blaðið - 31.03.2006, Blaðsíða 30
30 I
FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006 blaðiö
Fabregas getur orðið sá besti
Thierry Henry hrósar samherja sínum, Cesc Fabregas, í hástert.
Scott Parker saltar Didier Drogba i leik Chelsea og Newcastle á dögunum. Drogba þarf
aö láta aðra tækla sig það sem eftir er af tímabilinu - Parker er nefnilega veikur heima.
SKYNDIPRÓFIÐ
Maradona
Hversu oft sigraði hann
HM?
Með hvaða liði lék hann á
árunum 1984-1991?
Hvaða argentínska lið, sem
hann lék með á árum áður,
styður hann í dag með
ráðum og dáð?
Á móti hvaða þjóð skoraði
hann með „hönd Guðs“ á
HM 1986?
Hvað er kappinn stór?
4.
5.
•ud 891 'S 'jpup|6u] fr 'sjomnf
eDog 'í '!|odeN z 'juuis nu.13 ‘i
Ronaldinho
verðmætastur
Ronaldinho, leikmaður
Barcelona, er verðmæt-
asti knattspyrnumaður
heims þegar kemur að
auglýsingasölu. Sam-
kvæmt þýska ráðgjafa-
fyritækinu BBDO er
Brasilíumaðurinn
metinn á rúma fjóra
milljarða íslenskra
króna og skákar þar
með enska auglýs-
ingaprinsinum David
Beckham sem er nú í
öðrusæti. Hinnsnoppu
fríði leikmaður Manc
hester United, Wayne Ro
oney, er svo þriðji.
Þó að Beckham sé enn
þekktasta andlitið í knatt
spyrnuheiminum gera aldur Ron
aldinho og afrek það að verkum að
hann hentar betur við markaðssetn-
ingu, samkvæmt BBDO. „Beckham
er í öðru sæti þar sem hann þykir
einn mesti „metrósexual“-maður
Thierry Henry, fyrirliði Arsenal,
segir að Cesc Fabregas eigi ekki langt
í að verða leikmaður á svipuðum
mælikvarða og Wayne Rooney eða
Ronaldinho. Spænski táningurinn
Fabregas átti stórleik gegn Juventus,
þegar liðin mættust á þriðjudags-
kvöld, og bar af í annars sterku liði
Arsenal. „Það er sjaldan sem maður
sér svona unga leikmenn með slíka
hæfileika. Hann hefur verið að gera
mjög góða hluti á tímabilinu og er
stöðugt að bæta sig. Hann er farinn
að geta slátrað liðum upp á sitt eins-
dæmi,“ sagði Henry.
Hann segir að þó sé nauðsynlegt
að hlúa vel að Spánverjanum og
vernda hann. „Ég hef alltaf haft
mikla trú á Cesc. En í upphafi leik-
tíðar var hann ekki að spila sérlega
vel og ég man að fólk var mikið að
gagnrýna hann. Nú stendur hann
sig hins vegar frábærlega, fólk kallar
hann snilling og spáir því að hann
verði besti miðjumaður heims.
Við megum ekki missa okkur al-
veg, heldur þarf að gefa honum tíma
og næði t i 1
alvöru
orkudrykkur
Fabregas átti stórleik gegn Juventus á þ riðjudagskvöld og skoraði mark og lagði upp
annað. Arsenal er komið með annan fótinn í undanúrslit meistaradeildarinnar fyrir vikið.
að þroskast og bæta sig,“ sagði
Henry. „Cesc hefur þó sýnt
að hann getur höndlað
pressuna. Ég hef alltaf
sagt að þó að hann
hafi líkama tán-
ings er hann öld-
ungur í anda.“
Gæti orðið
stjarna HM
Henry er ekki
einn um að
hæla Fabregas
því Paul Merson, fyrrum leikmaður
Arsenal, sagði við íjölmiðla að hann
spáði því að spænska undrabarnið
yrði ein af skærustu stjörnum HM í
sumar. „Hann var framúrskarandi á
móti Juventus, hreint stórkostlegur,“
sagði Merson. „Ég trúi ekki öðru en
að hann verði valinn í spænska lands-
liðshópinn fyrir HM því hann á það
algjörlega skilið. Hann gæti hæglega
orðið lykilmaður þess í keppninni,“
sagði Merson ennfremur.
bjorn@bladid.net
sem fyr-
irfinnst," sagði talsmaður
BBDO.
LENGJAN LEIKIR DAGSINS
Spilaöu á næsta sölustnö eöa á lengjar i.is
Energie Cottbus - Freiburg 1,85 2,75 2,90
Karlsruhe - Greuther Fíirth 1,85 2,75 2,90
Paderborn - Bochum 2,60 2,65 2,05
Utrecht - RKC Waalwijk 1,60 2,95 3,50
Crystal Palace - Watford 1,90 2,75 2,80
Hartlepool - Oldham 2,45 2,60 2,20
Tranmere - Port Vale 1,80 2,80 3,00
Torino - Catania 1,95 2,70 2,75
Braga - Nacional 1,60 2,95 3,50
Scott Parker ekki meira
með á þessu tímabili
Miðjumaðurinn sterki veiktist af einkirn-
ingasótt og meiðslalisti Newcastle lengist.
Scott Parker, leikmaður Newcastle,
mun að öllum líkindum verða frá
það sem eftir lifir tímabilsins eftir
að hafa veikst af einkirningasótt. Þá
má telja ljóst að veikindin aftri Par-
ker frá því að leika á HM í sumar en
talið var líklegt að hann hlyti sæti
í landsliðshóp Englendiriga fyrir
mótið. „Við erum nokkuð vissir um
að þetta sé einkirningasótt. Hann
er búinn að vera veikur í rúman
mánuð núna,“ sagði Glenn Roeder,
bráðabirgðastjóri liðsins, en vildi
ekki tjá sig frekar um málið. Parker
hefur leikið stórvel í búningi þeirra
röndóttu í vetur eftir að hafa gengið
til liðs við þá frá Chelsea síðasta
sumar.
Tíðindin eru enn eitt reiðarslagið
fyrir Newcastle en liðið hefur átt við
ramman reip að draga á leiktíðinni
og verið fyrir neðan miðja deild
frá því í haust. Michael Owen rist-
arbrotnaði á gamlársdag og hefur
ekki leikið síðan og þá tóku meiðsli
spænska sóknarmannsins Alberts
Luque sig upp á ný á dögunum. Sá
hefur ekki leikið nema 10 leiki á
tímabilinu en Newcastle borgaði
9,5 milljónir punda fyrir kappann í
haust.
Skeytin inn
Breska dagblaðið Daily
Mail heldur því fram
að Andryi Shevchenko,
leikmaður AC Milan, hafi gert
fjögurra ára
samning við
Chelsea. Ro-
man Abramov-
ich, eigandi
Chelsea,
hefur ítrekað
reynt að klófesta úkraínska
sóknarmanninn undanfarin
ár en ekki haft erindi sem
erfiði. Samkvæmt Daily Mail
mun Shevchenko fá 110 þúsund
pund á viku, eða tæpar tvær
milljónir íslenskra króna á dag,
skrifi hann undir hjá Englands-
meisturunum. Þá kom einnig
fram að liðið hyggðist losa sig
við Didier Drogba og Hernan
Crespo í sumar en þeir þykja
ekki hafa staðið undir vænt-
ingum Jose Mourinho, stjóra
liðsins.
Shevchenko sjálfur sagði
fréttina uppspuna frá rótum
og ekkert hafa rætt við Chelsea.
„Það eina sem ég hef heyrt er
það sem einhverjir aðrir hafa
verið að segja. En ég vil bara
þakka enskum fjölmiðlum fyrir
að hafa búið þetta til. Kannski
að Milan hafi þá hraðari
hendur í að bjóða mér nýjan
samning," sagði Shevchenko.
Ken Livingston, borgar-
stjóri Lundúna, hefur
útilokað að eitthvert
knattspyrnulið fái að taka yfir
Ólympíuleikvanginn þar í borg
eftir leikana árið 2012. Lundúna-
liðin Tottenham og West Ham
hafa bæði rennt hýru auga til
leikvangsins en nú hefur verið
ákveðið að leikvangurinn verði
framtíðar frjálsíþróttamiðstöð.
Aaron Lennon og Michael
Dawson hafa framlengt
samninga sína við enska
úrvalsdeildarliðið Tottenham
Hotspur. Lennon skrifaði undir
til ársins 2010
en Dawson
til 2011 „Þetta
eru stórkostleg
tíðindi fyrir
félagið. Þessir
tveir ensku leik-
menn hafa þrátt
fyrir ungan aldur sýnt að þeir
eiga fullt erindi á meðal þeirra
allra bestu og hafa verið mikill
styrkur fyrir liðið í vetur,“ sagði
Damien Comolli, yfirmaður
íþróttamála hjá Tottenham.
Lennon hefur að undanförnu
verið orðaður við Manchester
United og gengu sögur um að
Rauðu djöflarnir hyggðust reyna
að klófesta kappann í sumar
fyrir fimm milljónir punda.
Telja má nú ljóst
að af því verði
ekki. Lennon,
sem ér einungis
18 ára gamall,
þykir í hópi
allra efnilegustu
leikmanna Bret-
landseyja og hefur leikið 22 leiki
fyrir Tottenham á leiktíðinni.
„Ég nýt þess í botn að vera
að spila hjá Tottenham. Þetta
er frábært lið og hér líður mér
mjög vel,“ sagði Lennon eftir
undirritun samningsins og
Dawson tók í sama streng.„Ég
er í skýjunum með samninginn
enda er þetta frábært félag. Liðs-
andinn er eins og best verður á
kosið og allir hérna eru fullvissir
um að Tottenham geti náð í
hæstu hæðir,“ sagði Dawson.