blaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 1
BILASALAN
www.hofdahollin.is
HÖFÐAHÖLUN
567-4840 og 660-0565
-Kletthálsl 2-
w> w w. h o t d a h o 111 n . / s & dltstl.it
SÉRBLAÐ UM
MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006
Stórglœsilegur Dodge Durango
Sparibíll með nóg á sínum snœrum
Eftir að gerðar voru lagabreytingar
árið 2002 opnuðust fyrirtækjum
meiri möguleikar á innflutningi
bíla. Fyrirtækið Sparibíll hefur
flutt inn bíla allar götur síðan, en
þeir segja breytingarnar hafa leitt
til meiri frjálsræðis á markaðnum.
„Sparibíll opnar í rauninni í kjölfarið
af þessum breytingum, sem gerðu
það að verkum að það eru í rauninni
engin einkaumboð lengur. Markað-
urinn er mun opnari, sérstaklega
innan Evrópska efnahagssvæðisins
og við nýttum okkur það. Við erum
að selja nýja bíla, rétt eins og stóru
umboðin, en erum með mun minni
yfirbyggingu. Nú bjóðum við um
300 tegundir af bílum, bæði fólksbíl-
um og jeppum, og alltaf er eitthvað
að bætast við,“ segir Viktor Urbanc-
ic, annar eigandi Sparibíls, og bæt-
ir við að þeir bjóði sérstaklega lágt
verð á innfluttum bílum.
„Það er ekki óalgengt að það muni
frá 500 þúsund upp í 4 milljónir
á einstaka bílum. Við leitum eftir
góðu verði úti og seljum svo bílana
hérna heima eftir því. Þetta er auð-
vitað veruleg kjarabót fyrir neytend-
ur, enda eru bílakaup önnur stærsta
fjárfesting heimila í dag. Við erum
aðallega með bíla sem við fáum á
sérstaklega góðum kjörum erlendis
og getum boðið þá ódýrari fyrir vik-
ið. Svo er eitthvað um að fólk panti
í gegnum okkur og þá geta menn
gert ákveðnar kröfur varðandi lit og
fleira."
Á myndinni hér að ofan má sjá
Dodge Durango Limited, en Spari-
bíll selur hann í þremur litum. Vikt-
or segist þess fullviss að þennan bíl
fái fólk á betra verði en þegar það
pantar notaðan af E-bay. „Þetta er
glæsilegur sjö manna bill með öllu
því sem gerist í þessari tegund bíla,
svosem leðuráklæði, rafknúnum
sætum, topplúgu og öðru. Hjá okkur
kostar hann 4,190 milljónir króna,
sem er auðvitað alls ekki mikið fyrir
svona bíl
Frekari upplýsingar má fá á heima-
síðunni sparibill.is.
M6 með öllu
| SfÐA 21
Torfærukepi:
flarstýrðra i
| SlÐA 22
:■! *..'i.
INGASÍMIAUKABLÁ
■
■n
mms
Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
Snögg og góð þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Gylfaflöt 24 - 30 | 112Reykjavík | Sími 577 4477 | Fax 577 4478