blaðið - 10.08.2006, Side 4
4 I FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2006 blaöið
Siv Friðleifsdóttir:
Yfirlýsing á
næstu dögum
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis-
°g tryggingamálaráðherra,
hyggst lýsa því yfir á næstu
dögum hvort hún mun bjóða sig
fram til forystuembættis innan
Framsóknarflokksins eða ekki.
„Ég mun gefa út yfirlýsingu á
næstu dögum en er ekki tilbúin
að fjalla neitt frekar um málið
fyrr en sú yfirlýsing liggur fyrir,“
segir Siv.
Flokksþing Framsóknarflokks-
ins hefst á föstudaginn í næstu
viku en þá verður kosið í helstu
embætti innan flokksins. Guðni
Ágústsson, landbúnaðarráðherra,
og Jónína Bjartmarz, umhverfis-
ráðherra, hafa þegar lýst þvf yfir
að þau sækist eftir varaformanns-
embættinu og þá hafa Jón Sigurðs-
son, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, og Haukur Haraldssson
boðið sig fram til formanns.
Reykjavík:
Ekiðá
hæðarslár
Tvfvegis var ekið á hæðarslár
við gatnamót Suðurlandsvegar
og Vesturlandsvegar í fyrradag.
Að sögn lögreglunnar urðu ekki
slys á fólki en að með sama
áframhaldi geti illa farið.
Lögreglan kom upp eftir-
litsmyndavél á þessum gatna-
mótum fyrir síðustu helgi og
allir sem ekki virða hæðar-
takmörk megi búast við sekt.
Hæðartakmörk eru 4,2 metrar
samkvæmt reglugerð um stærð
og þyngd ökutækja.
Grunnskólar á Akureyri:
Fræða skólabörn
um samkynhneigð
■ Fræðsla um samkynhneigð ■ Stefnt á kennslu á öllum skólastigum
■ Vara við smithættu, segir Snorri Óskarsson í Betel
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
Á Akureyri er í undirbúningi
námsefni fyrir grunnskólana þar
sem áhersla er lögð á fræðslu um
samkynhneigð. Skóladeild bæjarins
hefur ákveðið, í samstarfi við samtök
aðstandenda samkynhneigðra, að
halda námskeið um samkynhneigð
fyrir allt starfsfólk grunnskólanna.
I vetur er svo stefnt á að prufukeyra
nýtt námsefni fyrir nemendur.
Brýnt verkefni
Áður en grunnskólarnir hefjast
mun allt starfsfólk sækja námskeið
þar sem bæði kennarar og nem-
endur flytja fyrirlestra um samkyn-
hneigð í skólastarfi.
„Markmiðið er að undirbúa starfs-
fólkið betur til að leiðbeina og
aðstoða einstaklinga sem upplifa
sig utanveltu í skólakerfinu vegna
kynhneigðar sinnar. Þetta er brýnt
verkefni sem við í ákváðum að taka
til umfjöllunar í grunnskólunum,"
segir Gunnar Gíslason hjá skóla-
deild Akureyrabæjar.
Hluti af samfélaginu
Sverrir Páll Erlendsson, talsmaður
FAS sem eru Samtök foreldra og að-
stendenda samkynhneigðra, segir
hugmyndina hafa komið í kjölfar
ráðstefnu sem samtökin héldu fyrir
ári síðan í samstarfi við Samtökin
‘78 á Norðurlandi.
„Á ráðstefnunni voru fulltrúar frá
skólayfirvöldum bæjarins og fjöldi
kennara og skólastjórnanda. Eftir
það var ákveðið að hefja undirbún-
inginn að þessu verkefni,“ segir
hann.
1 Á skólalóðinni Nemendur
r í grunnskólunum á Akureyri
'1 fræðast um samkynhneigð á
* næsta skólaári.
11
W »*■ t* v- k Þetta er brýnt verkefni sem við í ákváðum að taka til umfjöllunar Gunnar Gislason Fulltrúi hjá Skóladeild Akureyrarbæjar pr X „Fjallað um samkyn- hneigð eins og hvert annaö lífsform” Sverrir Fáll Erlcndsson Talsmaöur FAS
■ ^ v- <y- r. a *" ÖJBt. „Vara við 1 smithættu 1 sem af þessu gæti orðið" Snorri Óskarsson Hvitasunnukirkjan á Akureyri J&- f wm • W „Þetta er frábært frumkvæði” Maria Kristin Gylfadóttir Hoimili og skóli
„Þarna verður fjallað um samkyn-
hneigð eins og hvert annað lífsform
og samkynhneigðar fjölskyldur
sem hluta af samfélaginu. Þetta er
frumkvöðlastarf hjá okkur á Akur-
eyri og vonumst við til að ná þessu
á öll skólastig grunnskólans," segir
Sverrir Páll.
Hræddur um smithættu
Snorri Óskarsson, hjá Hvita-
sunnukirkjunni á Akureyri, er fylg-
ismaður þess að frætt sé um sam-
kynhneigð í grunnskólunum en á
þeim forsendum að þetta sé ekki
eðlilegt fjölskylduform.
„Þetta er ekkert hollt að vera í
Aðalnámskrá grunnskóla
2.gr. Markmið náms og kennslu
og starfshættir grunnskóla skulu
vera þannig að komið sé í veg fyrir
mismunun vegna uppruna, kyns,
búsetu, stéttar, trúarbragða eða
fötlunar.
þessum lífsmáta. Ég óttast að þetta
verði enn stærri tískubóla en orðið
er og vara við smithættu sem af
þessu gæti orðið,“ segir Snorri.
„Það bendir allt til þess að fjöldi
samkynhneigðra muni vaxa mjög
í kjölfarið. Ég trúi því að þetta sé
villuhneigð og það sé leið út úr
henni. Það má alls ekki fara að
kenna börnum að þetta sé eðli-
legur lífsmáti því náttúran segir
að stúlkur eignist börn og drengir
verði feður.“
Kærkomin viðbót
María Kristín Gylfadóttir, hjá
Heimili og skóla, fagnar því að
þetta sé í undirbúningi og vill sjá
þetta á landsvísu.
„Þetta er frábært frumkvæði
sem Akureyrarbær er að sýna með
þessu verkefni. Nú í vor kom nýtt
inn í grunnskólalögin að mismuna
nemendum ekki út frá kynhneigð
og því fellur þetta alveg undir þá
stefnu,“ segir María Kristín.
„Svona fræðsla er til þess búin að
koma í veg fyrir fordóma og rétt-
arstaða samkynhneigðra er með
því besta sem gerist í heiminum.
Hingað til hafa ungliðasamtök Sam-
takanna ‘78 verið að fræða nem-
endur um samkynhneigð og þetta
er því kærkomin viðbót. Það er hins
vegar ekki sama hvernig þetta er
gert og vanda þarf til námsefnis."
Brúðargjqfir
Opið laugardaga,
í Kringlunni 10-18, Rau&arórstíg 11-14
Sjáumst í Galleríi Fold
RauSarárstíg 14-16, sími 551 0400
Kringlunni, sími 568 0400 • www.myndlist.is
Eftirspurnin eykst og verðið hækkar á leigumarkaði:
Meðalleiguverð 1.600
krónur á fermetrann
Mikil eftirspurn á leigumarkaði Dæmi um að 16 fermetra herbergi sé leigt
á 39 þúsund krónur.
Mikil eftirspurn er eftir leigu-
íbúðum á höfuðborgarsvæðinu að
sögn Guðlaugs Þorsteinssonar, fram-
kvæmdastjóra Leigulistans. Hann
segir tiltölulega erfitt að fá húsnæði
um þessar mundir og fólk neyð-
ist oft til að taka því sem er í boði
hverju sinni. Meðalfermetraverð
á leiguíbúðum á höfuðborgarsvæð-
inu er nú kringum 1.600 krónur en
dæmi eru um að 30 fermetra íbúðir
séu leigðar út á 70 þúsund krónur á
mánuði.
„Það er ágætis framboð á húsnæði
en eftirspurnin er bara það mikil
að fólk þarf oft að taka því sem er í
boði hverju sinni,“ segir Guðlaugur
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
Leigulistans. Að sögn Guðlaugs
hefur leiguverð hækkað nokkuð á
undanförnu ári og útlit er fyrir frek-
ari hækkunum á næstu mánuðum.
,Verðið hefur verið að mjakast upp
á við að undanförnu. Hátt fasteigna-
verð togar upp leiguverð.“
Algengt fermetraverð á tveggja
herbergja íbúð á höfuðborgarsvæð-
inu er nú í kringum 1.700 krónur
en dæmi eru um fermetrinn fari
upp í allt að 2.500 krónur. Þannig
er ein 30 fermetra íbúð auglýst til
leigu á 70 þúsund krónur og 16 fer-
metra herbergi á 39 þúsund. Stærri
íbúðir virðast vera ódýrari i leigu
og meðalleiguverð á 3. herbergja
íbúðum er í kringum 1.500 krónur
fermetrinn.
Að sögn Guðlaugs eru rúmlega 100
íbúðir að meðaltali á skrá hjá Leigu-
listanum í hverjum mánuði. Hann
segir það aðallega vera ungt fólk og
útlendingar sem sækist eftir því að
leigja íbúðir og herbergi og þá virðast
tveggja herbergja íbúðir vera vinsæl-
astar. „Leiguverð miðað við fermetra
virðist lækka eftir því sem íbúðin er
stærri. Mesta eftirspurnin er eftir
tveggja herbergja íbúðum og þannig
hefur það verið lengi. Sjálfsagt er það
vegna þess að fólk með stærri fjöl-
skyldur kýs frekar að tryggja sér hús-
næðið með því að kaupa.“