blaðið

Ulloq

blaðið - 31.03.2006, Qupperneq 20

blaðið - 31.03.2006, Qupperneq 20
20 I VIDTAZ. FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006 blaóið Engill, listamaður og íjögur litil böm Blaöið/Frikki Hulda Vilhjálmsdóttir og Valgarður Bragason, eða Hulda og Valli, búa í litlu gulu húsi við Njálsgötu ásamt þremur sonum (tveir Huldusynir og einn Valgarðsson) og lítilli stelpu sem von er á í heiminn eftir tvo mánuði. Þegar blaðakonu ber að garði er henni boðið upp á nýlagað kaffi. Valli lagar örlítið til á borðinu og kemur fyrir þremur bollum af sitthvorri tegund- inni. Plássið er ekki mikið enda margir í heimili og mikið til af ýmsum erfða- gripum sem bæði Valli og Hulda hafa fengið eftir ættingja sína. 99.............. Konurídag vilja bara 300 fermetra hús og ég veit ekki hvað, en auðvitað er það auka álag á mæðurað þurfa að hugsa um þetta alltsaman. Hver á að þrífa og halda þessu við? Fer ekki öll orkan í það? Þú ert svo kynþokkafullur Hulda og Valli segj- ast alltaf hafa vitað af hvort öðru, ver- andi jafnaldrar og miðbæjarrottur, en það var á skemmti- staðnum 22 við Laugaveg að „dul- arfullur atburður“ gerðist sem kom síðar tilmeð að ráða .......... úrslitum. „Þetta var þannig að ég gekk upp að honum og sagði: „Rosalega ertu kyn- þokkafullur strákur Valli,““ segir Hulda og hlær en Valli leiðréttir hana. „Þetta er tómt kjaft- æði! Þú komst upp að mér og sagðir voðalega ert þú alltaf eitthvað sexý Valli. Hér er fimmhundruð kall - farðu nú og keyptu þér bjór. Og ég tók bara fimmhundruð kallinn, keypti mér bjór og hélt áfram að vera sexý. Síðan leið tíminn og við héldum kunningskap okkar áfram og kjöftuðum alltaf saman þegar við hittumst, eða þar til Huldu vantaði leigjanda til að drýgja tekjurnar," út- skýrir hann. „Það er svo mikilvægt að fólk nái að tala saman. Maður er kannski í heila viku í sínum veruleika og svo áttar maður sig á því að maður er ekki búinn að tala við eitt barnið í sjö daga. Bara búinn að skipa honum fyrir og segja honum hvað hann á að gera eða ekki, en ekkert svona rólegt spjall um daginn og veginn. For- eldrar þurfa líka að tala við börnin sín." Valgarður Bragason. Hulda tekur við. „Mér fannst hann henta vel sem svona húsvörður. Hann gat passað mig og húsið í leið- inni. Svo flutti hann inn og hefur ekkert flutt út síðan.“ Það leið ekki á löngu þar til ástin kviknaði í brjóstum beggja. „Valli hefur alltaf verið mikil félagsvera,“ segir Hulda. „Hann flakkar á milli húsa og heimsækir fólk. Svo var það eitt skiptið að ég var ein á spítalanum með son minn veikan, að Valli kom við og heim- sótti mig. Hann hafði þá verið að kíkja á vin sinn en vildi koma við hjá mér í leiðinni. Valli minnir mig á engil sem er á ferðalagi í borginni að gera fólki gott. Hann hefur svo fallega sál.“ Málverk og plaköt Valli er þúsundþjala- smiður en margir hafa tekið eftir honum í miðbæ Reykjavíkur þar sem hann flakkar um með lím í skúringafötu og hengir upp plaköt. „Ég er búinn að vera að gera þetta í bráðum tíu ár. Þetta byrjaði þannig að ég hafði verið að vinna í mesta sak- leysi niðri á bryggju að smíða vörubretti þegar Ási frá Smekkleysu kom þangað í vandræðum og fékk mig til að hengja upp fyrir sig. Svo spurðist þetta bara út að ég væri maður sem tæki svona að mér. Hálfu ári síðar hætti ég á bryggjunni og fór alfarið í að hengja upp plaköt þó að í dag sé ég að taka önnur störf með þessu.“ Hulda er myndlistarkona sem verður að teljast nokkuð afkasta- mikil því frá árinu 1999 hefur hún haldið um 13 einkasýningar, að frá- töldum samsýningum og annars konar uppákomum til heiðurs lista- gyðjunni. „Þetta hefur gengið vel hjá mér, ég get ekki sagt annað og það er blessun því ég gæti ekki gert annað en að mála. Ég tala með málverkinu og finn mig þannig í þessu. Ef ég ætti heima á vinnustofunni og væri bara þar allan daginn, þá myndi hreinlega vera stríður straumur af verkum á færibandi út úr henni. Þetta er hins vegar ákveðin nautn fyrir mér þannig að ég reyni að spara mér þessa ástríðu. Fyrst kem ég mér í gírinn með því að skissa, hlusta á tónlist og lesa en svo sprettur sýn-

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.