blaðið - 06.04.2006, Síða 26

blaðið - 06.04.2006, Síða 26
26 I SAMSKIPTI KYNJANNA FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2006 blaöiö Hvað er gott íyrir hjónabandið? Björk Jakobsdóttir, leikkona og uppistandsgrínisti, hefur verið hamingjusamlega gift í tólfár. Björk vefst ekki tunga um tönn þegar blaðamaður skellir á hana spurningunni um hvaða atriði sé mikilvægast að hafa í huga til að ást samlyndra hjóna slokkni ekki. „Hafa húmor fyrir karlinum. Húmor fyrir hlutum eins og því að hann skiptir ekki um peru fyrr en fjórum mánuðum seinna. Við getum valið hvort við látum þessi at- riði fara rosalega mikið í taugarnar á okkur eða hvort við höfum bara húmor fyrir þeim. Það er nefnilega hægt að velja hvort maður lætur hlut- ina pirra sig. Ef maður þarf svo raun- verulega að rökræða, eða rífast, þá hjálpar það mikið að gera það undir húmor-rós. Það er mikið betra að vinna úr vandamálum á þann hátt heldur en að leggjast í dramatík og úr verður að fólk skellir hurðum, keyrir upp í Hvalfjörð og kemur aldrei aftur. Ég hef líka verið í „keyra upp í Hvalfjörð“ pakkanum en núna hef ég þroskast í það að reyna að rífast frekar á húmorískum nótum.“ Ertu þá að tala um að aðgreina litlu hlutina frá þeim stóru og vera ekki að eyða orkunni í óþarfa æsing? „Já og kannski sérstaklega að orða hlutina á réttan hátt. Til dæmis í stað þess að urra á milli samanbit- inna tanna: „Af hverju þarftu alltaf að skilja hnífapörin eftir í vask- inum!?!...Hvað er eiginlega að þér?...“ Að segja þá eitthvað á borð við: „Gaman Gunni hvernig þú skilur alltaf hnífapörin eftir í vaskinum. Er þetta húsmæðragjöf? Vissirðu al- veg að það væri konudagur í dag?“ Maður getur sagt allt sem maður þarf að segja en á sama tíma er líka hægt að velja hvernig hlutirnir eru orðaðir og hvernig maður kemur þessu frá sér.“ Þið Gunnar hafið nú verið gift í tólf ár. Verðurþað ekki að teljast nokkuð vel af sér vikið nú á þessum síðustu og verstu? „Jú og ekki nennir maður að fara að skipta úr þessu. Fara að byrja þetta allt saman upp á nýtt. Temja nýjan mann og læra á hann. Það er bara vitleysa. Maður ætti að vera þakklátur fyrir það að hafa einhvern sem nennir að vera með manni síð- ustu skrefin í þessu lífi, í stað þess að henda honum rétt fyrir miðjan aldur og enda svo einn og krump- aður,“ segir húmoristinn Björk Jak- obsdóttir að lokum og bætir því við að reyndar sé einn málaflokkur til sem hún hafi litinn húmor fyrir í sambandinu en það eru fjármálin og um leið óskar hún eftir góðum ráðum í þeim efnum. margret@bladid. net Blalii/SleinarHugi YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT Síðumúla 15, s. 588 57 11 og 694 61 03 YOGA YOGA YOGA YOGA YOGA Líkamsæfingar, öndunar- æfingar, slökun og hug- leiðsla. Sértímar fyrir byrjendur og barnshafandi konur. Morgun-, hádegis-, síðdegis- og kvöldtímar. www.yogaheilsa.is NÝTT! Astanga yoga ] Fáar konur vilja kynlíf án skuldbindinga Níu afhverjum tíu breskum kotium telja einnar nœtur gaman ósiðlegt athœfi. í vinsælu sjónvarpsþáttaröðinni Beðmál í borginni er sú ímynd dregin upp af konum að þær njóti þess að vera lausar við skuldbind- ingar og sænga hjá hverjum sem er. Þessi lýsing á sérstaklega við um eina persónu þáttanna sem forðast eins og heitan eldinn að kynnast rekkjunautum sínum of náið. En hver er veruleikinn í þessum efnum? Eru konur ánægðar með að stunda skyndikynni eða eru þær í leit að einhverju meiru? 1 nýlegri rannsókn sem gerð var í Sheffield á kynhegðun kvenna kom í ljós að níu af hverjum tíu konum voru þeirrar skoðunar að einnar nætur gaman væri ósiðlegt. Rannsakend- urnir tóku ítarleg viðtöl við 46 konur þar sem viðhorf kvennanna til kyn- lífs og kynhegðunar var kannað. 1 ljós kom að að flestar konur höfðu öllu fastheldnari viðhorf til skyndikynna en áður var talið. Niðurstöður rann- sóknarinnar sýndu að aðeins 10% kvenna á aldrinum 23-83 ára sögðu að kynlíf án skuldbindinga væri sæmandi. Dr Sharron Hinchcliff sagði á ráðstefnu þar sem niðurstöður rann- sóknarinnar voru kynntar að þessar niðurstöður yllu þvi að hún setti spurningarmerki við það hvort konur hefðu virkilega notið þess kynferð- islega frelsis sem lagt var upp með á sjötta áratug síðustu aldar. 1 könnuninni kom í ljós að konur dæmdu ekki kynsystur sínar fyrir að stunda skyndikynni því margar þeirra höfðu stundað það sjálfar. Það viðhorf var þó ríkjandi að þær konur sem stunduðu skyndikynni gerðu það vegna þess að eitthvað skorti í líf þeirra. Dr Sharron sagði að þessar nið- urstöður, sem bentu til fastheldni í kynhegðun, pössuðu ekki við ímynd nútímakonunnar sem gæti fullnægt kynþörf sinni án þess að það leiddi til sambands. Kynlíf og tilfinningar nátengd Sharron segir flestar konur setja kyn- líf í samband við náin kynni. Þegar konurnar voru spurðar út í ástæður skyndikynna sögðust þær hafa verið í leit að ást eða gáfu þá skýringu að þær hefðu verið ölvaðar eða undir áhrifum annarra vímuefna. Sharron segir kynlíf tilfinningalega reynslu fyrir konur og þess vegna er erfitt fyrir þær að stunda það án þess að vera til- finningalega tengdar viðkomandi. Dr Tuppy Owens sem starfar hjá bandalagi kynfrelsis (Sexual Free- dom Coalition) segir skyndikynni geta verið innantóma upplifun ef engin andleg tengsl séu til staðar. Nið- urstöður rannsóknarinnar nú stang- ast á við rannsókn sem gerð var árið 2000 sem leiddi í ljós að Bretar væru lauslátari en áður hafði þekkst. Al- þjóðleg könnun á afstöðu til kynlífs og lífsstíls sem gerð var árið 2000 leiddi í ljós að konur og menn eiga fleiri bólfélaga nú en fyrir tíu árum og eru einnig líklegri til að halda fram- hjá maka sínum. hugrun@bladid.net GARÐHEIMAR heimur heillandi hluta og hugmynda! Stekkjarbakka 6 - 540 3300 www.gardheimar.is Annar í páskum: 10-21

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.