blaðið - 31.03.2006, Page 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006 blaðið
Tekjur hins op-
inbera aukast
Heildartekjur ríkissjóðs og sveitarfé-
laga á fjórða ársfjórðungi síðasta árs
voru 126,4 milljarðar samkvæmt
bráðarbirgðaáætlun Hagstofunnar
um fjármál hins opinbera sem birt
var í gær. Heildartekjur ríkissjóðs
eru áætlaðar 92,4 milljarðar og áuk-
ast um 12,5% frá sama ársfjórðungi í
fyrra og þá jukust gjöld ennfremur
um 8,8%.
Þá eru tekjur sveitarfélaganna
áætlaðar um 34 milljarðar sem
er um 4% minna en á sama tíma
í fyrra en þá námu þær 35,4 millj-
örðum. Á móti hafa rekstrargjöld
dregist saman um 9,6% eða úr 35,4
milljörðum árið 2004 í 32 milljarða
í fyrra.
Smáralind
skilar tapi
Tap Smáralindar ehf. nam 101
milljón króna árið 2005 samkvæmt
ársuppgjöri félagsins fyrir árið 2005
sem birt var í gær. Þetta er töluvert
meiri hallarekstur en fyrir árið
2004 en þá nam tap félagsins 43
milljónum.
Samkvæmt ársuppgjörinu námu
heildartekjur á síðasta ári um 1,3
milljörðum króna og þar af námu
leigutekjur 985 milljónum sem er
9% hækkun frá fyrra ári.
Hagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði nam 684 milljónum
króna sem er um 14% aukning frá
fyrra ári.
Gert er ráð fyrir batnandi afkomu
á þessu ári samkvæmt áætlunum
m.a. vegna nýrra leigusamninga og
hækkandi leiguverðs.
KRESS
rafhlöðuborvélar 12v
Verð 12.900.-
4Bl
tvær rafhlöður,
1500 snúningará m(n
Asborg
Smiðjuvegi 11 ,sfmi 5641212
XaugarbalépU
23. mat
Seðlabankinn glímir við verðbólguna
Stýrivextir munu hækka um 0,75%
frá og með 4. apríl næstkomandi í
11,5% samkvæmt tilkynningu sem
bankastjórn Seðlabanka íslands
sendi frá sér í gær. Hækkunin er í
hærra lagi miðað við spár en hröð
lækkun krónunnar og meiri hag-
vöxtur en gert var ráð fyrir er helsta
ástæða hækkun stýrivaxta. Þörf er
á meiri hækkunum ef verðbólgu-
markmið Seðlabankans á að nást að
mati Ingólfs Bender, hjá greiningu
Glitnis.
Frekari hækkanir
Seðlabankinn tilkynnti í gær að
hann hyggist hækka stýrivexti um
0,75 prósent frá og með 4. apríl næst-
komandi. 1 tilkynningu bankans
kemur einnig fram að aðrir vextir
verða einnig hækkaðir um 0,75% frá
1. apríl næstkomandi.
I Peningamálum Seðlabankans
sem kom út í gær er hækkun stýri-
vaxta að töluverðu leyti rakin til þess
að gengi krónunnar hefur lækkað
Verðbólguhorfur hafa dökknað verulega
á fslandi að mati Davíðs Oddssonar, Seðla-
bankastjóra.
hratt undanfarnar vikur. Þá kemur
fram að hagvöxtur undanfarin tvö
ár hafi reynst vera meiri en áætlanir
gerðu ráð fyrir og að viðskiptahall-
inn í fyrra hafi verið langt umfram
áætlanir. Þetta hafi leitt til þess að
verðbólgan hafi aukist og kemur
fram í Peningamálum að verðbólgu-
markmið Seðlabankans muni vart
verða náð innan ásættanlegs tíma
nema til komi frekari hækkanir á
stýrivöxtum umfram það sem nú er.
Samkvæmt spá bankans er gert ráð
fyrir að verðbólgan verði um 5,5%
eftir eitt ár og fari jafnvel upp í 6%
um mitt næsta ár. Þettá er töluvert
hærri verðbólga en gert var ráð fyrir
í síðustu spá en þá var reiknað með
um 3% verðbólgu.
Fram kom í ræðu Davíðs Odds-
sonar, seðlabankastjóra, á blaða-
mannafundi í gær að verðbólgu-
horfur hafi dökknað verulega á
íslandi frá síðustu vaxtahækkun og
séu til lengra tíma litið óviðunandi.
Næsta ákvörðun bankastjórnar
Seðlabankans um vexti verður að
óbreyttu birt fimmtudaginn 18. maí
næstkomandi.
Löngusker, Hólmsheiði
eða Keflavíkurflugvöllur?
Starfi samráðshóps sem ákveða á
framtíð innanlandsflugs á höfuðborg-
arsvæðinu miðar vel, segir Dagur B.
Eggertsson, borgarstjóraefni Sam-
fylkingarinnar og sá sem fer fyrir
hópnum fyrir hönd borgarinnar.
Hann segir að eins og staðan er nú sé
litiðtiltveggjakostafyrirnýttflugvall-
arstæði, auk Keflavíkurflugvallar.
„Það er búið að ráða ráðgjafa sem á
að leggja mat á þá kosti sem til skoð-
unar koma,“ segir Dagur. „Þar á ég
við ný flugvallarstæði ásamt Kefla-
víkurflugvelli.“ Aðspurður hvort að
Keflavíkurkosturinn hafi í för með
sér bættar- samgöngur við borgina,
eins og hugmyndir Stefáns Jóns Haf-
stein gera ráð fyrir, segir Dagur: „Við
höfum sagt að til þess að hægt sé að
skapa sátt fyrir því að innanlands-
flugið verði fært til Keflavíkur, þá
verði að stórbæta samgöngur á þess-
arileið..“
Póstverslun
Þœgiíegasti versíunarmátinn
mm i
Nýjasta tískan
á alla fjölskylduna
www.additionsdirect.co.uk
\22?
Vörulisti
Stærri en nokkru sinni
Hundruð nýrra tilboða
www.argos.co.uk
stórverslunin
loksins á íslandi
Flottur fatnaður í
öllum stærðum
Austurhrauni 3 Gbæ
S. 5552866 bm@bmagnusson.is
www.bmagnusson.is
Opið mánud.- föstud. 10-18,
laugard. 11-14.
Hugmynd Stefáns Jóns
studd góðum rökum
En hvernig líst Degi á hugmynd Stef-
áns Jóns? „Hún styðst við ágætis rök
og er spennandi hugmynd að skoða.
Við verðum hins vegar að taka alla
hagsmuni með inn í myndina og
virða þá, meðal annars hagsmuni
innanlandsflugsins, sjúkraflugsins
og svo framvegis. Ýmsir telja að
það þurfi að minnsta kosti einhvers
konar lágmarksflugvöll nálægt
Reykjavík." Dagur segir það- vera
spennandi, ekki bara fyrir borgina
heldur ekki síður flugreksturinn
sem er mjög aðþrengdur í Vatnsmýr-
inni, að hann fái nýtt og betra flug-
vallarstæði til að vaxa á.
Þrír kostir í stöðunni
„Alla þessa þræði ætlum við að reyna
að flétta saman eins og kostur er
þannig að við höfum fullan saman-
burð á þeim valkostum sem eru í
stöðunni,“ segir Dagur.
Að sögn hans er gert ráð fyrir nið-
urstöðum úr starfi hópsins um mitt
sumar, eða eftir kosningar til borg-
arstjórnar. „En það skiptir kannski
ekki öllu vegna þess að ég held að
það sé mjög góð samstaða innan
borgarstjórnar um það að flugvöll-
Dagur B. Eggertsson
urinn sé á leið úr Vatnsmýrinni.“
Dagur segir að hópurinn hafi velt
fyrir sér 14 kostum í upphafi fyrir
nýju flugvallarstæði en að þeim sé
nú búið að fækka niður í tvo, auk
Keflavíkurflugvallar. „Þessir kostir
eru landfylling á Lönguskerjum og
Hólmsheiði.“
Spá 6% verðbólgu
Að sögn Ingólfs Bender, hjá grein-
ingu Glitnis, höfðu menn þar á bæ
spáð 0,5 til 0,75 prósent hækkun.
„Þetta er samt sem áður umfram það
sem markaðurinn var að búast við.
Það á ekki aðeins við breytingu á
stýrivöxtum heldur einnig það sem
Seðlabankinn segir samhliða. Hann
gefur það sterklega til kynna að
hann muni hækka vextina frekar.“
Ingólfur segir að hækkunin muni
að einhverju leyti leiða til tíma-
bundinnar styrkingar krónunnar
og lækkunar á hlutabréfamarkaði.
Hann telur þó að hækka þurfi vexti
enn frekar ef takast á að halda verð-
bólgunni niðri. „Við spáum að verð-
bólgan verði um 6% á þessu ári og í
þeirri spá reiknum við með hækkun
stýrivaxta upp undir 12%. Krónan
hefur lækkað mun hraðar en Seðla-
bankinn hefði viljað sjá og ólíklegt
að hækkanirnar núna skili tilætl-
uðum árangri."
Fleiri ferða-
menn til
landsins
Rúmlega 30 þúsund erlendir
ferðamenn lögðu leið sína
hingað til lands fyrstu tvo
mánuði ársins samkvæmt taln-
ingu Ferðamálastofu í Leifs-
stöð. Þetta er um 3,8% aukning
miðað við sama tíma í fyrra en
þá voru ferðamennirnir um 29
þúsund talsins.
Aukningin var einungis í
janúar en ferðamönnum fækk-
aði um 1,7% í febrúar miðað við
sama mánuð í fyrra.
Hlutfallslega fjölgaði ferða-
mönnum mest frá Spáni, Finn-
landi og Japan en sé einungis
horft á fjölda ferðamanna fjölg-
aði mest ferðamönnum frá
Bandaríkjunum og Þýskalandi.
Þá varð nokkur fækkun í
komu ferðamanna frá Bretlandi
og Norðurlöndum. Þannig fækk-
aði breskum ferðamönnum
hingað til lands um 287 og
norskum um 376.
Qi Gong dagar
með Gunnari
Eyjólfssyni í
Skálholtsskóla
Dagana 4.-6. apríl leiðir Gunnar
Eyjólfsson, leikari, í þriðja
sinn kyrrðardaga í Skálholti
þar sem byggt er á æfingum
og hugmyndafræði Qi Gong
til þess að öðlast innri sátt og
kyrrð hugans. Kyrrðardagarnir
hefjast síðla morguns á þriðju-
degi, en lýkur um hádegisbil á
fimmtudegi.
Þessir kyrrðardagar fylgja
í megindráttum formi hinna
venjubundnu kyrrðardaga um
hvíld, helgihald og þögn en í
stað íhugunar tengir Gunnar
líkamlegar æfingar sér í lagi
tengdar öndun við kynningu á
hugmyndafræði Qi Gong sem
hann hefur iðkað og kennt um
áratugaskeið.
Þessir kyrrðardagar njóta
mikilla vinsælda og eru aðeins
örfá pláss laus til ráðstöfunar og
er það vegna forfalla. Allar nán-
ari upplýsingar og skráningu
annast skrifstofa Skálholtsskóla
í síma 486 8870, en netfangið er
rektor@skalholt.is