blaðið - 20.02.2006, Page 6
6 I IWNLENDJLR TRÉTTIR
MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2006 blaöið
ALLIR AFANGASTAÐIR í EVRÓPU FLUG Q 9(10 ICELANDAIR / 1 w • w KR + Bókaðu á www.icelandair.iswww.icelandair.is
Stefna meirihlutans í algjöru öngstræti
- segir Vilhjálmur Vilhjálmsson, oddvitisjálfstœðismanna. Hann tekur undir meðÁrna Þór Vigfús-
syni sem gagnrýnt hefur uppboðsleiðina sem notast var við í lóðaúthlutun í landi Úlfarsárdals.
Mikil gagnrýni hefur verið uppi
um fýrirkomulag lóðaúthlutana
í landi Úlfarsárdals sem fram fór
fyrir helgi. Fyrirtækjum var meinað
að sækja um einbýlishúsalóðir en
það kom á daginn að einn og sami
aðilinn var með hæsta tilboðið í 39
af þeim 40 lóðum sem í boði voru.
Hann heitir Benedikt Jósepsson og
er byggingaverktaki.
Árni Þór Vigfússon, borgarfull-
trúi VG, sagði í fréttum í gær að
sú leið sem meirihlutinn ákvað að
farin yrði við úthlutunina, hefði
beðið skipbrot. Árni studdi ekki fyr-
irkomulagið á sínum tíma þegar það
var ákveðið. Steinunn Valdís Óskars-
dóttir, borgarstjóri, sagði í fréttum
um helgina að farið yrði í það strax
eftir helgi að skoða málið. Enn-
fremur taldi hún augljóst að farið
hefði verið á svig við reglur útboðs-
ins. Vilhjálmur Vilhjálmsson, odd-
viti sjálfstæðismanna, tekur undir
með Árna í þessu máli og kallar það
hneyksli.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Tólfunum kastað
„Lóðauppboð R-listans, undir for-
ystu Samfylkingar, sýnir með
augljósum hætti í hvers konar öng-
stræti stefna meirihlutans í þessum
FitFood
Heílsusjoppan
Tilbúin hollusta til að taka með
Margskonar grænmetis- og ávaxta-
bakkar, hollustulanglokur, pasta,
ávaxtaskyrdrykkir, prótíndrykkir
ávextirog grænmeti og margtfleira.
Nýbýlavegi 28, Kópavogi, sími 517-0110
avaxtabillinn@avaxtabillinn.is
www.avaxtabillinn.is
Heimilisvænar oq qómsætar
“ FULLELDAÐAR
OG TILBÚNAR ) matfiskur
APONNUNA .Jr
_ EÐAÍOFNINN!
- Lostæti með lítilli fyrirhöfn
málum er komin,“ segir Vilhjálmur.
„Lóðagjöldin hafa hækkað um mörg
hundruð prósent og í uppboðinu
í landi Úlfarsárdals kastar nú tólf-
unum.“ Vilhjálmur bendir á að í
desember 1999 hafi lóðagjöld fyrir
raðhús og parhús verið 4 milljónir
króna en í dag séu þau 12 milljónir.
Hið sama má segja um lóðagjöld
fyrir einbýlishús en árið 1999 námu
gjöldin einnig um fjórum millj-
ónum en nú séu þau komin upp f
tuttugu milljónir.
Almennu launafólki gert
ókleift að byggja
„Stefna meirihlutans er sú að borgin
græði sem mest á lóðasölunni,"
segir hann. „Samkvæmt þeirra áætl-
unum stendur til að borgin hagnist
um fimm milljarða á næstu fjórum
árum.“ Með þessu segir Vilhjálmur
verulegum kostnaði varpað yfir á
húsbyggjendur. „Fjölskyldum sem
vilja byggja í Reykjavík er það nán-
ast ókleift og fyrir almennt launa-
fólk er það algjörlega útilokað að fá
lóð undir sérbýli vegna gríðarlega
hárra lóðagjalda."
Tryggja þarf nægt lóðaframboð
Að sögn Vilhjálms gera núverandi
lóðaskortur í borginni og uppboðs-
leið það að verkum að venjulegt fólk
hafi ekki ráð á að byggja í borginni.
„Við sjálfstæðismenn höfum alltaf
sagt að það eigi að tryggja nægt
framboð lóða þannig að þeir sem
vilji byggja í Reykjavík geti fengið
lóð. Þetta er okkar markmið og að
því ætlum við að vinna." Vilhjálmur
bendir á flótta fólks til annarra sveit-
arfélaga sem hann segir vera vegna
lóðaskortsins. „Frá árinu 1997 til
2005 hefur börnum á leikskólaaldri
í Reykjavík fækkað um 627 sam-
kvæmt tölum Hagstofunnar. Á sama
tíma hefur börnum í nágrannasveit-
arfélögunum fækkað um 400. Þetta
tengist allt og við erum að senda
fólk hér í burtu.“
Strákarnir okkar
kynntir í Newsweek
Smáhundar í Mjóddinni
Margir lögðu leið sína í Garðheima i Mjóddinni um helgina þegar þar fór fram sýn-
ing á smáhundum. Mátti þar sjá marga fallega og sérstaka seppa og mikla ánægju
vakti þegar smáhundarnir voru klæddir fatnaði samkvæmt nýjustu hundatfsku.
Búið að selja myndina til 15 landa og fleiri
myndir í bígerð, m.a. reykvísk hvalahrollvekja
íslensku kvikmyndarinnar Strák-
arnir okkar er getið með mjög áber-
andi hætti í nýjasta tölublaði News-
week, eins útbreiddasta fréttarits
heims. Að sögn Ingvars Þórðarsonar,
annars framleiðanda myndarinnar,
mun umfjöllunin vafalaust opna
henni margar dyr víða um heim.
í Newsweek er fjallað talsvert um
kvikmyndaframleiðslu utan Banda-
ríkjanna í tengslum við nýafstaðna
kvikmyndahátíð í Berlín. Sérstök
grein er gerð fyrir fótboltamyndum,
sem hafa rutt sér til rúms upp á
síðkastið, og m.a. rætt við Róbert
Douglas, leikstjóra Strákanna okkar,
sem tekur raunar fram að hann hafi
gert fótboltamynd án þess að í henni
væri fótbolti svo nokkru næmi.
Myndin fjallaði um kynhneigð
manns og viðbrögð umhverfisins
við henni.
Með greininni er stór mynd af
liðinu í Strákunum okkar, en með
fylgir lítil mynd af Pelé.
Að sögn Ingvars hjá kvikmynda-
félaginu Kisa, sem framleiðir mynd-
ina, varð myndinni vel ágengt á kvik-
myndahátíðinni í Berlín. „Við erum
búnir að selja myndina til 15 landa,
þar á meðal stórmarkaða eins og
Bandaríkjanna og Þýskalands. Það
hjálpar svo ekki aðeins Strákunum
okkar, því viðtökurnar hafa líka
greitt fyrir erlendri fjármögnun á
öðrum verkefnum hjá okkur.“
Tökur á myndinni Astropia
hefjast í júní, en einnig er í
bígerð hryllingsmynd eftir
handriti Sjóns, sem ber
hið hrollvekjandi
heiti Reykjavik
Whale Watching
Massacre.
Stútur í Hval-
fjarðargöngum
Mbl.is | Loka þurfti Hvalfjarðargöng-
unum til skamms tíma eftir að
tvítugur ökumaður, sem grunaður
er um ölvun, ók utan í veggklæðn-
ingu í göngunum um klukkan 1:40
á aðfararnótt sunnudagsins. Bíllinn
skemmdist nokkuð og varð að flytja
hann af vettvangi með kranabíl.
Lögreglan á Akranesi færði öku-
manninn unga á lögreglustöð og
tók úr honum blóðsýni en að þvi
loknu fékk hann að halda á brott.
Jeppi brann
á Grenivík
Mbl.is | Eldur kom upp í Willys
jeppa á bílastæði undir fjallinu
Kaldbak í Grenivík í Eyjafirði um
hádegisbilið í gær og er hann talinn
gjörónýtur. Að sögn lögreglunnar
á Akureyri voru menn um tvítugt
og þrítugt i bílnum og ætluðu
þeir að fara á snjósleðum á fjallið.
Þegar þeir komu á bílastæðið í
Grenivík og stigu út úr bílnum
blossaði eldur upp í honum og varð
hann alelda á skammri stundu.
Talið er að bensínleiðsla hafi
farið f sundur undir bílnum með
þeim afleiðingum að allt sem í
honum var varð eldi að bráð.
Bíllinn var um átta til tíu
ára gamall og er ljóst að tjónið
nemur hundruðum þúsunda.
Enn minnkar
fylgi framsókn-
armanna
Mbl.is | Fylgi Framsóknarflokksins
mælist 7,1% í skoðanakönnun, sem
Fréttablaðið birti í gær. Hefur fylgi
flokksins ekki mælst minna frá
kosningunum árið 2003.44,4%
þeirra sem þátt tóku sögðust
myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn
væri gengið til kosninga nú. Það er
mesta fylgi sem flokkurinn hefur
fengið í könnunum Fréttablaðsins
frá því í þingkosningum 2003.
Fylgi Samfylkingar mælist 34,4%,
Vinstrihreyfingin-grænt framboð
mælist með 9,8% fylgi og Frjálslyndi
flokkurinn með 3,5% fylgi.
Hringt var í 800 manns þann 18.
febrúar og skiptust svarendur
jafnt milli kynja og hlutfalls-
lega milli kjördæma.