blaðið - 31.03.2006, Qupperneq 19
blaðið FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006
HEILSA I 19
Vörtur
í pistli mínum í dag ætla ég að
fjalla um vörtur. Vörtur eru að-
allega þrenns konar. f fyrsta lagi
frauðvörtur sem eru algengastar
meðal barna. í öðru lagi vörtur á
höndum og fótum, líka algengastar
meðal barna. í þriðja lagi kynfæra-
vörtur, sem eru að verða æ algeng-
ari, sérstaklega í aldurshópnum
16-18 ára.
Molluscum contagiosum virus
= MCV eða frauðvörtur
Frauðvörtur orsakast af veiru
(Molluscum contagiosum virus =
MCV). Frauðvörtur eru litlar bólur
(vörtur). Þær eru oft glansandi og
inni í þeim situr hvítur massi.
Vörturnar smitast milli barna
(einstaka sinnum hjá fullorðnum)
eftir snertingu við sýkta húð. Ef
barn er smitað geta vörturnar
haldið áfram að dreifa sér. Með-
göngutími veirunnar er margar
vikur. Það er misjafnt hversu
mikil einkenni börnin fá, en þau
geta fengið bakteríusýkingar, ör-
myndun eða exem í húðina. í
flestum tilvikum er æskilegt að
reyna að fjarlægja vörturnar sem
fyrst.
Ýmsar leiðir eru til meðferðar
s.s. pensla þær með vörtueyðandi
efni, skafa vörturnar, brenna með
laser eða frysta. Ein besta leiðin
til að eyða vörtunum með sem
minnstum sársauka og fyrirhöfn
er að pensla þær með vörtueyðandi
efni.
Til að pensla vörturnar er notað
efni sem er bólgu- og blöðrumynd-
andi og leiðir þannig til eyðingar
vörtunnar. Efnið veldur eingöngu
bólgu í efstu lögum húðarinnar og
getur því ekki valdið örum. Eftir
að efnið er borið á þarf að þvo það
af aftur. Venjulega er fyrst miðað
við að hafa efnið á í 3-4 klst eða þar
til vörturnar hafa bólgnað örlítið
upp. Síðan er farið eftir þvi hvernig
barnið þoldi efnið hvenær það er
þvegið af næst þegar penslað er.
Bera skal sýkladrepandi krem
á vörtustaði að kvöldi þess dags
sem penslað er og 3-4 daga á eftir.
Ef mikill roði er áfram í vörtunum
má halda áfram í nokkra daga til
viðbótar.
Oftast ganga vörturnar til baka á
1-4 árum án meðferðar.
Human Papilloma Virus = HPV
Það eru um það bil 60 tegundir af
HPV veirum þekktar. HPV veirur
geta bæði orsakað kynfæravörtur
og vörtur á höndum og fótum.
HPV veirur á höndum og fótum
Vörtur á höndum líkjast litlu blóm-
káli og eru yfirleitt í kringum neglur
og á fingrum. Börn eiga erfitt með
að láta vörturnar í friði, þau bíta og
kroppa í þær þar til blæðir úr þeim og
þá eru þær smitandi. Veiran smitast
við beina snertingu, en getur einnig
smitast í sundlaugum. Sum börn fá
aldrei vörtur þrátt fyrir að vera útsett
fyrir veirunni, á meðan önnur börn
fá vörtur. Liðið geta margir mánuðir
frá smiti áður en varta myndast.
Vörtur á fótum myndast yfir-
leitt þar sem álagið er mest. Þær
eru aumar þegar þrýst er á þær og
við gang. Fótvarta er flatt saman-
þjappað húðsvæði sem er hart út
til hliðanna en mýkra í miðjunni.
Ef grannt er skoðað sjást oft litlir
svartir punktar í vörtunni. Þetta
eru ekki, eins og sumir halda,
rætur hennar heldur myndast
punktarnir við blæðingu.
Meðferðarúrræði við vörtum á
höndum og fótum eru að pensla
þær með vörtueyðandi efni, skafa
vörturnar, brenna með laser eða
frysta.
Það getur þurft að endurtaka
meðferð nokkrum sinnum.
Vörtur hafa undarlega hegðun,
en jafnvel þó ekkert sé að gert þá
hverfa þær yfirleitt eftir nokkur ár.
Hjá u.þ.b. 30-50% barna hverfa vör-
turnar innan 6 mánaða án þess að
nokkuð sé gert.
HPV veirur á kynfærum.
Kynfæravörtur eru kynsjúkdómur
sem smitast ein-
ungis við snert-
ingu slímhúða
við samfarir.
Hundruð einstak-
linga leita lækn-
inga vegna kynfæra-
varta á ári hverju.
Áberandi er að
tíðni þessarar vörtu
fer vaxandi í aldurs-
hópnum 15-18 ára.
Veiran veldur ljósbleikum eða
húðlitum vörtum á og við kynfæri
og endaþarmsop. Venjulega er yfir-
borð vartanna flipótt og þær vaxa
í klösum sem orðið geta frekar
stórir. Stundum myndast einungis
húðlitar hrufur eða bólgur og e.t.v.
fylgir þeim örlít- ill kláði, sem
eru þá einu
einkenni sjúk-
dómsins. Ef
vörturnar eru
í leggöngum
eða á leg-
hálsi getur
verið erfitt
að greina
þær. Frá
því að smit
á sér stað þar til vör-
turnar birtast geta liðið allt að 12
mánuðir. Þess vegna getur verið
erfitt að rekja slóðina til rekkju-
nautanna sem þarf að skoða og
meðhöndla.
Fáeinar tegundir HPV hafa verið
tengdar aukinni hættu á frumu-
breytingumogjafnvelkrabbameini
í leghálsi kvenna. Af þeirri ástæðu
er mikilvægt að taka frumustrok
reglulega frá leghálsi þeirra kvenna
sem hafa fengið kynfæravörtur.
Ef grunur er um vörtusmit er
mikilvægt að láta lækni skera úr
um hvort svo sé og fá meðferð við
hæfi. Algengast er að meðferð sé
hafin með því að pensla vörturnar
með vörtueyðandi efni. Efnið er
mjög sterkt og getur brennt sé
það haft of lengi. Ef meðferð með
vörtueyðandi efni dugar ekki þarf
að grípa til annarra aðgerða s.s. að
brenna eða frysta vörturnar.
Frekari upplýsingar er að finna
á heilsuvefnum www.doktor.is og
húðsjúkdómavefnum www.cutis.is.
f
Alvöru
heimili og
5;
Hjá okkur fást hinar viðurkenndu
kaffivélar frá Quickmill, en þær hafa ve
í Mílanó síðan 1948, www.quickm
Einnig erum við með í
heimsþekkta vörume
www.caffebonomi.co
Hamraborg 1,200 Kópavogi
s:554 6054