blaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 4

blaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 4
MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 blaAÍÖ Margar léttar leiöir til að eignast nyjan bíl LÝSING Suðurlandsbraut 8 108 Reykjavík s: 540 1500 www.lysing.is Franck Montagny Montagny hættur hjá Renault Fyrrum reynsluökumaður Rena- ult, Franck Montagny. hefur skrifað undir samning við liðið Super Aguri um að vera þriðji ökumaðurinn í opnunarkeppni Formúlu 1 í ár. Montagny eyddi þremur tímabilum hjá Rena- ult áður en Heikki Kovalainen leysti hann af hólmi. Montagny verður í viðbragðsstöðu fyrir Super Aguri í Bahrain og Mal- asíu ef annað hvort Takuma Sato eða Yuji Ide forfallast. SANTANA IVI O T O fl Til sölu nýir Santana 300 Tdi Sport. Harð-Top Verð aðeins: Kr: 2,235,000,- Varahlutir ehf Smiðjuvegur 4 A Kópavogi Sími 587-1280 Það er af sem áður var að Formúlubílar litu svona út en þetta er Porsche 804.1 dag er loftaflfræði heilmikið notuð til að hanna kapp- akstursbilana enda er meginmálið að ná sem mestum hraða. Loftaflsfrœði er lykillinn að fullkomnum Formúlubíl Formúlubílar eiga lítið sameiginlegt með venjulegum bílum enda eyða lið gríðarlegum fjármunum í rannsóknir ogþróun ár hvert. 18 I FORMÚLAN vdo • IS VDO Verkstæðið ehf. - Borgartúni 36 - s:58 Nútímalegur bíll í Formúlu 1 kappakstrinum á jafn mikið sameiginlegt með þotu og hann á með venjulegum bíl. Loftafls- fræði er lykillinn að velgengni í íþróttinni og lið eyða milljónum króna í rannsóknir og þróun á ári hverju. Það er helst tvennt sem loftaflsfræðingurinn hefur áhyggjur af. Hann þarf að skapa afl sem ýtir dekkjunum niður á brautina auk þess sem hann þarf að lágmarka áhrif mótvinds sem hægir á bílnum. Nokkur lið í Formúlunni próf- uðu sig áfram með svokölluðum vængjum í kringum sjöunda ára- tuginn en núna eru þessir vængir vel þekktir. Vængir kappaksturs- bíls virka svipað og vængir flug- véla. Loftið flæðir yfir tvær hliðar vængsins á mismunandi hraða og þetta skapar mismunandi þrýst- ing, eðlisfræðileg regla sem er þekkt undir nafninu Bernoulli's Principle. Þegar þessi þrýstingur reynir að ná jafnvægi þá reynir vængurinn að hreyfa sig í átt að lágþrýstingnum. Flugvélar nota vængi til að lyfta sér á loft en kappakstursbílar nota vængina til að þrýsta dekkjunum á brautina. Nútímalegur Formúlubíll getur skapað afl sem er þrisvar sinnum meira en þyngd bilsins. Fræðilega séð gætu Formúlubílarnir því ekið öfugir á miklum hraða. Bfll sem er eins og vængur Áður fyrr ollu tilraunir með færan- lega vængi tilkomumiklum slysum og í kringum áttunda áratuginn var reglugerð komið á sem takmarkaði stærð og staðsetningu vængjanna. Þrátt fyrir að reglurnar hafi þróast í tímanna rás þá eru þær nokkurn veginn þær sömu í dag. Um miðjan áttunda áratuginn var búið að uppgötva „ground ef- fect“, en verkfræðingar fundu út að hægt var að láta allan bílinn líkja eftir væng með því að búa til risastóran væng á neðri hlið bíls- ins sem myndi sjúga sig fastan við götuna. Dæmi um þennan hugsun- arhátt var Brabham BT46B sem var hannaður af Gordon Murray. Sá bíll notaði viftu til að draga loft frá svæðinu undir bílnum og skapaði með því heilmikið afl sem þrýstir dekkjunum á brautina. Sá bíll var hins vegar dreginn úr keppni eftir aðeins eina umferð. Áhrif mótvinds lágmörkuð Þrátt fyrir mikla hugmyndaauðgi loftaflsfræðinga hjá flestum liðum Formúlunnar er grundvallarlög- mál Formúlunnar enn í gildi: Að skapa eins mikið afl og mögulegt er sem þrýstir dekkjunum á braut- ina og lágmarkar áhrif mótvinds. Vængirnar sem eru að framan og aftan á bílunum eru sérhann- aðir eftir því hve mikinn þrýsting þarf að skapa á viðkomandi braut. Þröngar og hægar brautir eins og Monaco krefjast stórtækra vængja. Á hinn bóginn má sjá að bílar á hröðum brautum eins og Monza eru með eins litla vængi og mögu- legt er til að minnka mótvind og auka hraða á löngum og beinum hlutum brautarinnar. Hvert ein- asta yfirborð nútímalegs Formúlu- bíls, allt frá krækjum að hjálmi bíl- stjórans, hefur verið hannað með tilliti til loftaflsfræða. Ef horft er á nýlegan Formúlubíl má sjá að eins miklu hefur verið varið í að minnka mótvindinn og í að þrýsta dekkjunum á brautina. Þrátt fyrir þetta geta hönnuðir ekki gert bíl- ana of „sleipa“ því það þarf heil- mikið magn af lofti til að dreifa þvi mikla magni af hita sem vél bílsins myndar. svanhvit@bladid.net Einnig nýr Santana PS10. 9 sæta ferðabíll Verð aðeins: 3,400,000,- Þessir bílar eru byggðir fyrir íslenskar aðstæður, þeim fylgja heldur engir barnasjúkdómar, sem margir nýir bílar þjást af í dag, því þeir byggja á margra ára reynslu Santana verksmiðjanna í framleiðslu aldrifsbifreiða. Þeir eru einnig sérstaklega ætlaðir ökumönnum, sem gera við sína bíla sjálfír.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.