blaðið - 10.08.2006, Side 6
6IFRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2006 blaöiö
BUGL:
Fékk gjöf frá
Lions
Barna- og unglingageðdeild
Landspítala (BUGL) fékk ný-
verið gjöf frá Lionsídúbbnum
Fold að verðmæti 300 þúsund
krónur. Gjöfin samanstendur
af reiðhjólum, útivistarfatn-
aði, sófa og fleiru og segir í
tilkynningu frá geðdeildinni að
gjafirnar muni koma að góðum
notum fyrir börnin og ungling-
ana á BUGL.
Launamál:
Jafnaðarkaup
ekki til
Fjölmörg ungmenni sem
starfa aðallega í söluturnum og
á bensínstöðvum á austurlandi
hefur leitað til AFLS- starfs-
greinasambands Austurlands
með launaseðla og tímaskýrslur.
Samkvæmt heimasíðu
félagsins kemur fram að víða
sé borgað jafnaðarkaup en það
hugtak sé hvergi að finna í
kjarasamningum. Þar sem ung-
mennin vinna allar helgar og
helgidaga er ljóst að það vinnur
verulega yfirvinnu.
Félagið segir að þeir ætli að
sækja málið af fullri hörku hafi
réttindi ungmennanna verið
brotin.
ruði sektaðir um helgina
700 manns voru sektaðir fyrír of hraðan akstur yfir
‘u ferðamannahelgi þjóöarínnar.
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
Að minnsta kosti 700 manns
stöðvaðir frá fostudegi til þriðju-
dags og sektaðir fyrir hraðakstur,
samkvæmt grófri úttekt Blaðsins.
Yngsti ökumaðurinn er sautján
ára gamall en hann keyrði á 141
kílómetra hraða á Reykjanesveg-
inum á þriðjudagskvöldinu og var
sviptur ökuréttindum á staðnum.
Flestir sem hlutu hraðasektir eru
bílstjórar sem keyrðu Hvalfjarð-
argöngin um helgina en hraða-
myndavél náði mynd af 391 öku-
manni sem ók of hratt.
Enn einu sinni kom upp tilvik
þar sem bifhjólamaður keyrði á
ofsahraða og stakk lögregluna
af. Umferðardeild lögreglunnar í
Reykjavík segir að um viðvarandi
vandamál sé að ræða.
Á föstudag, þegar umferð var
orðinn nokkuð þung, stöðvaði
lögreglan á Akureyri þrettán öku-
menn á ofmiklum hraða, þar af
var einn á 149 kílómetra hraða
á Öxnadalsheiði. Hann hlýtur
því þann vafasama heiður aj
hafa verið á mestum hraða y:
helgina.
Á sunnudag stöðvaði lögreglan
á Blönduósi hátt í þrjátíu manns
sem voru á leiðinni suður af hátíð-
inni „Ein með öllu,“ sem haldin
var á Akureyri um helgina. Þar
af voru nokkrir á ofsahraða en sá
ökumaður sem mest lá á að kom-
ast til byggða mældist á 140 kíló-
metra hraða.
Um hundrað ökumenn voru
stoppaðir af laganna vörðum
í Vestur-Skaftafellssýslu en
lögreglan þar hefur aldrei áður
sektað svo marga yfír eina helgi.
Einn ökumaður var stoppaður á
svæðinu þegar hann ók á 139 kíló-
metra hraða.
Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði
sextíu ökumenn fyrir of hraðan
akstur og tveir voru teknir ölvaðir
undir stýri ásamt einum sem virt-
ist aka undir áhrifum lyfja.
Samkvæmt umferðadeild lög-
reglunnar í Reykjavík voru 51 bíl-
stjóri stoppaður fyrir of hraðan
akstur í Reykjavík yfír helgina.
Hraðakstur var ekki eingöngu
bundinn við hátíðar helgarinnar
því einn ökumaður var sektaður
fyrir að aka á ofsahraða á Reykja-
nesbrautinni. Það var sautján ára
piltur sem var stöðvaður á 141
kílómetra hraða en hann hafði
verið með bílpróf í ellefu daga.
Hann var sviptur á staðnum og
þarf að borga 60 þúsund krónur
fyrir vikið.
Á þriðjudagsnótt voru einnig
tveir teknir fyrir hraðakstur.
Annar var á Garðsvegi og mæld-
ist hann á 111 kílómetra hraða.
Hinn ökumaðurinn mældist aftur
á móti á 134 kílómetra hraða á
Reykjanesbrautinni. Sömu nótt
stungu bifhjól og BMW-bifreið
lögregluna af á ofsahraða og er
þeirra leitað.
„Þetta er ansi mikið,“ segir
Á 149 kílómetra hraða
Stöðvaðurá Öxnadalsheiði á föstu-
dag. Hélt hraðametinu alla helgina.
Hannes Þór Guðmundsson varð-
stjóri umferðardeildar lögregl-
unnar í Reykjavík. Hann segir að
hraðakstur sé orðið viðvarandi
vandamál og biður fólk hreinlega
um að slappa af.
„Við erum að taka á þessum
málum af meiri hörku og höldum
því áfram,“ segir Hannes en lög-
reglan hefur haldið úti afar öflugu
umferðaeftirliti í sumar sem hugs-
anlega má rekja til þessarar háu
tölu.
„Ég bið bara fólk um að fara í
báðum sokkunum út í umferðina,“
segir Hannes og bætir við að það
séu einkunnarorð umferðardeild-
arinnar. Hann segir að fólk megi
alveg við því að taka lífínu ögn
rólegra því lægsta sektin fyrir
hraðakstur er tíu þúsund krónur.
Ef mið er tekið af því má fá út að
bílstjórar á of miklum hraða hafí
borgað að minnsta kosti sjö millj-
ónir frá föstudeginum
síðasta.
Á 148 kílómetra hraða '
Bifhjóiamaður á Reykja
nesbraut. Stakk lögregl-
una og er ófundinn.
A 141 kílómetra hraða
Sautján ára piltur var stöðvaður á
Reykjanesbraut. Hann hafði haft
:; ökuréttindi í ellefu daga.
A 134 kílómetra hraða
Einstaklingur á BMW-bifreið stakk lögregl
una afá Reykjanesbraut. Hann erófundinn.
A 139 kílómetra hraða
tíiókumaður stöðvaður i Vestur
^Skaftafellssýslu. Lögregian þar
sló sektarmet yfir helgina.
Bjóðum þessar heimsþekktu þýsku kamínur í
mörgum stærðum og gerðum á hreint
fróbæru verðil
ORMSSON
j SÍÐUMÚLA 9 • Sími 530 2800 j SMÁRALIND ■ Sími 530 2900 |
| AKUREYRI ■ Sími 461 5000 j Sjó nónar. www.ormsson.is |
Auglýsingar Húsasmiðjunnar:
Það er ekki nóg að reyna
Það er ekki nóg að verslanir reyni
að hafa vöruna sem þær auglýsa til,
lögin eru alveg skýr í þessum efnum.
Því miður þá er of algengt hér á
landi að það misfarist,“ segir Gísli
Tryggvason, talsmaður neytenda.
Fyrir helgina auglýsti Húsa-
smiðjan vöru sem uppseld var í
verslunum þegar auglýsingin birtist
og þurfti því að vísa fjölda viðskipta-
vina frá. Markaðsstjóri fyrirtækis-
ins segir vinnureglurnar skýrar og
ávallt sé reynt að eiga nóg til af vöru
sem auglýst er.
Gísli kannast vel við þessa atburð-
arrás og segir aðspurður koma til
greina að setja reglur um lágmarks
eintakafjölda vöru sem auglýst er til
að koma í veg fyrir svona atvik.
„Ég hef ekki kynnt mér þetta ein-
staka mál en heyri reglulega um
kvartanir í þessa veru. Ábyrgðin
liggur hjá verslunum að sjá til
þess að varan sé til, það er ekki
nóg að standa undir ábyrgðinni
með því að reyna,“ bætir Gísli
við.
Blaðið í gærgreindi
frá því að Húsasmið-
jan hefði auglýst
ódýr ferðagrill, sem
aðeins reyndust vera
til í einni verslun á
Egilsstöðum þegar
til átti að taka.