blaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 4

blaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 blaAÍA Villa í heima- bönkum Gera má ráð fyrir að mörgum hafi brugðið í brún þegar þeir heimsóttu heimabankann sinn í gærmorgun því villa hjá Reiknistofu bankanna varð til þess að allar færslur frá því á mánudag birtust tvöfaldar. Þetta hafði meðal annars þær afleiðingar að á heimabönkum kom fram röng staða á einstökum bankareikningum. Að sögn Helga H. Steingrímssonar, forstjóra Reiknistofu bankanna, hafði þetta ekki áhrif á raunverulega stöðu reikninganna innan bankanna. „Allt bókhald í bönkunum var rétt. Þetta var aðeins villa í heima- bönkum. Það var brugðist hratt við þegar villan kom í ljós og klukkan 9 í gærmorgun var staða reikninga orðin rétt og búið var að leiðrétta málið í heild sinni rétt fyrir klukkan 12,“ segir Helgi. Slíkar villur koma mjög sjaldan fyrir, en þó er að sögn Helga ávallt einhver hætta á að þetta gerist, sérstaklega þegar verið er að uppfæra tölvukerfi þegar teknir eru í notkun nýir þjónustuþættir. Lögreglumenn telja að vanþekk- ing og áhugaleysi ákæruvaldsins valdi því að ekki sé refsað fyrir ofbeldi gegn þeim. Aðeins lítið brot af þeim málum þar sem lög- reglumaður verður fyrir ofbeldi endar fyrir dómi og sökudólgar sleppa með væga refsingu. Páll E. Winkel, framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna (LL), segir virðingarleysi fyrir lög- reglunni valda því að þeir standa oft berskjaldaðir gagnvart hvers konar ofbeldi. Aðeins 5% mála enda með dómi I nýlegri rannsókn sem birt var í Lög- reglumanninum um starfsumhverfi lögreglumanna kemur fram að að- eins 5% mála þar sem lögreglumenn kæra ofbeldi gagnvart sér enda með dómi. Frá 1984 til ársins 2005 voru um 4.500 mál kærð en aðeins 226 þeirra enduðu með dómi. Að sögn Páls E. Winkel gætir ákveðins áhugaleysis og vanþekk- ingar ákæruvaldsins á notkun og túlkun 106. grein hegningarlaga þar sem kveðið er um ofbeldi gegn valdstjórn. Páll segir lögreglumenn lfða fyrir þetta og jafnvel fjölskyldur þeirra líka sem þurfa í sumum til- vikum að þola hótanir af ýmsu tagi „Við teljum okkur sýna fram á í rann- sókn okkar að það er ákveðið áhuga- leysi hjá ákæruvaldinu og ef til vill þekkingarleysi í þessu samhengi. Samkvæmt hegningarlögunum má dæma viðkomandi í allt að 6 ára fangelsi. Aldrei frá upphafi hefur maður þó verið dæmdur í meira NIS5AN FORKLIFT DX Series 1.5 - 3.2 Torme Léttitækni ehf Stórhöfða 27. 110 Reykjavlk, simi: 567 6955 Efstabraut 2, 540 Blönduósi, sfml: 452 4442 www.lettitaekni.is en árs fangelsi fyrir árás á lögreglu- mann. Þannig að refsiramminn er bara notaður að litlu leyti. Þetta þekkist hvergi annars staðar. “ Enda á örorkubótum Páll segir ennfremur að á meðan ástandið er svona sé verið að senda þau skilaboð út í samfélagið að það sé allt í lagi að ráðast á lögreglumenn. Hann segist þekkja dæmi um það að menn hafi slasast illa við skyldustörf án þess að ofbeldismaðurinn hafi þurft að sæta þungri refsingu. „Ég get nefnt mörg dæmi þar sem menn eru bara að detta út úr lögreglustarfi vegna þess að þeir hafa orðið fyrir varanlegri örorku og endað á örorku- bótum vegna barsmíða. Við teljum að með því að koma refsingunum í ásættanlegt form þá muni almenn- ingur bera meiri virðingu fyrir lögreglumönnum." Skýrslan hefur nú verið send dóms- málaráðherra og gerir Páll sér vonir um að fljótlega verði hafist handa við úrbætur. „Við sendum þessa skýrslu til dómsmálaráðherra rétt fyrir jól. Það er mikil og góð vinna þar í gangi og ráðherra hefur sýnt þessu mik- inn skilning. Við búumst við niður- stöðum þaðan innan skamms.“ Lögreglumenn telja aö ákæruvaldiö sé ekki nógu áhugasamt um öryggi þeirra. Blaöiö/lngó Varað við ferðalögum til Sýrlands og Líbanons Utanríkisráðuneytið varar íslendinga sérstak- lega við að ferðast til Sýrlands og Líbanons vegna óvildar ígarð Norðurlandabúa þar. Utanríkisráðuneytið sendi í gær frá sér tilkynningu þar sem segir að í ljósi atburða undanfar- inna daga og ótryggs ástands sé íslenskum ríkisborgurum ráðlagt að ferðast ekki til Sýrlands og Líb- anons eins og sakir standa. Þá eru þeir Islendingar sem staddir eru annars staðar f Miðausturlöndum hvattir til að sýna fyllstu aðgát. Viðvörun þessi siglir í kjölfar mik- illar ólgu í íslömskum ríkjum, en velflestir múslimar eru sárreiðir vegna skopmyndabirtinga danska dagblaðsins Jyllandsposten í fyrra- haust. Þar var Múhameð spámaður og íslam dregin spaugilegum eða háðskum dráttum. Hefur mikið Danahatur breiðst út um hinn ís- lamska heim og ákafast í Sýrlandi og Líbanon þar sem æstur múgur kveikti í sendiráðum og ræðismanns- skrifstofum Dana og Norðmanna. Hefur þessi megna andúð á Dönum vegna skopmynda Jyllandsposten þannig færst yfir á aðrar Norður- landaþjóðir og telur ráðuneytið því ráðlegt að íslendingar hafi allan vara á í heimsóknum til Miðaustur- landa um þessar mundir. (>()% EÐA MEIHI AFSLÁTTUR Opió virka daga frá kl. 10-18 Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Laugardaga frá kl. 10-16 VINNUVÉLANAMSKEIÐ NÁMSKEIÐ VIKULEGA Heimsókn- um í íþrótta- hús fjölgar Rúmlega ein milljón gesta kom i íþróttahús og íþróttamiðstöðvar Hafnarfjarðar á síðasta ári. Það er um 16% aukning frá fyrra ári. Flestir komu í íþróttamiðstöð- ina í Kaplakrika, en heimsóknir þangað voru rúmlega 380 þúsund. Næst flestar voru þær í íþrótta- miðstöðina á Ásvöllum, eða tæplega 330 þúsund. Fæstar voru þær hins vegar í íþróttahúsið við Lækjarskóla eða rúmlega 8.500. Breiðband fyrir 1,5 milljarða íslenska fyrirtækið Industria hefur gert samning um að breiðbands- væða fimmtán bæi á írlandi. Um er að ræða svæði þar sem um 325 þúsund íbúar búa. Verkefnið var boðið út á evrópska efnahagssvæð- inu og var fyrirtækið hlutskarpast í tilboðinu. Gert er ráð fyrir að 18 mánuði þurfi til að klára verk- efnið og að kostnaður við það nemi um 1,5 milljörðum króna. „Samningur þessi er sá þriðji sinnar tegundar sem Industria gerir á írlandi og kemur í kjölfar tveggja annarra sem voru gerðir árið 2005 við sveitastjórnir Galway- og Meath-héraða. Með þessu hefur Industria umsjón með breiðbands- væðingu 65% af íbúum þessara héraða á Suður-írlandi, eða alls um 780.000 íbúa. Heildarkostnaður verkefnanna þriggja hljóðar upp á um 3 milljarða íslenskra króna,“ segir meðal annars í tilkynningu frá fyrirtækinu sem send var út í gær. Staðstetning Mjódd www.ovs.is EmDmimg UPPLÝSINGAR OG INNRITUN I SÍMA 894 2737 Frá undirritun samningsins. Lögreglan berskjölduð gagnvart ofbeldi Koma þarfrefsingum vegna ofbeldis gegn lögregluþjónum í ásættanlegtform til að tryggja vinnuöryggi þeirra, segir framkvœmdastjóri Landssambands lögreglumanna.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.