blaðið - 10.08.2006, Síða 8

blaðið - 10.08.2006, Síða 8
8 I FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2006 blaAÍA Garðabær: Nýbygging IKEA rýmd Lögreglumenn um borð í TF- SIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, stöðvuðu för ölvaðs ökumanns um helgina er þyrlan var við um- ferðareftirlit á vegum landins. Þyrlan var notuð við lög- gæslustörf alla helgina og var sjónum einkum beint að umferð um Vesturlandsveg og Suður- landsveg en einnig að útihátíð- arsvæðum. Um var að ræða samstarfsverkefni ríkislögreglu- stjóra, lögreglunnar í Reykjavík og Landhelgisgæslunnar. Þótti verkefnið takast afar vel og voru m.a. höfð afskipti af þó nokkrum ökumönnum sem virtu ekki leyfilegan akstur. Þá var einnig fylgst með umferð utan vegar og höfðu lögreglu- menn um borð afskipti af fólki á fjórhjólum. BlaÖIO/lngó Fasteignamarkaður: Samdráttur á Akureyri Velta á fasteignamarkaði á Akureyri í síðastliðnum júlímán- uði dróst saman um tæplega helming miðað við sama mánuð í fyrra samkvæmt tölum frá Fast- eignamati ríkisins. í júlímánuði var 42 kaupsamningum þinglýst um fasteignir á Akureyri en í fyrra voru þeir 91. Veltan nú nemur 724 milljónum en hún var tæpur 1,3 milljarður í fyrra. Þá var einnig samdráttur á sölu fasteigna á Arborgar- svæðinu en þar var 37 kaup- samningum þinglýst í júlí samanborið við 48 í fyrra. Heild- arvelta nam 821 milljón króna en var 717 milljónir á sama tíma í fyrra. ■ Fimm hundruð flugferðum frestað ■ Bíða í tvo daga eftir flugi ______ ■ Fuku um göturnar en eru nú á heimleið Eftir Val Grettisson valur@bladid.net Feðgarnir Heimir Sverrisson og Daníel Örn Heimisson sem hafa ferð- ast um Kína í tvo mánuði, bíða eftir þriðja fellibylnum sem á að skella á Hong Kong í dag. Blaðið sagði frá því þegar þeir voru fastir í Guangzhou í síðustu viku en þá gekk fellibylurinn Prapiroon yfir borgina. Sá fellibylur var afar öflugur en samkvæmt Heimi voru þeir feðgarnir að flækjast úti þegar versta hviðan gekk yfir. Feðg- arnir eiga að flug til Englands í dag en óvíst er að þeir komist heim. „Það var blankalogn og hátt upp í fjörutíu stiga hiti rétt áður en stormur- inn gekk yfir,“ segir Heimir en hann og Daníel eru nýbúnir að sleppa úr fellibylnum Prapiroon. Þeir ákváðu að fara út að borða því veðrið virtist vera gott. Þegar þeir voru á leiðinni á veitingahúsið skall versta hviðan á þá. „Við fukum bara út um allt,“ segir Heimir en lauslegir hlutir og tré fuku út um alla borg. Hann segir að það sé skárra að vera í borginni heldur en í sveitinni þegar bylur gengur yfir en það sé aðallega vegna hættu á aur- skriðum og flóðum í kjölfar byljanna. Feðgarnir komust þó óhultir til baka og sátu af sér storminn. Fellibylurinn Saomai, sem þýðir Venus á tælensku, skellur hugsanlega á Hong Kong í dag. Stormurinn náði 166 kílómetra hraða þegar hann var síðast mældur og flokkast því undir sérlega öflugan storm. Samkvæmt Heimi er eldci fullljóst hvort hann muni fara yfir Hong Kong því mögu- leiki sé á því að hann brey ti um stefnu yfir nóttina. „Þetta gæti orðið eitthvert vesen,“ segir Heimir sem er þó hvergi bang- inn enda þriðji fellibylurinn sem hann og Daníel sonur hans lenda í á tveimur mánuðum. Sfðast þurfti að fresta um fimm hundruð flugferðum á alþjóðlega flugvellinum í Hong Kong sem varð til þess að þúsundir þurftu að dúsa á velfinum hátt í tvo daga. Að sögn Heimis var stemning þrúgandi á flugvellinum þegar fellibylurinn Prapiroon gekk yfir. Á tfmabili varð ástandið svo slæmt að slagsmál brut- ust út á meðal þreyttra ferðalanga á flugvellinum. „Við eigum að fara heim á morgun en það er ekki fyrirséð hvernig þetta endar,“ segir Heimir og hlær. Ferða- lagið eitt tekur rúmlega sólarhring og því ekki öfundsvert að bíða á flugvelli í tvo daga til viðbótar. Feðgunum heilsast vel og segir Heimir að þetta hafi verið ólýsanleg reynsla. Þeir hafa tekið förina upp á myndband og stefna á að sýna það á Skjá Einum í haust. Tómstundahúsið • Nethyl 2 • S. 587 0600 • www.tomstundahusid SMAAUGLYSINGAR 5103737 blaðiÖH SMAAUGLYSINGAR@BLADID.NET Óvissa er um Árna fram yfir kosningar: Þarf að kjósa Árna til að úrskurða um kjörgengi Sigurður Lfndal, prófessor emme- ritus við Háskóla Islands segir ekk- ert þvf til fyrirstöðu að Árni Johnsen bjóði fram í komandi Alþingiskosn- ingum. Efasemdir hafa vaknað um kjörgengi Árna en Sigurður bendir á að úr því verði ekki skorið fyrr en að kosningum loknum. Undirskrifta- söfnun er hafin þar sem Árni er hvattur til að bjóða sig fram en í ljósi þess að hann var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Hæstarétti árið 2003 hafa vaknað spurningar um hvort mannorð hans sé óflekkað, en það er forsenda fyrir kjörgengi. Óvissa um flekkun mannorðs í fjórðu grein laga um kosningar til Alþingis segir: „Kjörgengur við kosningar til Alþingis er hver sá sem kosningarétt á skv. 1. gr. og hefur óflekkað mannorð.“ 1 fimmtu grein er útskýrt hvað átt er við með óflekkuðu mannorði og þar segir: „Dómur fyrir refsivert brot hefur ekki flekkun mannorðs í för með sér nema sakborningur hafi verið fullra 18 ára að aldri er hann framdi brotið og refsing sé fjögurra mán- aða fangelsi óskilorðsbundið hið minnsta eða öryggisgæsla sé dæmd.“ Árni var dæmdur í Hæstarétti í febrúar 2003 í tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt, rangar skýrslur til yfirvalda, mútuþægni og umboðs- svik í opinberu starfi. Sigurður segir þó ekki alveg ljóst hvort Árni teljist með flekkað mannorð. „Þó að menn hafi fengið þyngri dóm þarf það ekki að þýða skilyrðislaust að fela í sér mannorðsflekkun," segir hann. „Það kæmi sérstaklega til álita við brot á sérrefsilögum til dæmis. 1 stjórnskipunarrétti Ólafs Jóhannes- sonar minnir mig að segi að þetta sé nokkuð á reiki. En hvernig Alþingi tæki á þessu veit ég ekki um enda held ég að svona mál hafi aldrei komið til kasta þess.“ Má samt bjóða sig fram Sigurður segir ekkert því til fyrir- stöðu að Árni bjóði sig fram. „Hver sem er getur í sjálfu sér boðið sig fram, en það er svo Alþingis að skera úr um kjörgengi." í 36. grein lagana segir: „Ekki er nauðsynlegt að kjör- gengi frambjóðenda sé sannað fyrir yfirkjörstjórn eða landskjörstjórn, en Alþingi úrskurðar um kjörgengi Alþingi myndi skera úr um kjörgengi. Árni Johnson, Fyrrv. þlngmaflur .Ekkert því til fyrirstööu að Arni bjóöi fram." Sigurflur Lindal, Lagaprófosor þeirra sem kosnir eru jafnframt því sem það úrskurðar um hvort ný- kosnir þingmenn séu að öðru leyti löglega framboðnir og kosnir.“ Þetta þýðir, að komist Árni á lista fyrir næstu kosningar, kemur það ekki í ljós fyrr en eftir kosningar hvort hann er kjörgengur eða ekki. „Ef Árni léti til skarar skríða held ég að reyna myndi á Alþingi. Svo er það önnur saga hvaða kröfur Sjálf- stæðisflokkurinn setur sér í þessum efnum,“ segir Sigurður Líndal.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.