blaðið - 07.07.2006, Blaðsíða 15
blaðið FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2006
ÍÞRÓTTIR I 23
Hæstánægður með baulið
Það heldur áfram að rigna upp í nefið á portúgalska ungstirninu Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo segist ekki hafa
kippt sér upp við að púað hafi verið
á hann í leik Portúgals og Frakk-
lands í undanúrslitunum á mið-
vikudag, heldur hafi hann þvert á
móti verið hæstánægður með það.
Ronaldo fékk vægast sagt slæmar
viðtökur frá áhorfendum og má telja
víst að það hafi verið vegna fram-
göngu hans við brottrekstur Wayne
Rooney í fjórðungsúrslitunum. „Ég
var ánægður með að áhorfendurnir
bauluðu á mig. Frönsku áhorfend-
urnir voru örugglega bara hræddir
við að sjá svona hættulegan leik-
mann,“ sagði Ronaldo kokhraustur
við fjölmiðla.
Ósanngjörn dómgæsla
Hann sagðist hins vegar hafa verið
allt annað en sáttur við dómara leiks-
ins, Jorge Larrionda frá Orugvæ.
„Við lékum vel en dómarinn var svo
sannarlega ekki að hjálpa okkur. Það
gátu allir séð að dómgæslan var ekki
hlutlaus. Frakkar hefðu átt að fá fjöl-
margar áminningar en hann spjal-
daði þá ekki af því að Portúgal er
lítil þjóð. Við þurfum bara að halda
áfram af sama krafti og þá verðum
við stórþjóð," sagði Ronaldo.
Zinedine Zidane skoraði eina
mark leiksins úr vítaspyrnu á 33.
mínútu og þótti Ronaldo vítaspyrnu-
dómurinn gruggugur.
Erum engu síðri
Ronaldo kvaðst ánægður með
frammistöðu sinna manna á HM
þrátt fyrir að þeir hefðu fallið úr
leik. „Við Portúgalar sýndum að við
getum leikið mjög góða knattspyrnu.
Frakkar voru ekkert betri en við.
Það var bara vítaspyrnan sem skildi
liðin að,“ sagði Ronaldo og bætti við
að honum þætti afar sárt að hafa
ekki komist í úrslitin þar sem liðið
hefði átt það skilið. „Það fór þó sem
fór og því getum við ekki annað en
óskað Frökkum til hamingju með
sigurinn. Nú stefnum við bara á
að taka bronsið," sagði Ronaldo,
en Portúgalar mæta Þjóðverjum í
leiknum um þriðja sætið í Stuttgart
á laugardag.
Elskaður og hataður. Cristiano Ronaldo t góðum gír með krökkum á æfingu portúgalska landsliðsins.
Alves í leik með Sevilla.
Alvesþráir
Liverpool
Daniel Alves, leikmaður Sevilla,
segist enn vonast til að ganga
til liðs við Liverpool fyrir næsta
tímabil þrátt fyrir að spænska
félagið vilji ekki sleppa honum
lausum. Liverpool hefur elst við
Brasilíumanninn í langan tíma
en Sevilla hefur ítrekað hafnað
tilboðum í hann og segist ekki
vilja selja hann fyrir minna en
10 milljónir punda. Ensku bik-
armeistararnir vilja hins vegar
ekki greiða svo háa upphæð.
Jose Rodriguez Baster, um-
boðsmaður Alves, segir að
hjarta skjólstæðings síns segi Li-
verpool og ekkert annað. „Það
er vissulega rétt að það hefur
verið erfitt að ná samningum
milli liðanna. Þetta snýst allt
um málamiðlanir og vonandi
náum við lendingu á næstu
dögum,“ sagði Baster. „Daniel
vill helst af öllu fara til Li-
verpool, þrátt fyrir að fjölmörg
spennandi félög séu á eftir
honum. Hann vill líka leika á
Englandi þannig að við munum
gera allt til að láta þetta ganga
eftir.“
Horacio Elizondo gefur Wayne Rooney rauða spjaldið við Iftinn fögnuð Englendinga.
Elizondo dæmir
úrslitaleikinn
Argentínumaðurinn Horacio Eliz-
ondo hefur verið valinn til þess að
dæma úrslitaleik HM milli Frakk-
lands og Italíu. Elizondo er dómar-
inn sem dæmdi leik Englands og
Portúgals í fjórðungsúrslitum og gaf
Wayne Rooney umdeilt rautt spjald
fyrir að traðka á Portúgalanum Ri-
cardo Carvalho.
Fjölmargir voru ósáttir við
frammistöðu Elizondos í leiknum
og gagnrýndu hann fyrir að sjá
ekki í gegnum meintan leikaraskap
Portúgala. Kemur því nokkuð á
óvart að Horacio hafi verið valinn
til að dæma úrslitaleikinn en Þjóð-
verinn Markus Merk og Slóvakinn
Lubos Michel þóttu fyrirfram líkleg-
astir til að hljóta þann heiður.
Elizondo er 42 ára gamall og
starfaði áður sem íþróttakennari í
heimalandi sínu en hefur verið at-
vinnudómari frá árinu 1994. Landar
hans, Dario Garcia og Rodolfo Otero,
verða Unuverðir í leiknum. Japan-
inn Toru Kamikawa hefur svo verið
valinn til þess að dæma leikinn urn
þriðja sætið milli Þýskalands og
Portúgals.
auglysingarC vblis
blaðið=
LAMISIL
TERBINAFINE
inu sinni á da>
drepur fótsvet
Það er engin ástæða til að láta sér liða illa
á besta tima ársins.
Komdu og fáðu ráðgjöf hjá okkur.
Lyfsheilsa
Við hlustum!
Lamisil er borið á elnu sinni á dag í eina viku. Hreinsið og þurrkið sýkt svæði vel áður en Lamisil er borið á. Bera skal Lamisil á i þunnu lagi á sýkta
húð þannig að það þekjí allt sýkta svæðið. Lamisil er milt og veldur mjög sjaldan húðertingu. Lamisil inniheldur terbinatin sem er svegpadreþandi
(fungisid) efni og vinnur á sveppasýkingum í húð af völdum húðsveppa, gersveppa og litbrigðamyglu (“lifrarbrúnir blettir”). Lamisil á ekki að
nota gegn sveppasýkingum I hársverði, skeggi eða nöglum nema samkvæmt læknisráði. Það má ekki nota ef þekkt er ofnæmi fyrir terbinafini eða
öðrum innihaldsefnum í Lamisil. Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningarseðil sem fylgir hverri pakkningu.