blaðið - 10.04.2006, Síða 12
12 \ rnmtm
MÁNUDAGUR 10. APRÍL 2006 blaöiö
Drög að framtíðinni lögð i Kópavogi
Bœjaryfirvöld í Kópavogi telja að dvalarstaðir aldraðra eigifremur að minna á heimili en sjúkrahússtofnanir.
Klukkan 14:00 í dag verður hald-
inn kynningarfundur fyrir eldri
borgara í Kópavogi að Gjábakka,
Fannborg 8. Fundurinn fjallar um
nýjar áherslur og uppbyggingu
hjúkrunaríbúða í Boðaþingi við
Vatnsenda. Frummælendur verða
Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri
og Sveinn Skúlason forstjóri
Hrafnistu.
Bæjaryfirvöld hafa átt í viðræðum
við stjórnendur Hrafnistu um upp-
byggingu hjúkrunaríbúða fyrir aldr-
aða í Kópavogi, en umræðurnar hafa
m.a. leitt til úthlutunar á lóð til fé-
lagsins undir margháttaða þjónustu
við aldraða, en hönnun bygginga er
þegar hafin.
„Samkvæmt lögum um almanna-
tryggingar og bætur honum tengdar,
fær fólk sem býr á dvalar eða hjúkr-
unarheimilum ekki að ráðstafa eigin
lífeyri. Með þessu kemur íbúinn að-
eins óbeint að greiðslu hluta eða alls
vistkostnaðar, annars vegar með nið-
urfellingu á lífeyri og hins vegar með
greiðslu af öðrum tekjum ef þær eru
fyrir hendi. Við teljum að með þessu
sé vegið að sjálfræði einstaklingsins
segir Aðalsteinn Sigfússon félags-
málastjóri Kópavogs oghelduráfram
,Hinn aldraði einstaklingur hættir
með þessu að sjá tekjur sínar, kostn-
aðarvitund hans hverfur, ábyrgð er
tekin af honum og þar sem heita má
að viðkomandi hjúkrunarstofnun
,eigi“ manneskjuna og beri algerlega
ábyrgð á henni er vissulega vegið að
sjálfsvirðingu hennar. Bæjaryfirvöld
í Kópavogi vilja fara aðrar leiðir. Við
viljum að íbúar fái að halda sínum
tekjum og hafa umsjón með þeim,
en greiða svo ákveðna upphæð fyrir
dvölina, til dæmis leigu, hita, raf-
magn, mat og ýmsa þjónustu eins
og þvott, hárgreiðslu, fótsnyrtingu
o.s.frv. Með þessu móti verður hinn
aldraði íbúi ekki vistmaður og getur
haft áhrif á þá þjónustu sem honum
stendur til boða.“
Heimili en ekki stofnun
Bæjarfélagið vill leggja áherslu á
félagslegt sjónarhorn umönnunar,
fremur en læknisfræðilegt. Þau telja
að hjúkrunaríbúðir þurfi að ein-
kennast af heimilisanda fremur en
sjúkrahúsanda. Veikist hinn aldraði
fær hann tímabundna þjónustu á
Aðalsteinn Sigfússon
sérhæfðu sjúkrahúsi eins og aðrir en
hjúkrunarheimilið, sem er vissulega
heimili einstaklingsins, er sá staður
sem hann hverfur til að sjúkrahús-
dvöl lokinni.
„í raun tekur umönnun aldraðra á
íslandi mið af læknisfræðilegri um-
önnun þar sem hinn aldraði er álit-
inn sjúklingur í þörf fyrir sérhæfða
meðferð. Það er því of rík tilhneiging
Bim/Frikki
til að álíta öldrun sjúkdóm fremur en
eðlilegan framgang í lífsferlinu sem
krefst fremur umönnunar en með-
ferðar. Hugsanlega er ástæðan fyrir
þessu sú að ríkið greiðir bæði fyrir
sérhæfða sjúkrahúsvist og hjúkrun-
arrými. Sveitarfélögin eru kröfuað-
ilar um fleiri hjúkrunarrými, en
bera ekki nema takmarkaðan hluta
stofnkostnaðar og taka engan þátt
í rekstri. Það má vel spyrja að þvi
hvort ekki megi standa öðruvísi að
þessu, þ.e. að sveitarfélög taki þessa
þjónustu í sína ábyrgð og móti hana
út frá eigin hugmyndum.“
Ábyrgð á einni hendi
Aðalsteinn segir að mikilvægt sé að
stofna til margbreytilegra úrræða
fyrir aldraða. Til dæmis megi setja á
fót dvalarheimili sem bæði séu heim-
ilisleg og ódýr í rekstri miðað við
önnur úrræði. „Einnig er mikilvægt
að efla hvers konar heimaþjónustu,
auka dagvistarrými og möguleika
á hvíldarinnlögnum. Svo teljum við
það þýðingarmikið að ábyrgð og yf-
irstjórn í þjónustu við aldraða séu
á einni hendi, en ekki eins og nú er,
bæði á ábyrgð ríkis og sveitarfélaga,“
segir Aðalsteinn að lokum og bætir
því við að það verði farið vandlega
í saumana á þessum málum á fund-
inum og hvetur um leið fólk á öllum
aldri til að mæta, kynna sér málið og
taka þátt í umræðum. Við verðum jú
öll gömul einn daginn.
margret@bladid.net
Lækningarmáttur
ímyndunaraflsins
í dag mun Haukur Ingi Jónasson, sálgreinir, fyrirlesari og ráðgjafi
kynna doktorsritgerð sína sem hann nefnir í landi lifanda Guðs -
lœkningarmáttur tmyndunaraflsins og íslensk hefð.
í málstofu Guðfræðistofnunar
mun dr. Haukur Ingi Jónasson
kynna ritgerð sína, ræða inntak
hennar og velta vöngum yfir stöðu
og framtíðar-
möguleikum
guðfræðin—
í íslensku
samfélagi.
9........................
Að endingu mun ég ræða
um mikilvægi ímyndunar-
aflsins í tilfinningu okkar
og hugmyndum gagnvart
því heilaga og um leið
sýna fram á hvernig
guðfræðin og kirkjan geta
öðlast endurnýjað hlut-
verk í því að byggja upp
einstaklinga, skapa félags-
auð og stuðla að farsæld
„Á málstofunni
mun ég skoða
lækningarmátt
ímyndunarafls-
ins út frá líkani
sem staðsetur
ímyndunaraflið
í huga okkar. Ég
muneinnigræða
lítillega vest-
ræna sállækning-
arhefð og sýna
fram á hvernig .................
ímyndunaraflið
leikur mikilvægt hlutverk í tengslum
okkar við hið innra líf, annað fólk
og allt það í umhverfinu sem er ekki
mennskt, eins og til dæmis leikföng,
vélar, náttúruna og fleira. Að endingu
mun ég ræða
um mikilvægi
................. ímyndunarafls-
ins í tilfinningu
okkar og hug-
myndum gagn-
vart því heilaga
og um leið sýna
fram á hvernig
guðfræðin og
kirkjan geta öðl-
ast endurnýjað
hlutverk í því að
byggja upp ein-
staklinga, skapa
félagsauð og
stuðlaaðfarsæld,
segir Haukur og
........... heldur áfram.
„Kirkjan er mið-
stöð sem hefur mikla reynslu af því
„Kirkjan er miðstöð sem hefur mikla
reynslu af því að vinna með skapandi
og uppbyggjandi hætti með mannlega
tmyndun -ekki síst vegna þess að hún er
er byggð utan um það sem er ekki sýni-
legt heldur það sem við getum fyrst og
fremst ímyndað okkur."
að vinna með skapandi og uppbyggj-
andi hætti með mannlega ímyndun
- ekki síst vegna þess að hún er byggð
utan um það sem er ekki sýnilegt
heldur það sem við getum fyrst og
fremst ímyndað okkur.
Ef það er unnið með þetta á réttan
hátt, er hægt að öðlast allt það sem
ég minnist á að ofan, eða farsæld, heil-
brigði og hamingju. Fyrst þurfum
við að ímynda okkur hlutina og
færa svo í kjölfarið afurðir hugans
út í samfélagið og þannig tengist per-
sónulegt heilbrigði um leið heilbrigði
samfélagsins í heild,“ segir Haukur
en hann hefur bæði starfað sem
sjúkrahúsprestur í New York og á
Landspítala-háskólasjúkrahúsi.
Hann lauk doktorsprófi frá Union
Theological Seminary í New York í
desember s.l. og starfar nú sem sál-
greinir, fyrirlesari og ráðgjafi og sem
stundakennari við verkfræðideild Há-
skóla Islands.
Fyrirlesturinn verður í stofu V i að-
albyggingu Háskóla íslands og hefst
kl. 12.15.
Hann er öllum opinn og aðgangur
er ókeypis.
VoriAA/w ad fdo nýfar
vörar frá/ VanOty faÁr
Svartur hcddarí/frá/Vcmíty fctir Verð 4.990.
Opnunartími
Mán-fös 11-18
Lau 11-14
Hamraborg 7 Kópavogi Sími 544 4088
www.ynja.is Útsólustaöir: Esar Husavik Dalakjör Búðardal