blaðið - 06.03.2006, Page 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 blaðið
c r a
ugu
A halum ís
Kuldakast síðustu daga hefur skapað aðstæður til skautaiðkunar á Tjörninni, þó viðbúið sé að það breytist á næstu dögum með hækk-
andi sól. Vetrarólympíuleikarnir í Tórínó hafa vafalaust orðið þessum krökkum tilefni til innblásturs þegar þau fótuðu sig á sveilinu.
„Alveg nýtt að setja málið
f ram með þessum hættiv'
Bœjarstjóri Hafnarfjarðar segist ekki hafa heyrtað stjórnendur Alcan
hyggist leggja álverið í Straumsvík niður, verði það ekki stœkkað.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafn-
arfirði, segir að hugmyndir í þá
veru, að álver Alcan í Straumsvík
verði lagt niður fáist ekki heimild til
stækkunar, hafi aldrei borist inn á
borð bæjaryfirvalda.
„Það er alveg nýtt að heyra menn
setja málið fram með þessum hætti,“
segir hann. Að sögn bæjarstjórans
hafa menn hins vegar gert sér grein
fyrir því að öll umræða um stækkun
álversins snúist um það hvort starf-
semin verði þarna til framtíðar.
Hann segir ljóst að iðnaðarsvæði
verði þarna eftir sem áður, hvort
sem álverið stækki eða fari. „í aðal-
skipulagi bæjarins síðustu árin og
áratugina og í því skipulagi sem nú
er verið að vinna sem gilda á til árs-
ins 2025 er gert ráð fyrir því að þetta
svæði við Straumsvíkina sé okkar
iðnaðar- og atvinnusvæði og fram-
tíðar hafnarsvæði.“
Fjörtíu fótboltavellir
„Það er mikil eftirspurn eftir atvinnu-
lóðum hér hjá okkur og höfum við
á síðustu vikum og mánuðum út-
hlutað um 300 þúsund fermetrum
af atvinnulóðum." Til samanburðar
má nefna að á því svæði mætti koma
fyrir hátt í 40 fótboltavöllum. „Við
eigum mikið af góðu atvinnusvæði
þarna og það mun ekkert breytast."
Lúðvík segir að bæjaryfirvöld séu í
stöðugum viðræðum við Alcan og
hann bendir á að öll stóru málin í
sambandi við fyrirhugaða stækkun
séu ókláruð. „Það er ekki búið að
afgreiða deiliskipulagið, það er ekki
komið endanleg ákvörðun varðandi
starfsleyfið frá umhverfisráðuneyt-
inu og því eru enn mjög margir
endar óhnýttir í þessu máli.“
íbúarnir með úrslitavaldið
Lúðvík áréttar að á endanum verði
það íbúar bæjarins sem komi til
með að ákveða hvort stækkun álvers-
ins verði heimiluð. „Við ákváðum
það í upphafi kjörtímabilsins að öll
stærri mál er varða hagsmuni bæj-
arbúa fari í atkvæðagreiðslu. Þetta
er sannarlega eitt af þeim málurn,"
sagði Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í
Hafnarfirði.
4RHOLL
Gleraugnaverslun
Reykavíkurvegur 22
220 Hafnarfírði
565-5970
Ekki meira um vopnaburð í borginni
Eigandi Glaumbars segir afogfrá að vopnaburður sé að aukast. Varðstjóri hjá lögreglunni
tekur undir það ogsegirþað einstakt tilvik að tveir menn hafi verið stungnirsömu helgina.
Fallegar
umgjarðir
Tveir menn urðu fyrir því að vera
stungnir með hnífi um helgina í mið-
bænum. 1 kjölfarið hefur sprottið
upp umræða þess efnis að vopna-
burður sé að aukast og í fréttum í
gær var haft eftir Geirjóni Þórissyni
hjá lögreglunni að stefnt væri að
því að auka samstarfið við eigendur
skemmtistaða.
Steinar Sigurðarson, eigandi
skemmtistaðarins Glaumbars, seg-
ist ekki merkja aukinn vopnaburð á
BiaomtemarHugi
Hnífstungan aðfaranótt sunnudagsins átti sér stað fyrir utan Listasafn Reykjavikur.
fíkniefni inni á staðnum en þegar
hann hafi haft samband við lögregl-
una vegna þess hafi hann fengið þau
svör að lögreglan hafi ekki tíma eða
fjárráð til þess að sinna því.
„Við hendum út um það bil tíu
manns á hverju kvöldi fyrir fíkni-
efnanotkun. Maður er að reyna að
berjast gegn þessu eins og maður
getur og þess vegna er afar leiðin-
legt að heyra fréttir af staðnum
um að hann tengist svona málum á
einhvern hátt.“ Að sögn Steinars er
langstærsti hluti þeirra sem sækja
staðinn „heiðvirt fólk sem einungis
kemur til þess að skemmta sér.“
Sérstakar uppákomur
„Frá mínum bæjardyrum séð finnst
mér þessar tvær uppákomur vera
alveg sérstakar," segir Sveinn Er-
lendsson, varðstjóri hjá Lögregl-
unni í Reykjavík. Hann segist ekki
meta það sem svo að hnífstungur
og vopnaburður almennt sé að auk-
ast. „Eg held að það sé einstakt að sjá
þetta svona tvo daga í röð.“
Aðspurður hvort lögreglan muni
grípa til einhverra sérstakra að-
gerða vegna þessa segir hann það
vera í verkahring yfirlögregluþjóna
embættisins að ákveða það og sagð-
ist Sveinn gera ráð fyrir að þeir
komi saman í dag til þess að ræða
þessi mál. Að öðru leyti var helgin
erilsöm fyrir lögregluna að sögn
Sveins.
meðal fólks í miðbænum um helgar.
Hann segist ósáttur við fréttaflutn-
ing af hnífstungunni aðfaranótt
sunnudagsins, en í fréttum í gær var
sagt frá árásinni á þann veg að hún
hafi átt sér stað fyrir utan Glaum-
bar. „Þetta gerðist hérna í götunni,
fyrir utan Listasafn Reykjavíkur,
eftir lokun hjá okkur.“ Steinar segir
atvikið því ekki tengjast skemmti-
staðnum á nokkurn hátt.
Fíkniefnalögreglan fjársvelt
Að sögn Steinars er ekkert meira um
vopnaburð í miðbænum nú en verið
hefur síðustu ár. Hann segir þetta
vera fámennan hóp manna sem
tengist fíkniefnum sem þekktir eru
fyrir að bera vopn. „Fíkniefnalög-
reglan hefur einfaldlega ekki nægt
fjármagn til þess að takast á við þau
fíkniefnamál sem koma upp hér í
borginni. Það er allt of mikið um
fíkniefni hér og því fylgir einfald-
lega að sumir eru vopnaðir." Hann
segir þá sem standa í skemmtistaða-
rekstri í miðbænum ekki verða varir
við aukinn vopnaburð almennt.
„Þetta tíðkast innan þessa hóps,
sem ætti að vera búið að tækla fyrir
löngu síðan á þessu pínulitla landi
sem ísland er. Það er mér algjörlega
óskiljanlegt að það sé ekki hægt að
kippa þessum mönnum úr umferð.“
Flestir einungis að skemmta sér
Steinar segir það hafa iðulega komið
fyrir að menn hafi orðið varir við
---
.............-..........:
u
J
'I
u
Frá 39*696 kr.
Margar brottfarir í júrri og
ágúst að seljast upp
frá 39.696 kr.
Netverð á mann með 10.000 kr.
afslætti, m.v. hjón með 3 börn,
2-11 ára, vikuferð 18. eða 25. maí.
Castte Beach íbúðahótelið.
Heimsferðir
Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • Simi 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyrí sími: 461 1099 • Hafnarfjöróur sími: 510 9500
Enn á gjör-
gæsludeild
mbl.is | Maðurinn sem slasaðist
er hann ók vélsleða sínum fram
af snjóhengju á Langjökli í fyrra-
dag var í gær að sögn vakthaf-
andi læknis ennþá í öndunarvél
á gjörgæsludeild Landspítala-há-
skólasjúkrahúss í Fossvogi.
Maðurinn ók sleða sínum
fram af um 40 metra hárri snjó-
hengju í fyrradag. Hann var með
meðvitund þegar hjálp barst og
kvartaði hann undan áverkum á
baki og í brjósti.