blaðið - 07.07.2006, Qupperneq 5
blaöið FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2006
FRÉTTIR I 5
Idol-dómari dæmir rokkstjörnu
Sigríður Beinteinsdóttir, Idol-dómari, segir að Magni megi fara í meira leður og sýna
húðflúrin. Hún segir Magna hafa sýnt á sér nýja hlið og komið á óvart sem ofurrokkari.
EftirVal Grettisson
Idol dómarinn Sigga Beinteins
segir að Guðmundur Magni Ás-
geirsson hafi staðið sig frábærlega í
raunveruleikaþættinum Rock Star:
Supernova sem sýndur var á mið-
vikudagskvöldið í beinni útsend-
ingu á SkjáEinum. Magni komst í
16 manna lokahóp keppenda sem
reynir að komast að sem söngvari í
nýju ofurhljómsveitinni Supernova,
sem meðal annars er skipuð rokkar-
anum fræga, Tommy Lee.
„Hann stóð sig æðislega og gerði
þetta með mikilli prýði,“ segir Sigga
sem sjálf er ekki ókunnug raunveru-
leikasjónvarpi sem snýst um tónlist,
því hún er einn af fjórum dómurum
í Idol stjörnuleitinni.
Hún segir að í þættinum hafi
Magni sýnt á sér nýja hlið sem land-
inn hafi ekki áður séð. Hún segir að
hann hafi átt vel heima þarna og
verið betri en margur annar sem
hann keppti við.
„Þetta snýst um að vera með „at-
titude“,“ segir Sigga um sviðsfram-
komu Magna en hún var með líf-
legra móti. Hún segir hann hafa
fengið salinn með sér og allir hafi
tekið vel undir rokkið.
Sigga segir að lagavalið hafi verið
mjög sniðugt hjá honum því lagið sé
einfalt og auðvelt að muna. Slíkt geti
skipt sköpum í þáttum þar sem not-
ast er við símakosningu til þess að
velja fólk úr þáttunum.
„Ég hefði verið til í að sjá meira
leður og tattú,“ segir Sigga aðspurð
um klæðnaðinn en slíkt getur haft
mikil áhrif á þá sem heima sitja.
Það kemur ekki í ljós fyrr en á
morgun hvort Magni kornist áfram í
næsta þátt. Sigga segir ómögulegt að
segja til um hvort hann detti út eða
ekki, en að henni hafi sýnst sem að
dómurunum hafi líkað við Magna
og söng hans. Þeir gagnrýndu hann
lítið segir Sigga og voru ólmari í að
heyra íslensku en að finna eitthvað
að honum.
valur@bladid.net
Skiptar skoðanir
um frammi-
stöðu Magna
Finna má á heimasíðu Rockstar:
Supernova þáttarins spjallborð
þar sem keppendur eru dæmdir af
áhorfendum og áhugamönnum. Sitt
sýnist hverjum um frammistöðu
Magna í þættinum en í kvöld kemur
í ljós hvort hann dettur út eða ekki.
Clerkyo7 segir á spjallborðinu að
Magni hafi ekki heillað hann. Hann
segir að Magna hafi frekar likað
athyglin en að einbeitti sér ekki að
því að syngja lagið almennilega. Svo
segir Clerkyo7 að lokum að Magni
eigi bara að fara aftur til íslands.
Goober448 var öllu harðorðari
og spurði hvort íslendingar væru
ekki að grínast í sér. Hann segir að
Magni hafi verið hrikalegur og segir
hann dæmigerðan íslending en þeir
munu að hans viti ekki kunna að
dansa og eru gerilsneyddir svoköll-
uðu „soul.“ Goober448 segir að
Magni hafi engan persónuleika og
sé því að reyna að hagnast á því einu
að vera frá íslandi. Segir Goober448
í lokin að ísland hafi hætt að vera
svalt fyrir löngu og þyki honum
leitt að framleiðendur þáttarins séu
ekki enn búnir að átta sig á þeirri
staðreynd.
Ekki voru allir svo harðorðir því
rockgirl sagði orðrétt um Magna í
lauslegri þýðingu: „hann er mjög
sætur gæi.“
Þá er bara að sjá hvort Magni hafi
heillað bandarísku þjóðina því í
kvöld kemur í ljós hver dettur út.
Vextir Seðlabanka
komnir í 13 prósent
Seðlabanki Islands tilkynnti í gær,
að stýrivextir yrðu hækkaðir um
0,75 prósentur eða í 13% frá og með
þriðjudeginum 11. júlí. Daglána-
vextir og vextir af hundnum inn-
stæðum verða hækkaðir sama dag
um 0,5 prósentur en aðrir vextir
um 0,75 prósentur. Stýrivextir Seðla-
bankans hafa ekki verið jafn háir
í meira en áratug. Seðlabankinn
hækkaði síðast vexti sina þann 18.
maí sl. um 0,75 prósentur í 12,25%.
Þetta er fimmtánda vaxtahækkun
Seðlabankans frá því í maí 2004 en
hann hefur alls hækkað vexti um 3,5
prósentustig frá þvi í september á
síðasta ári.
Bankastjórn Seðlabankans hefur
jafnframt ákveðið að meta þörf fyrir
frekara aðhald um miðjan ágúst n.k.
og að birta tilkynningu um stýri-
vexti að morgni 16. ágúst.
Bankarnir sigla í kjölfarið
Greiningardeildir bankanna höfðu
áður gert ráð fyrir að Seðlabank-
inn myndi hækka vexti um 50-75
punkta.
Viðskiptabankarnir, Landsbank-
inn, KB banki og Glitnir, sigldu í
kjölfar Seðlabankans og hækkuðu
vexti sína.
Greiningardeild Landsbankans
tekur í sama streng, en segir að
þetta hafi verið rétt ákvörðun hjá
Seðlabankanum. Hann verði að
vera ákveðinn, því verðbólga nálg-
ist óðfluga 9% og það sé lykilatriði
að ná verðbólguvæntingum niður.
Hækkunin sé auk þess þörf ábend-
ing til stjórnvalda um að standa sig
í hagstjórninni. Mikilvægt sé að ríki
og sveitarfélög beiti sér fyrir því að
draga úr innlendri eftirspurn og þar
með verðbólguþrýstingi.
Bjóðum þessar heimsþekktu þýsku kamínur í
mörgum stærðum og gerðum á hreint
frábæru verði!
ORMSSON
| SÍÐUMÚLA 9 • Sími 530 2800 | SMÁRALIND • Sími 530 2900 |
| AKUREYRI Sími 461 5000 | Sjó nánor: www.ormsson.is j
mmm.
DEKOR RAMME HVID EG/2000
ORMSSON
50FTLUD/KH
AEG
Kr. 254.267.
I •»£§
3 sýningarsalir:
Smáralind,
Akureyri og Selfoss
HEIMILISTÆKIÁ
TILBOÐSVERÐI
ÞEGAR KEYPTAR ERU
»SETTU ÞAÐ SAMAN"
INNRÉTTINGAR
Kr. 177.655.-
ULAÐVtRSlA
FALLEGT,
VANDAÐ,
ÓDÝRT OG
TILÁ LAGER
-NÚNA
SETTU ÞAÐ SAMAN M!
wm