blaðið - 06.03.2006, Page 18
30 I ÍPRÖTTIR
MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 blaðiö
Tók Edgar Davids létt í bekkpressu
Emil Hallfreðsson er í hópi efnilegustu knattspyrnumanna íslands. Björn Bragi Arnarsson ræddi við hann um lífið í
atvinnumennskunni ogfræddist um dvölina hjá Tottenham, framtíðarhorfur hans hjá Malmö og íslenska landsliðið.
Óhætt er að telja Emil Hallfreðsson
einn af allra efnilegustuknattspyrnu-
mönnum íslands. Emil var einn af
- burðarásum FH þegar liðið vann
sinn fyrsta íslandsmeistaratitil sum-
arið 2004 og varð góð frammistaða
hans með Fimleikafélaginu til þess
að enska stórliðið Tottenham Hot-
spur fékk hann í sínar raðir. Emil
er nú á lánssamningi hjá Malmö í
Svíþjóð og fyrir viku siðan lék hann
í fyrsta sinn í byrjunarliði íslenska
landsliðsins.
Emil steig fyrstu spor sín á knatt-
spyrnuferlinum í búningi Hauka
en í 5. flokki gekk hann til liðs við
nágrannaliðið FH og segir hann það
— hafa breytt öllu fyrir feril hans. „Þá
komst ég í umhverfi þar sem ein-
hver alvara var í þessu og allt gekk
út á að vinna titla. Enda varð minn
árgangur mjög sigursæll upp alla
yngri flokkana," segir Emil og tekur
fram að góðan árangur FH að und-
anförnu megi að mörgu leyti þakka
góðri þjálfun hjá yngri flokkunum
og hversu vel sé haldið utan um
unglingastarfið.
Aðspurður hvort hann hafi lagt
harðar að sér en aðrir við æfingar
segir hann að margir í hans flokki
hafi verið öllum stundum í fótbolta
og haft þvílíkan metnað. „Ætli
ég hafi ekki lagt aðeins harðar að
mér en sumir. Aukaæfingin skapar
meistarann."
Eignaðist góða vini hjá Tottenham
Emil segir það hafa verið tals-
verð viðbrigði að halda einn út í
atvinnumennskuna í hinum stóra
heimi. „Þarna var maður kominn
til Englands í bestu deild í heimi,
til stórliðs þar sem maður æfði dag-
lega með góðum leikmönnum við
frábærar aðstæður. Síðan voru auð-
vitað mikil viðbrigði að fara að búa
einn og þurfa að gera allt á heimil-
inu sjálfur, eins og að þvo þvottinn,
vaska upp, þrífa klósettið, elda og
allur sá pakki. Það var náttúrlega
engin mamma.“
Hann segir móttökurnar hjá Tot-
tenham hafa verið eins og best var
^ á kosið. „Það var tekið alveg frábær-
lega á móti mér og allt gert til þess
að láta manni líða vel. Það var t.d.
einn maður i fullu starfi við það að
hjálpa útlendingunum að koma sér
fyrir. Það var alltaf hægt að tala við
hann ef maður átti í vandræðum
með eitthvað.“
Emil segir að liðsandinn hjá Tot-
tenham hafi verið mjög góður. Á
æfingasvæðinu hafi allir verið með
öllum og oftast hafi myndast þar
góð stemning, en utan þess hafi
leikmenn ekki haft sérlega mikil
samskipti. Þó hafi honum orðið vel
Emil Hallfreðsson á harða spretti í leik með fslandsmeisturum FH sumarið 2004.
til vina við nokkra þeirra. „Ég var
t.d. mikið að hanga með Svía að
nafni Erik Edman og ungverskum
strák sem heitir Marton. Þeir eru
báðir mjög nettir og ég held ennþá
sambandi við þá. Einnig urðum við
Teemu Tainio ágætis kunningjar."
Aðspurður um gott slúður úr her-
búðum Tottenham segir Emil stoltur
að helst beri að nefna að hann hafi
unnið hollensku stórstjörnuna
Edgar Davids í bekkpressukeppni.
„Síðan vorum við Edgar, Ledley og
Jermaine stundum... nei, alveg
rólegur.“
Skref upp á við að fara til Malmö
Emil segist á heildina litið sáttur
með fyrsta árið sitt í atvinnumennsk-
unni. „Ég lærði mjög margt en mér
fannst þó kominn tími á að breyta
til og fara á lán til liðs þar sem ég
fengi að spila fleiri alvöru leiki sem
skipta máli. Mér fannst það nauð-
synlegt til þess að halda áfram að
bæta mig og einnig til þess að eiga
möguleika á því að komast í A-lands-
liðið," segir Emil
„Mér var búið að ganga mjög vel
með varaliðinu á þessu tímabili
og var að fá ágætis hrós frá góðum
mönnum. En ég var farinn að sjá að
ég væri ekki mikið inni í myndinni
þetta árið, enda erfitt að komast í
liðið þegar því gengur svona svaka-
lega vel. Þess vegna ákvað ég að
breyta til því það er auðvitað mikil-
vægt að fá að spila þegar maður er
svona ungur.“
Áhugi Malmö kviknaði eftir 4-1
LENGJAN
LEIKIR DAGSINS
Spilaðu á næsta sölustað eða á lengjan.is
sigur U-21 árs landsliðsins á því
sænska í október þar sem Emil fór
mikinn og lagði upp þrjú af mörkum
liðsins. Um áramótin gekkhann svo
til liðs við Malmö á lánssamningi.
„Mér hefur líkað mjög vel frá því ég
kom hingað. Ég er nýkominn með
íbúð og er svona að byrja að koma
mér almennilega fyrir. Undirbún-
ingstímabilið er í fullum gangi og
hefur verið alveg hrikalega erfitt en
jafnframt skemmtilegt,“ segir Emil
en á erfitt með að bera saman hvort
honum líki betur hjá Malmö eða
Tottenham.
„Ég er þó sannfærður um að þetta
hafi verið skref upp á við fyrir knatt-
spyrnuferillinn minn þar sem ég
mun spila fleiri alvöru leiki hérna
og var orðinn leiður á þessum vara-
liðsleikjum hjá Spurs,“ segir Emil,
en hann telur stöðu sína hjá Malmö
nokkuð góða. „Þetta er allt undir
mér komið, ég þarf auðvitað að berj-
ast fyrir sæti mínu i liðinu eins og
allir aðrir. Þetta er bara spurning
um að standa sig og þá heldur maður
sæti sínu í liðinu.“ Áð öllu óbreyttu
snýr Emil svo aftur til Tottenham
þegar sænska tímabilinu lýkur og
þá á hann hálft ár eftir af samningi
sínum við liðið.
Getur orðið einmanalegt
Aðspurður hvort nóg sé fyrir
stafni þegar frí gefst frá knatt-
spyrnunni segir Emil að lífið geti á
köflum orðið helst til rólegt. „Eg get
ekki sagt að ég hafi haft neitt svaka-
lega mikið fyrir stafni þegar ég var í
Englandi og þá var ég mikið bara í
rólegheitum. Þetta er aðeins skárra
hérna í Svíþjóð þar sem allt er miklu
nær mér. Ég er kominn niður í
miðbæ eftir fimm mínútur en í Eng-
landi tók það mig einhverjar 45 mín-
útur að komast þangað. í London er
líka allt miklu stærra og það gerir
manni erfiðara fyrir að nota daginn
almennilega,“ segir Emil.
„Auðvitað koma stundir inn á
milli þar sem maður verður hálf
einmana en það fylgir þessu bara.
Þetta verður öðruvísi þegar maður
er kominn með konu upp á arm-
inn,“ segir piparsveinninn Emil og
bætir við í léttum tón að hann hafi
aðeins verið að skoða markaðinn að
undanförnu.
Skömmu eftir komuna til Sví-
þjóðar tók Emil upp á því að fara
að æfa samkvæmisdansa. „Ég fæ
útrás í danssalnum. Ég fór í dans-
inn til þess að finna minn innri
mann,“ segir hann með dulúð, en
segist efast um að hann muni leggja
knattspyrnuna á hilluna og snúa sér
alfarið að dansinum. „En það er al-
veg hugmynd að hella sér út í þetta
eftir þrítugt, finna sér dansfélaga og
verða svo fslandsmeistari í flokki 40
ára og eldri.“
Eyjólfur mun ná langt
með landsliðið
Emil lék sinn annan landsleik
gegn Trínidad og Tóbagó á dög-
unum og var hann einn af fimm
leikmönnum sem fengu að spila
allan leikinn. „Jolli var bara nettur
og valdi mig. Eigum við ekki bara að
segja að ég hafi alveg eins átt von á
því,“ segir Emil, en segir ekki hægt
að svara því hvort hann sé búinn
að vinna sér fast sæti í landsliðinu.
„Það er náttúrlega stefnan að spila
eins marga leiki og ég get fyrir þjóð
mína. En ég held að það eigi enginn
öruggt sæti í neinu landsliði, þetta er
bara undir því komið hvort maður
stendur sig.“
Emil kveðst vera ánægður með
að Eyjólfur hafi verið valinn til þess
að taka við landsliðinu. „Ég er mjög
sáttur með Jolla. Ég var náttúrlega
með hann hjá U-21 árs liðinu og þar
reyndist hann mér mjög vel. Hann
veit nákvæmlega hvað hann er að
tala um þegar kemur að boltanum
enda er hann eldri en tvævetur í
bransanum. Ég hef trú á því að með
hans áherslum eigi íslenska lands-
liðið eftir að bæta sig verulega og
gera góða hluti,“ segir Emil.
Hann segir sina skoðun vera að
landsliðið sé í mjög góðum málum.
„Þrátt fyrir að við séum lítil þjóð
eigum við fullt af góðum fótbolta-
mönnum sem eru að gera það gott
um alla Evrópu. Ég held að á góðum
degi eigum við möguleika á því að
ná góðum úrslitum við allar þjóðir,“
segir Emil.
bjorn@bladid.net
Tvíeyki frá Lille til United?
Slavia Prag - Sigma Olomouc 1,45 3,10 4,25
Freiburg -1860 Miinchen 1,75 2,80 3,15
Montpellier - Séte 1,30 3,50 5,15
Albinoleffe - Atalanta 2,35 2,60 2,30
Cleveland - Detroit
Denver - Milwaukee
Golden State - Utah
Stuðlar mánudag
Stuðlar mánudag
Stuðlar mánudag
Mathieu Bodmer og Jean Makoun,
miðvallarleikmenn franska liðsins
Lille, hafa verið sterklega orðaðir
við nýkrýnda bikarmeistara Manc-
hester United. Rauðu djöflarnir eru
sagðir hafa reynt að fá hinn 23 ára
gamla Bodmer til sín í janúar en
ekki haft erindi sem erfiði. Áhug-
inn á Makoun, sem er 22 ára, kvikn-
aði hins vegar nýlega og nú gengur
sú saga fjöllum hærra að franska
parið sé efst á óskalista liðsins fyrir
sumarinnkaupin.
„Það er ákvæði í samningnum
mínum sem gerir mér kleift að fara
fyrir 5,5 milljónir punda,“ staðfesti
Bodmer við News of the World í gær
og tók fram að hann vissi að United
hefði áhuga á sér. „Umboðsmaður
Jean Makoun Mathieu Bodmer
minn hefur fundað með þeim og ég
veit að þeir vilja fá mig fyrir næsta
tímabil,“ sagði Bodmer.
Talið er að Lille muni neyðast til
þess að selja leikmennina af fjárhags-
legum ástæðum takist liðinu ekki
að tryggja sér sæti í Evrópukeppni
meistaraliða.
Ronaldinho fagnar marki í leik gegn De
portivo La Coruna um helgina.
Hefurengan
áhugaáChelsea
Brasilíumaðurinn Ronaldinho
hefur neitað því að hann muni
ganga til liðs við Englandsmeist-
ara Chelsea frá Barcelona í sumar
fyrir metupphæð. Slúðurblöð
víða um heim hafa ítrekað haldið
því fram en tannstóri snilling-
urinn segist hlæja að þessum
fregnum. „Ég veit að Chelsea vill
fá mig en þetta er einfaldlega lið
seam ég hef engan áhuga á að
spila fyrir,“ sagði Ronaldinho.
Barcelona atti kappi við
Chelsea í 16-liða úrslitum meist-
aradeildarinnar á dögunum og
gramdist Ronaldinho hversu
grófir þeir voru. „Þeir reyndu
alltaf að sparka í fæturnar á
mér áður en þeir gerðu atlögu
að boltanum. Svona leikstíll
heillar mig ekki,“ sagði Ron-
aldinho sem þurfti að sleppa
vináttulandsleik vegna meiðsla
sem hann hlaut í leiknum.
Mohamed Sissoko borinn sárþjáður af
velli í leik Liverpool gegn Benfica.
Sissokoekkií
skurðaðgerð
Mohamed Sissoko, miðju-
maður Liverpool, þarf ekki að
gangast undir skurðaðgerð á
auga eins og óttast var. Sis-
soko fékk spark í andlitið í
meistaradeildarleik liðsins við
Benfica á dögunum og hlaut
alvarleg meiðsli á hægra auga.
„Ég hitti skurðlækninn í
vikunni og hann er bjartsýnn á
að ég muni ná að jafna mig að
mestu þó að sjónin á auganu
verði aldrei 100%. Ég er staðráð-
inn í að ná að leika annan leik
með liðinu á þessu tímabili en ég
er þó tilneyddur til þess að hvíl-
ast í minnst tvo mánuði,“ sagði
Sissoko við vefsíðu Liverpool.
„Ég hef aldrei í lífinu verið eins
hræddur og þegar þetta gerðist.
Læknir í Lissabon sagði að það
væri mikil hætta á að ég myndi
missa sjón á auganu og ég óttað-
ist að þetta þýddi endalok ferils
míns,“ sagði Sissoko sem er hins
vegar allur að braggast. „Ég er
farinn að geta opnað augað en
ég sé ennþá mjög óskýrt," sagði
hann og bætti við að í samráði
við stjórann Rafael Benitez hefði
hann ákveðið að taka sér frí og yf-
irgefa England um stundarsakir.