blaðið


blaðið - 26.06.2006, Qupperneq 4

blaðið - 26.06.2006, Qupperneq 4
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2006 blaöið Komdu og semdu um afslátt SÖLUSÝNING Á HÁGÆÐA HANDGERÐU KINVERSKU POSTULÍNI Uti- eða innibiómapottar myndir - iampar vasar - skálar og fleira * ‘ •íT s\ rsmm £ * Tnm as paper Sound like a chime White like jade Bright as mirror LUXUS GJAFIR OG SOFNUNAR VORUR - GOÐ FJARFESTING Hlíðasmári 15 Kópavogi Sími 895 8966 Nóg að gera hja bilaleigum Sumarið fer vel af stað hjá bílaleigum landsins. Þær hagnast á að fleiri erlendir ferðamenn koma nú til landsins á eigin vegum. Eftir Atla (sleifsson Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds - bílaleigu Akureyrar, segir vel hafi gengið hjá leigunni það sem af er sumri. „Háannatíminn er rétt að byrja þessa dagana, en vorið var gott og sumarið lítur ágætlega út. Það er aukning á milli ára í bók- unum hjá okkur, en það er misjafnt milli landa hvernig ferðamenn skila sér til landsins til að taka bíl á leigu. Ég er hins vegar mjög ánægður með útlitið eins og staðan er núna,“ segir Steingrímur í samtali við Blaðið. Arnar Már Arnþórsson, sölu- og markaðsstjóri Hertz á íslandi, tekur í sama streng. „Þetta fer mjög vel af stað hjá okkur. Það er nóg að gera og mikið um að erlendir ferðamenn komi til landsins og taki bíl á leigu. Svo virðist sem meira sé að gera um helgar en á virkum dögum. Aukn- ingin hjá okkur hefur verið góð milli ára og höfum við þurft að fjölga bílum í flotanum," segir Arnar Már. Samkvæmt upplýsingum frá Sam- tökum ferðaþjónustunnar hefur þró- unin verið sú að erlendir ferðamenn komi hingað til lands á eigin vegum í stað skipulagðra hópferða. Arnar Már segir að bílaleigurnar finni vel fyrir þessari þróun. „Sífellt fleiri ferðamenn koma hingað til lands og taka bíl á leigu. Erlendir við- skiptavinir okkar koma flestir frá Þýskalandi, Frakklandi, Bretlandi og Hollandi. Evrópumarkaðurinn er stærstur.,“ segir Arnar Már. Styttri fyrirvari Steingrímur hjá Höldi segist einnig hafa fundið fyrir þessu. „Þetta hefur verið þróunin siðasta áratug- inn. Hópferðum er að fækka og ferðamenn sækja í síauknum mæli hingað á eigin vegum. Það eru helst ferðamenn frá Asíu sem sækja til hópbílafyrirtækjanna.“ Steingrímur segir að aukningin milli ára hjá Höldi hafi verið ásætt- anleg. „Mynstrið hefur verið að breytast. Bókanir skila sér seinna og með styttri fyrirvara. Öll skipulagn- ing er þannig orðin erfiðari en þegar allir Þjóðverjarnir bókuðu bílaleigu- bílinn fyrir sumarið um jólaleytið," segir Steingrímur og hlær. Norðurlandabúar á undanhaldi Að sögn Steingríms eru það helst ferðamenn frá Mið-Evrópu sem skipta við Höld. „Mikið er um að Þjóðverjar, Svisslendingar og Frakkar komi og taki bíl á leigu. Mið- Evrópa er okkar sterkasta svæði. Því miður virðast ferðamenn frá Norðurlöndum vera á undanhaldi, en Mið-Evrópa og Bandaríkin hafa verið að koma ágætlega út. Þá erum við aðeins byrjaðir að finna fyrir því að flogið er beint milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Eitthvað er um að erlendir ferðamenn fljúgi beint til Akureyrar," segir Steingrímur. Hann segir ennfremur að vöxtur bílaflotans hafi verið gríðarlega mikill undanfarin ár. „Bílum hefur fjölgað frá því í fyrra. Langstærsta afgreiðslan er hins vegar í Reykja- vík og í Keflavík. Það er annað sem hefur verið að breytast. Áður fyrr dreifðist þetta meira um landið, en nú er það þannig að í um 90% tilfella eru bílar teknir á leigu í Keflavík og Reykjavík. Ferðin byrjar og endar þar hjá ferðamönnunum.“ atlii@bladid.net Suöur-Kóreumenn mótmæla fyrirhuguðu tilraunaskoti Norður-Koreumanna á Keuters langdrægri eldflaug. Vill beinar viðræður við Norður-Kóreumenn Richard Lugar, áhrifamikill öldunga- deildarþingmaður úr röðum repú- blikana í Bandaríkjunum, lýsti því yfir í gær að stjórnvöld í Washington ættu að taka upp beinar viðræður við Norður-Kóreumenn vegna kjarn- orkuáætlunar stjórnvalda í Pjongj- ang og fregna um að þeir hyggist á næstunni prófa langdræga eldflaug sem getur náð til Bandaríkjanna. Norður-Kóreumenn hafa ávallt krafist beinna viðræðna við Banda- ríkjamenn. Það hefur verið yfirlýst stefna bandarískra stjórnvalda að ræða aðeins við Norður-Kóreumenn í tengslum við hinar svokölluðu sex- þjóða viðræður. Þær viðræður hafa legið niðri um margra mánaða skeið. Lugar, sem er formaður utanríkis- málanefndar öldungadeildarinnar, sagði í viðtali við Fox-sjónvarps- fréttastöðina í gær að sú staðreynd að Norður-Kóreumenn ráði yfir eldflaug sem getur dregið til vest- urstrandar Bandaríkjanna geri það að verkum að beinar viðræður milli stjórnvalda í Washington og Pjongj- ang verði að fara fram. Hættan sem stafar af eldflaugaeign Norður-Kór- eumanna kalli á stefnubreytingu bandarískra stjórnvalda. Samkvæmt bandarískum fjöl- miðlum er ekki hægt að dæma af gervihnattarmyndum hvort Norður- Kóreumenn hafi fyllt langdræga eldflaug af gerðinni Taepodong-2 af eldsneyti. Einnig eru fregnir um hvort að þeir hyggist yfirhöfuð skjóta henni á loft misvísandi. Spennan vegna málsins fer vax- andi. Hugmyndir um að Bandaríkin geri svokallaða „forvarnarárás” á Norður-Kóreu hafa skotið upp koll- inum. Fyrir helgi skrifaði William Perry, fyrrverandi varnarmálaráð- herra í forsetatíð Bills Clintons, grein í bandariska dagblaðið Wash- ington Post þar sem hann hvatti til slíkrar árásar. Ekki þykir líklegt að ríkisstjórn George Bush grípi til slíkra aðgerða. Sérstaklega í ljósi þess að stjórnvöld í Washington virð- ast nokkuð viss um að eldflaugavarn- arkerfi þeirra myndi geta grandað flaug Norður-Kóreumanna yrði henni skotið á loft. Á dögunum lýsti háttsettur hershöfðingi í bandaríska varnarmálaráðuneytinu, Henry A. Obering III, því yfir að herinn hefði getu til þess að granda flauginni að fengnum fyrirmælum frá George Bush, forseta Bandaríkjanna. Einstakt tækifæri til þess að eignast kínverska listmuni beint frá framleiðendum Gleðilegt sumar Vilja tryggja að bílar komist ekki hraðar en á 90 kílómetra hraða Upplýsingafulltrúi Umferðarstofu vill kanna hugsanlegar útfærslur á uppsetningu hraða- hemla í bíla. Ritstjóri FÍB-blaðsins segir hvern og einn bera ábyrgð á sjálfum sér. Einar Magnús Magnússon, upp- lýsingafulltrúi hjá Umferðarstofu, segir vel vert að athuga hugmyndir um hraðahemla í bíla. „Ég tel það í ljósi þeirra slysa sem hafa orðið á undanförnum árum af völdum þess að til eru menn sem geta ekki með nokkru móti tekið tillit til aðstæðna og þess hámarkshraða sem gildir og eru keyrandi um á ofsahraða. Fyrst og fremst þarf að taka úr umferð það sem kallast ofsaakstur. Það á eftir að koma í ljós hvaða hugmyndir menn hafa í þessu sambandi, en það er ekki endilega verið að tala um að þetta verði þannig að menn kom- ist ekki hraðar en einmitt á 90 km hraða.“ Sturla Böðvarsson, samgönguráð- herra, kallaði eftir umræðu um hvort rétt væri að setja upp hraðahemla í bíla í viðtali við Morgunblaðið um helgina. Sturla sagði að mikill öku- hraði væri mesti slysavaldurinn í umferðinni og því væri ekki óeðli- legt að skoða alla möguleika. Hann sagði það með öllu óásættanlegt að tuttugu vegfarendur látist í umferð- inni á hverju ári og fjöldi manna liggi slasaður eftir umferðarslys. Tilraunir Einar segir það ekki rétt sem fram hefur komið í þessari umræðu að hvergi séu uppi hugmyndir um notkun hraða- hemla nema á íslandi. „Það er búið að gera '1 tilraunir með svona búnað í Ðanmörku og stefán ÁsgrímssorT Svíþjóð. f Dan- mörku voru GPS-staðsetningartæki sett í bílana og hraðahemill tók tillit til hámarkshraða þeirrar götu þar sem bíllinn var staddur hverju sinni. Nú þarf að að kanna hugsanlegar út- færslur á þessu þannig að þetta sé tæknilega hægt.“ Það eru nú þegar hraðatakmark- arar í vörubifreiðum og hópferða- bílum samkvæmt tilskipun frá Evrópusambandinu. „Þetta er því ekkert nýtt, eins og sumir í þess- ari umræðu hafa látið í veðri vaka,“ segir Einar. Sjálfs manns ábyrgð Stefán Ásgrímsson, ritstjóri FÍB- Einar Magnús Magnússon blaðsins, segir að uppsetning hraða- hemla í bíla sé ekki rétta leiðin til að hægja á umferðinni. „Þetta er alltaf á ábyrgð manns sjálfs, hvernig við ölum upp börnin okkar og svo framvegis. Við tökum ekki allt af þeim sem þau geta skaðað sigá. Fólkverður einfaldlega að taka ábyrgð á sjálfu sér og sýna ábyrgð í umferð- inni,“ segir Stefán. Að sögn Stefáns er hægt að teygja þessa umræðu út og suður. „Það eru til dæmis ýmsar hömlur á því að eiga skotvopn á íslandi. Maður þarf til að mynda að hafa byssuleyfi. Þó að ég eigi byssu þá er ekki þar með sagt að ég fari út og skjóti nágranna mína þar sem mér líki ekki við þá. Þetta er á ábyrgð manns sjálfs. Það þarf enga hraðahemla ef allt helst í hendur; góðir bílar, góðir vegir, góð ökukennsla, gott uppeldi og ábyrgir og góðir ökumenn.“ Fasískar reglur Stefán segir að reynt sé hafa sam- félagið þannig að hver og einn beri ábyrgð á sjálfum sér. „Hefur ástandið verið betra þar sem allt er bannað? Ég hef ekki séð það. Gagn- vart þeim sem'treysta sér ekki til að fara eftir þeim reglum sem samfé- lagið setur þá verðum við að grípa til einhverra ráða. Þegar öllu er á botn- inn hvolft þá snýr það hins vegar að okkur sjálfum en ekki stjórnvöldum að setja okkur einhverjar fasískar reglur,“ segir Stefán. Sturla Böðvarsson segir í viðtal- inu við Morgunblaðið að næsta skref í þessu máli sé að hann muni fela Umferðarstofu og Umferðarráði að skoða þetta mál og koma með til- lögur um hugsanlega framkvæmd. Eiturgufur í heimahúsi í Reykjavík mbl.is | Slökkvilið höfuðborgar- svæðisins var kallað út í fy rrinótt eftir að eiturgufur tóku að mynd- ast á heimili í Vesturbænum. Gufurnar mynduðust þegar tveimur ólíkum gerðum af stíflu- eyðum var blandað saman. Við það urðu efnahvörf og fljótt fór að krauma í blöndunni. Að sögn Slökkviliðs höfuð- borgarsvæðisins sakaði engan. í húsinu voru börn og komu húsráðendur þeim út og höfðu samband við slökkvilið sem reykræsti húsið. Slökkviliðið vill benda fólki á að blanda ekki saman ólíkum efnum enda er oftast um afar kröftug og eitruð efni að ræða. Opið 10:00-21:00

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.