blaðið - 31.03.2006, Page 18

blaðið - 31.03.2006, Page 18
18 I HEILSA FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006 blaöið Fáanlegur í öllum betri heilsuræktarstöóvum, matvöruverslunum og bensínstöðvum. Nánari upplýsingar um Precision Burner fást í síma 555-2866 eóa á WWW.eas.is. 99................. Þeir sem sýkjast af njálgi finna fyrír miklum kláða í enda- þarminum sem eykst töluvert á kvöldin og á nóttunni. Límkennda efnið sem umlykur eggin og hrey fingar kvennjálgsins þegar hann ferðast niður að endaþarmsopinu valda þessum mikla kláða. Óvinur i endaþarmi Hvað er njálgur? Hvernig smitast hann hvernig losnar maður við hann? °g Wjálgur er úti um allt alls staðar og það sem verra er hann er bráðsmitandi. Allir geta sýkst af njálg en þó er hann algengastur hjá börnum og fjölskyldum þeirra. Njálgur er þekktur um allan heim sem hvimleiður gestur. Hann er í raun nokkuð meinlaus og veldur fólki sjaldan miklum skaða, en ógeðfelldur er hann svo ekki sé meira sagt. Kvennjálgur er um íomm að endaþarmi yfir í fatnað, rúmföt, leikföng eða annað og þaðan smit- ast hann með snertingu eða ryki. Eggin geta lifað í 2-3 vikur á fyrr- nefndum hlutum og í feldi húsdýra þó að þau sýkist ekki sjálf af njálg. Eggin berast ofan í munn með innöndun eða snertingu og þaðan fara þau svo ofan í þarma og ferða- lagið endar þegar þau klekjast út í þörmunum. Þetta gerist vanalega innan 2-5 vikna. Algengasta smit- leiðin er talin vera frá fingrum upp í munn. Fullþroskaður kvennj- álgur fer af stað á nóttunni og fer hlaðinn eggjum að endaþarmsop- inu. Ástæða þess að njálgur- inn fer af stað á nóttunni er talin vera sú að þá lækkar lík- amshiti okkar. Þegar njálgur- inn kemur að endaþarmsop- inu verpir hann gríðarlegum fjölda eggja sem setjast þar í kring í húð- fellingar og við varpið drepst sjálfur ormur- inn. Þess ber að gæta að fleiri en einn ormur geta hreiðrað um sig í líkamanum og því fleiri sem ormarnir eru, því meiri er smithættan. Eggin eru svo umlukin lím- kenndu efni sem veldur því að þau eiga gott með að klístrast í allt sem á vegi þeirra verður, eins og sæng- urföt eða nærföt og þessi egg geta lifað í allt að þrjár vikur í stofuhita. Endursýking verður þá þannig að eggin klekjast út, fara aftur af stað í endaþarminn og vítahringurinn heldur áfram. Einkenni Þeir sem sýkjast af njálgi finna fyrir miklum kláða í endaþarm- inum sem eykst töluvert á kvöldin og á nóttunni. Límkennda efnið sem umlykur eggin og hreyfingar kvennjálgsins þegar hann ferðast niður að endaþarmsopinu valda þessum mikla kláða. Kláðinn kallar eðlilega á að fólk klóri sér og þannig er hringrásinni haldið við. Stundum þarf að beita öllum tiltækum ráðum til að forðast 99................... Til að losna við þennan ömurlega gest er hægt að fá lyfsem fást bæði gegn lyfseðli og í lausasölu. Þau drepa þann njálg sem er lifandi á líkamanum, en allt upp í þrjár vikur eftir inntöku lyfsins halda eggin áfram að berast út úr líkamanum með saur. klórið og það getur stundum verið erfitt þegar börn eru smituð. Húðin í kringum endaþarminn verður rauð og aum og þetta veldur miklum pirringi hjá þeim sem verður fyrir því. Hjá kvenfólki ger- ist það stundum að njálgurinn fer upp í leggöng og veldur það kláða, bólgum og pirringi. Svefntruflanir geta komið í kjölfar kláðans og ef til vill sýkingar ef ekki er brugðist við í tæka tíð. Afleiðingar njálgsins eru þó sjaldnast hættulegar en okkur finnst þetta mjög viðbjóðslegt fyrirbæri og þegar fólk uppgötvar að það, eða börn þeirra, eru sýkt af njálg er það tilbúið að gera allt sem hægt er að gera til að losna við hann. Sjúkdómsgrein- ing njálgs er mjög auðveld, en njálg- urinn sést vel með berum augum, annaðhvort í saur eða við endaþarms- opið. Þeir eru litlir, hvítir og allir á iði. Þegar grunur leikur á sýkingu hjá barni er best að skoða endaþarm- sopið snemma um morgun, áður en barnið vaknar. Þá er gott að setja öfugt límband á endann á tungu- spaða (eða svipuðu áhaldi) og renna yfir endaþarm- sopið. Ef njálgur er fyrir hendi festist hann við límbandið. Til að losna við þennan ömur- lega gest er hægt að fá lyf sem fást bæði gegn lyfseðli og í lausasölu. Þau drepa þann njálg sem er lif- andi á líkamanum, en allt upp í þrjár vikur eftir inntöku lyfsins halda eggin áfram að berast út úr líkamanum með saur. Þess vegna er nauðsynlegt að gæta hreinlætis í hvívetna. Þrífa rúmföt oft, kló- settsetu daglega og hendur oft á dag. Neglur eiga að vera stuttar og hreinar og föt ber að þvo um leið og farið er úr þeim. Eftir tvær til þrjár vikur er lyfið tekið aftur og við það ætti þessi óboðni gestur að vera farinn, hafi fólk fylgt öllum helstu ráðum og gætt hreinlætis til hins ítrasta. lengd en karlnjálgur er ^mm og hlykkjóttur. Hann smitast úr Precision Burner Fítubrennsla • Orka • Einbeiting Hámarks fitubrennsla.. í flösku! ^rt Innihald í 500ml. flösku: 10 hitaeiningar 75mg. koffín 1000mg. L-Karnitín Ginseng Kalk ítamín ^ (m. C*Hy»ICNUTmT,0N fijC Jb 8 PIMEAPPd:l ----- w* M 0pt"niZf3.. ,,Lrl BooStsfn y°Ur f3t ,OSS * **££?»**«» s«PP0%l,*tU,b0liu» “ght reduction with exercisc

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.