blaðið - 06.04.2006, Blaðsíða 23
blaðið FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2006
riÐTAL I 23
eitthvað annað en ég hef gert áður.“
Ekkert allsherjar partí
Hefurðu þurft að takast á við stjörnu-
stcela listamanna?
„Bara hjá litlum listamönnum.
Aldrei hjá stórum listamönnum. Ég
kem úr leikhúsi og hef skilning á þvi
að listamaður sem er að fara inn á
svið er ekki alveg með sjálfum sér.
Ég hef lent í þvi að söngkona sem átti
fara á svið í Háskólabíói sagði: „Ég
syng ekki hérna“. Ég klappaði henni
á öxlina og sagði: „Það eru tvær mín-
útur þangað til að þú stígur á sviðið".
Ég myndi aldrei kalla þetta stjörnu-
stæla. Það eru stjörnustælar ef lista-
maður leggur yfirvegað til að maður
taki á leigu fyrir hann þrjár hæðir á
hóteli. Þá segi ég: „Takk fyrir, bless“.
Ég er að vinna með opinbert fé og
læt ekki fólk komast upp með rugl.
Við búum vel að þvi listafólki sem
hingað kemur og sinnum því vel.
Allt er gert í kurteislegu hófi.
Ég hef eignast vini í gegnum þetta
starf og á heimboð í öllum heims-
álfum en ég hef lært að halda ekki
miklu sambandi við það fólk. Ég tek
þetta fólk inn á mig að vissu marki
en svo skil ég við það. Mér fannst
það erfitt fyrst. En maður verður
að hafa skýrar vinnureglur og það
er ákveðin fagmennska að þiggja
ekki persónuleg boð hjá þessu fólki.
Sumir halda að þetta sé allsherjar
partí en það er ekki þannig.“
Ég get ímyndað mér að einhverjir
haldi að manneskja sem lifiroghrœr-
ist ílistinni sésnobbuð. Hvað segirðu
um slíkt viðhorf?
„Ég held að þeir sem þekki mig
álíti mig ekki vera það. Ég hef verið
matráðskona úti á landi og eldað
heilt sumar fyrir sextíu manns og
ég hef farið sem bílstjóri með út-
lendinga yfir allt hálendið. Ég víla
ekki fyrir mér að ganga í alls konar
störf. Ég þarf hins vegar að kunna
ákveðnar leikreglur, ég er að vinna
með ríkisstjórn, borgarstjórn, for-
seta, erlendum þjóðhöfðingjum og
stórum fjárfestum. Ég þarf að sinna
þessu fólki og það þarf að gerast rétt.
Ég vinn þetta eins og leikstjórn. Ég
er ekki að setja fólk fremst á sviðið
út af snobbi heldur út frá því hvað
á við hverju sinni. Ég þarf að gæta
þess mjög vel að allt sé gert sam-
kvæmt eðlilegum samskiptareglum.
Ég þarf að kunna þessar reglur því
annars myndi ég lenda í meiri háttar
vandræðum. Ég held að snobb stafi
venjulega af kunnáttuleysi."
Drottning og listamaður
Kona sem er alltaf að taka ákvarð-
anir hlýtur stundum að taka erfiðar
ákvarðanir. Segðu mér frá einhverri
slíkri.
„Fyrir áttta árum kom Margrét
Danadrottnign hingað og var lista-
maður á Listahátíð. Vegna heim-
sóknar hennar þurfti ég að taka
ákvörðun sem var allt annað en
þægileg. Ég vissi að sem listamaður
vildi hún helst gera það sem hún var
ekki best í. Hún vildi sýna vatnslita-
málverk sín í ríkissafni.
Ég leitaði til góðra ráðgjafa sem
sögðu: „Hún er ekki það góður mál-
ari að hægt sé að verja það að verk
hennar séu sýnd á ríkislistasafni“.
Þeir sögðu mér að hún væri góð í
kirkjulist. Niðurstaðan var sú að ég
hafnaði því að sýna málverk hennar
en lagði til að kirkjulistaverkin yrðu
sýnd í Bogasal Þjóðminjasafnsins.
Seinna kom listráðunautur hennar
til mín og þakkaði mér fyrir þessa
ákvörðun. Nú eru Danir að glíma
við sama vandamál og kom upp
hjá okkur. Danadrottning er að
sýna málverk sín í ríkissöfnum þar
í landi og það er harðlega gagnrýnt.
Það eru ekki allir sem segja nei við
svona konu.
Ég umgekkst hana bæði sem listak-
onu og sem drottingu. Það voru tvær
ólíkar konur. Sem listamaður var
hún afar auðmjúk, elskuleg og hlý
en sem drottning var hún sérlega
regluföst. Og talandi um reglufestu,
þá voru merkt sæti fyrir drottn-
ingu og fylgdarlið við hinar ýmsu
athafnir en einhverjir Islendingar
settu það ekki fyrir sig, tóku miðana
úr sætinu um leið og þeir sögðu: „Ég
var á undan henni. Eg ætla að sitja
hérna“. Ég hef oft orðið vitni að ein-
hverju slíku. Það er kannski búið
að taka frá sæti fyrir forsetann en
einhver kemur og segir: „Af hverju
ætti hann að sitja hérna frekar en
ég? Hann er ekki mættur. Ég kom á
undan honum“. íslendingar eru sér-
stakt fólk en þeir eru mitt fólk.“
Talaðgegn Evrópusambandinu
Þú hittir marga í starfi þínu. Hvaða
einstaklingar eru eftirminnilegir?
„Romano Prodi er minnisstæður.
Ég hitti hann þegar ég starfaði fyrir
Menningarborgina og var stödd í
þorpi á ltalíu sem reyndist vera fæð-
ingarstaður Prodi. Þar var verið að
opna útisýningu frá öllum menning-
arborgunum. Skyndilega varð vart
við þyrlur og tilkynnt var að Prodi,
sem þá var forseti framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandins, væri
kominn á svæðið en bróðir hans var
þar landstjóri. Ég var sett við hlið
Prodis og þrammaði með honum
allan daginn milli listaverkanna.
Hann talaði mikið um Island og
Evrópusambandið og lét spurningar
dynja á mér. Þá komst ég að því að
maður getur haft allt aðra skoðun
i útlöndum en á Islandi. Stundum
er maður í því hlutverki að túlka
íslenskar skoðanir sem eru ekki
endilega manns eigin. Ég hafði
ekki vitað til þess áður að ég væri
alfarið á móti Evrópusambandinu
en þennan dag var ég harður and-
stæðingur inngöngu Islands í sam-
bandið. „Hvenær ætlið þið að koma
í Eyrópussambandið?“ spurði Prodi.
,Við erum alls ekkert á leiðinni í Evr-
ópusambandið,“ svaraði ég, eins og
ég réði því ein.
Ég hitti ákaflega margt fólk í starfi
mínum. Margt af því er gott og þægi-
legt. Aðrir eru ekkert sérstaklega
skemmtilegir og maður myndi ekki
leggja krók á leið sína til að hitta það
aftur. Romano Prodi var óskaplega
skemmtilegur. Mér hefur oft orðið
hugsað til hans eftir þetta, sérstak-
lega núna þegar hann er að rífast í
Berlusconi.“
Hvernig bregst þú við list sem heillar
þig? Verðurðu klökk eða ertu hörð af
þér?
„Með árunum hefur óperan orðið
sú listgrein sem heillar mig hvað
mest. Þegar ég sé fína og vandaða
óperusýningu þá fer ég heim og
segir: „Nú get ég dáið sæl“. Óperan
hefur allt til að bera og ef hún er vel
gerð gagntekur hún mig.“
Hvað er það erfiðasta við að stjórna
Listahátíð?
„Erfiðast er að slaka aldrei á kröf-
unum. Ef maður leyfði sér eitt and
artak að segja án þess að ígrunda
málið: „Já, já, það er ábyggilega allt
í lagi“, þá væri maður að gefa eftir.
Maður má aldrei hætta að vanda sig.
Ég þori varla að segja það af ótta við
að launin mín verði lækkuð en þetta
er satt að segja óskaplega skemmti-
legt starf. Það er eins gefandi og
hægt er. Það er tilgangur í hverjum
einasta degi. Og ég hlakka alltaf til
að fara í vinnuna.“
kolbrun@bladid.net
(dux;
Sumartilboð
Eftirsótt lífsgæði
DUX 1001 Original 90x200 cm og Duxiesta yfirdýna AÐEINS 99.000 verð áður 149.370
Hjónarúm 180x200 cm (2x90x200 cm) og heil yfirdýna AOEINS 198.000 verð áður 297.000
TAKMARKAÐ MAGN
Sérfræðingur frá DUX í Svíþjóð verður í versluninni
dagana 7. og 8. apríl
DUXIANÁ
ADVANCED TECHNOLOGY IN SLEEPING
Ármúla 10 • Sími: 5689950
www.duxiana.com