blaðið

Ulloq

blaðið - 31.03.2006, Qupperneq 38

blaðið - 31.03.2006, Qupperneq 38
38IFÓLK FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006 blaðiö FÓTBOLTI, PÍTSUR OG ENDAJAXLAR Smáborgarinn fylgist með meistaradeild- inni þó að uppáhalds liðið hans hafi nú aldrei keppt þar... enn. (vetur hefur verið einkar skemmtilegt að sjá sóknarliðin komast áfram í keppninni og t.a.m. hafði Smáborgarinn sérstaka ánægju af því að sjá hið stórskemmtilega lið Barcelona slá út Chelsea. Að mati Smáborgarans er Kata- lóníuliðið langbesta knattspyrnuliö heims í dag og væri gaman að sjá það fara alla leið í keppninni. Það kom Smáborgaranum á óvart að sjá Arsenal sigra Juventus örugglega en liðið hefur þó verið að leika vel að undan- förnu og miðað við leikinn á þriðjudag gæti það náð langt i meistaradeildinni. Þrátt fyrir djúpstætt haturá Arsenal þætti Smáborgaranum óneitanlega gaman að sjá snillingana Thierry Henry og Ronald- inho mætast í úrslitunum. Að sjálfsögðu myndu Börsungarnir svo rassskella Lund- únaskömmina. Góður pítsustaður á Laugavegi Smáborgarinn borðaði í fyrsta sinn á Reykjavík pizza company í fyrrakvöld og tók með sér betri helminginn í þá próf- raun. Skemmst er frá því að segja að báðir helmingarnir, sá betri og verri, voru mjög ánægðir með allt saman. Maturinn bragð- aðist vel, þjónustan var ágæt og verðinu var stillt í hóf miðað við gæði. Ólíkt því sem gerist á t.a.m. Pizza Hut þar sem hálf mánaðarlaunln fara bara í pepslkönnu, sem er í þokkabót goslaus. Reykjavík pizza company er, eftir því sem Smáborgarinn veit best, útibú frá Eldsmiðjunni en Rpc er þó öllu huggulegri og fínni. Alltaf gaman að fara á góða pítsustaði, en þeir vaxa ekki á hverju strái hérálandi. Seinfeld yfir endajaxlatöku Smáborgarinn hefur annars verið nokkuð hress síðustu daga. Var að jafna sig eftir að hafa látið taka úr sér alla endajaxlana og er dauðsfeginn að vera loks búinn að því. Smáborgarinn hafði búið sig undir að eiga ekki afturkvæmt úr aðgerðinni og skildi m.a.s. eftir kveðjubréf á eldhúsborð- inu, áður en hann hélt út í opinn dauðann. Herlegheitin gengu þó vonum framar og sérstaklega hafði Smáborgarinn gaman af því að geta horft á Seinfeld-þætti á með- an hann lá í stólnum. Hafði tannsi orðið sér úti um fínasta sjónvarpsskjá sem hann stillti upp fyrir ofan Smáborgarann áður en hann reif jaxlana úr. Sannarlega fyrir- bæri sem Smáborgarinn hefði viljað hafa til staðar í þau ótal mörgu skipti sem hann hefur legið í stólnum. HVAÐ FINNST ÞÉR? Arna Schram, formaður Blaðamannafélagsins Hvað finnst þér um Bubbadóminn? „Dómurinn er héraðsdómur og hefur því ekki jafnmikið vægi og ef um hæstaréttardóm væri að ræða. Þrátt fyrir það eru atriði í honum sem hljóta að vekja blaðamenn til umhugsunar. Til dæmis hvort í dóminum gæti tilhneigingar til að hækka skaðabætur, til að þrengja réttinn til myndatöku á almannafæri, eða réttinn til að setja fram tvíræðar fyrir- sagnir. Ennfremur er það umhugsunarefni að ritstjóri skuli dæmdur til greiðslu skaðabóta en ekki útgefandinn.“ Dómurinn í máli Bubba Morthens gegn tímaritinu Hér og nú hefur vakið athygli. Ritstjóri umrædds tímarits hefur verið dæmdur til að greiða Bubba 700 þúsund krónur í skaðabætur. Gamanleikarinn George Lopez hlaut hamingjuóskir frá Hnefaleikakappinn meö beittu tennurnar, Mike Tyson, er í sviðsljósi leikkonunni Constance Marie þegar hann fékk stjörnu á fjölmiðla hvert sem hann kemur. Tyson kom til Shanghai á dögunum frægðargöngu Hollywood. Sjálfur var hann hinn rólegasti. í viðskiptaferð og létu Ijósmyndararnir sig ekki vanta á flugvöllinn. Söngkonan Omara Portuondo i kúbversku hljómsveitinni Buena Vista Social Club vandar sig við förðunarborðið áður en hún stígur á svið í Havana. Portuondo er 75 ára gömul og eini eftirlifandi listamaðurinn í þessum fræga hópi. Hún fylgir nú þéttskipaðri tónleika- dagskrá sem tekur hana víða um heim. MÍSSFMB35 eftir Jim Unger 6-12 O Jlm Unger/clist. by United Medie, 2001 Ég myndi ekki borga 500 krónur til þess að fá að horfa á þig. HEYRST HEFUR.. Sjálfsagt hugsa margir Indr- iða H. Þorlákssyni ríkis- skattstjóra þegjandi þörfina um þessar mund- ir, en hann er þekktur fyr- ir að sinna starfi sínu af ástríðu. Muna sjálf- sagt margir þegar hann lýsti því yfir að öll heimsins gæði þessarar tilveru væru skattskyld, nema annað væri sérstaklega fram tekið, líkt og það hefði verið smáa letrið á steintöflunum, sem Móse kom með niður af Sínaífjalli sællar minningar... Síðdegis í gær brá ríkisskatt- stjóri sér hins vegar í kufl Bölmóðs spámanns, en þá var kynnt umsögn hans um þær fyr- irætlanir að í stað afnotagjalda greiði allir nefskatt til Ríkisút- varpsins. Taldi Indriði nefskatta hafa afar fáa kosti, en ótal galla. Mesta athygli vekja þó viðvar- anir hans til stjórnvalda um ófyrirsjáanlegar afleiðingar nefskatta. Nefnir hann að að Ríkharður II. Englandskonung- ur hafi lagt á nefskatt ár- ið 1380, sem hafi valdið bændaupp- reisninni 1381, og eins hafi nefskatt- ur á Eng- landi árið 1989 valdið miklum óeirðum og átt mikinn þátt í að Margréti Thatcher hafi verið steypt af stóli! Ekki kæmi því á óvart þó ráðherrar lýðveldisins fari senn að hlaða götuvígi um- hverfis Arnarhól... Mikið hefur verið látið með nýja bók rithöfund- arins Andra Snaes Magnason- ar, Draumalandið, sem öðrum þræði fjall- ar um fram- tíð íslands og stóriðju- stefnuna. S é r s t a k - lega virðist Andra Snæ í nöp við ál- iðnaðinn og tíundar hann ýms- ar ávirðingar Alcoa eins og að ál frá þeim sé notað í hergögn, þó sjálfsagt megi eins benda á að illar hugmyndir í útbreidd- um bókum hafi ekki síður orðið mörgum að fjörtjóni. En þessi bók kvað hins vegar vera svo góð að Silja Aðalsteinsdótt- ir gekk í smiðju Abbie Hoffman og skoraði á fólk að stela bók- inni ef ekki vildi betur. Hinu virðast allir hafa gleymt, að ekki eru nema fjögur ár síðan Andri Snær þáði bjartsýnisverð- laun úr hendi forseta íslands, herra Ólafs Ragnars Grímsson- ar. Og hver kostaði þau? Enginn nema álrisinn Alcan... Brynja Björk Garðarsdóttir, sem af einhverjum ástæð- um fékk viður- nefnið hnak- kamella, er hætt störfum á tímaritinu Hér & nú, en keppi- nauturinn Séð 8c heyrt virtist um hríð gera sér það að leik, að álíta hana ritstjóra Hér & nú. Nú heyrast þær fregnir að viðræður standi yfir um að hún gangi til liðs við Séð 8c heyrt. 1 ljósi þess, að Kristján Þorvalds- son er nýhættur sem ritstjóri þess, er ekki óvarlegt að ætla að hún geti fyllt þann stól...

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.