blaðið - 20.02.2006, Page 8

blaðið - 20.02.2006, Page 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR MÁNUDAGUR 20. PEBRÚAR 2006 blaðiö ALLIR ÁFANGASTAÐIR í EVRÓPU FLUG Q QHf) ÍCELANDAIR M I w • w KR. + Bókaðu á www.icelandair.iswww.icelandair.is Risatónleikar Rolling Stones Talið er að rúmlega milljón manns hafi safnast saman á Copacabana- strönd í Ríó í Brasilíu á laugardags- kvöld þegar hljómsveitin lífseiga The Rolling Stones hélt þar ókeypis tónleika. Hljómsveitin lék um 20 lög á tónleikunum, þar á meðal sígilda slagareins og Jumpin’ Jack Flash og Satisfaction. Þó að tónleikarnir séu með þeim fjölmennustu sem haldnir hafa verið í heiminum eru þeir ekki þeir fjölmennustu tónleikar sem hafa farið fram á Copacabana-strönd því að þar hélt Rod Stewart tóneika fyrir 3,5 milljónir manna árið 1994. Sviðið sem hljómsveitin lék á var á hæð við sjö hæða hús og lá göngubrú frá því til hótelsins þar sem hljómsveitin dvaldi. Þetta var í fyrsta skipti sem The Rolling Stones heldur ókeypis tón- leika í Brasilíu þar sem fáir hafa efni á því að kaupa miða á tónleika með alþjóðlegum tónlistarmönnum. Mikill viðbúnaður var vegna tón- leikanna og voru meðal annars þús- undir lögreglumanna á vakt. Söngvarinn Mick Jagger og gít- arleikarinn Ron Wood leika fyrir rúmlega milljón manns á Copaca- bana-strönd í Brasilíu á laugardag á einum fjölmennustu tónleikum sem haldnir hafa verið í heiminum. ww - GLERBRAUTIR FYRIR 8-J2mm GLER -Engin rafsuða einfalt og snyrtilegt! Inni og úti handriða og stiga smíði, 304 og 316 ryðfrítt stól 'ww.aflantskaup. 1 „ Atlantskaup efh. Bæjarflot 6, ATLANTSKAUP 112Reykjavík S:533-3700. ísraelsmenn samþykkja efnahagsþvinganir , Reuters Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Israels, og Tzipi Livni, ut- anríkisráðherra, á ríkisstjórnarfundi í gær þar sem ákveðið var að hætta mánaðarlegum greiðslum til Palestínumanna. Ríkisstjórn fsraels samþykkti í gær að hætta mánaðarlegum greiðslum sem nema tugum milljóna Banda- ríkjadala til Palestínumanna, degi eftir að Hamas-samtökin tóku við stjórnartaumunum á þingi Palestínumanna. fsraelsmenn höfðu varað Palest- ínumenn við þvi að þeir kynnu að grípa til refsiaðgerða þegar Hamas- samtökin tækju við völdum. Sam- tökin hafa drepið hundruð fsraels- manna í sjálfsmorðsprengjuárásum og hafa heitið eyðingu ísraels. f gær tilnefndu Hamas-samtökin Ismail Haniyehm, þingmann frá Gasasvæðinu, sem forsætisráðherra Palestínumanna. Haniyeh er talinn leiðtogi borgaralegs arms samtak- anna og hefur góð tengsl við keppi- nautana í Fatah-hreyfingunni. Greiðslurnar nauðsynlegar Palestínumönnum fsraelsmenn innheimta um 50 millj- ónir Bandaríkjadala skattgreiðslur fyrir Palestínumenn í hverjum mán- uði. Stjórnvöld í Palestínu þurfa nauðsynlega á peningunum að halda til að geta greitt um 140.000 opinberum starfsmönnum laun. Ráðherrar í ríkisstjórn fsraels hvöttu jafnframt alþjóðasamfélagið til að halda aftur af fjárhagsaðstoð til palestínskra stjórnvalda fyrir utan mannúðaraðstoð. Þeir hvöttu þó ekki til róttækari aðgerða svo sem að einangra Gasaströnd eins og starfsmenn leyniþjónustunnar höfðu lagt til. „Þegar Hamas-samtökin eru komin með meirihluta á þingi verða palestínsk stjórnvöld í raun hryðju- verkastjórnvöld. Það samþykkja f sra- elsmenn ekki,“ sagði Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra ísraels, eftir ríkisstjórnarfund í gær. Hækka þarf lífeyrisaldur í 85 ár Bandarískur líffræðingur telur að hækka þurfi ellilífeyrisaldur þar í landi upp í 85 ár fyrir árið 2050 vegna auk- inna lífslíkna landsmanna. Shripad Tuljapurkar hjá Stanford háskóla spáði því á vísindaþingi í St. Louis í síðustu viku að meðallífslíkur fólks myndu aukast um eitt ár á hverju ári næstu tvo áratugi. Því mun fylgja mikið álag á hagkerfi í iðnríkjum ef núverandi ellilífeyrismörk verða ekki hækkuð. Tuljapurkar heimfærði spá sína um hækkun meðalaldurs upp á fjögur lönd, Bandaríkin, Kína, Svíþjóð og Indland. Hann komst að þeirri niðurstöðu að í öllum löndunum myndi hækkun meðalaldurs hafa mikil áhrif, meðal annars á efnahag og lífsstíl fólks. Tuljapurkar sagði jafnframt að veðlán til 50 eða 75 ára verði hugsanlega algeng í framtíðinni. Samkvæmt spá Tuljapurkars myndi kostnaður við almannatryggingar og heilbrigðiskerfið í Bandaríkjunum nærri tvöfaldast á næstu áratugum ef fólk fer áfram á eftirlaun 65 ára. Væru eftirlaunamörkin hins vegar hækkuð upp í 85 ár myndi kostnaðurinn haldast svipaður og hann er núna. Tuljapurkar benti jafnframt á að hætta væri á að þróunarlöndin drægjust enn frekar aftur úr iðnríkjunum þar sem minni líkur væru á hækkun meðalaldurs þar. Taktu þinn tíma ® _\_íw-:_1 _ _ - með sveigjanlegri tímastjórnun Sveigjanleiki í starfi eykur framleiðni og starfsánægju Time[care Fáðu frekari upplýsingarí síma 5 11 10 14, með tölvupósti á timecare@timecare.is eða á www.timecare.is. Vaktaskipan ehf.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.