blaðið - 07.07.2006, Page 8
-Á grillið í örfáar mínútur og maturinn er til!
■■■ m neuiei
Morgunsopinn
Þriggja mánaða gamall Síberíutígur fær mjólk að drekka hjá starfsmanni dýragarðs í Hailin í Kína. Um tvö hundruð og fimmtíu tígrar
eru I garðinum og segja starfsmenn hans að þar sé að finna fjölmennasta griðland Síberíutígra í heiminum. Síberíutígurinn er stærsta
og öflugusta kattardýr heims og getur fullvaxinn kisi náð 350 kílóa þyngd og fjögurra metra lengd.
Stuðningsmenn Calderon fagna
sigri en Obrador ætlar að kæra
úrslitin
Obrador ætl-
ar að kæra
Svo virðist sem íhaldsmaður-
inn Felipe Calderon hafi borið
sigur úr býtum í forsetakosn-
ingunum í Mexíkó sem fóru
fram á sunnudag. Þegar búið
var að telja um 99.2% greiddra
atkvæða í gær hafði Calderon
fengið 35.77% atkvæða á meðan
að andstæðingur hans, Andres
Manuel Lopez Obrador, hafði
fengið 35.42% atkvæða. Aðeins
um 150 þúsund atkvæði skilja
þá að en ríflega fjörtíu millj-
ónir manna nýttu kosningarétt
sinn.
I gær hvatti Obrador stuðn-
ingsmenn sína til þess að mót-
mæla þessari niðurstöðu í mið-
borg Mexíkóborgar um helgina.
Hann segir yfirvöld hafa rænt
hann sigrinum og að hann ætli
að kæra úrslit kosninganna.
Óttast er að mótmælin geti
orðið til þess að upp úr sjóði
milli stuðningsmanna Obrador
annars vegar og Calderon hins
vegar.
Eftir að talningu lýkur er
mögulegt að kæra úrslit kosn-
inganna til dómstóla en lög
kveða á um að endanleg niður-
staðaverðuraðliggjafyrirþann
6. september næstkomandi.
Blóðug hvalaskoöun
Um áttatíu ferðamenn sem fóru í hvaia-
skoðun i Noregi í vikunni fengu að sjá
mun meira en þeir flestir kærðu sig um.
Þegar báturinn með ferðamönnunum
var kominn á hvalaslóð vildi ekki
betur til en svo að sjómenn um borð í
hvalveiðibát skutu einn af hvölunum
sem ferðamennimir voru að dást að.
Skipstjóri hvalaskoðunaibátins vildi
forða ferðamönnunum írá því að sjá
aðförina að dýrinu og stímdi burt. En á
leiðinni í burtu sigldi hann ffamhjá bát
sem var að hifá dauðan hval upp á dekk
og vakti sú sjón enn minni hrifningu
hjá ferðamönnunum.
1 viðtali við norska blaðið Andöya-
posten segir Geir Maan, skipstjóri hvala-
askoðunarbátsins
Reine, að það sé
afar óheppilegt
að hvalveiðisjó-
menn stundi
veiðar svona ná-
laagt hvalaskoð-
unarslóðum. Ennffemursegirskipstjór-
inn að mörgum ferðamannanna hafi
orðið ansi bylt við að upplifa aðförina að
dýrunum. Talsmaður hvafveiðimanna,
Jan Kristiansen, sagði í viðtali við sama
blað að sjómennimir hafi eingöngu
verið að notfæra sér aðstæður. Veðrið
hafi verið gott á slóðinni sem hvalaskoð-
unarskipið var og mikið um hval hefði
veriðásvæðinu.
Eldur í áhalda-
geymslu
mbl.is | Eldur kviknaði
skömmu eftir klukkan fjögur í
gær í áhaldageymslu Akranes-
bæjar. Samkvæmt lögreglunni
á Akranesi voru önnur hús
ekki í hættu en nokkuð mikill
eldur var í húsinu og mikill elds-
matur þar, meðal annars elds-
neyti á sláttuvélar. Slökkviliðið
náði á skömmum tíma að ráða
niðurlögum eldsins, en enn er
ekki vitað með vissu hve miklar
skemmdir urðu.
Brandarakarl-
ar handteknir
Lögreglan í Berlín f Þýskalandi
hefur handtekið tvo menn
sem eru grunaðir um að hafa
tjóðrað fótbolta, sem þeir höfðu
fyllt með steinsteypu, við ljósa-
staura, tré og handrið víðs vegar
um borgina og settu upp skilti
við hlið þeirra sem á stóð: Getur
þú sparkað boltanum? Vitað er
um tvo ferðamenn í borginni
sem tóku áskoruninni með
þeim afleiðingum að þeir mörð-
ust illa á rist.Lögregluyfirvöld
fundu verkstæði í íbúð tveggja
manna á þrítugsaldri þar sem
voru tæki og tól til þess að fylla
fótbolta með steinsteypu. Að
sögn lögreglu verða mennirnir
kærðir fyrir að valda meiðslum
á vegfarendum og hættulegum
umferðartöfum.
8IFRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2006 blaðiö
Sammála um fordæmingu
en ekki um aðgerðir
Japanir, Bandaríkjamenn og Bretar vilja að öryggisráðið grípi til
þvingunaraðgerða vegna eldflaugatilrauna Norður-Kóreumanna.
Norður-kóreskur fréttamaður sagði áhorfendum í fyrsta sinn frá eldflaugatilraunum
stjórnvalda f gær.
verjar óttast að tilraunir Norður-Kór-
eumanna til þróunar gerðeyðinga-
vopna og langdrægra eldflauga geti
orðið til þess að vopnakapphlaup
hefjist í Asíu en þeir eru ekki reiðu-
búnir til þess að láta af efnahagsað-
stoð við stjórnvöld í Pjongjang þar
sem að það gæti flýtt fyrir hruni
landsins og leitt til flóðs flótta-
manna yfir kínversku landamærin.
Talið er líklegt að Kínverjar leggi
áherslu á að hinar svokaölluðu sex-
ríkja viðræður hefjist á ný. í þeim
taka bæði ríkin á Kóreuskaga þátt
ásamt Kínverjum, Rússum, Jap-
önum og Bandaríkjamönnum. Enn-
fremur munu Kínverjar mælast til
þess að Bandaríkin og Norður-Kór-
eumenn hefji tvihliða viðræður, en
það er ein af megin kröfum stjórn-
valda í Pjongjang. Fram til þessa
hafa stjórnvöld í Washington ekki
haft áhuga á slíkum viðræðum
og stjórnmálaskýrendur telja enn
minni líkur á stefnubreytingu í
þeim efnum nú en áður.
Á meðan að öryggisráðið fund-
aði um málið í gær lýstu yfirvöld í
Norður-Kóreu því yfir að þau hyggð-
ust halda áfram tilraunaskotum.
Fjölmiðlar í Suður-Kóreu sögðu frá
því í gær að Norður-Kóreumenn
hefðu komið þremur eða fjórum eld-
flaugum fyrir á skotpöllum en ólík-
legt þykir að þær flaugar séu lang-
drægar. Stjórnvöld hótuðu einnig
að bregðast við af hörku ef alþjóða-
samfélagið grípur til viðskiptaþving-
anna gegn þeim.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
hélt í gær áfram að funda um
eldflaugatilraunir Norður-Kóreu-
manna aðfararnótt miðvikudags.
Þrátt fyrir að flest ríki heimsins
fordæmi tilraunirnar eru skiptar
skoðanir meðal stórveldanna um
hvernig bregðast eigi við þeim. Á
sama tíma og stórveldin ráða ráðum
sínum hóta Norður-Kóreumenn
fleiri tilraunaskotum.
Japanir hafa, með stuðningi
Bandaríkjamanna og Breta, lagt
fram ályktun sem myndi takmarka
verulega möguleika Norður-Kóreu-
manna til þess að eiga í milliríkja-
viðskiptum. Tillagan er sett fram
með það að markmiði að refsa
stjórnvöldum í Pjongjang fyrir eld-
flaugatilraunirnar og til þess að
hamla áframhaldandi þróun á gerð-
eyðingarvopnum og eldflaugum.
Þrátt fyrir að bandarískir embættis-
menn hafi lagt hart að Kínverjum
og Rússum að styðja tillögu Japana
í öryggisráðinu er talið líklegt að
þeir kjósi frekar að öryggisráðið
samþykki almenna ályktun gegn
eldflaugaskotunum sem felur ekki
í sér hótun um efnahagsþvinganir.
Stjórnvöld í Seúl í Suður-Kóreu lýstu
því einnig yfir að þau teldu að halda
ætti áfram samningaviðræðum við
Norður-Kóreumenn til þess að fá þá
til þess að láta af þróun gereyðingar-
vopna og eldflauga.
I ljósi þessa þykir líklegt að örygg-
isráðið muni ekki reynast frjór vett-
vangur fyrir þá sem vilja reka harð-
ari stefnu gagnvart stjórnvöldum í
Pjongjang.
Flókin staða Kínverja
Staða stjórnvalda í Peking í málinu
er býsna flókin. Kínverjar eru helstu
bandamenn Norður-Kóreumanna
og stjórnvöld í Pjongjang eru háð
innfluttum mat og eldsneyti frá
Kína. Þrátt fyrir það urðu þau ekki
við ítrekuðum tilmælum Kínverja
um að hætta við tilraunaskotin. Kín-
ýr/f/x/O’nf crtf tJOTT'
Fullelduðu kjúklingabitarnir frá Matfugli á grillið, (ofninn eða á pönnuna.
Með hverjum bakka fylgir Léttsósa frá Salathúsinu.