blaðið - 20.02.2006, Síða 19

blaðið - 20.02.2006, Síða 19
- + ■ blaðið MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2006 ÝMISLEGT I 27 Nýtt stjörnukort í hverjum mánuði Stjörnuáhugamenn skoða himingeiminn og miðla þekkingu sinni. „í hverjum mánuði skoðum við stjörnurnar og gerum stjörnukort út frá því sem við sjáum,“ segir Sævar Helgi Bragason, störnuáhuga- maður og einn þeirra sem stendur að vefnum stjornuskodun.is. Stjörnufræðivefurinn er íslenskur alfræðivefur um allt sem viðkemur stjörnufræði. Að honum standa Sverrir Guðmundsson og Sævar Helgi Bragason en þeir eru miklir áhugamenn um stjörnufræði og hafa báðir kennt fagið, Sverrir í MR og Sævar í Flensborg. Stjörnufræðivefur þeirra félaga hefur vakið mikla athygli og hafa grunn- og framhaldsskólar notað hann í fræðslu en efni vefsins er vel uppsett, skipulagt og auðvelt að finna þar ýmsar upplýsingar. „Inn á vefinn setjum við upplýsingar um geimskot og sögðum frá því þegar New Horizon hóf ferð sína til Plútó í síðasta mánuði. Við erum einnig að selja sjónauka til stjörnuskoðunar í háum gæðaflokki.“ Sævar segir best að skoða stjörn- unar í heiðríkju og myrki. „Með sjón- aukanum getum við séð stjörnur í okkar sólkerfi eins og t.d. júpíter, Satúrnus og Mars ásamt skýjum í lofthjúpnum. Við getum séð hring- ina og tunglin i kringum Satúrnus og tungl Júpíters. Tunglið okkar er líka glæsilegt í stjörnukíki og það þarf ekki að vera stór kíkir til að njóta þess.“ 510-3700 510-3799 510-3744 510-3737 FRJÁLST Hægt að sjá sólkerfi myndast „Ég hef ekki trú á því að kraftar stjarn- anna hafi áhrif á okkur og stjörnu- speki fer dálítið í taugarnar á mér,“ segir Sævar og bætir við að hlutirnir séu skreyttir óþarflega mikið út frá sjónarhóli stjörnuspekinnar. Sævar segir ný sólkerfi alltaf að myndast í himingeimnum og að slíkt sé hægt að sjá í stjörnukíki. „Ég held að það sé alveg óumflýjanlegt að líf finnist á öðrum hnöttum þó svo ekki sé víst að það sé vitsmuna- líf. Ég hugsa að það gæti meira að segja fundist frumstætt líf í okkar sólkerfi en það er alveg jafn merki- legt og vitsmunalíf.“ Sævar er nemi í jarðeðlisfræði í Háskóla Islands og stefnir að því að læra reikistjörnu- fræði í framtíðinni. „Stjörnustöðvar eru á nokkrum stöðum í heiminum m.a. á 4.200 metra háu fjalli á Big Island í Hawai eyjaklasanum, á Kanaríeyjum og í Chile. Besti staðurinn til að skoða stjörnur er hátt uppi þar sem sjaldan rignir.“ Stjornduskodun.is er rekin úr vasa Sævars og Sverris en vefurinn er hýstur á vísindavefnum og því sleppa þeir félagar við þann kostnað. „I framtíðinni stefnum við að því að bæta vefinn og setja á hann hreyfi- myndir og skýringamyndir sem nýst gætu ungum nemendum.“ hugrun@bladid.net Stjörnuáhugamennirnir Sverrir og Sævar sem starfrækja stjornuskodun.is. bladió lUWi iU'wJa m

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.