blaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 12
26 I FORMÚLAN
MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 blaðið
Islenskur dómari eftir•
sóttur í Formúlunni
Ólafur Kr. Guðmundsson: „Málið er bara að fara eftir reglunum, dæma jafnt og eftir
bestu samvisku. Það er best að horfa bara á þetta sem númer á bíl, það skiptir engu máli
hversituríhonum*
Það eru eflaust þúsundir íslend-
inga sem fylgjast með Formúlu
i kappakstrinum árlega. Svip-
aður fjöldi myndi eflaust vilja
hafa íslenskt lið eða ökumann í
keppninni, einhvern sem heldur
heiðri landsins á lofti. Sú ósk
hefur ekki enn ræst en hins vegar
eigum við dómara sem gerir sitt
til að halda nafni íslands á lofti,
í Formúlunni sem og öðrum
kappaksturskeppnum.
Ólafur Kr. Guðmundsson, stjórnar-
maður í Landssambandi íslenskra
akstursfélaga og FÍB, hefur dæmt
í alþjóðlegum kappakstri frá ár-
inu 1993. „Ég byrjaði í mótorsporti
heima í kringum 1975 og fór svo
að dæma í alþjóðlegum kappakstri
árið 1993. Landssamband íslenskra
akstursfélaga er aðili að FIA sem
eru alþjóðaaksturssamtök og árið
1993 gaf ég kost á mér að dæma
keppnir erlendis. Dómarastörfin
byggjast á reynslu og ég tók þátt í
^BunnHni
Nú er tími til að gera góð kaup - Mikið af frábærum tilboðum alla daga í mars
LG bvottavél og burrkari
Edesa bvottavél
Nardi ofn og helluborð 2 tæki saman
Otn NAFEA771XS - Hellub.NAPVL4DTCX
ftölsk hönnun - ftölsk gæði!
Giæsilegur nýtiskulegur ofn meö heitum
blæstri, pizzastillingu, stafrænni klukku sem
minnir þig á, lætur ofnin fara af stað og
stoppa sjálfvirkt o.fl eftir ákv.tíma,
(Bjóðum uppá létthreinsibúnað í alla Nardi
60 cm ofna)
Keramikhelluborð með 4 hellum þar af einni
stækkanlegri, snertitökkum og stálramma.
Verö aðeins kr.
79.900.-
Maytag bvottavél
Afarafkastamikil. Tekur
heitt og kalt vatn. Lengsta
' ivottakerfi aðeins 30 min.
sl. leiðb. Tekur 10,2 kg.
Verð aðeins kr.
129.900.
Maytag burrkari
Þurrkari með barka. tímastilltur 1
ogmeð rakaskynjara. Isl. leiðb. I
Afar hraðvirkur. Tekur 10,2 kg. |
Verö aðeins kr.
95.900.-
Opið virka daga kl. 9-18
Laugardaga kl. 11-16
RflFTffKJílUERZLUN ISLANDS If
- ANNO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • ri@ri.is* www.ri.is
að byggja upp torfæruna, rallakstur-
inn og fleira heima fyrir. Ef maður
nær góðri þekkingu í grunnreglum
alþjóðaaksturssamtaka þá endar
með því að maður getur ekki mikið
meira heima og gefur kost á sér er-
lendis. Ef maður er nógu góður þá
fær maður tækifæri. Hingað til hefur
þetta gengið ágætlega hjá mér.“
Ein stór fjölskylda
Auk þess að dæma í alþjóðlegum
keppnum dæmir Ólafur líka keppnir
hér heima, torfærur, rallakstur og
fleira. „Ég held að það sé sjötta Form-
úlu í keppnin sem ég dæmi í núna
en ég dæmi í San Marino, keppni
fjögur. 1 haust fer ég síðan til Dubai
til að dæma í sportbílakstri," segir
Ólafur sem sjálfur keppti í rallakstri
í gamla daga eins og hann orðar það.
„Ég hef aðallega starfað við dómgæsl-
una og skipulagningu. En það er
samt sem áður ekki aðalvinnan mín
því ég vinn í tölvubransanum. Þetta
er meira áhugamál en ég hef tekið
eina eða tvær keppnir á ári síðustu
árin. Þetta er mjög skemmtilegt. Svo
er maður farinn að þekkja mikið af
fólki í kringum sportið og við erum
því eins og ein stór fjölskylda. Ég er
alltaf að hitta sama fólkið, bæði þá
sem stjórna Formúlu í og þá sem
dæma með mér. Maðurinn sem ég
dæmi með núna er til dæmis Breti
sem ég hef dæmt með í mörg ár.“
Vill að besti maðurinn vinni
„Ég tek þessu eins og hverju öðru
verkefni,“ segir Ólafur þegar hann er
inntur eftir því hvernig sé eiginlega
að dæma í Formúlunni, sporti sem
milljónir fylgjast með. „Málið er
bara að fara eftir reglunum, dæma
jafnt og eftir bestu samvisku. Það er
best að horfa bara á þetta sem númer
á bíl, það skiptir engu máli hver
situr í honum. Við erum þrir sem
dæmum keppnina og við þurfum
að vera sammála. Á meðan á keppn-
inni stendur sitjum við í herbergi
fullu af sjónvarpsskjám þar sem við
fylgjumst með. Síðan fylgjumst við
líka með að keppnin fari fram sam-
kvæmt dagskrá, samkvæmt reglum
og að öryggið sé í lagi.“ Ólafur segist
ekki halda með neinu sérstöku liði
í Formúlunni þegar hann er ekki
að dæma. „Einhvern veginn hef ég
aldrei gert það. Ég vil bara að besti
maðurinn vinni en ég fylgist með
Formúlunni eins og flestum öðrum
svona keppnum."
Getum haft ökumann í Formúiunni
Þrátt fyrir að töluverð vinna fylgi
dómarastörfunum segir Ólafur að
störfin séu ekki launuð. „Hins vegar
er allur kostnaður borgaður. Það er
til þess að við höldum hlutleysi gagn-
vart FIA, við erum ekki á kaupi hjá
neinum. Hlutleysið þarf að vera til
staðar því við getum verið að taka
ákvarðanir gegn starfsmönnum
keppninnar. Ef við værum á launum
hjá sömu aðilum og starfsmenn
keppninnar þá gætum við verið í
vandræðum. Það er alltaf einn fasta-
dómari en ég er dómari númer 2.
Ég er í hópi 19 manna og dómarar
númer 2 eru alltaf frá öðru landi en
fastadómarinn og aldrei frá sama
landi og keppnin er haldin í. Síðan
tilnefnir landið sem heldur keppnina
einn dómara. Það er talinn kostur
að fá sem mesta breidd í dómara-
valið og ísland er hvorki með lið né
ökumann í Formúlunni. Það eru því
meiri líkur á að maður geti haldið
fullu hlutleysi," segir Ólafur og bætir
við að ísland eigi alveg möguleika á
að hafa ökumann í Formúlunni eins
og hver annar. „Danir hafa verið
með mann í Formúlu 1 og því ættum
við alveg eins að geta það.“
svanhvit@bladid.net