blaðið - 10.04.2006, Page 18

blaðið - 10.04.2006, Page 18
■26 \ VIOTAL MÁNUDAGUR íp.^APRÍL, 2006 , blaðið Dulin ádeila í íslensku gríni Um vandrœðalegar þagnir, kjánalegar aðstœður og asnalegtfólk í Sigtinu. Undanfarin fimmtudagskvöld hafa nýstárlegir grínþættir, Sigtið, verið sýndir á Skjá einum við góðar viðtökur. Þetta þykir saga til næsta bæjar því það er ekki á hverjum degi sem nýjar grín- stefnur, ef svo mætti kalla, eru kynntar til sögunnar í íslensku sjónvarpi. Margrét Hugrún Gúst- avsdóttir blaðamaður kom að máli við aðstandendur þáttanna, leikstjórann Ragnar Hansson og Ieikarana Friðrik Friðriksson og Halldór Gylfason, en Gunnar Hansson sem leikur Frímann, komst ekki með þar sem hann var á æfingu í Borgarleikhúsinu. í þáttunum fylgjast áhorfendur með sjónvarpsmanninum Frímanni Gunnarssyni taka á ýmsum málum úr mannlífinu með misgóðum ár- angri. Frímann þessi er á allan hátt afleitur sjónvarpsmaður, spurningar hans oftar en ekki smekklausar og ónærgætnar og útkoman eftir því. Það má segja að aðal skemmtunin í Sigtinu sé að horfa á fólk í vandræða- legum aðstæðum reyna á vandræða- legan hátt að koma sér útúr vandræðalegum samskiptum með vandræðalegum árangri. Upphafið að framleiðslu þátt- anna var á þann veg að leikararnir þrír gerðu nokkrar prufur sem þeir sýndu mönnum á Skjá einum. Við- brögðin voru góð og í kjölfarið veitti stöðin þeim fjármagn til að þróa þættina áfram. „Við byrjuðum á að gera einn þátt þar sem fram komu þrjár ólikar tegundir af gríni en uppúr stóð Frí- mann Gunnarsson. Stílinn var líka eitthvað sem við vildum vinna meira með en það er svokallaður „mocku- mentary“ stíll. Það sem okkur finnst skemmtilegt við þennan „mocku- mentary" stfl, eða „háðildarmyndá' stíl eins og einhver íslenskaði þetta, er hversu látlaus sá húmor er. Það er ekki alltaf augljóst hvort verið sé grínast eða ekki og yfirleitt eru hin svoköllu „punch line“ bara klippt út, en það eru andartökin þegar ætl- ast er til þess að áhorfendur skelli uppúr,“ segir Ragnar Hansson leik- stjóri og bætir því við að stundum hafi fólk þurft að horfa á nokkra þætti eða sama þáttinn tvisvar áður en það vandist gríninu og fór að finn- ast það virkilega fyndið. „Okkur finnst þessi vandræðalegi lágstemmdi húmor, þar sem grínið felst frekar í augngotum og litlum hreyfingum vera skemmtilegri en hefðbundnir „sketsar" þar sem allt grín er voðalega augljóst. Svona ,Núna á að hlæja“. Stundum getur verið nóg að spila saman undar- legum persónum og það leiðir af sér útkomu sem verður oft fyndin og vandræðaleg í senn,“ segir Friðrik. Strákarnir segja enga sérstaka fyrirmynd vera að þáttunum en áhrifavaldarnir munu vera margir. Halldór minnist á Alan Partridge þættina með Steve Coogan, þar sem aulalegur sjónvarpsmaður stjórnar þætti sem hann kallar - Knowing me, knowing you, eftir Abba laginu. En það eru ekki bara erlendir grín- arar sem hafa áhrif. „Þorvaldur Þorsteinsson hefur líka haft mikil áhrif á það hvernig ég sé þetta allt saman. Eg hef leikið í leik- ritum eftir hann og það hefur veitt mér mikinn innblástur. Mér finnst til dæmis sérstaklega gaman að því hvernig hann skrifar og fjallar um fólk og hvernig hann mótar orð- færi karaktera sinna,“ segir Halldór Gylfason. Ekkert niðurneglt Leikararnir hafa allir góða reynslu af spunaleik sem nýtist þeim vel í Btatmm Strákarnir í Sigtinu gera grín að viðkvæmum málum og vandræðalegum aðstæðum. Gunnar Hansson og leikstjórinn Ragnar Hansson (bræður), Halldór Gylfason og Friðrik Friðriks- son mættu hressir í viðtal við Blaðið „til þess að kveða niður kjaftasögurnar." Sigtinu, en þar er textinn sjaldan niðurnegldur og sumir karakterar spretta fram án þess að það sé fyr- irfram búið að skrifa þá niður eða skipuleggja „fæðingu“ þeirra. „Vinnuferlið er eitthvað á þá leið að við leikararnir hittumst og byrjum að ræða einhver meginþemu. Svo leitum við að sögum og línum sem geta gengið í gegnum þáttinn. I kjölfarið tekur Ragnar þetta efni og skrifar grind utan um það sem við spinnum síðan með á æfingum. Þar prófum við karakterana áfram svo að úr verði senur en textinn verður svo til á staðnum," segir Friðrik. Halldór tekur við „Við ákveðum alltaf hvaða senu við ætlum að taka upp og hvað gerist í henni. Fyrir- fram erum við svo búnir að æfa per- sónurnar en hvernig þetta akkúrat verður á meðan upptakan er í gangi er ekki alltaf alveg ljóst. Það má segja að við vitum hvert við erum að fara og hvað við ætlum að segja, en það er ekki alveg ákveðið hvernig við segjum það.“ Þegar maður horfir áþœttina er ekki laust við að manni detti íhug að margar þekktar persónur séu fyrirmyndir viðfangsefna ykkar í þœttinum. Til dæmis eru fón Ársœll og Frí- mann Gunn- arsson ekki al- veg óskyldir? „Þegar við vorumaðkynna þættina þá minntumst við oft á þættirnir væru svolítið svipaðir Sjálf- stæðu Fólki, þáttum Jóns Ársæls. En samt er þetta ekkert endilega bara sá þáttur. Það má alveg eins líkja Þor- steini Joð, Sigmundi Erni og öðrum sjónvarpsmönnum við Frímann. Hann á sér margar fyrirmyndir í ís- lenskum sjónvarpsmönnum,“ segir Ragnar og skellir uppúr. Ailir eru með einhverskonar áráttu I einum þættinum tekur Frímann viðtal við geðlækni og sjúklinga hans. Einn þeirra er haldin áráttu og þráhyggjuröskun sem lýsir sér þannig að hann hefur óstjórlega þörf til að snerta fólk, annar er „bess- ervisser“ og sá þriðji getur ekki hætt að ljúga. Leggið þið mikla undirbúnings- vinnu í að kynna ykkur málin áður en þið farið af stað með að gera sögurnar? „Jú, vissulega kannar maður þetta eitthvað, en það er samt ekki til neinn sjúkdómur sem heitir að vera besservisser þó að áráttu og þrjáhyggjuröskun sé til,“ segir Hall- dór og Ragnar skýtur því inn að besservisserar séu vissulega með þráhyggju. „Já, það eru allir með einhvers- konar áráttur og þráhyggjur þó þeir vilji kannski ekki endilega við- urkenna þær eða horfast í augu við þær. Ég lék þarna manninn sem getur ekki sleppt því að snerta fólk og fyrirmyndina hef ég af manni sem ég kannast við sem er svona. Það er til fólk sem er svona en við göngum bara miklu lengra með þetta og ýkjum það upp. Eins og með karakterinn sem lýgur. Það eru margir sem ljúga, en þessi laug bara öllu sem hann sagði," segir Halldór. Það er ekki laust við að hægt sé að finna margar samsvaranir úr þjóðfélaginu í karakterum þáttanna. Til dæmis fjallaði einn þátturinn um listamann og bróður hans sem var tónlistarmaður (Bubbi og Tolli). Síðasti þáttur fjallaði um handrukk- ara og sá sem verður næst á dagskrá fjallar um tvo menn sem eru með „lífsstíls stúdíó". Hvernig erþað, eruðþið aðgagn- rýna samfélagið með þessu eða er þetta á einhvern hátt ádeila? „Ef ádeila kemst til skila líka þá finnst okkur það alveg frábært. Við fengum einmitt hugmyndina að þessu með lífsstílsþáttinn út frá því hvað svona hlutir eru orðnir mikið atriði í dag. Ég er þeirrar skoðunar að fólk eins og Vala Matt og þættir hennar séu búnir að breyta gildis- mati heillar kynslóðar á íslandi. Hér áður fyrr þótti gott ef fólk hafði tök á að kaupa sér íbúð, en í dag þarf að moka öllu út, kaupa svo nýjar innréttingar og allt hitt frá grunni í einhverjum rosalegum stíl og þetta er stíll sem er kynntur í sjónvarp- inu. Að sjálfssögðu erum við samt ekki að leika Völu Matt sem slíka. Við göngum vissulega lengra,“ segir Halldór og kímir. Ragnar tekur undir að þættirnir innihaldi einhverja ádeilu þó hún sé ekki markviss sem slík. „Vissulega er þetta einhver s p e g i 11 þó að við séumekki farnir út í p ó 1 i t í k eða land- búnaðar- stefnuna. Þetta er ekki með- vituð pa- ródía ef svo mætti að orði komast, heldur eru þetta bara karakterar sem við búum til og þeir eru byggðir á því sem er að gerast í samtímanum og allsstaðar í kringum okkur,“ segir Ragnar en bendir á að handrukkara átturinn sé eina undantekningin. honum er nefinlega atriði sem við byggjum beint á einhverju sem hefur gerst í raunveruleikanum og það ætti ekki að fara framhjá neinum." Lægri siðferðisþröskuldur Við tölum aðeins um hvernig grín- menning breytist í áranna rás, það sem þótt fyndið fyrir þrjátíu árum kreistir varla fram bros í dag og hlutir sem þykja fyndnir og skemmti- legir núna eru oft svo öfgafullir að engum hefði íeyfst að segja þá opin- berlega árið 1975. „Ég var einmitt á leikriti eftir Hugleik Dagsson um daginn og fór að velta þessu fyrir mér. Svona hefði ekki þótt áhorfsvænt fyrir ein- hverjum árum síðan en þykir í lagi í dag. Það er búið að færa siðferðis- þröskuldinn neðar. Sjáið t.d. Silvíu Nótt, Southpark og fleira," segir Friðrik. Ragnar tekur undir orð Friðriks. „Ég hef líka alltaf horft mikið á Simp- sons og Family guy og í dag finnast mér Simpsons bara hættir að vera fyndnir en Family guy vinnur stöð- ugt á enda er það mjög ónærgætinn og grófur húmor. Það er eins og maður þurfi einhvernvegin meiri örvun." „Það er allt í lagi að daðra við þessa línu sem sker úr um hvað má og hvað ekki, svo lengi sem það er gert í þeim tilgangi að það eigi að vera skemmtilegt og það liggi eitt- hvað meira á bak við eins og ádeila eða annað. Þegar öfgarnar ganga bara út á að hreyta einhverju út úr sér og vera með dónaskap, þá hefur það einhvernveginn engann tilgang og missir marks,“ segir Friðrik og tekur dæmi um sjónvarpsþætti þar sem fólk er að meiða sig eða glenna á óspennandi máta. Aðspurðir hvort þá langi til að gera aðra seríu segja þeir allir svo vera en bæta svo einróma við að framtíðarplön þeirra séu töluvert metnaðarfyllri. „Það er draumur okkar að á ösku- degi að ári verði borgin full af þús- undum drengja í gervi Frímanns Gunnarssonar!" Það eru allir með eirthversskonar áráttur og þrá- hyggjur þó þeir vilji kannski ekki endilega viðurkenna þær eða horfast í augu við þær. Ég lék manninn sem getur ekki sleppt því að snerta fólk og fyrirmyndina hefég afmanni sem ég kannast við sem er svona.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.