blaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 11
blaöiö
MANUDAGUR 6. MARS 2006
FORMÚÍ&ÍN \ ¥5
Besti kappaksturs-
ökumaður í heimi
Langar þig til að
vera á staðnum?
Hvernigvœri að láta draum-
inn rætast og skella sér til
Bahrain til að horfa áfyrstu
keppnina í ár?
Hér er dæmi um ferðaáætlun:
Flogið til London miðvikudaginn
8. mars kl. 17:00. Lent kl. 20:00 um
kvöldið. Stutt snarl á flugvellinum
og svo rokið frá London til Bahrain
með Golf Air kl. 22:00. Lent 07:30
að morgni 9. mars. Flugið tekur sex
klukkustundir.
Þegar lent er í Bahrain er gott að
taka einn dag í að slaka aðeins á og
jafna sig eftir flugið. Svo er farið í
sturtu og stutt skoðunarferð tekin
um borgina Manama. Slakað á um
kvöldið og kröftum safnað fyrir
næsta dag. Hasarinn tekinn með
trompi yfir helgina:
Fyrstu æfingar eru á föstudeg-
inum frá 11-12, næstu sama dag
milli 14-15- Á laugardeginum er
aftur æft milli 11 og 12 en svo hefst
keppnin sjálf klukkan 14:30 á
sunnudeginum.
Mánudaginn 14. mars er haldið
frá Bahrain til London kl. 01:55. Lent
í London klukkan 06:35 um morg-
uninn. Hangið á flugvellinum til
hádegis, en þá er tékkað inn í vélina
til íslands sem fer í loftið klukkan
13:00. Lent í Reykjavík kl 16:00
Verð alls 90.000 fyrir einn
Svo má alls ekki klikka á því að taka
réttu græjurnar með. Til dæmis bol
með mynd af liðinu þinu. Hatta,
fána, regnhlíf (þó að það sé ólíklegt
að maður þurfi á henni að halda),
ferðatölvu, svo hægt sé að blogga
um allt sem verið er að upplifa, og
síðast en ekki síst, góða myndavél
til að gera þessa ferð ógleymanlega.
Hótel má meðal annars finna á
www.globebookings.com.
Suzuki Swift er bíll sem hefur sett ný viðmið i hönnun, útliti og aksturseiginleikum fólksblla
og hefur fengið fádæma góðar viðtökur um allan heim. Suzuki Swift var valinn bill ársins á fslandi 2006
af BIBB samtökum fsienskra bilablaðamanna. Suzuki Swift var einnig valinn „Car of the Year" 2005
af virtasta bilablaði Bretlands „Car magazine".
Hann var valinn bill ársins á Irlandi, Nýja-Sjálandi, Astraliu, Kina, Malasiu og Japan.
f Japan fékk Suzuki Swift líka „most fun special special achievement award" og „Design award of the year".
$ SUZUKI
...er lífsstíll!
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17. Sími 568 5100.
www. suzukibilar. is
Þýski kapp-
inn Micheal
Schumacher
er talinn
vera besti
kappakstur-
sökumaður í
heimi. Þrátt
fyrir tilfinn-
ingarþrung-
inn ósigur
hans í fyrra
er hann enn
sá ökumaður
Micheal Schumacher. sem hefur
náð bestum
árangri í keppninni. Sumir vilja
líkja honum við Juan Manuel Fangio
sem var atkvæðamikill á sjötta ára-
tug síðustu aldar en hann er eini
ökumaðurinn, utan Schumacher,
sem hefur unnið Formúluna fimm
sinnum. Schumacher sjálfur vill
þó ekki kannast við þennan saman-
burð en árið 1995 varð hann yngstur
til að hafa unnið Formúluna tvisvar
sinnum.
Sjö sinnum sigurvegari
Það er langt frá því að vera einu
skiptin sem Schumacher hefur
unnið Formúluna því hann sigraði
líka keppnirnar árið 2000, 2001,
2003 og 2004. Þessi undraverði ár-
angur segir meira en mörg orð. Árið
2004 hafði Schumacher tryggt sér
sigur áður en keppni lauk en með
því vann hann Formúluna í sjöunda
sinn. Það gerði hann með því að
verða í 2. sæti í Belgíu og fékk því
nægilega mörg stig til að standa
uppi sem sigurvegarinn í keppninni.
Sú keppni var auk þess 700. keppni
Ferrari.
Hættur?
Auk þess ku Schumacher vera hæst
launaði ökumaður í heimi en hann
þénar tæpa tvo milljarða á ári. Yngri
bróðir hans, Ralf Schumacher, varð
þriðji hæst launaði ökumaður í
Formúlunni árið 1999 þegar laun
hans voru hækkuð í tæplega milljarð.
Undanfarið hefur sá orðrómur verið
uppi að Michael Schumacher muni
hætta að keyra eftir Formúlu þessa
árs og stofna sitt eigið lið. Þessi orð-
rómur hefur ekki verið staðfestur
en ljóst er að eftir tap í fyrra þá vill
Schumacher kannski hætta á meðan
hann er enn á toppi ferilsins.
Sólin hætti aö skína hjá Micheal Schumacher í fyrra en tímabilið var honum vonbrigði..
í
I
I
The leading British magazine Car came in the January 2006 to the same condusion as so many other judging paneis:
.
FOR THE 2005 CAR OF THE YEAR:
ALFA ROMEO 159 LEXUSRX400H JAGUARXJD
RANGE ROVER SPORT HONDA CMC
BMW 3-SERIES SUZUKISWIF RENAULT CLIO
TOYOTA AYGO MERCEDES BENZ SCLASS
v:' , 7'