blaðið - 07.07.2006, Qupperneq 13
blaðið FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2006
VEIÐI I 21
Samkeppni um bestu veiðimyndirnar árið 2006
\r.-etfíST
Mynd/HeimirÓskarsson
Tungulækur í Landbroti á upptök sín f Eldhrauni
Stangaveiðivefurinn wwvv.vofHog-
veidi.is og Hans Petersen hf. hafa
hleypt af stokkunum samkeppni um
bestu stangaveiðimyndirnar árið
2006.
Stangaveiðivertíðin er nú hafin
og fjölmargir stangaveiðimenn hafa
myndavélina í farteskinu. Margir
luma á frambærilegum myndum
sem margir hafa eflaust áhuga á að
sjá. Keppnin um bestu veiðimynd-
irnar 2006, er sem sagt hafin.
Keppt er í tveimur ílokkum, flokki
stemningsmynda og fjölskylduflokki.
Þá er það veiðimannanna sjálfra að
meta hvað felst í flokkuninni. í til-
kynningu segir að það muni vonandi
verða til þess að auka fjölbreytni.
Vertiðin hefur nú staðið yfir um
hríð og henni lýkur er síðustu sjó-
birtingsám verður lokað í kringum
20. október. Þannig verður tekið við
myndum út þann mánuð. Innsendar
myndir þurfa að vera frá vertíðinni
2006. f lok október mun dómnefnd
skipuð atvinnumönnum setjast að
störfum og verður kjörinu lýst í
nóvember.
Það sem þátttakendur þurfa að ~
gera er að senda myndir sínar í staf-
rænu formi á netfangið ritstjorn@
votnogveidi.is og láta fylgja ein-
hverjar upplýsingar um myndina,
stað, stund, nöfn (ef þurfa þykir)
auk þess fullt nafn, netfang og síma-
númer ljósmyndara.
Innsendar myndir verða allan tim-
ann sýnilegar á www.votnogveidi.is
í sérstöku opnu myndasafni. Þegar
verðlaunamyndirnar verða kjörnar
verður kjörinu lýst rækilega
Það er eftir töluverðu að slægjast.
Verðlaun fyrir þrjár bestu myndirnar
í hvorum flokki verða vegleg, meðal
annars veiðileyfi stíluð á árið 2007 í
boði Stangaveiðifélags Reykjavíkur.
Leirdúfuskotfimi vinnur
á hjá Íslendingum
Áður veiddu menn sér til matar en
nú er svo komið að veiðimennska
er sport fremur en nauðsyn. Eitt af
því sem hefur vaxið í vinsældum að
undanförnu er leirdúfuskotfimi en
til þess að geta stundað hana þarf
að hafa aðgang að góðu skotsvæði.
Skotveiðifélagið Skotreyn er þessa
dagana að leggja lokahönd á nýtt æf-
ingasvæði sem mun opna í þessum
mánuði.
„Við vorum með skotæfingasvæði
í Miðmundardal fyrir ofan Graf-
arholtið en þurftum að fara af því
svæði. Þá fengum við í staðinn út-
hlutað svæði á Álfsnesinu og höfum
verið að byggja það upp. Það eru
þá aðallega félagsmenn Skotreynar
sem hafa staðið að uppbyggingunni
en þeir eru 150 talsins," segir Þórir
Sigurðsson, formaður Skotreynar.
Allir geta keypt sér aðgang
Það eru ekki mörg skotæfingasvæði
á höfuðborgarsvæðinu og hefur að-
staða Skotreynar í Miðmundardal
verið vel nýtt. „Það er reyndar bara
opið fjögur kvöld i viku en það hefur
verið brjálað að gera þegar það hefur
verið opið. Það hefur reyndar ekkert
opnað á þessu ári vegna þess að við
höfum verið að standsetja svæðið.
Þetta er þá bæði fyrir félagsmenn og
alla áhugamenn um leirdúfuskytt-
erí. Fólk þarf ekki að vera í neinu
skotveiðifélagi til þess að vera hjá
okkur. Fólk þarf bara að vera með
byssuleyfi og þá getur það komið
og keypt sér aðgang. Ef menn eru í
skotveiðifélagi þá kostar 500 krónur
fyrir hringinn en þeir sem eru
utan félaga borga 800 krónur fyrir
hringinn. Það eru þá 25 leirdúfur í
hverjum hring en þeim er skotið úr
turnum,“ segir Þórir.
Ekki er hægt að æfa sig á kyrr-
stæðum skotmörkum og svæðið því
einungis hugsað sem leirdúfusvæði
en það er eitt af þremur slíkum
svæðum á höfuðborgarsvæðinu.
„Það er skotæfingavöllur í Hafnar-
firðiþar sem Skotfélag Hafnarfjarðar
er með og svo er verið að byggja
upp svæði við hliðina á okkur þar
sem Skotfélag Reykjavíkur er með
aðstöðu. Skotfélag Reykjavíkur er
íþróttafélag og hefur verið að keppa
í þessu en svæðið hjá okkur er frekar
hugsað til æfinga og til gamans. Að
sjálfsögðu höfum við líka verið að
keppa en ekki á íslandsmeistara-
móti eða neinu slíku,“ segir Þórir.
Að sögn Þóris er leirdúfuskotfimi
mjög vinsæl íþróttagrein og hefur
farið vaxandi á undanförnum miss-
erum. „Til þess að takaþátt i leirdúfu-
skotfimikeppnum þarf að vera með-
limur i skotklúbbi og fólki er raðað
niður í styrkleikaflokka. Slíkar
keppnir eru þá á sérstökum völlum
sem verður við hliðina á okkur á
Álfsnesinu, í Hafnarfirði, Þorláks-
höfn og í Keflavík. Það er þá miklu
meiri áhugi fyrir leirdúfuskytteríi
en var. Aftur á móti er þetta sérstök
tegund af leirdúfuskytteríi sem við
erum í en vellir eins og við erum
með eru kallaðir „sporting" vellir.
Það er sem sagt ákveðin tegund af
leirdúfuvöllum sem ekki er keppt í
hérna. Svo erum við með tvo velli
í viðbót og er einn þeirra kallaður
„skurður“ en það er nokkurs konar
eftirlíking af gæsaskytteríi," segir
Þórir.
Það er kostnaðarsamt að leggjast
í framkvæmdir á borð við þær sem
eru 1 gangi á Álfsnesinu en með-
limir Skotreynar hafa borið mesta
þungann af fjármögnuninni. „Við
höfum fengið smá styrk frá borg-
inni upp á tvær milljónir fyrir einu
ári síðan og svo fengum við loforð
núna fyrir styrkjum á næsta og
þar næsta ári fyrir öðru eins. Það
eru einu styrkirnir sem við höfum
fengið. Húsið sem við erum að reisa
kostar í kringum átta milljónir og
síðan rísa skúrar auk skotturnanna.
Þetta hleypur á þó nokkrum millj-
ónum. Þetta er 80 fermetia hús og
við höfum byggt upp á nýtt alla að-
stöðu,“ segir Þórir.
Þórir segir þá að Skotreyn hafi í
hyggju að halda námskeið þar sem
áhugasömum verður kennt hvernig
eigi að ná betri tökum á leirdúfuskot-
fimi en félagið hefur ekki verið með
svona námskeið áður.
6 nef Hafíð samband í síma 820 2200 eða heimsækið vefsíðu okkar og pantið veiðileyfi og veiðihús á þessum fallega stað.
Reynisvatn er mjög vinsælt hjá veiðimönnum enda nóg af fiski
í vatninu og sjaldgæft að fólk fari tómhent heim. í vatninu er
aöallega regnbogasilungur en einnig bleikja. Hægt er að leigja
stangir og báta og er aðstaðan tilvalin fyrir starfsmannahópa
sem og veislur af ýmsu tagi. Á staðnum er veitingasala, fjöldi
grilla, innisalur og útipallar. 561 0752 og 693 7101
fyrir aðeins 5000 krónur!
Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir!
Fæst á ESSO, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
Ut er komið 4. bindi Stangaveiðihandbókarinnar!
Með útgáfu þessa síðasta bindis um Austurland má segja
að hringnum í umfjöllun um veiðisvæði landsins sé lokað.
í fyrri þremur bindunum er fjallað um veiðimöguleika á
Suðurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum og á Norðurlandi
og alls nær umfjöllunin til tæplega 2000 veiðisvæða.
Ómissandi uppfiettirit um veiðiár og vötn á ísiandi
www.stangaveidi.is - pantanir@stangaveidi.is
Sími 566 7288 & 822 2460
Fæst í bókaverslunum,
veiðivöruverslunum j
og á Essó-s'töðvum^éiP