blaðið - 20.02.2006, Blaðsíða 14

blaðið - 20.02.2006, Blaðsíða 14
blaði Útgáfufélag: Árogdagurehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson. Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber. AÐRIR MÁLHEIMAR Ritstjórn Blaðsins barst á fimmtudag ánægjulegur liðsauki þegar greint var frá nýrri rannsókn, sem unnin var á vegum Breska menningarráðsins, British Council. Sífellt fleiri gera sér sýni- lega ljóst að tungumálakunnátta, sem bundin er við ensku, nægir engan veginn í nútímanum. Blaðið gerði fyrir skemmstu að umfjöllunarefni þá staðhæfingu nokk- urra helstu talsmanna nýja auðvaldsins á Islandi að leggja beri stór- aukna áherslu á ensku í menntakerfi og atvinnulífi Islendinga. Tekið var undir þessa nálgun en því bætt við að hún væri í raun furðulega gam- aldags. Góð enskukunnátta væri lágmarkskrafa nú um stundir. Kennslu í ensku bæri vissulega að auka en jafnframt þyrfti að auka hlut annarra tungumála í skólakerfinu, einkum spænsku og þýsku. Síðan þyrfti að gera þeim, sem áhuga og hæfileika hefðu, kleift að leggja stund á erfið tungumál svo sem japönsku, rússnesku, kínversku og arabísku. Sama niðurstaða kemur fram í rannsókninni, sem unnin var fyrir Breska menningarráðið. Ein helsta niðurstaða hennar er sú að enskumælandi þjóðir séu að glata yfirburðum sínum á vettvangi tungumálanna þar eð sífellt fleiri (um tveir milljarðar manna) tali nú enska tungu. Á tímum hnattvæðingar og hamslausrar samkeppni dugi ekki enskan ein til að ná góðum árangri á sviði viðskipta og menningar. I arabaríkjum, Kína og spænskumælandi löndum dugi enskukunnátta alls ekki. I skýrslunni segir að þessi þróun sé alvarleg og er þá vísað til þess að Bretar séu al- mennt og yfirleitt illa að sér í öðrum tungumálum. Þessi niðurstaða Breska menningarráðsins ætti að vera íslendingum íhugunarefni. Vitanlega þarf að auka enskukennslu á íslandi; það eru „augljós sannindi" svo vísað sé til fyrri skrifa Blaðsins um þetta efni. En jafnframt er áríðandi að huga að því hvernig auka ber aðra tungu- málakennslu í grunn- og framhaldsskólum. Ensku- og spænskukennslu ætti að hefja sem fyrst í grunnskólanum t.a.m. við 8 eða 9 ára aldur og leggja einkum áherslu á málnotkun. Hið sama á raunar við um fram- haldsskólastigið. Draga ber úr þeirri áherslu, sem lögð er á málfræði og bókmenntir við tungumálakennslu á íslandi. Almennt og yfirleitt gildir að fólk fær áhuga á bókmenntum viðkomandi málheims eftir því sem kunnátta og færni eykst. Yfirvöld menntamála á Islandi standa frammi fyrir krefjandi verkefni, sem þolir litla bið. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur. 14 I ÁLIT MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2006 blaðið Q: OG CuRLiria Fúskið verðlaunað Um helgina veitti Blaðamannafélag Islands sín árlegu Blaðamannaverð- laun, en sá siður var tekinn upp fyrir þremur árum „til að stuðla að vönd- uðum vinnubrögðum í íslenskum fjölmiðlum hvers konar.“ Það er auð- vitað lofsvert markmið, en hitt er svo annað mál hvernig til tekst. Það hefur einnig aukið vandann að verð- launaflokkarnir eru frekar loðnir (besta umfjöllun ársins, rannsóknar- blaðamennska ársins, blaðamanna- verðlaun ársins) og geta skarast talsvert. Á sama tíma saknar maður þess að ekki skuli veitt verðlaun fyrir fleiri greinar blaðamennsku, t.d. fyrir stíl eða viðtöl. Er bók fjölmiðill? En mér finnst það orka nokkuð tvímælis að veita blaðamannaverð- launin fyrir bók. Enginn efast um það að Gerður Kristný er vel að lofinu komin fyrir bók sína um bar- áttusögu Thelmu Ásdísardóttur, en í ljósi ofangreinds markmiðs um vandaðri vinnubrögð í íslenskum fjölmiðlum er ég eilítið tvístígandi. Ekki síst vegna þess að ég er sann- færður um að verðlaun Gerðar Krist- nýjar gerðu út um það að Sigmar Guðmundsson, Kastljóssmaður, fengi verðlaun fyrir umfjöllun sína um sama mál í öðrum verðlauna- flokki, sem er auðvitað fjarskalega ósanngjarnt. Ég leyfi mér að fullyrða að sú umfjöllun hafi verið á heimsmæli- kvarða, því með henni sýndi Sigmar hvernig unnt er að fjalla um flókið og vandmeðfarið efni í sjónvarpi á nærgætinn hátt. Eftir að hafa tekið al- veg skínandi gott viðtal við Thelmu hélt hann svo áfram og fór út í það hvernig nærsamfélagið hefði brugð- ist við málinu á sínum tíma og fékk loks ráðherra í viðtal, sem kvað upp um aðgerðir í beinni útsendingu. Þetta hefði maður nú einhvern tím- ann kallað ippon. Hneyksli kvöldsins var hins vegar að Sigríði Dögg Auðunsdóttur, blaða- manni á Fréttablaðinu, skuli hafa verið veitt verðlaun fyrir rannsókn- arblaðamennsku. Verðlaunin fékk hún fyrir úttekt á einkavæðingu ríkisbankanna og umtöluð frétta- skrif um aðkomu áhrifamanna f aðdraganda málaferla gegn forsvars- mönnum Baugs. Eða eins og segir í rökstuðningi dómnefndar: Andrés Magnússon „I bankaumfjölluninni fór saman skilmerkileg framsetning og um- fangsmikil úttekt á sölu ríkisbank- anna... Greinar Sigríðar Daggar vörpuðu nýju ljósi á ýmsa þætti... I Baugsmálinu sýndi Sigríður af sér áræðni og nákvæmni í viðkvæmri og vandasamri úrvinnslu á tölvu- skeytum sem Fréttablaðinu höfðu borist...“ Hvaðan eru þjófsaugu komin í ættir vorar? Þetta er alveg dæmalaus þvættingur, því ekkert gæti verið fjær sanni. Hin merka rannsókn Sigríðar Daggar á bankasölumálinu fólst í því að sjóða saman illskiljanlegan greinaflokk upp úr þriggja ára gamalli skýrslu ríkisendurskoðanda þar sem langir kaflar voru teknir nánast orðréttir án þess að geta þeirrar heimildar. Slíkt er vanalega kallað ritstuldur og þykir ekki til fyrirmyndar í blaða- mennsku. Þessu var svo slegið upp eins og um nýjar fréttir að ræða. Þar fyrir utan voru greinarnar uppfullar af rangfærslum og misskilningi, en markmiðið var að sýna fram á fyrir- framgefna niðurstöðu. Ekki er minna hneyksli að verð- launa Sigríði Dögg fyrir að semja fréttir upp úr þýfi, stolnum tölvu- pósti, þar sem markmiðið var hið sama, að komast að fyrirframgef- inni niðurstöðu með því að velja það úr sem hentaði, en sleppa hinu. En jafnvel það reyndist henni ómögu- legt, því fréttirnar stönguðust á inn- byrðis, fyrirsagnir rímuðu ekki við innihaldið og þar fram eftir götum. Dylst einhverjum að þarna gekk Sig- ríður Dögg erinda eigenda sinna, til þess að hafa áhrif á dómsmeðferð op- inberra sakamála gegn þeim? Svona vinnubrögð á ekki að verð- launa, heldur á að nota þessar fréttir sem kennslugögn í fjölmiðlafræði um það hvernig ekki eigi að vinna. Með verðlaununum hefur Blaða- mannafélagið gengisfellt sjálft sig og verðlaunin. Eða er það virkilega til þess fallið „að stuðla að vönd- uðum vinnubrögðum í íslenskum fjölmiðlum" að verðlauna ritstuld, villandi framsetningu, þjófnað og þjónkun við hagsmuni fjölmiðlaeig- enda? Svei, nei. Höfundur er blaðamaður. Klippt & skorið klipptogskorid@vbl.is Athyglisverð frétt blrtist á forsfðu Morgunblaðsins í gær. Þar upplýsir Karl Steinar Guðnason, forstjóri Tryggingastofnunar ríkis- ins, að stofnuninni hafi að undanförnu borist um eitt þtísund andmælabréf en stofnunin stendur nú frammi fyrir því að krefja þtísundir öryrkja og aldraða um samtals 1.800 milljónir króna sem þessu fólki ber að endurgreiða samkvæmt lögum frá árinu 2002. Á sama tíma greiðir TR 700 milljónir króna til þeirra sem af ýmsum ástæðum hafa ekki nýtt sfn fyllstu réttindi. Þrýstingurinn á stofnunina og starfsmenn hennar er greinilega ógurlegur. „Fólk heldur að við setjum lögin og reglugerðirnar og séum með þetta allt i rassvasanum. Sannleikurinn er hins vegar sá að lögin eru sett á Alþingi og reglugerðir í ráðuneytum og það ereínfaldlega okkar hlutverk að fara að lögum og reglum. Við berum okkur því undan því að vera kennt um þetta allt saman og ég legg þunga áherslu á að TR vill veita miklu betri þjónustu en stofnunin hefur tök á eins og staðan er ntína. Ég brýni þvl fyrirfólki að skjóta ekki sendiboðann, eins og stundum er ntí tilhneigingin," segir Karl Steinar. Undarlegt er að aldraðir og öryrkjar virði ekki lögin en hvernig má það vera að fólk fái bæturfyrirað nýta ekki „full réttindi" sín? Egill Helgason, sjónvarpsmaður, gerir Blaðamannaverðlaunin sem veitt voru á laugardagskvöld að umfjöllun- arefni í pistli á Netinu. Egill segir m.a: „Það er ekki mikill glamúryfir blaðamennsku á (slandi, ónei... Það er vissulega virðingarvert þegar blaðamenn setja sig inn í flókin og erfið mál, en þegar það gerist virðist nánast vera regla fremur en hitt að framsetningu sé mjög ábóta- vant - að maður tali ekki um stíl. Sumt af þessu minnir fremur á skýrslur en blaðagreinar. Það er stóreinkennilegt hvað það er Iftils metið í fjölmiðlunum að kunna að tjá sig á skemmti- legri íslensku. Stingur hróp- lega í stúf við allt blaðrið um ræktun tungunnar. Svo sé ég ekki betur en að Fréttablaðið sé tilnefnt til verölauna fyrir að birta tölvu- pósta Jóninu Ben. Jú, það var eins konar skúbb - en kannski ekki alveg tækttilverðlauna."

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.