blaðið - 08.02.2006, Síða 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 blaöiö
Uppsagnir þeirra lægst
launuöu vofa yfir
Kristján Gunnarsson, formaður
Starfsgreinasambands íslands
(SGS), segir að flótti muni bresta
á úr ákveðnum greinum hjá rík-
inu og á hinum almenna vinnu-
markaði verði laun ekki hækkuð
á næstunni. Formenn sambands-
ins hittust í gær og fóru yfir
stöðuna. Að sögn Kristjáns var
alger samstaða á fundinum og
menn sammála um að bregðast
verði við þeirri stöðu sem komin
er upp á vinnumarkaði.
Ekki hægt að fara í verkföll
Eins og kunnugt er hafa laun
starfsmanna sveitarfélaga hækkað
talsvert að undanförnu og eru
samningar þeirra nú mun betri en
á almennum vinnumarkaði og hjá
ríkinu. Stoppa verður upp í þetta gat
á einhvern hátt að mati Kristjáns.
„Ríkið og fulltrúar atvinnurek
enda eru þegar búnir að hafna
öllum viðræðum við okkur um
þetta mál. Við erum með gildandi
kjarasamninga við þessa aðila og
erum því bundir af friðarskyldu
Silvía fær að syngja
Kristján Gunnarsson, formaður Starfs-
greinasambands (slands.
Það þýðir að ekki er hægt að blása í
herlúðra og boða verkföll. Ég bendi
hins vegar á að starfsmenn leikskóla
og leikskólakennarar voru bundnir
af sams konar friðarskyldu. Þeir
tóku hins vegar á það ráð að segja
upp störfum sínum og því fór sem
fór. Ég er ekki að hvetja til uppsagna
en bendi á að fólk mun einfaldlega
skipta um vinnu ef betur launuð
störf eru í boði. Mér skilst meira að
segja að það sé þegar farið að gerast,“
segir Kristján.
Ekki hægt að fj ölga útlendingum
,Þau störf sem ég hef mestar
áhyggjur af eru til að mynda umönn-
unarstörf og fleiri slík. Menn hafa
spurt mig hvort þau verði þá ekki
bara mönnuð útlendingum en ég
tel að svo verði ekki. Það er mikið af
erlendu vinnuafli í þessum störfum
en ég tel að ekki verði gengið lengra
í þá átt en nú er. Ég bendi ennfremur
á að útlendingarnir eru bara alls
ekkert ánægðir með sín laun,“ segir
Kristján.
Kristján hvetur til að laun
verði endurskoðuð nú þegar.
,Þetta er snjóbolti sem bara stækkar.
Ef ekkert verður að gert núna þá
eru endurskoðunarákvæði í samn-
ingum í desember næstkomandi.
Það þarf vart að sitja lengi yfir því
þá hvort samningsforsendur eru
brostnar eða ekki. Ég held hins
vegar að það verði mun erfiðara
að taka á málinu í desember en að
gera það strax. Því vildi ég setjast
að samningaborðinu strax,“ segir
Kristján að lokum.
Össur skilar
góðri afkomu
Össur hf. hagnaðist um tæpar
735 milljónir króna á síðasta ári
en félagið birti ársuppgjör sitt í
gær. Heildarsala ársins nam um
10,1 milljarði króna sem er um
29% aukning miðað við fyrra ár. 1
fyrra yfirtók Össur rekstur fimm
erlendra fyrirtækja í þremur
heimsálfum og jukust umsvif
fyrirtækisins töluvert í kjölfar þess
og fór starfsmannafjöldi yfir 1.000
í lok síðasta árs. Össur sérhæfir sig
í þróun og framleiðslu stoð- og
stuðningstækja og er annar stærsti
stoðtækjaframleiðandi í heiminum.
Minni hagnaður
hjá Marel
Hagnaður Marels á síðasta ári nam
5,7 milljónum evra eða um 430 millj-
ónum króna samkvæmt ársuppgjöri
félagsins sem birt var í gær. Þetta er
minni hagnaður en árið 2004 en þá
var hann 694 milljónir. Skýringin er
lægri ffamlegð vegna óhagstæðrar
gengisþróunar, hækkun á föstum
kostnaði og aukinn fjármagns-
kostnaður. Heildarsalan árið 2005
nam um 129 milljónum evra eða
um 10,1 milljarði króna sem er um
14,9% aukning frá fyrra ári. Þá var
rekstrarhagnaður á fjórða ársfjórð-
ungi í fyrra um 99 milljónir króna
samanborið við 247 milljónir fyrir
sama tímabil árið 2004. Marel
samanstendur af 17 fyrirtækjum
og er með starfsemi í 14 löndum.
Á fundi útvarpsráðs í gær var
ákveðið endanlega að Silvía Nótt
fær að flytja lag sitt Til hamingju
Island í Söngvakeppni sjónvarps-
ins. Kristján Hreinsson.skáld og
þátttakandi í kepninni, lagði fram
stjórnsýslukæru vegna ákvörðunar
útvarpsstjóra að heimila Silvíu
áframhaldandi þátttöku eftir að
lag hennar hafði komist í umferð
á Netinu. Kæran var lögð fyrir á út-
varpsráðsfundi og komst fundur-
inn að því að útvarpsstjóri hefði af-
greitt málið af sanngirni og styður
ráðið útvarpsstjóra f málinu.
Málinu lokið
Páll Magnússon, útvarpsstjóri, segir
málinu lokið af sinni hálfu. „Það er að
minnsta kosti úr sögunni hvað okkur
varðar.“ Páll segir að samkvæmt lög-
fræðilegri álitsgerð sem fengin hafi
verið sé ákvörðun hans endanleg og
henni verður hvorki vísað annað né
er hægt að kæra málið annars staðar.
Engar afleiðingar fyrir aðalkeppnina
Aðspurður að því hvort málið gæti haft
einhverjar afleiðingar í framtíðinni
komi til þess að Silvía sigri kepnina hér
heima segir Páll svo ekki vera. „Eina
evrópska reglan í þessu sambandi, sem
leki lagsins á Netið gæti fallið undir, er á
þann veg að lag má ekki hafa verið flutt
opinberlega fyrir 1. október 2005.“ Páll
segir að afit sem viðkemur birtingu lag-
anna eftir þá dagsemingu heyri undir
sjónvarpstöðina í viðkomandi landi.
„Þetta er þessi sam-evrópska regla sem
á að tryggja að þetta séu ný lög en ekki
Valkostum
ferðalanga
fjölgar enn
Mbl.is | Frá 31. mars næstkomandi
verður hægt að fljúga beint frá
Reykjavíkurflugvelli til Þórshafnar
í Færeyjum og þaðan áfram til
Billund á Jótlandi. Það er færeyska
flugfélagið Atlantic Airways sem
mun bjóða upp á þennan mögu-
leika. Til að byrja með verður flogið
tvisvar í viku á þessari flugleið
en í júní verður bætt við tveimur
ferðum á viku. Á heimasíðu flugfé-
lagsins kemur fram að verð fyrir
flug fram og til baka mun verða
á bilinu 28 til 32 þúsund krónur.
Landsmenn fá að hlýða á söng Silvíu Nótt-
ar í úrslitum í Söngvakeppni sjónvarpsins.
gömul sem send eru inn og ég veit ekki
betur en að öll íslensku lögin uppfyfli
þetta skilyrði.“
omsTumus/s
Torfærutrukkur sem sameinar styrk og kraft.
HPI Savage 25 Limited Edition, sér-útgáfa hlaðinn
aukahlutum, takmarkað upplag.
Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík
KJARTAN
VALGARÐSSON
3:
Gjaldfrjáls leikskóli
Brasaó á
Búllunni
Það logaði glatt f grillinu á Hamborgara-
búllunni þegar Ijósmyndara Biaðsins
bar að garði. Þar er oft heitt í kolunum
enda búllan með vinsælli skyndibitastöð-
um. Það var Tómas Tómasson, eigandi
Hamborgarabúllunnar, sem svo að segja
innleiddi skyndibitamenninguna hér á
landi fyrir nokkrum áratugum og enn eru
Tommaborgarar Ijóslifandi í minningum
margra.
Blam/Frikki
Líkams- og heilsurækt aldraðra
Hádegisverðarfundur ÍSÍ ■■■■■■■■
Föstudaginn 17. febrúar heldur íþrótta- og Ólympíusamband íslands
hádegisverðarfund í íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Fundurinn hefst kl. 12:00 og mun standa tíl kl. 13:00. Aðgangur er ókeypis.
Janus Friðrik Guðlaugsson mun halda erindi um niðurstöður
meistararannsóknar á líkams- og heilsurækt aldraðra hér á landi.
Janus Friðrik Guðlaugsson varði nýlega meistaraprófverkefni sitt við Kennaraháskóla
íslands og er það fyrsta rannsóknartengda meistaraverkefni á sviði íþróttafræða við
íslenskan háskóla. Janus mun í erindi sínu gera grein fyrir framkvæmd rannsóknar
og segja frá helstu niðurstöðum.
Frekari uppiýsingar má finna á Hægt er að kaupa hádegisverð hjá café easy sem
www isisport ÍS staðsett er á jarðhæð íþróttamiðstöðvarinnar