blaðið - 08.05.2006, Page 20
20 I VIÐTAL
MÁNUDAGUR 8. MAÍ 2006 blaöiö
Alla daga að upplifa drauminn
Hannes Þór Halldórsson er ungur kvikmyndaleikstjóri á uppleið. Sjálfmenntaður er hann og hefur gertfjölda sjón-
varpsauglýsinga og tónlistarmyndhanda. Björn Bragi Arnarsson rœddi við Hannes um stuttan en viðburðarríkan
feril hans ogþau tœkifœri sem bjóðast ungu hœfileikafólki í íslenskri kvikmyndagerð.
BlaÖiÖ/Steinar Hugi
Hannes Þór Halldórsson er í hópi
efnilegustu kvikmyndagerðar-
manna íslands og hefur, þrátt fyrir
ungan aldur, komið ár sinni vel fyrir
borð í kvikmyndageiranum. Aðeins
22 ára gamall hefur hann leikstýrt
fjölda sjónvarpsauglýsinga og gert
á annan tug tónlistarmyndbanda
fyrir nokkra af þekktustu tónlistar-
mönnum landsins. Hannes starfar
sjálfstætt - rekur fyrirtækið Kuwait
ehf. - og hefur haft í nógu að snúast
frá því fyrirtækið var sett á stofn
fyrir ári síðan.
Dýrmæt reynsla úrVersló
Hannes segir að áhuginn á kvik-
myndagerð hafi kviknað snemma.
„Ég var 12 ára þegar við vinirnir
gerðum fyrstu stuttmyndina. Við
gerðum nokkrar myndir saman
í grunnskóla og einhvern veginn
fór það þannig að það var alltaf ég
sem hélt á myndavélinni. í fram-
ICETREND OUTLET
SÍÐUMÚLA 34
Vandaður barna og
dömu fatnaður á
mjög góðu verði!
Flottar gallabuxur
frá 900,-
Fallegir bolir
frá 400,-
Opið: virka daga 11-18
laugardaga 11-16
haldsskóla byrjaði þetta svo af al-
vöru og ég fékk brennandi áhuga á
kvikmyndagerð. Þá fór ég að velta
því fyrir mér hvort ég ætti að leggja
þetta alveg fyrir mig og hef satt að
segja ekki ennþá komist að niður-
stöðu,“ segir Hannes.
Hannes nam við Verzlunarskól-
ann og var öll menntaskólaárin á
kafi í myndbandagerð. Segir hann
þá reynslu síst minna dýrmæta en
þekkinguna sem hann aflaði sér
með lestri námsbókanna. „Þarna
var ég að vinna í mjög fjölbreyttum
verkefnum. Við félagarnir vorum
að gera stuttmyndir, skemmtiþætti,
tónlistarmyndbönd og alls kyns
efni. Þetta var frábær skóli fyrir mig
sem verðandi kvikmyndagerðar-
mann og líklega betri en flest kvik-
myndanám. Ég held að það að vera
á kafi í kvikmyndagerð í Versló taki
t.d. Kvikmyndaskóla íslands fram
að mörgu leyti. Að æfa sig sjálfur og
hafa frjálsar hendur til að leika sér
er ótrúlega dýrmætt. Reynslan hefur
svo mikið að segja í þessu,“ segir
Hannes og fullyrðir að engu sé logið
til um að í Versló sé frábært félagslíf
og segir það bjóða upp á mörg tæki-
færi fyrir skapandi einstæklinga.
Nylon gaf tóninn
„Eftir Versló fór ég að vinna hjá Saga
Film sem eins konar kaffitittur.
Fljótlega fór ég svo að gera tónlist-
armyndbönd í hjáverkum. Smám
saman fóru mér að bjóðast fleiri
verkefni og hægt og rólega vatt þetta
upp á sig. Á svipuðum tíma bauðst
mér góð vinnuaðstaða og fór svo
að ég hætti hjá Saga Film og hóf að
starfa einn. Það lá því beinast við að
ég stofnaði fyrirtæki undir þetta.,“
segir Hannes.
Fyrsta stóra verkefni hans kom
99.................
Ég er með fiðríng í
maganum alla daga og
er ótrúlega sáttur við
að geta verið að starfa
við þetta. Ég hefalltaf
verið í frekar leiðin-
legri vinnu og hefði
ekki trúað því hvað
það breytir tilverunni
mikið að vera í svona
skemmtilegu starfi.
skömmu eftir að hann útskrifaðist
úr Versló. Það var að búa til mynd-
band fyrir þá nýstofnaða stúlkna-
hljómsveit, Nylon. „Ég og félagi
minn, sem ég hafði unnið mikið
með í Versló, vildum taka að okkur
alvöru verkefni og ákváðum að tala
við Einar Bárðarson. Við sögðum
honum að við hefðum áhuga á að
gera fyrir hann myndband og buð-
umst til að gefa vinnuna okkar en
hann myndi sjá um að greiða fram-
leiðslukostnað. Þetta gelck eftir og
myndbandið tókst vel. Einar var
ánægður með útkomuna og ég hef
unnið mikið fyrir hann síðan,“ segir
Hannes. Auk Nylon hafa listamenn
á borð við Garðar Cortes, Stefán
Hilmarsson, Margréti Eir og Skíta-
móral notið krafta hans.
„Mér finnst skemmtilegast að gera
tónlistarmyndbönd. Þar fær maður
meira að leika sér og andrúmsloftið
er léttara og skemmtilegra. Auglýs-
ingarnar eru líka skemmtilegar og
gefa meira af sér. Ég er mest í að
gera þær en það er alltaf gaman að
taka að sér tónlistarmyndbönd inn
á milli,“ segir Hannes en bætir við
að takmarkið sé að gera kvikmynd
í fullri lengd. „Ég er með ákveðnar
hugmyndir í gangi og það væri mjög
spennandi að fara út í svoleiðis verk-
efni. En það er vissulega meira en að
segja það. Ég á þó vafalaust eftir að
gera kvikmynd fyrr eða síðar,“ segir
Hannes. .
(slenskan fer illa í fólk
Kvikmynd í fullri lengd bíður þó
enn um sinn, en Hannes segir að
það reynist 'þrándur í götu þeirra
sem ætli sér að gera kvikmynd á ís-
landi. „Við eigum þó fullt af góðum
kvikmyndagerðarmönnum sem
eru að gera fína hluti. En auðvitað
mættu þeir allir vera að gera meira
og betra, það bara vantar alltaf fjár-
magnið. Það getur enginn gert ná-
kvæmlega það sem hann vill hérna
vegna þess að það er ekki til fjár-
magn fyrir neinu. Þess vegna þarf
alltaf að vera að kreista af og skera
af öllum hornum til þess að fá hlut-
ina framleidda. Það tekur sinn toll,“
segir Hannes og nefnir aðra ástæðu
fyrir því að íslenskar kvikmyndir
eigi undir högg að sækja:
„Ég held að Islendingar kaupi bara
ekki alveg íslensku í kvikmyndum.
Okkur finnst eitthvað skrýtið við að
horfa á íslenskuna á hvíta tjaldinu
og það er eins og hún fari ekki alveg
nógu vel í okkur. Að mínu mati er
það stór ástæða fyrir því að íslenskt
efni virkar ekki alveg eins vel á
okkur og það ætti að gera,“ segir
Hannes.
„Mér finnst íslensk kvikmynda-
gerð samt sem áður frábær. Ég virði
allt framtak og er áhugasamur yfir
því sem er verið að gera. Mér finnst
gaman að horfa á íslenskar kvik-
myndir og þætti eins og Stelpurnar
eða Allir litir hafsins eru kaldir af
því að ég veit hvað það er mikið
mál að búa þetta til. Allt íslenskt
efni finnst mér frábært þó að það
vanti kannski svolítið upp á gæðin í
mörgum tilvikum. Kannski er ég of
umburðarlyndur og hugsa of mikið
út í hvað það er mikið vesen að fram-
leiða þetta", segir Hannes og hlær.
Áhuginn aðalatriðið
Hannes segir að á íslandi fari menn
ekki út í kvikmyndageirann til
þess að verða ríkir, heldur séu þeir
drifnir áfram af áhuganum. „Þó að
mér gangi ágætlega að lifa á þessu er
ekki hægt að segja að þetta sé neitt
æðislega vel borgað. Fyrst og fremst
er þetta skemmtilegt. Ég er með fiðr-
ing í maganum alla daga og er ótrú-
lega sáttur við að geta verið að starfa
við þetta. Ég hef alltaf verið í frekar
leiðinlegri vinnu og hefði ekki trúað
því hvað það breytir tilverunni
mikið að vera í svona skemmtilegu
starfi," segir Hannes.
Aðspurður hvar bestu tækifærin
liggi segir Hannes þau vera í auglýs-
ingunum. „Það er hægt að lifa vel á
því að vera auglýsingaleikstjóri og
það eru ágætis peningar í því. Það er
örugglega það hæsta sem hægt er að
komast á íslandi og svo getur maður
haldið áfram þaðan og komist er-
lendis í auglýsingaleikstjórn. Það
eru nokkrir íslendingar starfandi
við auglýsingagerð ytra og fá fullt
af peningum fyrir,“ segir Hannes og
telur það langtum arðbærari kost en
að gera kvikmyndir á Islandi.
„Að gera kvikmyndir er annar
möguleiki en þá á maður varla fyrir
mjólkinni. Þetta fer bara eftir því
hvar metnaðurinn liggur. Annað
hvort eiga menn ekki krónu og fá
útrás fyrir listamanninn í sér eða
þeir fara í auglýsingarnar. Maður
þarf að spyrja sig hvort maður vilji
taka fjölbreyttan vinnudag og fiðr-
ing í maganum fram yfir úttroðið
veski? En undantekningarnar eru
þó til, eins og Baltasar Kormákur
sem er að taka næsta skref og er
kominn í stærri og betri hluti. Eins
Dagur Kári. En sem kvikmyndaleik-
stjóri á Islandi er maður í þessu af
áhuganum einum saman,“ ítrekar
Hannes.
Hollywood er fjarlægur draumur
Hannes segist bíða í ofvæni eftir
nýjum og spennandi sumarverk-
efnum. I haust muni hann hins vegar
standa á ákveðnum timamótum og
þurfi þá að taka ákvörðun varðandi
framtíðina. „I haust eru liðin tvö
ár frá því ég útskrifaðist úr mennta-
skóla og fór að vinna við kvikmynda-
gerð og þá þarf ég að ákveða hvort
þetta sé það sem ég ætla mér alfarið
út í eða hvort ég ætli að fara í há-
skólan. Mér þykir líklegra að ég leggi
kvikmyndagerð aðeins á hilluna og
fari í Háskólann - líklega í sálfræði,“
segir Hannes en útilokar að hann
muni mennta sig í kvikmyndagerð.
„Ég hef unnið mig hratt upp og er
kominn á góðan stað í þessum geira.
Ef ég held áfram þá ætla ég að halda
áfram með sama hætti - að læra af
sjálfum mér og reynslunni.“
Þegar kvikmyndagerðarmaður-
inn ungi er spurður hver sé hans
helsti draumur stendur svarið ekki
á sér: „Hollywood! Ég held að ég
gæti ekki gert neitt skemmtilegra
í lífinu en að verða kvikmyndaleik-
stjóri og hafa það gott. Að vera leik-
stjóri í Hollywood held ég að sé það
besta sem hægt er að gera ef maður
hefur áhuga á þessu. Að gera eina
mynd á ári og fá vel borgað fyrir það
og verið svo að velja úr handritum
fyrir næstu mynd. Það er auðvitað
draumurinn," segir Hannes en
bætir við að hann sé fullmeðvitaður
um að líkurnar á að þetta gangi eftir
séu hverfandi.
„Þetta er bara eins og allir sem æfa
fótbolta ætla að verða atvinnumenn
í fremstu röð en svo er það bara
Eiður Smári sem verður það. Það er
ótrúlega mikið af kvikmyndagerðar-
mönnum hérna á Islandi sem vilja
verða næsti Spielberg. Þannig að ef
ég á að vera raunsær þá er draumur-
inn að geta unnið við kvikmynda-
gerð, haft það gott og verið minn
eigin herra.“
bjorn@bladid.net
o
PARKET
feGÓLF
mmm
ARMULA 2 3
OPIÐ MÁNUDAC TIL FÖSTUDAGS: 9:00 TIL 18:00 LAUCARDAC 10:30 TIL 13:30
PARKET
&GÓLF