blaðið - 27.02.2006, Qupperneq 22
30IFÓLK
MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006 blaóiö
SMÁ
borgarinn
AF HAGRÆÐINGU
Smáborgarinn sat á skólabekk fyrir
nokkrum áratugum og var þá lofað af barna-
skólakennara sínum að þegar hann færi út á
vinnumarkaðinn yrði meðalvinnutimi ekki
nema sex klukkustundir á dag. Smáborgar-
inn þyrfti því mest að velta því fyrirsér hvað
hann skyldi gera við allan þann frrtíma sem
auðvitað yrði í hinni dásamlegu framtíð.
Sem barn hafði Smáborgarinn engar
áhyggjur af því, nægur var frítíminn þá og
engin vandræði að fylla hann af uppátækj-
um.
Þegar Smáborgarinn óx svo úr grasi og
hóf þátttöku á hinum almenna vinnumark-
aði var vinnutíminn þó aldrei styttri en
átta tímar. Smáborgarinn hugsaði nú að
þetta myndi breytast með auknu Evrópu-
samstarfi, varla gæti gamli bamaskólakenn-
arinn hafa haft rangt fyrir sér. En hvaða
samninga sem fsland svo sem undirritaði,
aldrei styttist vinnutíminn. Eftir því sem
árin færðust yfir Smáborgarann bættust
klukkustundirnar í vinnuvikuna. Það sem
áður var 40 stunda vinnuvika hljómar nú
eins og letilíf enda nemur meðalvinnuvika
utan heimilis á fslandi 48,5 stundum hjá
körlum og 36,4 hjá konum í dag. Það em
9,5 tímar á dag, að meðaltali, fyrir Smáborg-
arann sem vinnur til jafns á við karlmann
þrátt fyrir kynið.
Eitthvað hefur Smáborgarinn það á til-
finningunni að þessi aukni vinnutími Islend-
inga standi í beinu sambandi við hið „stór-
kostlega" efnahagsundur sem menn geta
ekki hætt að dásama og þessa undraverðu
dáðadrengi, gullkálfana góðu sem hafið
hafa viöskiptavit fslendinga til skýjanna svo
aðrar þjóðir horfa með „öfund" til klakans.
Eða það má að minnsta kosti lesa úr skrif-
um fslendinga um viðbrögð nágrannaþjóð-
anna við þessum dásemdarinnar drengjum.
Þeir taka hvert fyrirtækið á fætur öðru og
kreista úr því hagnaðinn eins og safá úr
appelsínu við ærandi fagnaðarlæti þjóðar-
innarog hjörtun þrútna afstolti.
Smáborgarinn er orðinn svolitið leiður
á þessum hástemmda lofsöngi um hag-
ræðingarn eistarana enda virðist honum
sem aðalsafinn komi úr honum sjálfum. Að
smumingin í hagnaði stórfyrirtækjanna sé
ekkert annað en síaukið blóð, sviti og tár
verkalýðsins sem sífellt er bætt á aukinni
vinnu og fleiri vinnutímum fyrir síhækk-
andi hagnaðartölur. Að minnsta kosti hefur
framtíðarspá gamla barnaskólakennarans
lítið ræst og Smáborgarinn aldrei haft nein-
aráhyggjuraf þvíhvað hann gerirviðfritfm-
ann.Hann erenginn.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Björgvin G. Sigurðsson, alþingismaður.
Eru íslenskir háskólar lélegir??
„Nei íslenskir háskólar eru góðir. En til að þeir fari í fremstu röð í heimin-
um þarf að veita til þeirra miklu hærra fjármagni þannig að við stöndum
að pari við þá háskóla sem að bestir eru.“
Enginn íslenskur háskóli er meðal þeirra 100 bestu í heiminum er fram kom f ræðu rektors Háskóla fslands við útskrift háskóla-
kandídata á laugardaginn.
Eminem í aðhaldi
Rapparinn kjaftfori Eminem kom sjálfum sér á óvart þegar hann
horfði á upptökur af Grammy-verðlaunahátíðinni um daginn. Það var
þó ekki frammistaða rapparans sem kom honum á óvart heldur hversu
þungur hann er orðinn.
„Ég líkist ekkert sjálfum mér,“ galaði Eminem og hringdi strax í
stjörnu einkaþjálfarann Todd Barker, sem mun kosta hann um 100.000
krónur á mánuði. Todd þessi er einnig þekktur fyrir að vera maðurinn
sem valinn var til að grenna söngkonuna Janet Jackson áður
næsta plata hennar kemur út.
Stœrðfrœðin of erfið i dag
David Beckham hefur aldrei verið talinn vaða í visku og gáfum. Það sannaði sig svo um
munar um daginn þegar hann lýsti því yfir að hann gæti ekki hjálpað sex ára syni sínum
með heimaverkefni í stærðfræði.
„Heimavinna krakkanna er svo erfið í dag,“ sagði Beckham í viðtali við tímaritið
Live. „Það er allt öðruvísi en þegar ég lærði stærðfræði, ég bara gat ekki hjálpað
honum.“
Beclcham sem vonast til að leiða Englendinga til sigurs á HM í sumar sagðist
hafa beðið eiginkonu sína, Victoriu Beckham, að hjálpa syninum í staðinn.
Tilnefndir til
Nóbelsverðlauna
Eftirlaunarolckararnir Sir Bob Geldof og söngvari U2, Bono, eru tilnefndir til
Nóbelsverðlauna í ár fyrir störf sín i þágu mannúðarmála.
Geldof er tilnefndur fyrir að standa að Live 8 tónleikunum í fyrra en þeir þóttu
takast gríðarlega vel og flestir af vinsælustu tónlistarmönnum heimsins komu
fram við mikinn fögnuð.
Bono er tilnefndur fyrir ýmis störf í þágu góðgerðarmála um allan heim en hann
hefur eitt ómældum tíma og fjármagni í baráttu sinni fyrir betri heimi.
Orðrómur er um að spjallþáttadrottningin Oprah Winfrey sé einnig tilnefnd en
það hefur ekki fengist staðfest.
HEYRST HEFUR...
Pó kosninga-
baráttan fyrir
sveitarstjórnar-
kosningarsévarla
farin af stað eru
stjórnmálatækn-
ar Iandsins þegar
farnir að huga að þingkosning-
um vorið 2007. Prófkjör sjálf-
stæðismanna í Suðurkjördæmi
gæti t.d. orðið mun líflegra en
nokkurn óraði fyrir, því er að
Árni Johnsen, sem hrökklaðist
af þingi um árið, sé staðráðinn
í því að gefa kost á sér og freista
þess að hreinsa nafn sitt með
þeim hætti...
Orkuveita
Reykjavíkur
hefur auglýst eft-
ir upplýsingafull-
trúa án þess að
vitað sé til þess
að fararsnið sé á
Helga Péturssyni, sem þangað
kom úr Ráðhúsinu þegar hann
þreyttist á stjórnmálavafstrinu
þar. Er þar tiltekið að viðkom-
andi þurfi að hafa reynslu af
upplýsingagjöf, fjölmiðlun, op-
inberri stjórnsýslu og pólitískri
ákvörðunartöku. Er talað um
að hæfniskröfurnar séu sér-
sniðnar að Eiríki Hjálmarssyni,
aðstoðarmanni borgarstjóra,
og segja sigurvissir sjálfstæðis-
menn að flóttinn úr Ráðhúsinu
sé hafinn fyrir alvöru...
Guðni Ágústsson, landbún-
aðarráðherra, skemmti
gestum á gala-
kvöldi Food and
Fun með íslensk-
um kímnisögum,
þó erlendir gestir
muni hafa haft
takmarkað gaman
af hálftímalöngu erindi Guðna.
Mestan hlátur eyjarskeggja
vakti saga Guðna af meintri
geðveiki Davíðs Oddsonar, en
þeir félagar voru samferða á
fund um daginn, sem skáldið
og stjórnmálaskýrandinn Hall-
grímur Helgason lýsti efasemd-
um um geðheilbrigði þáverandi
forsætisráðherra í Fréttablað-
inu. Guðni sagði kollega sínum
af innihaldi greinarinnar og
svaraði Davíð til: „Nei, sagði
hann það strákhelvítið! En það
er reyndar rétt að ég hef velt
þessu fyrir mér líka...“
Annars hafa Islendingar gert
kræsingum erlendu mat-
reiðslumeistaranna góð skil og
upppantað á öllum veitingastöð-
um. Þó menn hafi almennt ver-
ið sammála um að íslendingum
sé fengur í þessum heimsókn-
um voru ekki allir eins sáttir
við skammtastærðirnar og ein-
hverjir gestir kvörtuðu undan
því að fara svangir heim...
Djúpt úr iðrum Valhallar
heyrast sögur af hreinsun-
um að Davíð Oddssyni gengn-
um. Segja menn að hin nýja
forysta íhaldsins
láti ekkert með
gamla kjarnann
í kringum for-
vera Geirs H. Ha-
arde. Líkja sumir
ástandinu við ein-
elti og herma til
dæmis að þó Kjartan Gunnars-
son sitji enn sem framkvæmda-
stjóri flokksins hringi síminn
varla lengur og allra síst úr
utanríkisráðuneytinu. Velta
menn mjög vöngum hvort inn-
an Sjálfstæðisflokksins hefjist á
ný flokkadrættir á borð við þá,
sem voru við það að ganga af
honum dauðum áratuginn áður
en Davíð kom til sögunnar...