blaðið - 18.05.2006, Side 24

blaðið - 18.05.2006, Side 24
24 I BÍLAl FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 blaöiö Verð á mann Pxröþú MasterCara fcriaávísun? *** . m ém Gott úrval af frábærum mótorhjóladekkjum. M0T0CR0SS • ENDURO ■ GÖTUHJÓL Vertu óhrædd/ur að velja það bestal uiuv DEKKJiUMÓNIJSTA Lágmúla 9 -108 Reykjavík ■ Simi 5-333-999 • GSM 899-2844 • betragrip@betragrip.is 34.900 49.900 kr. í 2 vikur ♦Netverð á mann á ofangreinda áfanga- og gististaði. Verð er óháð fjölda í íbúð, en lágmarksfjöldi í íbúð er 2. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis bætist við 2.000 kr. bókunar- og þjónustugjald á mann. kr. í viku* Bílasmiðjan Porsche kynnti nýverið glænýja útgáfu af vinsælasta sport- bíl allra tíma, Porsche 911 Turbo (997). Andrési Magnússyni var boðið suður til Andalúsíu á Spáni til þess að reyna gripinn og það er óhætt að segja að hann hafi orðið bergnuminn af bílnum. Verkfræðingar og áróðursmeistarar Porsche voru uppfullir af sjálfsöryggi þegar þeir tóku á móti blaðamönnum í þorpinu Benalup syðst á Spáni. Þeir vildu sem minnst mæra bílinn og sögðu að hann stæði alveg fyrir sínu, ekkert sem þeir segðu gæti tekið fram niðurstöðum okkar við reynslu- aksturinn. Það kom á daginn, að það var hárrétt metið hjá þeim. Áður en lengra er haldið finnst mér rétt að greina lesandanum frá því að Porsche 911 Turbo er einfaldlega skemmtilegasti bíll, sem undirrit- aður hefur ekið. Það á varla að þurfa að taka fram að bíllinn er verkfræði- legt undur, hann er afar fallegur á að lita og smiðin er öll til fyrirmyndar og frágangur sömuleiðis. En það á heldur ekki að koma á óvart þegar Porsche er annars vegar. Hitt finnst mér þó skipta enn meira máli, hvað þetta er afskaplega skemmtilegur bíll; eins og hugur manns, en samt með sjálfstæðan ka- rakter. Tæknilega í fremstu röð, en Iöðrandi í sögu. Og þó hann sé smá- gerður er hann þægilegur, svo þægi- legur að eftir 8V4 tíma hraðakstur um þrönga sveitavegi og hraðbrautir An- dalúsíu var maður ekki lúnari en svo, að blaðamaður settist aftur upp í og fór í bíltúr! Tilfinning Þegar maður beygir sig niður til þess að setjast í fyrsta skipti inn i Porsche 911 Turbo er maður ögn smeykur um að hann reynist fullaðsniðinn fyrir mann í norrænni yfirstærð, en um leið og maður er kominn undir stýrið hverfa þær áhyggjur. Þvert á móti er bíllinn afar þægilegur fyrir ökumanninn og minnir raunar um margt á innvolsið í Porsche Cayenne. Um leið og lyklinum er snúið áttar maður sig hins vegar á því að undir þessu lúxusyfirborði bærist skrímsli og það rymur duglega í því. Maður fer hægt af stað og áttar sig á því að bíllinn myndi duga vel í inn- kaupaferð í Þingholtunum, en það er ekki fyrr en maður gefur duglega inn, sem maður áttar sig á aflinu. Jú, maður hafði lesið eitthvað um hest- aflafjölda og hröðun, en það bjó mig samt ekki undir að þrýstast aftur í sætið og sjá umhverfið þjóta aftur fyrir mig. Akstureiginleikar Þó aflið sé yfirdrifið f Porsche 911 Turbo eru það ekki síst aksturseig- inleikarnir, sem gera hann að þeim ofurbíl, sem hann vissulega er. Hann er einkar lipur og það jafnt á mikilli ferð sem lítilli. Og það er eins og það sé alveg sama hvað maður hamast á honum: á 160 km ferð inn í beygjur eða á malarvegi, hann steinliggur. Þar inn í koma raunar alls kyns drif- og bremsukerfi, sem stýrt er af fín- stilltum tölvubúnaði, en það merki- lega er að maður verður sáralítið var við inngrip af þeirra hálfu. Bfllinn bara virkar eins og maður óskaði þess að hann virkaði. Það er lykilatriði við Porsche 911 Turbo: Þetta er einn glæsilegasti sportbíll í heimi, en hann er ekki aðeins fyrir bílaáhugamenn og öku- þóra. Mamma færi létt með að aka honum, þó ég fengi sjálfsagt meira út úr honum, að ekki sé minnst á betri bílstjóra. Vél og drif Porsche 911 Turbo er knúinn með 353 kW (480 hestafla) vél við 6.000 snún- inga á mínútu. Þetta er 60 hestöflum meira en forverinn. Krafturinn f 3,61 boxer-vélinni nær með þessu nýjum hæðum eða 98 kW (133 hestöfl) á hvern lítra í vélinni. Skráð snúnings- átak hefur aukist úr 560 í 620 New- tonmetra. (680 Nm á yfirþrýstingi í 10 sekúndur). Vélin nær þessum krafti á stærra bili en áður. í fyrri út- gáfum náðist hámarks snúningsátak á snúningshraða milli 2.700 og 4.600 snúninga en nú næst hámarksátak á bilinu 1.950 til 5.000 snúninga á mínútu. Þegar sportbílar eru annars vegar kýs undirritaður alltaf beinskiptingu, af augljósum ástæðum. Ekki lengur. Tiptronic S sjálfskiptingin f Porsche 911 Turbo er þvílíkur draumur að hún er einfaldlega betri en ég get látið mig dreyma um að verða. Það segir enda sína sögu að sjálfskipta út- gáfan er fljótari úr kyrrstöðu f hundr- aðið en sú beinskipta! Og það kemur fleira til. Skiptingin gerir greinar- mun á þvf hvort færinum sleppt hratt eða hægt á bensíngjöfinni, hvernig er bremsað og svo framvegis, þannig að manni finnst eins og kassinn „viti“ hvað maður hyggst fyrir, hvort sem um er að ræða framúrakstur, afslátt vegna aðvífandi umferðar eða hvað annað. Ótrúlegt tæki! Sé þetta ekki nóg má ýta á „sport takkann" við hliðina á gírstöng- inni og þá bætist við aukaafl við fulla inngjöf í 10 sekúndur. Þetta eykur þrýstinginn um 0,2 bör, snún- ingsátak eykst um 60 og fer í 680 Newtonmetra! Þetta tekst vegna þess að það er ekkert venjulegt „túrbó“ í drekanum. Skurðinum á blöðunum, sem beina útblæstrinum á túrbínuhjólið, er breytt eftir þörfum og þannig eru kostir lítilla og stóra túrbína samein- aðir í einni. Til að koma þessum ógnarkrafti á framfæri er Porsche 911 Turbo með nýja gerð fjórhjóladrifs - raf- eindastýrðu fjöldiska mismunadrifi og tölva sér um að dreifa aflinu í réttum hlutföllum miðað við ástand vegarins. Hámarkshraði er sagður vera 310 km/klst„ en það er lygi. Hann kemst talsvert hraðar. Útlit Það er sáralítill útlitsmunur á Por- sche 911 Turbo og venjulegs 911. Helsti útlitsmunurinn að framan felst í stórum loftinntökum fyrir vél- arkælingu, auk útstæðra þokuljósa og nýrri gerð LED stefnuljósa. Að aftan eru lfka lúmskar breytingar, afturbrettin eru eilítið breiðari, vind- skeiðin eru sömuleiðis vígalegri og púströrin einnig. Að öðru leyti er um hefðbundið 911 Lokaútkall í næstu viku Sonaóu strax a www.urvaiutsyn.is www urvaiutsyn.is JZtíllDGESTOnE UMBOÐSAÐILI BRIDOESTONE A ISLANOI Ertu aö leita aö alvöru dekkjum? frambo*,, Fvrstuf Kenrur -

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.