blaðið - 10.04.2006, Síða 19
blaðið MÁNUDÁGUR 10. APRÍL 2006
.TBTffytr
HEXLSA
Blaöiö/lngó
Ekki láta
steituna
fara með þig
Jon Kabat-Zinn hefur selt yfir 400
þúsund eintök af bókinni Full Cata-
strophe living sem inniheldur góð
ráð til að bregðast við streitu, sárs-
auka og sjúkdómum með því að
nota hugleiðslu. Jon hefur einnig
gefið út slökunardiska sem byggja
á hugleiðslu.
í bókinni Full Catastrophe living
er fjallað um leiðir til að losna við
streitu og sársauka hvort sem hann
er líkamlegs- eða tilfinningalegs
eðlis. 1 bókinni er einnig farið í það
hvernig á að vinna með ótta, kvíða
og svefnvandamál.
Mannleg samskipti geta
verið streituvaldur
1 bókinni er sagt frá því að sam-
skipti við annað fólk geti verið stór
streituvaldur í lífi margra. Yfirmað-
urinn, vinirnir, makinn og aðrir í
kringum okkur gera kröfur til tíma
okkar og sumir gera ekki það sem
við ætlumst til af þeim sem getur
valdið okkur vonbrigðum. Sumir
reyna að forðast þá sem valda streit-
unni en það getur verið erfitt því
oftar en ekki er þetta fólk sem er
okkur nákomið og við umgöngumst
reglulega.
Punktar um samskipti
• I samskiptum sem einkennast
Iaf togstreitu er mikilvægt að
við berum ábyrgð á okkar hluta
í deilunum og berum ábyrgð á
skynjun okkar, hugsunum, til-
finningum og hegðun.
• Það er einstaklingsbundið
hvernig fólk bregst við erfið-
leikum í samskiptum, sumir
takast á við óöryggi með því að
æsa sig upp og lenda í deilum
við aðra og sýna viðkomandi
yfirgang.
• Þegar fólk sér aðeins eigin til-
finningar og sjónarmið í sam-
skiptum við aðra er erfitt að
hafa eðlileg samskipti við það.
• Þegar fólki finnst að því vegið
hafa sumir tilhneygingu til að
fá ráðleggingar hjá fólki sem
sér hlutina í okkar ljósi. Það
er hinsvegar staðreynd að með
því að sjá hlutina út frá sjónar-
hóli hins aðilans víkkar sjónar-
horn okkar og nýir möguleikar
koma í ljós.
• Ef fólk missir ekki stjórn á sér
í samskiptum fara samskiptin
að minna á dans þar sem báðir
aðilar geta komið sínum sjónar-
miðum á framfæri.
Gott rád við
hælsæri
Það getur verið býsna óþægilegt að
fá hælsæri. Sérstaklega ef maður er
staddur úr alfaraleið og á ekki kost
á að komast í apótekið. f nýjasta
hefti Útiveru er hægt að lesa um
gott ráð við þessu hvimleiða vanda-
máli. Ráðið felst í því að taka hvíta
Ifrauðplastið sem oft fylgir ef keyptir
eru margir geisla-eða DVD diskar í
einu. Frauðplastið er með litlu gati
i miðjunni og felst lausnin í því að
gatið er sett yfir auma húðsvæðið
og frauðhringurinn er siðan límdur
niður á með heftiplástri.
Estrógen varnar elliglöpum
Brottnám eggjaleiðara stóreykur hœttuna á hrörnunarsjúkdómum samkvæmt nýrri rannsókn.
Bandarisk rannsókn sem tók til 2500
kvenna bendir til þess að þær konur
sem misst hafa eggjaleiðara búi við
aukna hættu á andlegum heilsu-
bresti. Rannsóknarteymi frá Mayo
rannsóknarstofnuninni í Minnesota
telur að ástæður þessa megi rekja til
kvenhormónsins estrógen sem gæti
átt stóran þátt í að draga úr öldrun-
areinkennum og að konur sem eru
í aukinni hættu á að þróa með sér
krabbamein í eggjaleiðurum geti
verið erfðafræðilega líklegri til þess
að þróa með sér hrörnunarsjúkdóm
á borð við elliglöp.
Yngri konur - aukin áhætta kvenna sem eggjaleiðararnir höfðu
Um helmingur kvennanna _________ ekki verið fjarlægðir
sem rannsak-____________——" 1 úr. Almennt jukust
aðar voru f 1 líkur á hrörnunar-
höfðu misst 1 1 sjúkdómum um 40%
annan eggja- 1 1 hjáþeimkonumsem
leiðarann á \ \ misst höfðu annan
tímabilinu frá 1 1 eða báða eggjaleið-
1950 til 1987 en 1 1 ara. Eftir því sem
hinn helmingur- \ \ konur misstu eggja-
inn hafði misst \ 1 \ leiðara fyrr því
báðaeggjaleiðara \ ' \ meiri var hættan
á sama tímabili. 1 \ á hrörnunarsjúk-
Þessir tveir hópar 1 - __________J dómum. Hjá þeim
voru svo bornir |_________________— konum sem misst
saman við hóp höfðu báða eggjaleiðara fyrir
46 ára aldurinn jukust líkur á hrörn-
unarsjúkdómum um 70% og hjá
þeim sem misst höfðu annan eggja-
leiðara fyrir 38 ára aldurinn jukust
likurnar á hrörnunarsjúkdómum
um 260%. Dr. Walter Rocca, sem
stýrði rannsókninni, segir að nið-
urstöður hennar setji aðgerðir þar
sem eggjaleiðarar eru fjarlægðir úr
konum vegna hættu á krabbameini í
nýtt samhengi. Fyrri rannsóknir Dr.
Rocca á brottnámi eggjaleiðara hafa
sýnt fylgni við aukna hættu á Parkin-
sonssjúkdómi en vísindamenn hafa
lengi talið að í estrógeni felist vörn
gegn hrörnunarsjúkdómum.
S Bílavarahlutir
THUI
SWEDEN
Ferðabox
Bilavararimtir
SMIÐJUVEGI 68 KÖP. • SlMI 520 8004
BlLDSHÖFÐA 16 RVlK. • SlMI 520 8005
EYRARVEGI 29 SELF. • SlMI 520 8006
www.stilling.is
AÐALNUMER • SÍMI 520 8000
SKEIFUNNI 11 RVlK. • SlMI 520 8001
DRAUPNISGATA 1 AK • SlMI 520 8002
DALSHRAUNI 13 HFN. • SlMl 520 8003