blaðið - 06.04.2006, Page 4
4 I IWltfLEWDAR FRÉTTIR_______ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2006 blaöiö
Nýjar ákærur fyrir hundruð
milljóna fjársvik og fleiri brot
Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Tryggva Jónssyni gefið að sök að hafa skarað eld að eigin köku
HÚsgagna ® kostnað almenningshlutafélagsins Baugsþar semþeir voru meðal œðstu stjórnenda.
Þú fcerð fermingargjafirnar
hjá okkur
<3D
Gullsmiðia óla í smáralind
Blatil/Gúndi
Sakborningarnir Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, og Tryggvi Jónsson, fyrrver-
andi aðstoðarforstjóri Baugs, koma til þingfestingar Baugsmálsins síðastiiðið haust.
mgi»nai
Bæjarlind 16 - Kópavogi
S: 517 6770
O • ■ 4».' :
Dýnur með stillanlegri mýkt.
Mýktinni breytt hvenær sem er
með einum takka.
Hún með mjúka & hann með
harða, samt sama dýnan.
Nuddstólar frá
Góður nuddstóll
frábær eftir erfiöan vinnudag
3 gerðir & nokkrir litir
Besta verðið
Ótrúlega margir litir
Stærsta litla búðin á íslandi
Yfir 10.000 möguleikar
Hinar nýju ákærur í Baugsmálinu,
sem Sigurður Tómas Magnús-
son, settur ríkissaksóknari, gaf
nýlega út á hendur þeim Jóni
Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra
Baugs, Tryggva Jónssyni, fyrrver-
andi aðstoðarforstjóra, og Jóni
Geraldi Sullenberger, fyrrverandi
viðskiptafélaga Baugsmanna í
Bandaríkjunum, eru síst minna al-
varlegar en hinar fyrri, sem vísað
var frá héraðsdómi. Blaðið hefur
fengið nýju ákæruna í hendur, en
í henni eru 19 ákæruliðir í fimm
köflum vegna ætlaðra lögbrota
af ýmsu tagi, eins og rakið er að
neðan. Eru hinir ákærðu sakaðir
fyrir fjárdrátt, fjársvik, brot gegn
hlutafélagalögum, ólögmætra lán-
veitinga og bókhaldsblekkinga,
en þeir Jón Ásgeir og Tryggvi
voru æðstu stjórnendur almenn-
ingshlutafélagsins Baugs, þegar
ætluð brot áttu sér stað. Upphæð-
irnar í ákærunni eru hærri en
menn eiga að venjast í íslenskum
dómsmálum og hlaupa á hundr-
uðum milljóna
Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, for-
stjóra Baugs, eru gefin að sök
fjársvik (en til vara umboðssvik)
með því að hafa beitt stjórn Baugs
blekkingum í auðgunarskyni þegar
Baugur festi kaup á 70% hlutafjár í
Vöruveltunni, rekstrarfélagi 10-11
verslananna, vorið 1999, skömmu
eftir að Baugur var skráð almenn-
ingshlutafélag með dreifða eignar-
aðild á aðallista kauphallarinnar. Er
hann sagður hafa leynt því að hann
væri raunverulegur seljandi hluta-
fjárins og lagt sig í framkróka við
að halda stjórn Baugs í þeirri trú að
Helga Gísladóttir og félagið Fjárfar
væru seljendurnir, en í raun hafði
Jón Ásgeir keypt allt hlutafé í Vöru-
veltunni hálfu ári áður.
Með þessum meintu blekkingum
er Jón Ásgeir sagður hafa fengið sam-
þykki stjórnarinnar til að ganga frá
kaupum á hlutafénu á verði, sem
hann hafi talið „stjórninni trú um
að væri niðurstaða samninga við
ótengda seljendur, en var í raun
ákvarðað af honum einum,“ eins og
segir í ákærunni.
Vikið er að því með ýtarlegum
hætti hvernig Jón Ásgeir eigi að
hafa beitt þessum blekkingum, en
brotin eru sögð hafa átt sér sjö mán-
aða aðdraganda og viðskiptin voru
afar flókin. Hinn 7. október 1998
keypti Jón Ásgeir allt hlutafé Vöru-
veltunnar af Helgu Gísladóttur fyrir
hönd ótilgreindra kaupenda. Kaup-
verðið var 1,15 milljarðar króna og
voru 200 milljónir greiddar daginn
eftir en þær komu frá Baugi án þess
að heimild væri fyrir. í kjölfarið
sigldu afar flókin viðskipti, sem
samkvæmt ákærunni miðuðu að
því að fela fingraför Jóns Ásgeirs og
skilja fasteignir Vöruveltunnar frá
félaginu áður en það var selt Baugi.
Til þessa hafi Jón Ásgeir fengið fólk
til þess að leppa fyrir sig fyrirtækin
Fjárfar og Litla fasteignafélagið, en
sjálfur hafi hann farið með þau sem
eigin eign frá öndverðu.
Samkvæmt ákærunni galt Baugur
alls 325 milljónum krónum hærra
verð fyrir hlutafé Vöruveltunnar en
Jón Ásgeir hafði sjálfur borgað fyrir
það. Telst sú upphæð tjón almenn-
ingshlutafélagsins vegna ætlaðra
brota forstjóra þess, en fyrir vikið
hafi hann, faðir hans og systir, þau
Jóhannes Jónsson í Bónus og Kristín
Jóhannesdóttir, hagnast um að
minnsta kosti 200 milljónir króna,
en Jón Ásgeir hafi haft umtalsverðan
kostnað af kaupum og sölu hlutafjár-
ins og því að leyna eignarhaldi sínu.
417 milljónir í ólögleg lán
1 2.-9. lið ákærunnar er Jón Ásgeir
sakaður um að hafa sem forstjóri
Baugs veitt lán af fjármunum
Baugs til Fjárfestingarfyrirtækisins
Gaums (fjölskyldufyrirtæki Bónus-
fjölskyldunnar), Fjárfars og Krist-
ínar Jóhannesdóttur, systur sinnar,
sem andstæð séu hlutafélagalögum,
en Baugur var almenningshlutafé-
lag með dreifða eignaraðild.
Þarna ræðir um margháttaðar
lánveitingar, mjög misjafnar að
vöxtum, sem aðallega voru notaðar
til ýmissa fjárfestinga og hlutabréfa-
kaupa í almenningshlutafélaginu
Baugi, en öðrum hluthöfum buðust
ekki sams konar kjör.
Alls námu lánin, sem tiltekin eru
í ákærunni, liðlega 417 milljónum
króna, en misjafnt var hvort þau
höfðu verið greidd þegar rannsókn
hófst, sum báru vexti, önnur ekki,
einatt vantaði skrifleg gögn um end-
urgreiðslu og greiðslukjör og láns-
fjárhæðin ekki innheimt í samræmi
við hlutafélagalög.
Meiri háttar bókhaldsbrot
og rangfærsla skjala
Jón Ásgeir ogTryggvi Jónsson, þáver-
andi aðstoðarforstjóri Baugs og fyrr-
verandi endurskoðandi fyrirtækis-
ins hjá KPMG, eru í ákæruliðum
10-16 ákærðir fyrir meiri háttar
bókhaldsbrot, en þeir eru sagðir
hafa rangfært bókhaldið árin 2000
og 2001 og átt þátt i að búin voru
til gögn, sem áttu sér ekki stoð í
viðskiptum við aðra aðila, og hagað
bókhaldinu með þeim hætti að það
gaf ranga mynd af viðskiptum og
notkun fjármuna.
Einnig er Jón Ásgeir ákærður fyrir
að láta sem forstjóri almennings-
hlutafélagsins senda Verðbréfaþingi
Islands opinberar tilkynningar um
afkomu félagsins, sem honum hafi
verið ljóst, að voru rangar. Þannig
hafi hann vísvitandi og í blekkingar-
skyni greint rangt frá högum fyrir-
tækisins, sem þannig skekkti mynd
almennra fjárfesta á því og gæti
haft áhrif á sölugengi hluta í Baugi.
Rangar bókhaldsfærslur hafi haft
áhrif í árshlutareikningi almenn-
ingshlutafélagins Baugs, þannig að
hagnaður fyrir skatta og afskriftir
(EBIDTA), hagnaður eftir skatta og
eigið fé hafi verið ofmetið.
I þessum kafla ákærunnar er Jón
Gerald Sullenberger einnig ákærður
fyrir að hafa aðstoðað þá Jón Ásgeir
og Tryggva Jónsson við rangfærsl-
una með því að útbúa tilhæfulausan
kreditreikning (afsláttarreikning)
að fjárhæð tæpar 62 milljónir króna.
Falin hlutabréf
Þeir Jón Ásgeir og Tryggvi Jónsson
eru ákærðir í 17. lið ákærunnar fyrir
meiri háttar bókhaldsbrot með því
að láta svo líta út í bókhaldi Baugs
að seld hefðu verið út úr félaginu
hlutabréf að andvirði 330.764.000
krónur, en þau hafi í raun verið flutt
á fjárvörslureikning félagsins í Lúx-
emborg, þar sem þau voru notuð til
þess að greiða ýmsar fjárskuldbind-
ingar, sem tengdust Baugi, þar með
talið til nokkurra æðstu stjórnenda
almenningshlutafélagsins, án þess
að þeirra ráðstafana væri getið í
bókhaldi Baugs. Kaupþing hf. var
sagt vera kaupandi og kaupverð
hlutanna eignfært á viðskiptareikn-
ing Kaupþings hjá Baugi, en færslan
myndaði þannig tilhæfulausa skuld
Kaupþings við Baug á bókunum.
Markmið þessarar færslu hluta-
fjárins er sagt vera að draga á dul
hverjir voru raunverulegir viðtak-
endur verðmætanna.
Fjárdráttur vegna skemmti-
báts og greiðslukorts
Þeir Jón Ásgeir og Tryggvi Jónsson
eru í 18. lið ákærunnar gefinn að sök
fjárdráttur að andvirði 32.262.645
krónur, fjármunir sem þeir eru
sagðir hafa dregið Gaumi - sem á
þeim tíma var í eigu Jóns Ásgeirs,
föður hans, móður og systur - frá
Baugi á tímabilinu 20. janúar 2000
til H.jÚnÍ2002.
Brotin eru sögð felast í því að
Tryggvi hafi með vitund og vilja
Jóns Ásgeirs greitt 31 reikning frá
Nordica til Baugs vegna útgjalda,
sem voru almenningshlutafélaginu
óviðkomandi. Að mestum hluta
voru reikningarnir vegna afborg-
ana af lánum, rekstrarkostnaðar og
annars tilfallandi kostnaðar vegna
hins margfræga skemmtibáts Thee
Viking í Flórída.
Eigendur Gaums töldu félagið
eiga hlut í bátnum og höfðuðu mál
til staðfestingar því á sínum tíma,
en sömdu um málið utan réttarsala
áður en yfir lauk.
Reikningarnir þessir voru sam-
þykktir af Tryggva og færðir í bók-
hald ýmist sem greiðslur vegna
tæknilegrar aðstoðar eða ferðakostn-
aður, en Tryggvi gaf jafnframt fyrir-
mæli um útgáfu reikninganna, orða-
lag og upphæðir.
Þá er í 19. lið ákærunnar Tryggvi
Jónsson sakaður um fjárdrátt á
T315-307 krónum frá Baugi á tíma-
bilinu 11. janúar 2000 til 12. febrúar
2002. Hafi hann látið Baug greiða
félaginu Nordica 13 reikninga
vegna ýmissa persónulegra útgjalda
Tryggva erlendis, en hann hafði yfir
að ráða greiðslukorti frá American
Express í nafni Nordica. Voru reikn-
ingarnir færðir inn sem greiðslur
vegna ferðakostnaðar erlendis og
tæknilegrar aðstoðar.
Settur ríkissaksóknari, Sigurður
Tómas Magnússon, krefst þess að
ákærðu verði dæmdir til refsingar
fyrir framangreind brot, svo sem
heimildir eru til í lögum.