blaðið - 04.05.2006, Blaðsíða 7

blaðið - 04.05.2006, Blaðsíða 7
blaðið FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2006 VEIÐI I 23 Góð ráð Árum saman var því haldið fram að sú list að kasta flugu væri vart á færi annarra en þeirra sem slíkt hefði stundað árum og jafnvel áratugum saman. Sú þjóðsaga hefur löngu verið afsönnuð, og með nýrri tækni í hönnun á flugu- stöngum og flugulínum hefur veiðimönnum verið auðveldað það að stunda þetta göfuga sport. Þeir sem stunda fluguveiði þekkja það hinsvegar allir að það tekur tíma að ná tökum á því að koma línunni óflæktri frá sér, sem og nauðsyn þess að halda áunninni þekkingu við. Þú nærð betri köstum ef þú tekur því rólega vegna þess að hamagangur eyðileggur ferlið á línunni og er það ávísun á slæmt kast. Þess í stað er betra að menn æfi stutt köst með föstum úlnlið þar sem framhandlegg- Heitreyking á villibráð er matreiðsluað- ferð sem engan svíkur. Heitreyktu villibráðina Þeir sem þekkja til þeirrar listar að elda villibráð vita hversu frábært hráefni þar er á ferð. Það er sama hvort fyrir liggur að elda hreindýr, fuglakjöt, silung eða lax - kokkurinn þarf að vera mjög slæmur til að mat- urinn verði eitthvað annað en góður. Hinsvegar tekur eldamennskan oft nokkuð langan tíma ef vel á að vera og því er kærkomið að vita af eldunar- aðferðum sem krefjast lítils fyrirvara og lítilla tilfæringa. Sú aðferð að heitreykja villbráð flokkast einmitt undir slíkt, því reyk- ingin tekur aðeins 15 til 20 mínútur. Við það bætist reyndar að láta þarf hráefnið að liggja í kryddlegi í 1 til 2 klukkustundir áður en reyking getur hafist, en engu að síður en þessi mat- reiðsluaðferð mjög einföld. Á heimasíðu verslunarinnar Úti- vist og veiði, sem einmitt selja reyk- ofna fyrir þessa tegund, segir um heitreykingu. „í sjálfu sér er mjög einfalt að heit- reykja. Tveir sprittlampar eru settir undir ofninn og við mælum með sprittgeli sem er hægbrennandi og minni hætta er á að vökvinn smitist eða sullist út fyrir þegar verið er að græja ofninn. Síðan er sett fínt sag ofan í ofnskúffuna og síðan lok yfir sagið svo reykurinn dreifist vel um ofninn. Þar næst er hráefninu raðað á grindurnar sem eru tvær (á tveimur hæðum) og settar í ofninn. Lokið yfir og kveikja undir. Hitin frá sprittlömp- unum brennir sagið og inni í ofninum myndast mikill og heitur reykur. Við þessar aðstæður heitreykist hráefnið í gegn. Varast ber að heitreykja ekki um of því þá verður maturinn þurr og ólystugur.“ Matreitt úti á svölum „Með stuttum fyrirvara er hægt að galdra veislumat, hvort sem það er gæs, hreindýr, önd, svartfugl, skarfur, lax eða silungur. Hægt er að heitreykja eiginlega hvað sem er ef farið er rétt að. Hægt er að heitreykja úti á svölum, í garðinum eða við sumarbústaðinn,“ segir ennfremur um heitreykingu. Eins og áður sagði fást reykofnar í verslun Útivistar og veiði og á heima- síðu verslunarinnar er að finna allar nauðsynlegar upplýsingar um hvernig menn bera sig að við þessa matreiðslu. Reykofninn er ekki dýr, en hann kostar tæpar átta þúsund krónur. Poki af sagi kostar síðan tæpar þúsund krónur. fyrir byrjendur í fluguveiði urinn er aðeins notaður í kastið en upphandleggurinn látin liggja þétt upp með líkamanum. Með einfaldri hreyfingu framhandleggs flytur vanur kastari línuna þangað sem hann vill koma henni. Ef mikil átök einkenna köstin þá getur það valdið þreytu í öxlum og getur leitt til tennis- olnboga og sinaskeiðabólgu. Margir telja það vera aðalatriði að koma línunni sem lengst. Þetta er mikill misskilningur og getur komið í veg fyrir gott kast. Byrjendur ættu þvi að taka góðan tima í að æfa stutt köst án flugu. Gallinn við of löng köst getur nefnilega verið sá að línan fer yfir fiskinn og fælir hann í burtu en það er ekki það sem góður veiði- maður vill. Þeir sem ætla sér að verða góðir veiðimenn ættu að æfa köstin reglu- lega þar sem enginn fiskur þvælist fyrir. Það er um að gera að finna sér opið svæði fyrir kastæfingar en gott tún hentar vel fyrir slíka iðju að unda- skildum veltiköstum og speyköstum en þau þarf að æfa á vatnsfleti. Gættu þess þó að enginn verði önglinum að bráð. Þegar þú ferð að æfa fluguköst skaltu vera meðvituð fyrir tilfinning- unni í kasthendinni og helst öllum líkamanum. Því betri tilfinningu sem þú hefur fyrir stönginni og lík- amanum því auðveldari verða köstin. Æfðu líka hliðarköstin en þau gagnast vel í vindi og í sérstökum aðstæðum þar sem þarf að kasta undir runna eða slíkt en hafa annars takmark- aðan tilgang. Þegar köstin eru æfð þá er gott að venja sig á það að kasta alltaf á mark. Þú getur notað t.d. góðan spotta úr lituðu garni og sett á endann á leið- aranum. Búðu þér svo til mark og settu á jörðina og æfðu þig í því að hitta þar í. Þegar þú ert orðin betri þá getur þú minnkað markið þannig að það verður erfiðara að hitta og kastið krefst meiri nákvæmni, en ná- kvæmni er að sjálfsögðu nauðsynleg hverjum veiðimanni. Sumir eiga í erfiðleikum með að hnýta fluguna á tauminn. Þá er gott að venja sig á það að hafa stækkun- argler við hendina. Þegar farið er að dimma er nauðsynlegt að hafa til taks vasaljós en annars er gott ráð að bera fluguna og tauminn upp að ljósum fleti ef hann er að finna. hilda@bladid.net SVFR.IS er vinsælasti veiðivefur landsins. Nú geturðu á einfaldan og aögengilegan hátt keypt frábært úrval veidileyfa úr hvada nettengdu tölvu sem er og prentaö þau út að loknum viðskiptum. Á svfr.is finnnur þú: Úrval veiöileyfa í lax og silung - Upplýsingar um öll helstu veiðisvæöi landsins - Fréttir og greinar - Veiðistaðalýsingar - Myndir - Upplýsingar um félagsstarf SVFR - Veiðikort og margt fleira Veiðivefurinn SVFR.IS

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.