blaðið - 31.03.2006, Síða 2
FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006 blaðið
2 I INNLENDAR
blaöi<
Baejarlind 14-16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 •www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Verðhækkun
á eldsneyti
Olíufélagið hækkaði eldsneytisverð
í gær. Lítrinn af bensíni hækkar um
2 krónur, en af dísil- og gasolíu um
í krónu. Algengasta verð í sjálfsaf-
greiðslu á 95 oktana bensíni á höfuð-
borgarsvæðinu er nú 119,40 krónur
og á dísilolíu 115,50 krónur.
Fjör í sundi
Þau Maren Lóa, Ása Karen, Gauti Níeis og Aldís létu framkvæmdir við Kópavogslaugina lítið trufia sig í blíðunni í gær. Þau renndu
sér úr myrkviðum rennibrautarinnar til móts við vatnið og ekki síður sólina sem yljaði borgarbúum eftir kuldakast dagana áður.
Þriggja ára
fangelsi fyrir
líkamsárás og
morðhótanir
mbl.is | Hæstiréttur hefur dæmt
27 ára gamlan karlmann, Hákon
Örn Atlason, í þriggja ára fangelsi
en maðurinn var m.a. ákærður
fyrir hættulega líkamsárás með
hafnaboltakylfu og fyrir brot gegn
valdstjórninni með því að hafa
hótað lögreglufulltrúa og fjölskyldu
hans ofbeldi og lífláti. Maðurinn
var einnig dæmdur til að greiða
manninum sem hann réðist á rúma
eina milljón króna í miskabætur.
Þá var hann dæmdur til að greiða
sakarkostnað, samtals um 1,7
milljónir króna. Héraðsdómur
Norðurlands eystra hafði áður
dæmt manninn í 18 mánaða fangelsi
en Hæstiréttur þyngdi þá refsingu.
Maðurinn var sakfelldur fyrir
alvarlegalíkamsárás sem framin var
á þjóðveginum í Öxnadal í ágúst árið
2004 en hann var ákærður fyrir að
slá annan mann eitt eða fleiri högg í
höfuðið með hafnaboltakylfu.
ísland álitlegur kostur
Forsvarsmaður veðmálasíðunnar betsson.com kveðst ekki hafa
brotið íslensk lög. Fyrirtœkið löglegt ogskráð í sœnsku kauphöllinni.
Forsvarsmenn vefsíðunnar bets-
son.com segjast ekki líta svo á að
þeir hafi gerst brotlegir við íslensk
lög. Auglýsingarnar frá veðmála-
fyrirtækinu hafa birst í fjölmiðlum
hér á landi að undanförnu og er
lögregla að athuga hvort þær stand-
ist lög. Hörður Jóhannesson hjá
Lögreglunni í Reykjavík staðfesti
það við Blaðið og taldi hann líklegt
að málið varðaði lög um happdrætti.
Framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
sem býður viðskiptavinum að taka
þátt í fjárhættuspilum í gegnum
Netið, segist ekkert hafa heyrt frá ís-
betssorr C /gii^
W
lenskum yfirvöldum vegna málsins.
Anders Holmgren, framkvæmda-
stjóri Betsson, segir í samtali við
Blaðið að fyrirtækið hafi séð álit-
legan kost í því að hasla sér völl hér
á landi og því hafi verið ákveðið að
Vildarþjónusta
Við leggjum áherslu á langtímasamband
og sérhæfðar lausnir sem taka mið af
sérstökum aðstæðum og starfsumhverfi
viðskiptavina okkar.
SPH - fyrir þig og fyrirtækið!
spbs*
5502000 | www.sph.is
láta þýða vefsíðuna á islensku. „Sam-
keppnin er ekki mikil á íslandi og
við sáum þarna gott tækifæri til
að ná til nýrra viðskiptavina." Að-
spurður um hvernig viðtökur Is-
lendinga hafi verið sagði Anders of
snemmt að segja til um það. „Við
höfum hins vegar heyrt af því að
nokkuð hafi verið fjallað um okkur
i fjölmiðlum á íslandi síðustu daga,
sem er gott.“
Löglegt fyrirtæki
Anders segir Betsson vera löglegt
fyrirtæki sem sé aðeins að borga
íslenskum fyrirtækjum fyrir að
markaðssetja sig. „Við erum ekki að
gefa neitt út á íslandi og ég get ekki
séð að við séum að brjóta af okkur.“
Hann segir að ef það er ólöglegt að
auglýsa slíka starfssemi þá verði yfir-
völd að eiga það við þá aðila sem hafa
birt auglýsingarnar. Betsson.com er
með leyfi fyrir starfssemi sinni á
Englandi og Möltu. Fyrirtækið er
skráð í sænsku kauphöllinni undir
nafninu Cherry og alls eru starfs-
menn þess um 800. „Ég get ekki séð
að við séum að brjóta neitt af okkur,“
segir Anders sem segist hlakka
til að koma í heimsókn til íslands.
„Vonandi mun lögreglan hleypa mér
inn í landið!"
Leitað að stjörnu
Kvikmyndafyrirtækið Kisi er að hefja framleiðslu á ævintýragrínmyndinni Astrópíu
innan skamms, en vantar enn aðalleikkonuna og ýmsa leikara aðra í stórum hlutverkum
og smáum. Til þess að finna þessar framtíðarstjörnur stendur Kisi fyrir opinni áheyrnar-
prufu á sunnudag, 2. aprfl, og fer hún fram í versluninni Nexus að Hverfisgötu 103. Pruf-
urnar hefjast kl. 10.00 að morgni og standa til kl. 17.00. Þær eru opnar atvinnuleikurum
jafnt sem áhugafólki frá 17 ára aldri og upp úr. Astrópia fjallar um samkvæmisstúlkuna
Hildi, sem fer af illri nauðsyn að vinna í búð, sem sérhæfir sig í hlutverkjaleikjum og
hasarblöðum. Áður en varir heillast hún af ævintýraheimi hlutverkaleikja og skilin milli
hans og raunveruleikans verða óskýrari og ofurhetjan vaknar.
Er ferming, afmæli, brúðkaup
eða veisla framundan...
Mikið úrval af ómótstæðilegum eftirréttum.
Kíktu á okkur á sýningunni MATUR 2006
í Fífunni, Kópavogi um helgina, 1. og 2. apríl.
DANCO
HEILDVERSLUN
Sími: 575 0200 - Melabraut 19 - Hafnarfiröi - www.danco.is
O Heiðskírt 0 Léttskýjað Skýjað Aiskýjað
Rigning, litilsháttar Rigning Súld
Snjókoma
Slydda Snjóél \jj !
Algarve Amsterdam 12 18
Barcelona 13 ■ -6°j; ^
Berlín 13
Chicago 14
Oublin 10
Frankfurt Glasgow 12 08
Hamborg 10 -2° ^
Helslnki 01
Kaupmannahöfn 06 QiP
London Madrid 13 21
Mallorka 19 v 2° „ .
Montreal 05
New York 08
Orlando 17
Osló 01
París 14
Stokkhólmur 0 Veðurtiorfur í dag kl: 15,
Vín 15 Veðursíminn 902 0600
Þórshöfn 03 Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
-2°