blaðið - 08.05.2006, Síða 4
4IFRÉTTIR
MÁNUDAGUR 8. MAÍ 2006 blaöió
Flokksmenn Tonys Blairs
herða sóknina gegn honum
Kröfur magnast innan breska Verkamannaflokksins um að forsætisráðherrann greini frá
því hvenær hann hyggist leggja niður völd. Breytingar á ríkisstjórn mælast illa fyrir.
Fréttaskýrendur í Bretandi segja
að Tony Blair forsætisráðherra eigi
erfiða daga í vændum. Hans bíði að
reyna að sannfæra flokksmenn sína
innan Verkamamannaflokksins um
að enn sé hann fær um að stýra rík-
isstjórninni. Kröfur magnast innan
flokksins um að Blair skýri opinber-
lega frá því hvenær hann hyggist láta
af embætti.
Fréttaskýrendur eru sammála um
að sjaldan eða aldrei hafi reynt svo
mjög á pólitíska hæfileika Blairs og
annálaða getu hans til að hrista af
sér slæm tíðindi. Blair er iðulega
kallaður „Teflon Tony“ sökum þess
að ekkert virðist loða við hann þegar
illa gengur. Nú eru uppi efasemdir
um að hann sé í raun lengur fær um
að stjórna. Pólitískir andstæðingar
skynja að forsætisráðherrann fer lask-
aður um leikvöll stjórnmálanna og
halda því fram að Blair skorti allan
myndugleika til að stjórna landinu.
Undirskriftasöfnun
Frá því var skýrt í gær að nokkrir
þingmenn Verkamannaflokksins
hefðu skorað á Blair að upplýsa hve-
nær hann hyggist segja af sér emb-
ætti forsætisráðherra. Vilja þeir að
Blair geri þetta heyrinkunnugt í
síðasta lagi í byrjun júlí. Fastlega er
búist við því að hrökklist Blair úr stól
forsætisráðherra taki Gordon Brown
fjármálaráðherra við starfi hans.
Blair hefur sagt að hann hyggist
hætta sem forsætisráðherra áður en
þriðja kjörtimabili hans lýkur árið
2010. Hann hefur hins vegar reynst
ófáanlegur til að tiltaka nákvæmari
tímasetningu.
Síðustu tvær vikurnar hafa verið
þær erfiðustu á stjórnmálaferli Blairs.
Upp komu margvísleg hneykslismál
innan ríkisstjórnar hans, flokkurinn
beið ósigur í bæjar- og sveitarstjórn-
arkosningum og Blair neyddist til
að gera lítt undirbúnar breytingar
á ríkisstjórn sinni. Viðbrögðin við
þeim breytingum hafa almennt verið
neikvæð og þykja þær um til marks
um að Blair sé að missa tökin á stjórn
sinni og flokki. David Cameron, leið-
togi fhaldsflokksins, sagði um helg-
ina að greinilegt væri að stjórn Blairs
yrði ekki bjargað. Hann hefði í raun
glatað öllum umboði til að sinna emb-
ætti forsætisráðherra.
Hermt var um helgina að þeir Blair
og Brown hefðu fundað um hvernig
ná mætti á ný tökum á Verkamanna-
flokknum. Blair hefur jafnan átt öfl-
uga andstæðinga innan flokksins en
vaxandi teikn eru á lofti um að þeir
hyggist blása til uppreisnar gegn leið-
toga sínum.
Brown hefur gætt þess að halda sig í
hæfilegri fjarlægð frá forsætisráðherr-
anum á síðustu vikum en hann mun
vera helsti talsmaður þess að gripið
verði til róttækra aðgerða í því skyni
að endurnýja Verkamannaflokkinn.
Ósigurinn i kosningunum í liðinni
Háskólinn í Reykjavík býður
framúrskarandi nám í verkfræði,
tæknifræði, tölvunarfræði og iðnfræði
VERKFRÆÐI
Fjármálaverkfræði
Heilbriqðisverkfræði
Hugbúnaðarverkfræði
Iðnaðarverkfræði
Rekstrarverkfræði
Opið fyrir umsóknir á www.ru.is
Allar nánari upplýsingar á www.ru.is
og hjá námsráðgjöfum í síma 599 6200.
TÆKNIFRÆÐI
Byggingartæknifræði
Rafmagnstæknifræði
Vél- og orkutæknifræði
IÐNFRÆÐI
Byggingariðnfræði
Rafiðnfræði
Véliðnfræði
TÖLVUNARFRÆÐI
Tölvunarfræði
Kerfisfræði
HÁSKÓLINN I REYKJAVÍK
KEYKJAVlK UNIVEKSITY
OFANLEITI 2,103 REYKJAVlK • HÖFÐABAKKA 9,110 REYKJAVÍK
SlMI: 599 6200 www.ru.ls
FRUMGREINASVIÐ
FRAMURSKARANDI
NÁM ÍTÆKNI-OG
VERKFRÆÐI
Gordon Brown, fjármáiaráðherra Bretlands, ræðir við fréttamenn eftir að hafa veitt
sjónvarpsviðtal í gær.
viku beri að taka sem alvarlega við-
vörun. Brown sagði í sjónvarpsviðtali
í gær að við öllum blasti að leiðtoga-
skipti væru i vændum innan Verka-
mannaflokksins en gætti þess þó að
tengja ekki tal sitt um endurnýjun
beinlínis nafni Tonys Blairs. „Ég
tel mikilvægast nú að við ákveðum
nákvæmlega hvernig við ætlum að
stuðla að slíkri endurnýjun," sagði
Brown.
í bréfi sem birt var í The Sunday
Telegraph í gær og undirritað er af
50 þingmönnum Verkamannaflokks-
ins er hvatt til þess að skipulagt verði
áður en júlímánuður gengur í garð
hvernig tryggja beri „virðulega og
skilvirká' breytingu á forystu flokks-
ins. Andrew Smith, fyrrum ráðherra
og dyggur stuðningsmaður Browns,
sagði í grein sem birtist í dagblaðinu
The Independent í gær að Blair bæri
að segja af sér og það fyrr frekar en
síðar. Slík ákvörðun þjónaði hags-
munum þjóðarinnar, Verkamanna-
flokksins og Blairs sjálfs.
Mislukkuð breyting
Stuðningmenn Blairs sem sumir
hverjir hlutu óvænta upphefð þegar
breytingin var gerð á ríkisstjórninni
komu forsætisráðherranum til varnar.
Tessa Jowell, menningarráðherra, vís-
aði á þug öllu tali um afsögn Blairs í
viðtali við The Sunday Telegraph.
Búist er við að Blair haldi í dag,
mánudag, fyrsta blaðamannafund
sinn frá því að hann stokkaði upp í
ríkisstjórn sinni. Blair rak m.a. inn-
anríkisráðherrann, lækkaði utanrík-
isráðherrann í tign og fékk nýja konu
í hans stað. Hugsunin er sú að hleypa
nýju lífi í stjórnina en stjórnmála-
skýrendur eru almennt sammála um
að Blair hafi ekki tekist vel upp við
þessar breytingar. „Ef til eru dygg-
ustu stuðningsmennirnir i kringum
forsætisráðherrann enn sannfærðir
um að hann nái að ljúka þriðja kjör-
tímabili sinu og þannig halda völdum
til ársins 2009 eða 2010. En þeir eru
þá líka einir um þá skoðun," sagði
dálkahöfundurinn John Freedland í
dagblaðinu The Guardian í gær.
Margir líkja stöðu Blairs nú við þá
sem Margaret Thatcher, þáverandi
forsætisráðherra og leiðtogi Ihalds-
flokksins, átti við að glíma árið 1990.
Flokksmenn hennar snerust þá gegn
henni er hún var á þriðja kjörtímabili
sínu eftir ósigur í bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningum og svo fór að hún
neyddist til að láta af embætti.
Bakaðarl
kr29.
ónor \ toma*saS
papu'ja toma
beans m *
Vinnumála-
stofnun til
í slaginn
Forstjóri stofnunarinnar
vísar á bug þeirri gagnrýni
verkalýðsforingja að hún sé
ekki fær um að fylgjast með
kjörum erlendra verkamanna.
Vinnumálastofnun er fullkom-
lega í stakk búin til að takast á
við ný verkefni í tengslum við
frjálsa för erlends verkafólks
hingað til lands að mati Gissurar
Péturssonar, forstjóra hennar.
Hann blæs á gagnrýni verkalýðs-
forkólfa um að stofnunin sé illa
undir verkefnið búin.
Samkvæmt lögum um frjálsa
för launafólks á EES-svæðinu
þurfa fyrirtæki sem ráða er-
lendan starfsmann að skila inn
ráðningarsamningum til Vinnu-
málastofnunar. Stofnunin þarf
síðan að meta hvort samningur-
inn sé í samræmi við íslenska
kjarasamninga.
Fram kom í máli Vilhjálms
Birgissonar, formanns Verka-
lýðsfélags Akraness, í Blaðinu á
laugardag að hann teldi Vinnu-
málastofnun ekki í stakk búna
til uppfylla þessar skyldur. Taldi
hann starfsmenn stofnunar-
innar einfaldlega ekki búa yfir
nauðsynlegri sérþekkingu.
Áður hafði Sigurður Bessa-
son, formaður Eflingar, lýsti
yfir efasemdum um þetta
fyrirkomulag.
Ekki ofvaxið verkefni
Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar, vísar
gagnrýni Vilhjálms á bug.
Hann segir verkalýðsfélögin
muni áfram hafa eftirlit með
kjarasamningum og minnir á
að lögin hafi verið samþykkt
með fullum stuðningi verkalýðs-
hreyfingarinnar. „Þetta er ekki
ofvaxið verkefni fyrir Vinnu-
málastofnun. Svo væntum við
áframhaldandi góðs samstarfs
við stéttarfélögin."
Þá bendir Gissur á að lögin
um frjálsa för launafólks muni
létta á hinni hefðbundu atvinnu-
leyfaútgáfu sem hefur verið á
höndum Vinnumálastofnunar.
Það muni þýða að stofnunin
hafi meira svigrúm fyrir ný verk-
efni. „Um 80% afatvinnuleyfum
síðustu missera voru gefin út til
fólks á EES-svæðinu. Þegarléttir
á henni höfum við töluvert svig-
rúm fyrir ný verkefni.“
VÍKURVAGNAKERRURNAR
þessar sterku
flllar gerðlraf kerrum
Allir hlutir til kerrusmíða
Víkurvagnar ohf • Dvorgshölða 27
^ Simi 577 1090 • www.vikutvagnar.is /