blaðið - 31.03.2006, Blaðsíða 26
26 I GÆLUDÝR
FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006 blaöiö
Heilmikil frœði i fisk&r
Anna Soffía Halldórsdóttir hefur rœktað mörg hundruðfiska heima hjá sér.
Diskusar skiptast í mörg afbrigði og þessi fallegi fiskur kallast Red Turquoise.
Allar gæludýravörur
30 % - 50 % AFSLÁTTUR
FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM
TOKYO
gæludýravörur Hjallahraun 4 Hafnarfirði s.565-8444
.
P
"éf
Trúóur (clownfish)
Sjávarfiskur, atlt að 6cm tangur.
Hann tifir í sambýti með sæfiftum
sem verndar hann gegn óvinum.
Mgengur og auðveldur og er einn
af fáum sjávarfiskum sem er
ræktaður. Getur skipt um kyn.
kr. 2800 til 6400
DÝRARÍKIÐ
Grensásvegi s: 5686668 - Skútuvogi 16 s: 5680020
Akureyri s:4612540 - www.dyrarikid.is
Búr í eigu Önnu Soffíu, en það er 450 lítra
Það er sjaldan dauð stund á heim-
ili Önnu Soffíu Halldórsdóttur
því auk þess að rækta mörg
hundruð fiska er fugl, hundur
og dverghamstrar á heimilinu
hennar. Hennar helsta áhuga-
mál er fiskaræktun enda finnast
henni fræðin í kringum fiskana
einkar skemmtileg.
,Ég er með mörg búr hér heima fyrir
og til dæmis er ég með ræktunar-
rekka í sérstöku herbergi. Ég rækta
aðallega diskusa sem eru suður-am-
erískir fiskar. Þetta eru kringlóttir
fiskar, eins og diskar í laginu. Disk-
usar eru mjög dýrir fiskar en ég hef
einmitt reynt að lækka verðið með
minni ræktun. Ég sel ungfiska á
nokkra þúsundkarla en þeir geta
kostað á bilinu 10-20 þúsund út úr
búð þó það fari eftir afbrigðum. Svo
er ég með 450 lítra aðalbúr í stof-
unni hjá mér sem er með þessum
fiskum sem og öðrum og lifandi
gróðri," segir Anna Soffía og bætir
við að margir tala um að það sé ekki
skemmtilegt að vera með fiska enda
sé til dæmis ekki einu sinni hægt
að klappa þeim. „En það sem er svo
skemmtilegt við fiska er einmitt
þessi efnafræði, að hugsa um vatnið,
plönturnar og að hafa allar formúlur
réttar. Þeir sem eru í fiskum af fullri
alvöru velta þessari efnafræði mikið
fyrir sér, uppbyggingu lífríkisins og
fleira."
Auðveldara að þrífa stærri búr
Þrátt fyrir að Anna Soffía eigi öll
þessi búr segir hún að það fari alls
ekki mikill tími í að hreinsa þau.
„Eftir því sem búrið er stærra því
betra er að þrífa það. Búr sem er
20 lítra er erfiðara í meðhöndlun
en 600 lítra búr. Það gætir yfirleitt
misskilnings hjá
fólki og það kaupir a a
minni búr en þá y y
fer mikill tími í að
skafa þörung og
annað viðhald. Það
er miklu betra að
kaupa stórt og öfl-
ugt búr og öflugan tunnuhreinsi.
En það er skiljanlegt að fólk byrji
á minni búrum og stækki síðan
við sig. Þá sér fólk muninn, hversu
auðveldara það er að eiga við stærri
búrin. Ég set slöngu í búrið hálfs-
mánaðarlega og set hinn endann
út um glugga og sýg vatnið upp úr
búrinu. Ég geri eitthvað annað á
meðan vatnið dæíist út í lóð. Ég dæli
bara 20-30% af vatninu og fiskarnir
eru í búrinu á meðan. Eg hreinsa
tunnudæluna oft vikulega en það fer
eftir því hversu mikil fóðurgjöfin er.“
Þetta segir Anna Soffía að sé mjög
mikilvægt enda geta myndast efni i
búrinu sem drepa fiskana. „Það eru
efni í vatninu sem heita ammoníak,
NO2 (nítrit) og NO3 (nítrat). Þetta
eru efni sem við viljum ekki hafa í
of miklum mæli í búrinu og sérstak-
lega ekki nítritið. Ef það er ekki nið-
urbrot í vatninu og nítrit hleðst upp
þá getur það drepið fiskana. Þetta
getur til dæmis gerst ef fiskunum
er gefinn of mikill matur og ekki
er skipt reglulega um vatn. Það er
gott að vera með mikið af plöntum
í búrinu því þær nýta sér þessi efni
auk þess að gefa súrefni. Það þarf að
finna ákveðið jafnvægi í búrinu svo
þessi efni hlaðist ekki upp.“
Skíri ekki fiskana mína
Anna Soffía segir að henni finnist
ræktunin það skemmtilegasta við
fiskana. „Að horfa á fiskinn vaxa og
fylgjast með honum dafna. Það eru
margir sjúkdómar sem fylgja fiskum
og það þarf að kynna sér hvern ein-
asta sjúkdóm til að geta brugðist
rétt við. Það þarf að lesa um hvernig
sjúkdómarnir lýsa sér og hvaða lyf
eru notuð. Það eru mikil fræði í
kringum fiska og fólk gerir sér ekki
alltaf grein fyrir því. Það fer út í búð,
kaupir sér búr og fiska og gerir síðan
ekki neitt. Ég fæ oft símhringingar
frá fólki þar sem fiskarnir eru allir
að deyja og enginn skilur neitt í
neinu. Þegar fiskabúr er sett upp þá
tekur margar vikur að byggja upp líf-
ríki. 1 byrjun þarf að tappa af 10-20%
af vatni þriðja eða fjórða hvern dag.
Þetta er gert á meðan lífríkið er að
byggjast upp því annars safnast nít-
rit fyrir í búrinu og það getur orðið
nítritsprenging," segir Anna Soffía
sem segist samt sem áður ekki tengj-
ast fiskunum tilfinningaböndum.
,Ég skíri ekki fiskana mínum og ég
græt ekki ef þeir drepast."
Býr til kjötblöndu fyrir fiskana
Anna Soffía ræktar einungis fersk-
vatnsfiska og hennar áhugi liggur
helst þar. Hún segir að talið sé að
diskusar séu erfiðasta deildin. „Disk-
usar éta kjöt. Ég bý til sérstaka kjöt-
blöndu handa þeim sem ég blanda
úr kinda- eða nautahjarta. í því er
líka blómkál, gulrætur, spínat, hvít-
laukur, rækjur, vítamín, þorskur
og svo framvegis. Ég hef selt marga
diskusa úr mínum ræktunarhóp en
suma vil ég eiga því ég vil sjá hvernig
þeir dafna.“ Þar sem Anna Soffía er
mjög fróð um fiska segist hún oft fá
fyrirspurnir um umönnun þeirra og
hvað eigi að vera í búrunum. „Það
er mjög misjafnt hvað þarf að vera í
fiskabúrinu, það fer eftir stærð búrs-
ins og hvaða fiskar verða í búrinu.
Til að mynda eru fisktegundirnar
pleggar og stórar ancistrur ekki
settar í gróðurrík búr. Sýrustig í
búri þarf að vera hlutlaust, pH 7 en
þetta getur líka verið breytilegt eftir
tegund fiska.
Sýrustig þarf til
dæmis að vera
ph 8-9 í búri
með afrískum
síklíðum. Hægt
er að auka sýr-
ustig í búrum
með ph-i- efnum eða skeljum en það
má minnka það með góðri trjárót,
gamla góða natróninu sem ég næ
bara í upp í skáp eða ph-. Það eru
efni i natróni sem gera fiskunum
ekkert en núllar vatnið.“
Áhugasömum er bent á að kíkja
á spjallvefinn www.dyraspjall.com
en Anna Soffía opnaði nýlega þessa
spjallsíðu ásamt Soffíu Elínu Sig-
urðardóttur. Síðan er óháð, það er
ekki tengd neinni gæludýraverslun,
en þar geta allir þeir sem áhuga
hafa á dýrum sent inn fyrirspurnir,
spjallað, fræðst og frætt aðraog
keypt vörur sem aðrir notendur
auglýsa.
svanhvit@bladid.net
Diskusar geta verið mjög dýrir fiskar en ég hef
einmitt reynt að lækka verðið með minni ræktun.