Kristjánsdóttir flokksins, var umfjöllun um um- sókn Bauhaus AG frestað og koma því bæði málin til afgreiðslu ráðsins idag. Dagur B. Eggertsson vildi ekki tjá sig um það hvort umsókn Byko hafi valdið því að málinu var frestað en leggur áherslu á að málið fái mál- efnalega umfjöllun og það sé slæmt þegar pólitík hleypur í viðkvæm samkeppn- ismál. „Málinu var frestað á síðasta fundi að beiðni Sjálfstæðis- flokksins. Svo virðist sem þeir hafi haft veður af þessari um- sókn Smáragarðs.“ Þá segir Dagur þetta mál minria á þegar Ir- ving Oil sóttist eftir að koma inn á íslenskan markað. „Eins og dæmin sanna er það oft viðkvæmt þegar erlend samkeppni kemur inn á íslenskan markað. Olíufélögin á sínum tima sóttu á svipaðan hátt að borginni þegar við vorum að finna lóðir fyrir Irving Oil sem ætlaði að innleiða samkeppni hér á landi. Ég man ekki betur en að pólitísk öfl hafi verið í liði með olíufélögunum þá. Þessi saga má ekki endurtaka sig því hér eru hagsmunir neytenda í húfi.“ Ekkert óvenjulegt Hanna Birna Kristjánsdóttir segir alls ekki óvenjulegt að óskað sé eftir frestun mála á fundi skipulags- ráð. Þá vísar hún algjörlega á bug öllum vangaveltum um pólitíska hagsmunagæslu. „Ástæða þess að við óskuðum eftir frestun var sú að það komu fram nýjar upplýsingar á fundinum. Upplýsingar sem tengd- ust nýtingu svæðisins og aðrir full- trúar í skipulagsráði töldu ástæðu til þess að kynna sér málið á milli funda. Það var enginn ágreiningur um þessa frestun og hún var því samþykkt.“ Islenskan starfsmann sakaði ekki í árás á bækistöð friöargæsluliða Friðrik Jónsson, íslenskur friðar- gæsluliði, var í búðum endurreisnar- sveitar NATO í Maymana í norður- Afganistan í gær þegar ráðist var á búðirnar. Árásin var gerð á búðirnar þar sem norskir friðargæsluliðar eru staðsettir vegna myndbirtinga norskra blaða á skopteikningum af Múhameð spámanni. Var að sækja sérútbúna bíla „Friðrik er staðsettur í Kabúl en var staddur þarna til að sinna erindi," segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra. íslenskir friðargæsluliðar voru stað- settir í Maymana til skamms tíma þangað til tekin var ákvörðun um að www.hanspetersen.is 3,5” skjár sá stærsti 28-420mm samsungpto8is linsa 8,0 milljón punkta upplausn, D-SLR SCHNEIDER þýsk hágaeðalinsa, með Ijósopi F2,2-F4,6 15x optlskur aðdráttur (28-420mm) 3,5” LCD 230.000 punkta litaslqár og minni upplýsingaskjár Alsjálfvirk - Hraði: 1/4000 - Manual fókus (Professional) Video m/hljóði eins og minniskort leyfir 64 MB CF minniskort og 1900mAh Li-ion hleðslusett fylgir, allt að 500 myndir á hleðslu PictBridge samskiptastaðall Tilboðkr. 69.900,' Fullt verð kr. 79.900,- IHam hmsiH Austurver BankastrteH • Kitnglan • Laugavegur 178 • I svæðið væri of róstursamt. í slending- arnir héldu því á brott í desember sl. Tveir sérútbúnir bílar sem tilheyra íslensku friðargæslunni voru hins vegar skildir eftir og var Friðrik staddur á þessum slóðum til þess að undirbúa flutning þeirra til Kabúl. Önnur bifreiðanna sem Friðrik átti að sækja var hins vegar skemmd tölu- vert. Þegar Blaðið ræddi við Ragn- heiði var allt með kyrrum kjörum í Maymana. „Það barst liðsauki til þess að bregðast við ástandinu. Þetta voru eitthvað um 200 manns sem gerðu aðsúg að bækistöðinni. Sex norskir friðargæsluliðar slösuð- ust litilsháttar en enginn alvarlega.“ Afganska lögreglan skaut í kjölfarið á mótmælendur með þeim afleið- ingum að fjórir létu lífið. Aðrir íslendingar óhultir „Við höfum verið í sambandi við Frið- rik sem lætur vel af sér og er óhultur,“ segir Ragnheiður. Hið sama má segja um aðra íslend- inga í landinu. í Chaghcharan, þar sem íslensku friðargæsluliðarnir eru staðsettir í dag, er allt með kyrrum kjörum að sögn Ragnheiðar. „Þeir voru á leið í verkefni þegar ólætin brutust út og voru kallaðir til búða þar sem þeir munu dvelja þar til Norski fáninn í Ijósum logum í Maymana í gær Rauters þetta hefur gengið yfir.“ Ragnheiður segir íslensk stjórnvöld fegin yfir því að sú ákvörðun skuli hafa verið tekin á sínum tíma að draga íslensku sveitina frá þessum landshluta. Þó að sú ákvörðun hafi auðvitað verið þessu máli ótengd þá getum við ekki annað en glaðst yfir því þegar okkar fólk er óhult.“ Friðargæsluliðar verða að óbreyttu í landinu Það hefur engin ákvörðun verið tekin um að endurskoða veru ís- lenska friðargæsluliðsins í Afgan- istan að sögn Ragnheiðar. „Það er að fara nýtt teymi út í dag sem taka mun við af þeim sem fyrir eru i vesturhluta landsins. Þar erum við með sjö manna teymi og einn þró- unarfulltrúa. Fimm þeirra eru að snúa heim og verða þeir leystir af.“ Ragnheiður segir enga ákvörðun hafa verið tekna um að fresta þeim áætlunum enda kalla aðstæður í vesturhluta landsins ekki eftir því. „En þessi mál eru undir miklu eftir- liti. Við fylgjumst náið með okkar fólki og erum snögg að bregðast við ef eitthvað kemur upp á.“ O HelSsklrt (3 Léttskýjað ^ Skýjað Alskýjað -- Rlgnlng, lltilsháttar Rlgning 1 í Súld ;j: -K Snjókoma Cy Slydda \ Snjóél Amsterdam 06 Barcelona 12 Berlín 04 Chicago -05 Frankfurt 06 Hamborg 03 Helsinki -14 Kaupmannahöfn 03 London 07 Madrid 11 Mallorka 13 Montreal 11 New York -01 Orlando 07 Osló -01 París 06 Stokkhólmur -01 Þórshöfn -01 Vín 03 Algarve 15 Dublin 06 Glasgow 05 -7° \JJ Slydda ^jj Snjóél j ! -5° 0 «© -5e 0 CV-9" 0 *© -6° * •v. o° * * * 00* Veðurhorfur í dag kl: 15.00 Veðursíminn 902 0600 Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu íslands Á morgun 2** ^ /// • 0° /// * "rV

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.