blaðið - 06.04.2006, Side 32
32 I MENNING
FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2006 blaöið
Meistaraverk
Mozarts
Sálumessa Mozarts verður sungin
og leikin á tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands í Háskólabíói í kvöld,
fimmtudaginn 6. apríl. Stjórnandi
verður Petri Sakari, Hanna Dóra
Sturludóttir, Alina Dubik, Jónas Guð-
mundsson og Kouta Rásánen syngja
einsöng en einnig munu Hamrahlið-
arkórarnir koma fram undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur. „ímyndin
af dauðvona tónskáldi sem á dánar-
beði sinu keppist við að semja sálu-
messu handa ókunnum sendiboða
sem jafnvel fengi fyrirskipanir sínar
að handan, hélt listunnendum róm-
antíska tímans hugföngnum svo um
munaði. Þótt engum blandist um
það hugur að Sálumessa Wolfgangs
Amadeusar Mozarts sé meðal mestu
meistaraverka tónskáldsins og ein
fullkomnasta tónsmíð sinnar gerðar,
er hitt jafn víst að sögusagnirnar sem
hafa sveipað tilurð verksins dulúð
eiga ekki síður þátt i vinsaeldum þess.“
Þannig segir Árni Heimir Ingólfsson
frá í efnisskrá.
Sorg og söknuður
Andi sorgar og söknuðar svífur yfir
vötnum á þessum tónleikum því auk
Sálumessu Mozarts verða leiknir
tveir þættir úr Sálumessu eftir Jos-
eph Eybler. Sá var nemandi Mozarts
og fékk það verkefni eftir dauða læri-
meistara síns að ljúka við sálumessu
hans. Eybler fannst hann ekki ráða
við verkefnið og gaf það frá sér. Það
kom því í hlut annars fyrrum nem-
enda Mozarts, Franz Xaver Siissmayr,
að ljúka verkinu sem hann og gerði.
Lengi vel fékk hann ekki viðurkenn-
ingu fyrir sinn þátt í tilurð verks-
ins en nú er hans almennt getið í
tengslum við það. Þriðja verk tónleik-
anna er Todtenfeier eftir Gustav Ma-
hler og má segja að það hljóti að vera
viðeigandi að erfidrykkja sé á næsta
leiti við tvær sálumessur.
Kynning hjá Vinafélaginu
Hljómsveitarstjórinn Petri Sakari
á að baki langt og farsælt samstarf
með Sinfóníuhljómsveit Islands.
Hann var aðalstjórnandi hennar í
tveimur lotum í alls sjö ár og hefur
stjórnað henni á vel á annað hundrað
tónleikum frá því að hann sté fyrst
á stjórnandapallinn í Háskólabíói
í október 1986. Hann hefur einnig
hljóðritað fjölda geisladiska með
hljómsveitinni og þar ber ef til vill
hæst heildarútgáfa á sinfóníum Sibeli-
usar hjá Naxos, en hún hefur hlotið
frábæra dóma í virtum fjölmiðlum.
Vinafélag Sinfóníuhljómsveitar
íslands verður með kynningu á efn-
isskrá kvöldsins fyrir tónleikana
í Sunnusal, Hótels Sögu. Sem fyrr
verður það Árni Heimir Ingólfsson,
tónlistarfræðingur, sem fjallar um
verk kvöldsins og leikur tóndæmi
af geisladiskum eða frá píanóinu á
meðan áheyrendur gæða sér á ljúf-
fengri súpu. Fundurinn er öllum op-
inn, aðgangseyrir er 1200 krónur.
Draumalandið
SjálfshjiltarWk
Historinn
Kóstova
Metsölulistinn - allar bækur
^ Draumalandið: sjálfshjálparbók
AndriSnærMagnason
^ Flugdrekahlauparinn - kilja
Khaled Hosseini
3 Munkurinn sem seldi sportbilinn sinn - kilja
Robín Sharma
4 Sálmabók
Ýmsir höfunda
5 Vísindabókin
Mál og menning
6 Fullurskápuraf lífi - kilja
Alexander McCall Smith
7 Tími nornarinnar - kilja
Árni bórarinsson
8 Fermið okkur
Hugleikur Dagsson
g Gæfuspor, gildin í lífinu - kilja
Gunnar Hersveinn
10 Dýraríkið
Penelope Arlon
Listinn er gerður út frá sölu dagana 29.03.06 - 04.04.06 f
Pennanum Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar
Metsölulistinn - erlendar bækur
^ The Historian
Elizabeth Kostova
2 Rage
Jonathan Kellerman
, Philip's Concise World Atlas
Philip's
4 Impossible
' Danielle Steel
5 With No One As Witness
Elizabeth George
8 The Twelfth Card
Jeffery Deaver
7 Insight World Atlas
Insight Guides
8 The Ultimate Hitchhiker's Guide
Douglas Adams
g Collins World Atlas
HarperCollins
10 No Place Like Home
Mary Higgins Clark
Listinn er gerður út frá sölu dagana 29.03.06 - 04.04.06 í
Pennanum Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar
Mozart. Sálumessa þessa snillings verður flutt í Háskólabíói í kvöld.
Ronja ræningjadóttir
Hjá Máli og menningu er komin
út ein vinsælasta saga Astridar
Lindgren, Ronja ræningjadóttir í
þýðingu Þorleifs Haukssonar.
I Matthíasarskógi búa grádvergar,
rassálfar og nornir, og í kastalanum
sem elding klauf í tvennt fyrir löngu
hafast við tveir ræningjaflokkar.
Þetta eru heimkynni vinanna Ronju
og Birkis sem rata í fjölmörg ævintýri
saman en lenda þó fyrst í vanda
þegar þau þurfa að koma vitinu fyrir
tvo þrjóska ræningjahöfðingja.
Ronja ræningjadóttir er
sígild saga eftir einn ástsælasta
barnabókahöfund allra tíma.
■■■■■■■■■■hk- ^■■■■■■■HI
J.K. Rowling. A bók ársins i Bretlandi.
Harry Pott-
er vinnur til
verölauna
Bresku bókaverðlaunin, British
Book Awards, voru afhent í síð-
ustu viku. Hundrað og fimm-
tiu einstaklingar sem tengjast
bókageiranum í Bretlandi velja
verðlaunabækurnar. Bók ársins
var valin Harry Potter og Blend-
ingsprinsinn. Höfundurinn J.K.
Rowling tók á móti verðlaun-
unum og sagði í stuttri þakkar-
ræðu að hún nyti þess að skrifa
síðustu bókina í bókaflokknum
og verkið gengi vel.
Alls voru veitt verðlaun í tólf
flokkum. Sharon Osbourne
fékk verðlaun fyrir ævisögu
sína og Jamie Oliver fékk sér-
stök verðlaun fyrir einstæðan
árangur en matreiðslubækur
hans hafa nú selst í rúmlega sex
milljónum eintaka. Besta sagn-
fræðiritið var valið Auschwitz
eftir Laurence Rees.
SU DOKU talnaþrautir
Su Doku þrautin snýst um
að raða tölunum frá 1 -9
lárétt og lóðrétt í reitina,
þannig að hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er
lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu
má aukin heldur aðeins
nota einu sinni innan hvers
níu reita fylkis. Unnt er aö
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem uþþ eru gefnar.
Gáta dagsins
7 3 8 9 1
9 2 5 6
5 6 4 9
8 9 1 4
2 5
5 7 8
2 7 4 3
6 9 8 2
5 9 2
SHDP. IS ©6610015
Lausn siðustu gátu
6 2 8 7 5 1 4 9 3
1 9 4 2 8 3 6 5 7
3 5 7 6 4 9 8 1 2
4 1 9 8 2 7 3 6 5
2 3 5 1 6 4 7 8 9
7 8 6 9 3 5 2 4 1
9 4 2 3 1 6 5 7 8
8 6 1 5 7 2 9 3 4
5 7 3 4 9 8 1 2 6