blaðið - 26.06.2006, Blaðsíða 6

blaðið - 26.06.2006, Blaðsíða 6
6 I FHÉTTIR MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2006 blaðið Reuters .Gervigleði?" Stuðningsmenn Argentínu fagna sigrinum yfir Mexíkó á laugardag. Af gervifréttum Óttar Guðmundsson skrifar frá Berlín. Heimsmeist- arakeppnin í fótbolta er dæmigerður g e r v i v i ð - burður. Þrjá- tíuogtvær þjóðir koma saman í einn mánuð fjórða ÓttarGuðmundsson hvert ár og leika sín á milli 64 knattspyrnu- leiki. Þegar þessu er lokið stendur ein þjóð uppi sem sigurvegari en hinar fara allar missvekktar til síns heima. Einu fréttirnar sem skipta máli frá þessari keppni eru sjálf úrslit leikjanna. Annað eru algjör aukaatriði. Hér í Þýsklandi eru þúsundir blaðamanna og ljós- myndara hvaðanæva að ásamt alls konar bloggurum og álitsgjöfum sem skrifa um keppnina mörg hunduð dálkakílómetra á hverjum degi. Miklu skiptir því að finna sér eitthvað bitastætt til að skrifa um. Úrslitin ein nægja engan veginn til að fylla hið endalausa rými fjöl- miðla sem bíður eftir „fréttum“ af keppninni. A dögunum var þýska pressan uppfull af frásögnum um ekvadó- rískan galdrakarl og vúdú-snilling sem kominn var til Berlínar til að magna upp mjólkursýru og þreytu í fætur þýsku leikmannanna. Samkvæmt blöðunum var hann ákaflega fær á sínu sviði og hafði margsinnis tekist að breyta gangi knattspyrnuleikja með fjölkynngi sinni. Blöðin fundu eftir langa leit þýskan galdrakarl sem þau fóru með á leikvanginn til að yfirtr- ompa galdur hins. Um þetta skrif- uðu menn í fullri alvöru margar og merkilegar greinar. Eftir leik- inn sem Þjóðverjar unnu minntist enginn á hvorugan galdrakarlinn enda voru þeir einungis velkomið uppfyllingarefni í daglega kálfa blaðanna um keppnina. Nú er sami galdrakarl orðinn fréttaefni enskra blaða enda mun hann aftur tekinn til við illa iðju sína. Frú Davíð Beckman nýtur óskiptrar athygli fjölmiðla sem fylgjast með hverju fótmáli. Myndir af frúnni í yfirgengilega hallærislegum „hotpants" birtast oft á dag. Pressan veltir sér uppúr tilveru þessarar mjög svo óspenn- andi og óþroskuðu konu sem er alltaf á svipinn eins og táningur á mótþróaskeiði. Þegar allt um þrýtur fara menn að skrifa um húðflúrin á Davíð sjálfum eða bera saman kynþokkakvóta ein- stakra leikmanna. Þjóðverjum sjálfum finnst Ballack kynþokka- fyllstur en áðurnefndur Davíð og Svíinn Friðrik Ljungberg komast líka á verðlaunapall. Auk þess eru eiginkonur leikmanna bornar saman eins og verðlaunahryssur með myndum og nákvæmum lýsingum. Blöð um allan heim eru auk þess í sálrænum hernaði gegn and- stæðingum liðsins síns. Þýskir fjöl- miðlar kölluðu sænska mótherja sína „ruglaða elgi“ eða „ikea-spark- ara“ og sögðu að þýska liðið yrði að breyta þeim í mubblur (vermö- beln mussen). Á sjálfum leiknum kölluðu áhorfendur hæðnislega á hina blágulu Svía: „Þið eruð ekk- ert annað en húsgagnakaupmenn" (Ihr seid ein Möbellieferant!). Menn velta sér uppúr sálarstríði þjálfara og leikmanna og hlakka yfir óförum sumra og góðu gengi annarra. Þannig er haldið áfram dag eftir dag meðan keppnin stendur yfir. Tugir þúsunda hugsandi heila á höttunum eftir smámunum og hégóma sem á einhvern hátt tengjast keppninni og gætu orðið efni í blaðagrein eða frétt. Eftir 2 vikur eru þessu svo öllu lokið og keppnin í öllum sínum mikilfeng- leika gleymist fljótt eins og aðrir gerviviðburðir. En það er gaman að þessu meðan á stendur enda veitir ekki af gerviatburðum og gervistyrjöldum af þessu tagi til að lífga uppá leiðindi nútímans. Boöar þjóðarsátt Forsætisráðherra íraks, Nouri Maliki, kynnti í gær áætlun sem á að stuðla að stöðugleika. Hann býður uppreisnarmönnum sáttahönd. Þingmenn hlusta á Nouri Maliki, forsætisráðherra (raks, í Bagdad í gær. Nouri Maliki, forsætisráðherra Ir- aks, kynnti í gær áætlun um þjóð- arsátt í landinu. Áætlunin, sem er í tuttugu og fjórum liðum, miðar meðal annars að því að ná fram sáttum milli stjórnvalda og upp- reisnarmanna í landinu. Áætlunin gerir ráð fyrir afvopnun uppreisnar- hópa gegn sakaruppgjöf en Maliki, sem kynnti tillöguna fyrir þinginu í gær, tók jafnframt fram að þeir uppreisnarmenn sem bera ábyrgð á hryðjuverkum verði sóttir til saka. Ennfremur hvatti forsætisráð- herrann þingið til þess að koma sér saman um tímaramma sem kveði á um hvenær stjórnvöld muni taka við allri öryggisgæslu í landinu. Áætlunin er býsna víðtæk og nær til ólíkra sviða. Efni hennar má lýsa sem tilraun til þess að styrkja ríkis- valdið í landinu og skapa sátt um það meðal ólíkra trúarhópa. Einn liðurinn í því er að bjóða ólíkum hópum uppreisnarmanna þátttöku í stjórnmálaferlinu í landinu. Áætlun Malikis skilgreinirþó ekki nákvæm- lega til hverra það boð nær. Undanfarnar vikur hefur rík- isstjórn íraks sleppt hundruðum fanga úr haldi í viðleitni sinni til að minnka spennuna á milli súnn- íta og sjíta í landinu. Áætlunin sem Maliki kynnti í gær er enn eitt skrefið í þeirri viðleitni. Hún opnar á þann möguleika að uppreisnar- hópar leggi niður vopn og fái aðild að hinu pólitíska ferli í landinu. Sam- kvæmt áætlun Malikis verður stefna stjórnvalda gagnvart meðlimum Ba- ath-flokksins, flokki Sadams Hus- seins fyrrum forseta landsins, end- urskoðuð. Þeir hafa verið útlægir úr íröskum stjórnmálum eftir að ríkisstjórn Husseins féll í kjölfar inn- rásar Bandaríkjamanna árið 2003. Áætlun Malikis nær ekki til hryðjuverkahópa sem tengdir eru al-Qaeda hryðjuverkasamtökunum og annarra hreyfinga íslamista í landinu. Ólíkt öðrum uppreisnar- mönnum berjast þeir fyrir stofnun íslamsks heimsveldis í Mið-Aust- urlöndum. Sérfræðingar segja að þessir hópar séu atkvæðamestir í uppreisninni í landinu og þar af leið- andi muni áætlun Malikis ekki skila tilætluðum árangri. Farnirað huga að fækkun hersveita Á sama tíma og Nouri Maliki kynnti áætlun sína um þjóðarsátt í land- inu berast þær fréttir að bandaríski herinn sé nú þegar farinn að leggja drög að fækkun í herafla sínum í landinu. Samkvæmt bandaríska blaðinu New York Times hefur verið ákveðið að fækka í herliðinu um helming fyrir lok næsta árs. Frétta- stofan Associated Press hefur eftir embættismönnum varnarmálaráðu- neytisins að byrjað verði að kalla hersveitir heim síðsumars eða í haust. Það hefur verið yfirlýst stefna núverandi stjórnar i Washington að bandarískar hersveitir verði í land- inu þangað til ríkisstjórn Iraks geti ein og óstudd tryggt stöðugleika og haldið uppreisnaröflum í landinu í skefjum. Reuters ALLTOF MIKILL HITII | Það er ekki gaman að vera ísbjörn í dýragarðinum í Moskvu í Rússlandi þegar heitt er í veðri. Þessi bjarndýr gerðu örvæntingarfulla tilraun til að hvíla sig í skugganum í gær. Og ólíkt (slendingum geta þessir birnir vart beðið eftir að veður taki að kólna á ný. Flestir laxar úr Norðurá Samkvæmt veiðitölum frá því í gær hafði alls 191 lax komið upp úr Norðurá og hafði engin á skilað fleiri löxum á land. Rétt fyrir helgi hafði Blanda skilað 87 löxum og Þverá og Kjarrá í Borgarfirði höfðu um helgina skilað 63 löxum. Veiði er nú hafin í flestum af þekktari lax- veiðiám landsins, og ljóst að fjör- ugir dagar eru framundan hjá veiðimönnum. Laxveiði ársins virðist annars fara nokkuð misjafnlega af stað. Á heimasíðu Stangaveiðifélags Reykjavíkur sagði til að mynda frá því í gær að opnunarhollið í Grímsá í Borgarfirði hafi fengið sextán laxa á þremur vöktum, eftir að fyrsta vaktin í ánni hafi ekki gefið neitt. Á heimasíðu Lax-ár segir að veiðin í Ytri Rangá hafi farið vel af stað. Einn lax kom á land að morgni laugardags á Klöppinni fyrir neðan Ægissíðufoss og munu fleiri hafa sloppið. Fiskur virðist vera að ganga í ána og þykir það óvenju snemmt. „Allt er þetta rosalega jákvætt fyrir framhaldið á tímabilinu," segir á heimasíðu Lax-ár. FYRIR KRÖFUHARÐA NIKON Coolpix L2 6.0 milljón pixlar 3 x aðdráttur I linsu (38-116mm) 15 tökustiilingar 2.5" LCD skjár Video upptaka með hijóði 23 MB innbyggt minni - hægt að stækka með XD minniskorti Aðeins 120 grömm án rafhlöðu Notar AA rafhlöðu Verð kr. 29.900 ■JlllUJI.fflfffiM 8,1 milljón pixlar VR linsa, alvðru hristivörn 3,5 x aðdráttur I linsu (36-126mm) 16 tökustillingar 2.5" LCD skjár Video upptaka með hljóði 23 MB innbyggt minni - hægt að stækka með XD minniskorti Aðeins 170 g án rafhlöðu Notar Lithium rafhlöðu Verð kr. 49.900 8,0 milljón pixlar Þráðlaus yfirfærsla á tölvu og prentara 3 x aðdráttalinsa (36-126mm) 4 x stafrænn aðdráttur Ljósopf/27-5.2 Val á milli 19 program stillinga Innbyggt flass með In Camera red-eye fix 2,5" LCD skjár (upplausn 110.000 punktar) Quicktime videotaka Innbyggt 32mbminni Notar Li-ion rafhlöðu EN-EL8/180 myndir Hleðslutæki, Þyngd 170 g Verð kr. 34.900 Nikon FÆST EINNIG FRÍHÖFNINNI BÓKAVERSLUN ÞÓRARINS SÍÐUMÚLA 9 • Sími 530 2800 SMÁRAUND • Sími 530 2900 KEFLAVÍK • Sími 421 1535 AKUREYRI • Simi 461 5000 | ORMSSON

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.