blaðið - 10.04.2006, Blaðsíða 2
Í2TIWNLEWDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 10. APRÍL 2006 blaAMÍ
Ágreiningur vegna vals
á nýjum sóknarpresti
Um þrjú þúsund manns hafa skrifað undir lista til að mótmœla ákvörðun valnefndar í Keflavíkur-
prestakalli. Varaformaður sóknarnefndarinnar segir gagnrýnina koma sér verulega á óvart.
Skiptar skoðanir eru meðal sóknarbarna í Keflavfkurprestakalli um niðurstöðu valnefnd-
ar um nýjan sóknarprest.
blaðió-—,
Baejarlind 14-16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 •www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Framsókn vill
fleiri lóðir
B-listinn vill stórauka framboð á
íbúðarlóðum i borginni og vilja út-
hluta 1.200 sérbýlislóðum á þessu
ári og hinu næsta í Úlfarsárdal. Þá
boða þeir þjóðarsátt um staðsetn-
ingu Reykjavíkurflugvallar með
flutningi hans út á Löngusker, en
vilja nýta Vatnsmýrina undir end-
urreisn miðborgarinnar. Framsókn-
armenn í Reykjavík kynntu í gær
kosningastefnuskrá sína fyrir borg-
arstjórnarkosningarnar í vor.
Aldraðir úr hönd-
um ríkisins
Mikil óánægja er meðal sóknar-
barna í Keflavíkurprestakalli með
ákvörðun meirihluta valnefndar að
mæla með séra Skúla Sigurði Ólafs-
syni í embætti sóknarprests. Um
þrjú þúsund manns hafa skrifað
undir lista til stuðnings séra Sigfúsi
B. Ingvasyni sem einnig sóttist eftir
embættinu. Ákvörðun valnefndar
endurspeglar ekki vilja sóknarbarna
að mati þeirra sem standa að undir-
skriftarlistanum. Varaformaður
sóknarnefndar segir óánægjuna
með valið koma verulega á óvart.
Stórhópurmanna
Tíu umsækjendur sóttu um emb-
ætti sóknarprests í Keflavíkur-
prestakalli en umsóknarfrestur
rann út þann 20. mars síðastliðinn.
Meðal umsækjenda voru þeir séra
Skúli Sigurður Ólafsson, sóknar-
prestur í Isafjarðarprestakalli, og
séra Sigfús B. Ingvason, prestur í
Keflavíkurprestakalli.
Meirihluti valnefndar í prestakall-
inu ákvað að mæla með séra Skúla
en dóms-og kirkjumálaráðherra
skipar í embættið til fimm ára frá
og með 1. maí næstkomandi.
Mikil óánægja er með niðurstöðu
valnefndar hjá hluta sóknarbarna
sem vilja frekar fá séra Sigfús í emb-
ættið. Síðastliðinn föstudag var því
settur af stað undirskriftalisti á
Netinu til stuðnings Sigfúsi og um
miðjan dag í gær voru um þrjú þús-
und manns búnir að skrá sig. Alls
eru um átta þúsund sóknarbörn í
prestakallinu.
Falur Harðarson, sem er einn
þeirra er stendur á bak við undir-
skriftalistann, telur að valnefnd
hafi gengið framhjá Sigfúsi í
ákvörðun sinni. Eðlilegra sé að
hann fái embættið eftir margra
ára sóknarstarf. Hann segir að á
bak við listann standi stór hópur
manna. „Við erum ósátt við þetta og
viljum láta skoðun okkar í ljós. Þessi
ákvörðun valnefndar endurspeglar
á engan hátt vilja sóknarbarna."
Falur segir að listinn verði af-
hentur dóms- og kirkjumálaráð-
herra í dag eða á morgun.
Kemur verulega á óvart
Birgir Guðnason, varaformaður
sóknarnefndar Keflavíkurpresta-
kalls, segir óánægjuna koma sér
verulega á óvart. Hann segir sóknar-
nefndina ekki hafa hist eftir að gagn-
rýnin kom fram en gerir fastlega
ráð fyrir því að það verði fljótlega
á næstu dögum. „Valnefnd mælti
einfaldlega með þeim sem hún taldi
hæfastan í embættið. Meirihluti
nefndarinnar var sammála um séra
Skúla. Þessi andstaða kemur okkur
því alveg í opna skjöldu.“
Þá segir Birgir mikla ánægju
vera með störf Sigfúsar og sóknar-
nefndin vilji að hann starfi áfram. I
mati valnefndar hafi því ekki falist
gagnrýni á störf hans.
Séra Skúli Ólafsson sagði í sam-
tali við Blaðið að hann líti ekki á
undirskriftalistann sem gagnrýni
á sig og sín störf. Hann sagðist því
að öllu óbreyttu hyggjast taka við
embættinu.
Séra Sigfús vildi ekki tjá sig um
málið að svo stöddu.
Byggja verður að lágmarki 500
íbúðir fyrir aldraða á höfuðborgar-
svæðinu á næstu árum samkvæmt
stefnuyfirlýsingu Samfylkingar-
innar í Reykjavík um málefni aldr-
aðra. Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
borgarstjóri, og Dagur B. Eggerts-
son, oddviti flokksins, kynntu yfir-
lýsinguna á sérstökum blaðamanna-
fundi í gær.
I yfirlýsingunni kemur fram að
mikill skortur sé á hjúkrunarými
í Reykjavík meðal annars vegna
viljaleysis stjórnvalda til að setja
fjármuni í málaflokkinn. Leggur
Samfylkingin til að málefni aldr-
aðra verði því að fullu tekin úr
höndum ríkisins og þau færð til
sveitarfélaganna.
„Hjalpsemi Islendinga virð-
ist ekki ná til eldra fólks"
Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlœknir ogformaður Landssambands eldri borgara
segir umönnun aldraðra ekki virðast vera forgangsmál hér á landi.
Ólafur Ólafsson, fyrrverandi land-
læknir og formaður Landssambands
eldri borgara, segir setuverkföll á
Hrafnistu ekki koma sér á óvart því
laun starfsfólks í þessum geira séu
allt of lág'-
„Launin í umönnunargeiranum
hafa verið í umræðunni i mörg ár
og svo virðist sem umönnun sé ekki
forgangsmál hjá okkur. Við erum
almennt hjálpsöm þjóð og erum dug-
leg að bjarga fólki sem týnist upp á
hálendi og í öðrum aðstæðum en
svo virðist sem hjálpsemin nái ekki
til eldra fólks.“
Ólafur segir að kostnaður við
umönnun aldraðra hafi vissulega
aukist en þess beri að geta að þetta
sé kynslóðin sem lagði grunn að vel-
meguninni á íslandi og því rétt að
hún njóti hennar í ellinni. „Island er
meðal 7-8 tekjuhæstu þjóða í heimi
og við ættum að geta sinnt öldr-
uðum svo sómi sé af. Við kjósum að
kalla okkur velferðarþjóð en til að
standa undir nafni verðum við að
sinna málaflokknum betur en við
gerum.“
Ólafur Ólafsson, formaður Landssam-
bands eldri borgara.
Gamaldags búsetufyrirkomulag
Ólafur segir Island vera um 20-25
árum á eftir nágrannaþjóðum
sínum hvað varðar búsetufyrir-
komulag og því mjög gamaldags.
„Það hafa ekki verið byggð elliheim-
ili í Danmörk;u i 20 ár en í staðinn
eru komnar litlar öryggisíbúðir sem
gera að verkum að fólk getur lenvur
séð um sig sjálft.“
Ólafur segir fjárhag eldra fólks
einnig bágari hér en annars staðar
og það hafi leitt til þess að fleiri aldr-
aðir vinni úti en gengur og gerist í
löndunum í kringum okkur.
I byrjun maí verður haldin ráð-
stefna um skatta og skerðingar
eldri borgara. Þar verður bent á þær
ógöngur sem skattamál eldri borg-
ara eru í og leitað leiða til að finna
lausnir á þeim.
O HelSskirt 0Léttskýiað ^ Skýjað £ Alskýjað /X Rlgning, litilstiáttar 1'/', Rigning 5 9 Súld # Snjókoma Slyáda Snjóél v—7 Skúr
^'________________________________’ *____V V V
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Dublin
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
Helsinki
9 5®* '
9 9
vv
0©*
4‘
Kaupmannahöfn 07
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Vín
Þórshöfn
9 9
9
Á morgun
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
9
9