blaðið - 31.03.2006, Síða 19

blaðið - 31.03.2006, Síða 19
blaðið FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006 HEILSA I 19 Vörtur í pistli mínum í dag ætla ég að fjalla um vörtur. Vörtur eru að- allega þrenns konar. f fyrsta lagi frauðvörtur sem eru algengastar meðal barna. í öðru lagi vörtur á höndum og fótum, líka algengastar meðal barna. í þriðja lagi kynfæra- vörtur, sem eru að verða æ algeng- ari, sérstaklega í aldurshópnum 16-18 ára. Molluscum contagiosum virus = MCV eða frauðvörtur Frauðvörtur orsakast af veiru (Molluscum contagiosum virus = MCV). Frauðvörtur eru litlar bólur (vörtur). Þær eru oft glansandi og inni í þeim situr hvítur massi. Vörturnar smitast milli barna (einstaka sinnum hjá fullorðnum) eftir snertingu við sýkta húð. Ef barn er smitað geta vörturnar haldið áfram að dreifa sér. Með- göngutími veirunnar er margar vikur. Það er misjafnt hversu mikil einkenni börnin fá, en þau geta fengið bakteríusýkingar, ör- myndun eða exem í húðina. í flestum tilvikum er æskilegt að reyna að fjarlægja vörturnar sem fyrst. Ýmsar leiðir eru til meðferðar s.s. pensla þær með vörtueyðandi efni, skafa vörturnar, brenna með laser eða frysta. Ein besta leiðin til að eyða vörtunum með sem minnstum sársauka og fyrirhöfn er að pensla þær með vörtueyðandi efni. Til að pensla vörturnar er notað efni sem er bólgu- og blöðrumynd- andi og leiðir þannig til eyðingar vörtunnar. Efnið veldur eingöngu bólgu í efstu lögum húðarinnar og getur því ekki valdið örum. Eftir að efnið er borið á þarf að þvo það af aftur. Venjulega er fyrst miðað við að hafa efnið á í 3-4 klst eða þar til vörturnar hafa bólgnað örlítið upp. Síðan er farið eftir þvi hvernig barnið þoldi efnið hvenær það er þvegið af næst þegar penslað er. Bera skal sýkladrepandi krem á vörtustaði að kvöldi þess dags sem penslað er og 3-4 daga á eftir. Ef mikill roði er áfram í vörtunum má halda áfram í nokkra daga til viðbótar. Oftast ganga vörturnar til baka á 1-4 árum án meðferðar. Human Papilloma Virus = HPV Það eru um það bil 60 tegundir af HPV veirum þekktar. HPV veirur geta bæði orsakað kynfæravörtur og vörtur á höndum og fótum. HPV veirur á höndum og fótum Vörtur á höndum líkjast litlu blóm- káli og eru yfirleitt í kringum neglur og á fingrum. Börn eiga erfitt með að láta vörturnar í friði, þau bíta og kroppa í þær þar til blæðir úr þeim og þá eru þær smitandi. Veiran smitast við beina snertingu, en getur einnig smitast í sundlaugum. Sum börn fá aldrei vörtur þrátt fyrir að vera útsett fyrir veirunni, á meðan önnur börn fá vörtur. Liðið geta margir mánuðir frá smiti áður en varta myndast. Vörtur á fótum myndast yfir- leitt þar sem álagið er mest. Þær eru aumar þegar þrýst er á þær og við gang. Fótvarta er flatt saman- þjappað húðsvæði sem er hart út til hliðanna en mýkra í miðjunni. Ef grannt er skoðað sjást oft litlir svartir punktar í vörtunni. Þetta eru ekki, eins og sumir halda, rætur hennar heldur myndast punktarnir við blæðingu. Meðferðarúrræði við vörtum á höndum og fótum eru að pensla þær með vörtueyðandi efni, skafa vörturnar, brenna með laser eða frysta. Það getur þurft að endurtaka meðferð nokkrum sinnum. Vörtur hafa undarlega hegðun, en jafnvel þó ekkert sé að gert þá hverfa þær yfirleitt eftir nokkur ár. Hjá u.þ.b. 30-50% barna hverfa vör- turnar innan 6 mánaða án þess að nokkuð sé gert. HPV veirur á kynfærum. Kynfæravörtur eru kynsjúkdómur sem smitast ein- ungis við snert- ingu slímhúða við samfarir. Hundruð einstak- linga leita lækn- inga vegna kynfæra- varta á ári hverju. Áberandi er að tíðni þessarar vörtu fer vaxandi í aldurs- hópnum 15-18 ára. Veiran veldur ljósbleikum eða húðlitum vörtum á og við kynfæri og endaþarmsop. Venjulega er yfir- borð vartanna flipótt og þær vaxa í klösum sem orðið geta frekar stórir. Stundum myndast einungis húðlitar hrufur eða bólgur og e.t.v. fylgir þeim örlít- ill kláði, sem eru þá einu einkenni sjúk- dómsins. Ef vörturnar eru í leggöngum eða á leg- hálsi getur verið erfitt að greina þær. Frá því að smit á sér stað þar til vör- turnar birtast geta liðið allt að 12 mánuðir. Þess vegna getur verið erfitt að rekja slóðina til rekkju- nautanna sem þarf að skoða og meðhöndla. Fáeinar tegundir HPV hafa verið tengdar aukinni hættu á frumu- breytingumogjafnvelkrabbameini í leghálsi kvenna. Af þeirri ástæðu er mikilvægt að taka frumustrok reglulega frá leghálsi þeirra kvenna sem hafa fengið kynfæravörtur. Ef grunur er um vörtusmit er mikilvægt að láta lækni skera úr um hvort svo sé og fá meðferð við hæfi. Algengast er að meðferð sé hafin með því að pensla vörturnar með vörtueyðandi efni. Efnið er mjög sterkt og getur brennt sé það haft of lengi. Ef meðferð með vörtueyðandi efni dugar ekki þarf að grípa til annarra aðgerða s.s. að brenna eða frysta vörturnar. Frekari upplýsingar er að finna á heilsuvefnum www.doktor.is og húðsjúkdómavefnum www.cutis.is. f Alvöru heimili og 5; Hjá okkur fást hinar viðurkenndu kaffivélar frá Quickmill, en þær hafa ve í Mílanó síðan 1948, www.quickm Einnig erum við með í heimsþekkta vörume www.caffebonomi.co Hamraborg 1,200 Kópavogi s:554 6054

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.