blaðið - 27.02.2006, Side 18
26 I KVIKMYNDIR
MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006 blaðiö
BLÓÐBÖND KL 6-8-10:10
BLÓÐBÖND VIP KL 4-6-8-10:10
CASAN0VA KL 3:30-5:45-8-10:20
NORTH COUNTRY P VI 1 o 3
BAMBI 2 ísl. tal KL4
DERAILED KL 10:20
MUNICH KL9
PRIDE & PREJUDICE KL 8
0UVER TWIST KL 3:30
CRONICLES OF NARNIA KL 6
KING K0NG KL4
lÉlltM
BLÓÐBÖND KL 6-8-10:10
UNDERWORLD 2 KL 6-8:15-10:30
DERAILED KL 8:15-10:30
BAMBI 2 KL6
MUNICH
OLIVERIWIST
h
BLÓÐBÖND
CASANOVA
BAMBI 2 ísl. tol
KL 6-8-10 J
KL 8-10
KL6
BLÓÐBÖND KL 6-8-10:10
CASANOVA KL 5:40-8-10:20
NORTH COUNTRY KL 8
MUNICH KL 5:50-9
CACHÉ KL 10:30
PRIDE & PREJUD. KL 3-5:45-8:15
BAMBI 2 IsL tal KL6
Hostel sigrar heiminn
íslandsvinurinn Eli Roth mœtti á Evrópufrumsýningu Hostel sem haldin var í Prag í síð-
ustu viku. Fulltrúi íslands í myndinni var að sjálfsögðu á staðnum.
Blásið var til glæsilegrar gala frum-
sýningar á Hostel í höfuðborg Tékk-
lands þar sem helstu leikarar og
aðstandendur myndarinnar komu
saman. Eyþór Guðjónsson fer með
eitt burðarhlutverkið í myndinni og
var á rauða dreglinum í góðum félags-
skap Eli Roth, leikstjóra og íslands-
vinar, Barböru Nedeljakovu, Jönu
Havlickovu og hinum þekkta leikara
Tékka, Jan Vlasák. „Viðtökurnar
komu mér á óvart,“ segir Eyþór. „Það
er skrítið hvað fólk getur orðið „hype“
yfir einni bíómynd.“
„Ég verð nú að segja að umgjörðin
þarna úti kom mér á óvart, það var
búið að girða allt af, ljóskastarar lýstu
upp í himininn, rauður dregill og til-
heyrandi Hollywood „setup“. Ég get
ekki neitað því að þetta var ansi sér-
stök upplifun að lenda í þessu. Við
Eli hlógum að þessu eftir á og hann
sagði: „Núna veit ég hvernig Britney
Spears líður“ slíkur var ágangur
ljósmyndaranna.“
Eyþór Guðjónsson ásamt fríðu föruneyti á rauða dreglinum í Prag. Takið eftir að bolurinn sem Eli Roth klæðist er alíslensk hönnun
Nonna f Nonnabúð, sem og bindi Eyþórs.
Mótmælendur létu sjá sig
Þeir sem séð hafa Hostel geta verið
sammála um að í henni er dregin upp
fremur slæm mynd af Austur-Evr-
ópu. „Já, það eru ekki allir sáttir við
að landið þeirra sé sett í þennan bún-
ing og það voru t.d. mótmælendur
sem mættu með mótmælaspjöld við
forsýninguna. En Eli var reyndar bú-
inn að útskýra eins og hann gat fyrir
þeim á fréttamannafundi daginn
áður að þetta væri nú bara grin. Þess
vegna voru fjölmiðlar búnir að fjalla
ítarlega um þetta svo það risti ekki
djúpt hjá flestum."
SÆKTU LAGIÐ!
ÍXÍ/l/ltl/tO/HÍ • ■S'/>N!/'/)/'(mA.S'/o/u • A'/>/(//'(’//(//////)/>/>/•/)
/•(///////()/(»'() • /•(/// />(»'() • (/(//•// //(/()/(»'()
■•/>((•/!»// //(/()/(»'() • (///■S't///c//s// //(//)/>(»'()
/((/>(/■•»'(•////' • A/C/Z/(/'///()/(>/'() • a/(//>(//'/'('//(//'////)/(>/'()
■s/ó/'oeui/// (>/•()
Paranoid Android með Radiohead
Einfaldlega eitt besta lag í heimi af einni bestu plötu í heimi, Ok Computer.
Blaðiö treystirþvl að lesendursínirkunniskilá iögum umhöfundarrétt.
Glæsilegar lermingarveislur fyrir Htla sem stóra hópa,
hvort sem er í salarkynnum okkar eða út í bæ
Við bjóðum uppá margskonar veísluborð fyrir ferminguna.
Hatðu sambanfl og við aðstoðum pfg víð valið
GRFLinn
VEISLUÞJÓNUSTA
S.555-4477 og 555-1857 • gaflinrv - gaflinn.is • qaflinn.is
Snípurinn og frægðin
Imyndinnikemurorðiðsnípurnokkuð
oft fyrir. Er það búið að ná sömu út-
breiðslu og orðin Geysir og Saga, þ.e.
orðið alþjóðlegt og almennt?
„Nei, það taka greinilega fáir eftir
þessu. En hins vegar virðist setn-
ingin „of course my horse“ slá algjör-
lega í gegn og Eli segir mér að það sé
sama sagan í flestum löndum.“
Ertu þá orðinn frœgur?
„Nei, ég er ekki orðinn frægur - og
ætla mér það engan veginn. Ef ég
ætlaði mér að leggja þetta fyrir mig
þá þyrfti ég að rífa upp fjölskylduna,
flytja til Bandaríkjanna og fá mér um-
boðsmenn og tilheyrandi.“
Skemmtilegt œvintýri
„Ég hugsaði mér þetta alltaf sem eitt
og stakt skemmtilegt verkefni sem
sannarlega hefur orðið raunin. Það
hefur reyndar farið meiri tími i þetta
en ég áætlaði í byrjun og því hafa fyr-
irtæki þau sem ég rek aðeins setið á
hakanum. Ég er með nokkur spenn-
andi fasteigna þróunarverkefni í
gangi og svo er teiknimyndafyrir-
tækið Blue Turtle Entertainment sem
ég er eigandi að með mörg spennandi
járn í eldinum.
Þetta er búið að vera mjög skemmti-
legt og lærdómsrikt ævintýri sem ör-
ugglega á eftir að hafa ýmis ófyrirséð
hliðaráhrif sem koma seinna í ljós.
Mínu hlutverki er að mestu lokið og
myndin fer svo sína leið um dreifing-
arkerfi Sony til flestra landa heims.
Ég var til dæmis að fá fregnir af því
að Hostel hafi farið rakleitt á toppinn
í Ástralíu.“
agnar.burgess@bladid.net
Ný Natuzzi-verslun opnar
Mikið var um dýrðir þegar efnt var til hófs á föstudagskvöld í tilefni þess að ný Natuzzi-
verslun hefur verið opnuð við Askalind 2a I Kópavogi. Margt var um manninn og gestir
gæddu sér á léttum veitingum sem fram voru bornar. Hér má sjá eigendurna Unni Helgu
Pétursdóttur og Elnar Ágústsson f nýju versluninni.
Sýnt á NASA við Austurvöll
Föstudagur 3. mars - Örfá sæti laus
Föstudagur 10. mars- Laus sæti
Föstudagur 17. mars- Laussæti
Miöasala t síma 575 1550,
verslunum Skífunnar og www.midi.is