blaðið - 07.07.2006, Qupperneq 2
2IFRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2006 blaAiA
blaöiö_________
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 •www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Líkir aðgerðum
ríkisstjórnar
við frestun
bíóferðar
Kristján L. Möller, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, gefur litið fyrir
aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að
slá á þenslu í efnahagsmálum. „Rík-
isstjórnin er að fresta vegafram-
kvæmdum sem eru löngu tímabærar
og til þess ætlaðar að byggja upp nú-
tímalega vegi
ásvæðumsem
búa við verstu
vegi lands-
ins. Þetta eru
frestanir upp
á 1.300 millj-
ónir og eru
því smáaurar
þegar litið er
á málið í heild
sinni. Þessum
aðgerðum ríkisstjórnarinnar má
líkja við að meðal vísitölufjölskylda
á Islandi myndi sleppa bíóferð í vik-
.unni,“ segir Kristján.
Að sögn Kristjáns hefði náðst mun
betri árangur í baráttunni við verð-
bólgu ef ríkisstjórnin hefði farið að
tillögum Samfylkingarinnar um að
lækka tímabundið álögur ríkisins á
eldsneyti og olíu. „Ég hygg að náist
betri árangur í baráttunni við verð-
bólgu í þessum mánuði vegna rign-
ingarinnar í Reykjavík í júní. Sum-
arútsölurnar munu þar með hefjast
fyrr og munu hafa betri áhrif á vísi-
tölu neysluverðs en frestun þessara
ákveðnu vegaframkvæmda."
Kristján L. Möller
Dregur vagninn
Þær Halldóra og Asgerður voru aldeilis ánægðar með lífið og tilveruna í gær þar sem þær sátu í þessum líka glæsilega fararskjóta. Það
var síðan hún Kristín sem fórnaði sér fyrir liðið og sá um að draga vagninn.
Leið fimm í frí
Þar sem erfiðlega hefur gengið
að fá afleysingarbílstjóra til
starfa hjá Strætó yfir sumarleyf-
istímann hefur verið ákveðið
að akstur á leið S5 leggist niður
í fjórar vikur frá og með næsta
föstudegi.
Meðan á þessu stendur vill
Strætó benda viðskiptavinum
sínum á að þeir geti notfært sér
leið 18 (Hálsahverfi) og/eða leið
19 (Árbæjarhverfi - Seláshverfi).
Þessar leiðir tengjast leið S6 í Ár-
túni, en hún ekur sömu leið og
S5 inn í miðborgina. { tilkynn-
ingu frá Strætó bs í gær segir
að á þessum árstíma verði ætíð
nokkur fækkun farþega hjá
Strætó vegna sumarleyfa.
„Við biðjum viðskiptavini
okkar velvirðingar á óþægindum
vegna tímabundinna breytinga
á akstri vagna umræddrar leiðar.
Við vonumst eftir því að okkar
góðu viðskiptavinir skilji nauð-
syn þessara aðgerða,“ er enn-
fremur haft eftir Ásgeiri Eiríks-
syni, framkvæmdastjóri Strætó
bs í umræddri tilkynningu.
Sumir þeirra sem mótmæltu í fyrra
hafa þegar skilaö sér aftur til landsins
Fulltrúar Landsvirkjunar og Alcoa-Fjarðaráls búast við hundruð mótmælenda, en gera
ráð fyrir friðsömum mótmælum í fjölskyldubúðum íslandsvina í lok mánaðarins.
Eftir Atla (sleifsson
Þorsteinn Hilmarsson, upplýsinga-
fulltrúi Landsvirkjunar, segir að
fyrirtækið eigi von á friðsömum
mótmælum við Kárahnjúka í lok
mánaðarins. Hann segir að fyrir-
tækið hafi í tvígang átt fund með
fulltrúum íslandsvina, Alcoa, Lands-
nets, sýslumannsins á Seyðisfirði
og lögreglunnar á Egilsstöðum um
fyrirhuguð mótmæli Islandsvina.
„Landsvirkjun telur ekkert athuga-
vert við það að fólk láti í ljós skoð-
anir sínar, svo fremi sem farið sé að
reglum og Iögum.“
Islandsvinirmunustandafyrirfjöl-
skyldubúðum á Kárahnjúkasvæðinu
dagana 21.-31. júlí næstkomandi. Að
sögn talsmanna Islandsvina verða
þetta friðsamleg mótmæli þar sem
á að mótmæla stóriðjustefnu stjórn-
valda og þeim náttúruspjöllum
sem fylgir henni. Þar verður meðal
annars boðið upp á gönguferðir um
svæðið sem verður lagt undir fyrir-
hugað Hálslón.
Þorsteinn segir að einnig hafi
verið rætt um að aðilar, ótengdir
Islandsvinum, gætu hugsanlega
mætt á svæðið. „Við gerum okkur
grein fyrir að við
verðum að hafa
varann á, því
hundruð mótmæl-
enda gætu komið
hingað til lands í
sumar. Það þarf
ekki annað en að
skoða heimasíðu
Saving Iceland, til
að sjá að mikið
er gert til að fá er-
lenda mótmælendur til landsins.“
Þorsteinn
Hilmarsson
Koma með Norrænu
Fjöldi mótmælenda lögðu leið sína
á Kárahnjúkasvæðið síðasta sumar.
„I fyrra var talsvert um að mótmæl-
endur fóru inn á framkvæmda-
svæðið í leyfisleysi og urðu þar
skemmdir. Þeir hlekkjuðu sig sumir
við bíla og klifruðu upp í krana.
Full ástæða er til að taka slíkt alvar-
lega,“ segir Þorsteinn. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni á Egils-
stöðum hafa nokkrir þeirra erlendu
einstaklinga sem lögreglan hafði af-
skipti af í fyrra þegar skilað sér til
landsins í siðustu ferðum Norrænu.
„Sameiginlegt markmið allra
Erna indriðadóttir
hlýtur að vera
aðenginnmeið-
ist. Ef eitthvað
er um brögð
að fólk sé að
setja sjálfa sig
og aðra í hættu
þá þurfum
við að tryggja
að ekki verði
neinn skaði af
því. Svo er það
að sjálfsögðu í verkahring lögreglu
að ekki séu brotin landslög á svæð-
inu,“ segir Þorsteinn og bætir við að
Landsvirkjun reikni með sambæri-
legum viðbúnaði og í fyrra.
Að sögn Þorsteins verður Lands-
virkjun og aðrir aðilar að binda
þannig um hnútana að ljóst er hvar
mótmælendur megi vera og hvar
ekki. „Við verðum að sjá til þess að
svæðið sé vel merkt þannig að mót-
mælendur fari ekki inn á lokuð svæði
í aðgæslu. Landsvirkjun virðir rétt
fólks til að láta í ljós skoðanir sínar.
Við viljum að fólk fái sem bestan vett-
vang til þess, innan þeirra marka að
þeir séu ekki að brjóta lög eða valdi
hættu eða slysum á fólki.“
Mótmæli fullkomlega eðlileg
Erna Indriðadóttir, upplýsingafull-
trúi Alcoa-Fjarðaráls, tekur undir
orð Þorsteins og segist eiga von á
miklum fjölda fólks í lok mánað-
arins. „Við gerum ráð fyrir fleiri
hundruð mótmælendum. Við teljum
það fullkomlega eðlilegt að fólk í lýð-
ræðisþjóðfélagi mótmæli því sem
það er andvígt. Fulltrúar okkar hafa
rætt við þá sem standa að skipulagn-
ingu búðanna og ekkert bendir til
annars en að þessi mótmæli verði
friðsamleg," segir Erna.
Að sögn Ernu mun Alcoa-Fjarð-
arál hins vegar ekki líða það að ör-
yggi starfsmanna og mótmælenda
verði teflt í tvísýnu. „Ljóst er að á
því svæði sem er verið að byggja ál-
verið eru umsvif framkvæmdanna
mun meiri og fleiri að vinna, sam-
anborið við sama tíma í fyrra. Því
getur reynst stórhættulegt að fara
inná lokuð svæði í leyfisleysi. Okkur
ber skylda til að vernda öryggi starfs-
manna og mótmælenda,“ segir Erna
að lokum.
atlii@bladid.net
ENDURANCE TORFÆRUKEPPNI
Tómstundahúsins í fjarstýrðum bílum verður haldið sunnudaginn
9. júlí við athafnasvæði Gæðamoldar í Gufunesi, Grafarvogi.
Keppt verður í Monster-trukka flokki og Opnum flokki.
Skráning keppenda er á staðnum frá 10:30-11:30.
Keppni hefst kl. 12:00. Upplýsingar um mótið er í Tómstundahúsinu.
Tómstundahúsið • Nethyi 2 • S. 587 0600 • www.tomstundahusid.is
O Heiðskirt Léttskýjað Skýjað Alskýiaðv)-- Rignlng. litilsháttai
Rigning^
Snjókoma
Slydda Snjóél
Mjyíti’
Algarve 24
Amsterdam 22
Barcelona 26
Berlín 31
Chicago 18
Dublin 18
Frankfurt 26
Giasgow 18
Harnborg 26
Helsinki 26
Kaupmannahöfn 27
London 23
Madrid 30
Mallorka 30
Montreal 17
New York 21
Orlando 25
Osió 26
Paris 23
Stokkhólmur 29
Vín 27
Þórshöfn 13
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu íslands