blaðið - 31.03.2006, Síða 24
FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006 blaöiö
Ákafur hugsjóna-
maður og hörkutól
Ljósmynd: Gary Parker/Apple
Steve Jobs, stofnandi og stjórnandi töl vurisans Apple, þykir í senn vera harður í horn að
taka og hugsjónamaður.
Tölvurisinn Apple fagnar 30 ára
afmæli sínu á morgun, 1. apríl,
og ber aldurinn vel þrátt fyrir að
ýmislegt hafi gengið á í gegnum
tíðina. Ýmsar nýjungar Apple á
borð við tónhlöðuna iPod og raf-
rænu tónlistarverslunina iTunes
hafa notið gríðarlegra vinsælda
meðal neytenda og átt sinn þátt í
velgengni fyrirtækisins á undan-
förnum árum. í tilefni af tímamót-
unum kynnti Blaðið sér feril Steve
Jobs hins umdeilda stofnanda og
stjórnanda Apple.
Steve Jobs fæddist í San Francisco
árið 1955. Foreldrar hans sáu sér
ekki fært að ala honum önn og var
hann því ættleiddur af hjónunum
Paul og Clara Jobs í Sílikondal í Kali-
forníu sem þá var í mótun. Snemma
kom í ljós að drengurinn var óvenju-
miklum gáfum gæddur og var hann
ári á undan í skóla. Þar gerðist hann
uppreisnargjarn og var nokkrum
sinnum vísað úr skóla fyrir að
sleppa lausum snákum í kennslustof-
unni, sprengja sprengjur og önnur
prakkarastrik. Þar kynntist hann
jafnframt Steve Wozniak sem var
fimm árum eldri en hann en saman
áttu þeir eftir að leggja grunn að
Apple-veldinu.
Bóhem með viðskiptavit
Þó að Jobs hafi snemma sýnt að hann
hafði viðskiptavit heillaðist hann
jafnframt af hugmyndum um frjálst
og óhefðbundið líferni, prófaði eitur-
lyf, ferðaðist til Indlands og kynnti
sér zen-búddisma.
Árið 1976 stofnuðu félagarnir
Apple og þurfti Jobs meðal annars að
selja forláta Volkswagen rúgbrauð bif-
reið til að fjármagna uppátækið. Fyr-
irtækið einsetti sér að framleiða og
selja tölvur til almennings og náðu
þeir sterkri fótfestu á markaðnum
með Apple II tölvunni ári síðar.
Sumir vilja meina að með henni hafi
einkatölvubyltingin hafist.
Árið 1978 eignaðist kærasta Jobs
til margra ára stúlkubarn sem hann
neitaði að gangast við. Þrátt fyrir að
rannsóknir sýndu að yfirgnæfandi
líkur væru á að hann væri faðirinn
þurfti dómsúrskurð til að hann féll-
ist á að greiða meðlag með barninu.
Mörgum árum síðar gekkst hann við
dóttur sinni.
Skammt var stórra högga á milli
í fjölskyldulífi Jobs á þessum árum
SAGAISLANDS VIII
Meginheimild um sögu lands og þjóðar á árunum 1695-1795
V
í VIII. bindi Sögu íslands er fjallað um tímabilið
1695-1795, auk þess er greint frá bókmenntasögu
1750-1840 og listasögu 18. aldar.
Höfundar eru Lýður Björnsson, Guðbjörn
Sigurmundsson og Þóra Kristjánsdóttir.
Hvernig var mannfjöldaþróun, stjórnskipun
og stjórnsýsla, verslun og aðrir atvinnuvegir?
Einkenndist 18. öldin af hnignun, kúgun og
niðurlægingu? Hér er þvert á móti sýnt fram á
framfarir í atvinnulífi sem leiddu til þéttbýlis-
myndunar. Rakin áhrif upplýsingarinnar og
rómantísku stefnunnar á bókmenntir og listir.
Fyrri bindin eru öll fáanleg .„ ...
- fleiri væntanleg *f[
- frábær tækifærisgjöf /2?
- tilboðspakkar fy™.
ry.
X- 1816-2006
s4
Hið íslenska bókmenntafélag
Skeifunni 3b • Sími 588 9060 • Netfang: hib@islandia.is • Heimasíða: www.hib.is
J
því að um líkt leyti kynntist hann
blóðforeldrum sínum og alsystur.
Viðskilnaðurinn við Apple
Árið 1983 tókst Jobs að sannfæra John
Sculley, forstjóra gosdrykkjafram-
leiðandans Pepsi, um að taka að sér
hlutverk framkvæmdastjóra Apple.
Sjálfur var Jobs innan við þrítugt og
ekki talinn búa yfir nægri reynslu
til að valda verkefninu enda hafði
fyrirtækið stækkað mikið á örfáum
árum. Því miður reyndust Sculley og
Jobs ekki eiga skap saman og enduðu
deilur þeirra með því að Jobs hrökkl-
aðist frá Apple tveimur árum síðar.
Viðskilnaðurinn við Apple kom
illa við Steve Jobs enda hafði hann
byggt upp fyrirtækið frá grunni og
helgað því starfskrafta sína. Jobs,
sem var aðeins þrítugur og marg-
faldur milljónamæringur, dró sig
í hlé um tíma en stofnaði síðan
fyrirtækið NeXT ásamt nokkrum
tryggum starfsmönnum Apple
Jobs rak NeXT af staðfestu og með
svo harðri hendi að hann komst á
lista tímaritsins Forbes yfir hörð-
ustu stjórnendur allra tíma.
Erfiður í samskiptum
Steve Jobs þykir dularfullur, óút-
reiknanlegur og erfiður í sam-
skiptum. Hann hefur alltaf verið
harður í horn að taka og ekki virðist
velgengni í viðskiptalífinu eða fjöl-
skyldulífi hafa mýkt hann. Hann er
mjög viðkvæmur fyrir umfjöllun
um sig og fyrirtæki sitt og árið 1998
strunsaði hann út úr sjónvarpsvið-
tali vegna þess að honum mislíkaði
ein spurning viðmælandans. Hann
hefur óspart reynt að beita áhrifum
sínum til að koma í veg fyrir gagn-
rýna eða persónulega umfjöllun um
sig. Jobs gekk þó skrefi lengra á síð-
asta ári þegar Apple brást við útgáfu
ævisögu Jobs sem unnin var í óþökk
hans með því að taka bækur frá út-
gefenda ævisögunnar af söluskrá
Apple-búða.
Glataði sonurinn snýr heim
Um líkt leyti og hann stofnaði NeXT
keypti Steve Jobs einnig kvikmynda-
fyrirtækið Pixar af George Lucas
og hélt því á floti í nokkur ár þrátt
fyrir að ekkert útlit væri fyrir að fyr-
irtækið myndi skila hagnaði. Fyrsta
kvikmynd þess, Leikfangasaga, sló
í gegn árið 1995 og ári síðar keypti
Apple NeXT og má þvi segja að
glataði sonurinn hafi snúið aftur á
heimaslóðir.
Ekki leið á löngu áður en Jobs
var búinn að taka við stjórnartaum-
unum í Apple-fyrirtækinu á ný.
Hann vann ötullega að því að koma
því aftur á réttan kjöl en hallað hafði
undan fæti í rekstrinum eftir brott-
hvarf hans.
Jobs endurskipulagði reksturinn
og markaðssetti fjölda vinsælla vara
svo sem iMac og iBook tölvurnar
sem áttu sinn þátt í endurreisn
fyrirtækisins.
Með gríðarlegum vinsældum
iPod-tónhlöðunnar og iTunes-tón-
listarveitunnar jókst hagur fyrirtæk-
isins enn frekar. Á sama tíma sló
hver kvikmynd Pixar-fyrirtækisins
á fætur annarri í gegn og má segja
að velgengni þess sé skýrt dæmi um
hvernig þrautseigja og staðfesta Steve
Jobs hafi borgað sig á endanum.
Komdu skipulagi á staf-
rœna myndasafnið þitt
Á laugardag verður haldið námskeið
um skipulagningu, skráningu og
vistun stafrænna ljósmyndasafna.
Margrét Gunnarsdóttir er annar
leiðbeinandi námskeiðsins en hún
starfar m.a. við skráningu mynda
á Landspítalanum. „Við Einar Er-
lendsson, sem er hinn leiðbeinandi
námskeiðsins, fórum að ræða um
mikilvægi þess að koma skipulagi
á myndasöfn í kjölfar fyrirspurna
sem við fengum frá fólki utan úr bæ.
Við Einar ákváðum að leggja saman
krafta okkar og halda námskeið
með það að markmiði að hjálpa fólki
að koma skipulagi á stafræn mynda-
söfn.“ Á námskeiðinu verður farið
yfir ferli frá myndatöku eða inns-
könnun mynda til vistunar. Farið
verður í mismunandi tegundir skráa-
sniða, litarýma og vistunarforma.
Vistunarlausnir
Margrét segir að með tilkomu
stafrænna myndavéla hafi fólk í
auknum mæli farið að taka myndir
og margir eigi þúsundir mynda
sem þeir nái ekíci að halda utan
um. „Einar sem vinnur hjá Húsi
myndanna mun gefa fólki góðar
ábendingar um hvaða forrit gætu
hentað til að halda utan um mynd-
irnar og hjálpað fólki að skrá þær
inn í forritið. Það er mjög misjafnt
hvaða vistunarfyrirkomulag hentar
hverjum og einum og það er engin
ein lausn til. Á námskeiðinu fær fólk
leiðbeiningar til að koma upp eigin
grind og koma upp efnisleitarorðum
sem hægt er að styðjast við.“
Margrét segir að forrit frá Húsi
myndanna kosti um 45 þúsund
krónur án virðisaukaskatts en síðan
sé hægt að fá mun ódýrari forrit.
„Margir standa frammi fyrir því að
Með tilkomu stafrænna myndavéla hafi
fólk í auknum mæli farið að taka myndir
og margir eigi þúsundir mynda sem þeir
nái ekki að halda utan um
vera búnir að fylla harða drifið í tölv-
unni hjá sér af myndum en á nám-
skeiðinu verður einnig fjallað um og
boðið upp á aukið geymslurými. Ef
fólk vistar myndir á diskum er alltaf
sú hætta fyrir hendi að diskarnir
gangi úr sér á nokkrum árum og þá
verði ekki hægt að lesa þá og því er
ekki endilega best að geyma myndir
á þann hátt. Þá geta miðlarnir sem
notaðir eru til að lesa diskna breyst.“
Námskeiðið er sniðið fyrir þá ein-
staklinga sem vanir eru að nota
tölvur, hafa áhuga á að taka myndir
og er annt um að vista þær á skipu-
lagðan hátt til framtíðar.
Námskeiðið verður haldið 1. apríl
frá 10-16 í stofu 422 í Árnagarði.
hugrun@bladid.net