blaðið - 04.05.2006, Blaðsíða 8

blaðið - 04.05.2006, Blaðsíða 8
24 I VEIÐI FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2006 blaðið Villibráðin er alltaf góö Nauðsynlegt að komastfrá dagsins önn. BlaðiÖ/Frikki Pálmi Gestsson leikari er mikill skotveiðimaður. Hann er þessa stundina staddur í Bolungarvík á æsku og uppeldistöðvum sínum þar sem hann er í óða önn að gera upp æskuheimilið. Pálmi svaraði nokkrum spurningum um eitt af helstu áhugamálunum sem er skotveiði. Hvencer byrjaðir þú að stunda veiðina? Ég man það nú ekki alveg en ég er uppalinn í sjávarplássi þar sem nátt- úran var við hvert fótmál þannig að ég var ekki gamall þegar ég byrjaði á því. Núna er ég aðallega í skotveið- inni en ég byrjaði á því fyrir kannski einhverjum áratug eða tveimur. Hvað veiðirþú helst? Ég veiði gæsir, rjúpur, hreindýr og endur og svona ýmist góðgæti. Hvertferðu helst til að veiða? Ég hef farið á rjúpu upp í Húsafell en við erum þar nokkrir félagar með rjúpnaland á leigu. Þegar ég fer og veiði gæsir þá fer ég hingað og þangað og fyrir hreindýrin fer ég austur á Fljótsdalsheiði. Svo fer ég á svartfugl þessa dagana til ío. maí. Hvað finnst þér skemmtilegast að veiða? Ég held að rjúpan standi upp úr, ef maður á að fara að gera upp á milli. Annars er mjög gaman að þessu öllu, hvort sem það er rjúpa, hreindýr eða önd. Hverjir eru helstu veiðifélagarþínir? Við höfum nú farið við Hilmar Jónsson leikstjóri saman í Húsafell og Hávar Sigurjónsson. Svo var ég mikið með Róbert Smith. Ef það er hreindýr þá fer ég með vini mínum Georgi Lárussyni hershöfðingja. Áttu ekki einhverja góða veiðisögu? Það er ekkert sem ég man eftir sem stendur en ég er þessa stundina staddur hér í smíðagallanum með hamar þannig að ég man ekkert í augnablikinu. Áttu einhver heilrœði handa þeim sem eru að byrja íþessu sporti? Nei í rauninni ekkert nema að njóta þess að vera úti í náttúrunni, vera með vakandi náttúruskyn og kom- ast í snertingu við almættið og eilífð- ina. Ég held að það sé nú aðalmálið. Áttu ekki einhverja góða uppskrift sem þú vilt deila með lesendum? Þessu get ég ekki svarað. Það er konan mín sem sér alfarið um þau mál. Þó ég væri eitthvað í elda- mennskunni þá myndi ég líklega ekki muna eftir neinni uppskrift hvort sem er. Hvertfinnstþér vera besta kjötið? Mér þykja rjúpur afskaplega góðar. Annars finnst mér hreindýrið líka afskaplega gott eins og konan mín matreiðir það. Annars er ég er mik- ill matmaður og mikið fyrir þessa villibráð alla. Við eldum rjúpurnar í kringum jólin en hreindýrið oftar. Svartfuglinn er svo borðaður á vorin og gæsin annað slagið. Ertu ekkert í stangveiðinni? Nei, ég er ekki í stangveiði. Ég var nú á sjó í gamla daga en ég hef aldrei komist upp á lagið með stangaveiði. Ég lét mér bara nægja þegar ég var að alast hér upp fyrir Vestan að vera á sjó. En þar eru félagar mínir betri eins og Siggi Sigurjóns hann er mik- ill stangveiðimaður. Hvernig gengur að samhœfa leiklist- ina og áhugamálið? Ég hef oft sagt það að þeir eru miklu heppnari stangveiðimennirnir því sá veiðitími er bara á sumrin. Leik- húsið er alltaf byrjað þegar veiði- tíminn gengur í garð hjá okkur skotveiðimönnunum þannig að það fer ekki alltaf saman en hefur samt sem áður gengið ótrúlega vel. Ég reyni að skjótast þegar ég get, það er alveg nauðsynlegt að komast eitt- hvað til að halda sönsum í nútíma þjóðfélagi. hilda@bladid.net PDBJB FISHING Umboð/Þjónusia: Vciðitækni MITCHELL ÞESSAR ÚRVALS VEIÐIVÖRUR FÁST í BETRI VEIÐIBÚÐUM UM LAND ALLT PAbu Garcia ■enaey H MORE E/SH JFVm CATCH Cardmal

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.