blaðið - 27.04.2006, Side 22
22 I VÍSINDI
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 blaöið
Náttúruverndarsinnar snúast
á sveif með kjarnorkunni
Þekktir baráttumenn fyrir verndun náttúrunnar, þar á meðal einn afstofnendum Grcenfriðunga eru teknir að talafyrir aukinni notkun á kjarnorku.
Grænfriðungar hafa löngum barist
hatrammlega gegn því að kjarnorkan
sé beisluð til að framleiða orku. Sam-
kvæmt bandaríska dagblaðinu New
York Times eru hins vegar fleiri og
fleiri náttúruverndarsinnar að snú-
ast á sveif með kjarnorkunni. I blað-
inu er greint frá þvi að kjarnorkuiðn-
aðurinn hafi ráðið til sín tvo þekkta
einstaklinga, þau Christie Whitman,
fyrrverandi ráðuneytisstjóra banda-
ríska umhverfisráðuneytisins, og
Patrick Moore, einn af stofnendum
Grænfriðunga. Þeim er ætlað að fara
fyrir almannatengslaherferð sem
miðar að því að fjölga kjarnakljúfum
í Bandaríkjunum.
Kjarnorkan er af hinu góða
Á blaðamannafundi síðastliðinn
mánudag sagði Whitman að kjarn-
orka væri umhverfisvæn, ódýr, hrein,
áreiðanleg og örugg. Whitman þessi
var í ráðuneytinu í tvö og hálft ár en
þar áður var hún ríkisstjóri í New
jersey. Allan sinn feril hefur hún
barist fyrir því að minnka útstreymi
gróðurhúsalofttegunda sem talið
99..................
Grænfriðungurinn fyrr-
verandi, Patrick Moore,
sagði á sama fundi að
Grænfriðungar væru á
villigötum þegarþeir
mótmæla kjarnorkunni
er stuðla að hitnun jarðarinnar og
mengun. Á fundinum sagði Whit-
man að allar þær aðgerðir sem hún
hafi barist fyrir hingað til jöfnuðust
engan veginn á við það að auka raf-
orkuframleiðslu í kjarnorkuverum.
Grænfriðungar á villigötum
Grænfriðungurinn fyrrverandi, Patr-
ick Moore, sagði á sama fundi að
Grænfriðungar væru á villigötum
þegar þeir mótmæla kjarnorkunni
sem hann sagði vera nauðsynlega
til þess að berjast gegn hitnun jarð-
arinnar. Moore yfirgaf Grænfrið-
unga árið 1986 og hann er fylgjandi
tækni af ýmsu tagi sem ekki hugnast
samtökunum. Hann er til að mynda
talsmaður þess að erfðatækni sé
notuð í landbúnaðarframleiðslu og
hann hefur kallað gömlu samstarfs-
félagana „náttúruöfgamenn“ og
„mannfjandsamlega“.
Á sama tíma og þau skötuhjú
kynntu upphaf baráttunnar fyrir
fjölgun kjarnakljúfa, kynntu samtök
Grænfriðunga nýja skýrslu þar sem
greint er frá 200 bilunum í banda-
rískum kjarnorkuverum sem átt hafa
sér stað frá árinu 1986. Samtökin
segja að í þessi skipti hafi munað hárs-
breidd að illa hefði farið en skýrslan
er gefin út til að minnast þess að tutt-
ugu ár eru nú liðin frá kjarnorkuslys-
inu í Tsjernobyl i Ckraínu.
Christie Whitman er hins vegar á
því að of mikið sé gert úr þessu fræga
slysi. Ekkert breyti því að kjarnork-
una megi þrátt fyrir allt beisla á ör-
uggan hátt sé rétt staðið að hlutunum
og að tæknin sé mikilvægur hlekkur
í baráttunni gegn hitnun jarðar.
gunnar@bladid. net
Þekktir náttúruverndarsinnar i Bandarikjunum hafa gengið til liðs við kjarnorkuiðnaðinn
og tala nú fyrir fjölgun kjarnorkuvera í landinu.
ATVINNA
LAUS STÖRF í BÓKHALDI OG
PRÓFARKALESTRI HJÁ BLAÐINU
BOKHALD:
Tímabundin staða í ca. 10 mánuði
frá 20. maí. Reynsla af bókhaldi
og Navision bókhaldskerfi
æskileg.
PRÓFARK ALE STUR:
i Sumarafleysingar í júlí og ágúst.
Umsóknir berlst til karlg@bladid.net
blaðið^
Microsoft reynir að gera
vafrann sinn öruggari
t Ijósi gagnrýni á vefvafrann Internet Explorer hefur Microsoft tilkynnt
um endurbœtta útgáfu sem líta mun dagsins Ijós seinna á árinu
Vinsælasti vefvafrinn í netheimum,
Internet Explorer frá bandaríska
tölvurisanum Microsoft, hefur sætt
æ harðari gagnrýni undanfarin miss-
eri vegna þess hve vírusar og aðrar
óværur eiga greiða leið inn í tölvur not-
enda hans. Markaðshlutdeild þessa
vinsælasta vafra í heimi hefur farið
minnkandi af þessum sökum en frá
herbúðum Microsoft berast nú fréttir
þess efnis að næsta útgáfa vafrans, IE7,
sem væntanleg er síðar á árinu, sé
mun öruggari en fyrri útgáfur.
Langvinsælasti vafrinn
Internet Explorer er langvinsælasti
vafrinn í heiminum í dag með tæp-
lega 85% markaðshlutdeild. Aðrir
vafrar, sérstaklega Firefox frá Moz-
illa, hafa hins vegar verið að vinna
á jafnt og þétt, ekki síst vegna þess
slæma orðs sem fer af öryggi IE.
Á einu ári, frá mars 2005 til mars
2006, fór markaðshlutdeild IE úr
tæpum 89% niður í tæp 85%. Fire-
fox fór á sama tíma úr tæpum 7%
í rúm 10% og aðrir vafrar eins og
Safari og Opera juku umtalsvert
hlutdeild sína.
Firefox þykir mun einfaldari í
notkun auk þess að vera öruggari
gagnvart óværu af ýmsu tagi og
Microsoft stefnir einmitt á að nýja
útgáfan verði einfaldari í notkun
ásamt því að vera betur varin fyrir
vírusum.
gunnar@bladid.net
Tími þinn erdýrmætur
nokian
Kire'llj,
Við skiptum um dekk fyrir þig.
Komdu strax.
► Engar tímapantanir
Max1 Bílavaktin sérhæfir sig í hraðþjónustu við allar gerðir bíla.
Við bjóðum hraðþjónustu sem er sniðin að þörfum hins tímabundna
bíleiganda. Við erum eldsnöggir á Max-einum. Þú kemur þegar
þér hentar og á meðan á þjónustu stendur færð þú þér rjúkandi
kaffibolla og kíkir í blöð og tímarit. Bíllinn þinn er I hröðum og
öruggum höndum hjá okkur.
Max-einn dregur nafn sitt af því að við Ijúkum allri þjónustu við
bílinn þinn innan klukkustundar frá því þjónusta hefst. Max-einn
skiptir um bremsur, dempara, olíu, rafgeyma, perur, rúðuvökva
og dekk og býður einnig ný dekk frá Pirelli og Nokian.
Við förgum notuðum dekkjum, rafgeymum, síum, olíu og öðrum
spilliefnum samkvæmt ströngustu umhverfiskröfum.
Hjólbarðaþjónusta
Leiðist þér að bíða á dekkja-
verkstæðum? Láttu okkur
skella dekkjunum undir
bílinn. Við bjóðum þér vand-
aða hjólbarða á hagstæðu
verði á flestar gerðir fólks-
bíla og jeppa frá m.a.
Nokian og Pirelli.
Smurþjónusta
Er komið að smurningu?
Við skiptum um olíu og síur
eins og hendi sé veifað.
Rafgeymaþjónusta
Þarftu að skipta um
rafgeymi? Við gerum það
fyrir þig I hvelli og losum þig
við þann gamla.
Bremsuþjónusta
Eru bremsuklossarnir
búnir? Endurnýjum bremsu-
klossa og bremsudiska I
flestum bílum.
Demparaþjónusta
Eru dempararnir lélegir?
Endurnýjum dempara og
gorma I flestum gerðum
bila.
O
Önnur þjónusta
Við skiptum líka um
þurrkublöð, perur og setjum
rúðuvökva á bílinn.
Fagmannleg vinnubrögð á
örskotsstundu.
REYKJAVlK- MAX1 BÍLAVAKTIN:
Bildshöfða 8. Simar 515 7097 og 515 7098. Opnunartími virka daga frá kl. 8-18
Breiðhöfða 1. Símar 515 7095 og 515 7096. Opnunartími virka daga frá kl. 8-18. Laugardaga 9-13
AKUREYRI - MAX1 BÍLAVAKTIN: Tryggvabraut 5. Sími 462 2700. Opnunartimi virka daga frá M. 8-18
Forðastu óþægindi.
Komdu með bílinn til okkar.
Skoðaðu: www.max1.is
BlLAVAKTIN
Bill Gates og félagar vonast til að nýr
Internet Explorer geti lokkað til sín á ný
notendur sem gefist hafa upp á vafranum
að undanförnu.