blaðið - 10.08.2006, Page 16
16 I ÁLIT
FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2006 blaðiö
blaóió
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Ritstjóri: Sigurjón M. Egilsson
Fréttastjórar: Brynjólfur Þór Guðmundsson og
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Ritstjórnarfulltrúi: Janus Sigurjónsson
I boði Omars
Ómar Rag narsson hefur boðið ellefu manns, áhrifafólki, eins og hann
nefnir það, í skoðunarferð að Kárahnjúkum. Hann segir í opnu boðsbréfi
að gestirnir hafi það hlutverk að þjóna allri þjóðinni. Omar býður forseta
íslands, forsætisráðherra, utanríkisráðherra, iðnaðarráðherra, umhvef-
isráðherra, ritstjórum dagblaðanna þriggja og stjórnendum eða frétta-
stjórum Ríkisútvarpsins, NFS og Skjás í.
Þrátt fyrir að sá sem þetta skrifar hafi það meginmarkmið að þiggja
aldrei neitt í starfi, ekki boðsferðir, ekki málsverði eða nokkuð annað
ætlar hann að gera undantekningu og þiggja boð Ómars.
í bréfi Ómars segir að hann geri ráð fyrir að allir sem hann bjóði nú hafi
þegið ferðir að Kárahnjúkum. Það á ekki við um alla. Ómar hefur hins
vegar reynslu af skoðanarferðum. Gefum honum orðið:
„Ég hef sjálfur farið sem leiðsögumaður í tveimur vönduðum boðs-
ferðum í þessum dúr þar sem í boði voru glæsilegar veitingar og viður-
gjörningur allan daginn, flogið í Boeing 757 millilandaþotum austur með
göngu í gegnum sérstak VlP-tollhlið á Reykjavíkurflugvelli; síðan farið í
fimm rútum með sérstakri útvarpsstöð, setinn gala-kvöldverður í Vala-
skjálf með skemmtiatriðum og flogið til baka um kvöldið.“
Fræg var ferðin sem fyrrverandi forystumenn Sjálfstæðisflokksins fóru
að Kárahnjúkum þar sem gestgjafi var Friðrik Sophusson, forstjóri Lands-
virkjunar og fyrrverandi varaformaður flokksins, og gestirnir voru Davíð
Oddsson, seðlabankastjóri og fyrrverandi formaður flokksins, Þorsteinn
Pálsson, fyrrverandi formaður og nú ritstjóri og fjórði ferðafélaginn var
Styrmir Gunnarrsson ritstjóri.
Viðleitni Ómars er eftirtektarverð og það verður eftirtektarvert hverjir
þiggja boð hans. Ómar lofar ekki flottheitum á við þau sem Landsvirkjun
og aðrir jöfrar bjóða: „Ég get ekki boðið ykkur svona þjónustu, heldur að-
eins leiðsögn mína, samlokur og gosdrykki og beðið ykkur að hafa með-
ferðis góða skó og sæmilegan útifatnað. Undanfarin sumur hef ég farið
með fólki gangandi, akandi og fljúgandi um svæðið á tveimur litlum flug-
vélum og gömlum jeppadruslum. Hoppað hefur verið á milli lendingar-
brauta á völdum útsýnisstöðum þar sem stuttar gönguferðir hafa verið í
boði. Lengd gönguferðanna hefur fólk ráðið sjálft. Á Sauðármelsflugvelli
við Brúarjökul er hægt að setjast að snæðingi í gömlum húsbílsgarmi.
Margt af þessu fólki hafði áður farið í hefðbundnar ferðir með endastöð á
útsýnispalli Landsvirkjunar. Ég hef ráðið af viðbrögðum þess við því sem
það upplifði í ferðunum með mér að þær hafi veitt því nýja og dýrmæta
sýn, bæði á mannvirkin og áhrifasvæðin. Ég veit að þið eruð önnum kafið
fólk og hver dagur dýrmætur. Þið gátuð þó séð af degi eða jafnvel lengri
tíma til að kynna ykkur með eigin augum allvel aðra hlið málsins en að
litlu leyti hina hliðina."
Ekki hafa allir væntanlegir gestir Ómars þegið ferð að Kárahnjúkum til
að kynna sér aðra hlið málsins. Það er í valdi Ómars að kynna því fólki
það sem því er hollast að vita og þekkja. Honum er betur treystandi til
þess en flestum öðrum gestgjöfum.
Sigurjón M. Egilsson.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjóm & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Dreifing: íslandspóstur
á næsta blaðsölustað
Sumarhúsið
°9 gai'ðurinn
ÞRÓUIII SUMARHÚSABYCCHUCA
Ááififetir
Askriftarsimi
1Ú.0QP KjN OBRÚfl
HEiM MiÍMW
fty Vihltífi ui-R
>ft£ TeK\jr
ioo tSi^'NsK.a
mN mátJuþ
fiD Vt WNa $Éit
TFKvR
/W s#n
M-dTfKur.
TÍUnSKA TLtKí^
lm)n. og
18 5F({. p$ ‘EYVfi
'tLWOQOtcfi.
Flokkur eða klíka?
Morgunblaðið birti nú á verslun-
armannahelgi drottningarviðtal við
verðandi formann Framsóknar sem
mér skilst af lestrinum að hafi farið
langt með að sannfæra Agnesi Braga-
dóttur og er það vel.
Grínlaust þá er viðtalið gott og
Jón Sigurðsson útskýrir þar á auð-
skiljanlegu máli ýmislegt sem er
sameiginlegt öllum inngrónum
framsóknarmönnum. Enn þá er ég
samt ekki sannfærður um að það
verði flokki þessum farsælt að kjósa
Jón til forystu.
Flokkslýðræðið punt
Feigðarmerki Framsóknar hafa
einkanlega verið af tvennum toga.
Fyrir það fyrsta hafa tilraunir frá-
farandi formanns til þess að þvo
af honum bæði fjósalykt og lands-
byggðarstefnu gengið mjög nærri
lífi flokksins. Um það hef ég skrifað
hér áður.
Hitt atriðið eru þrálátar tilraunir
spunameistara og meintra flokkseig-
enda Framsóknar til þess að stjórna
flokki þessum í bakherbergjum. Enn
og aftur er þeim skilaboðum komið á
framfæri til almennra flokksmanna
og kjósenda að lýðræði innan flokks-
ins sé bara punt. Framsókn hefur í
þessu reynt svolítið að draga dám af
samstarfsflokki sínum til áratuga
þar sem flokksleg hlýðni og undir-
gefni er oft og einatt á öðru plani en
venjulegt fólk skilur.
Það er raunar fljótsagt að flokks-
eigendafélagi Framsóknar hefur
næstum alltaf mistekist allt sitt stóra
plott. Þar hefur á undanförnum
árum verið lagt ráðin um pólitískar
Viðhorf
Bjami Harðarson
aftökur bæði Guðna, Sivjar og Krist-
ins H. Þar var hönnuð atburðarás
fyrir fræga hvítasunnugleði á Þing-
völlum sem átti að enda með for-
mannstitli Finns Ingólfssonar. Sama
klíka lagði á sínum tíma á ráðin um
erfðaprinsinn Árna Magnússon og
svo mætti áfram telja.
Það sem klíku þessari hefur tek-
ist fyrir utan að halda Halldóri Ás-
grímssyni í formannsstóli lengur
en nokkur vildi er stærst að dubba
fyrrnefndan Jón Sigurðsson upp í
ráðherrastól. Þó mjög margt gott
megi um Jón segja var ákvörðun
þessi afar slæm fyrir kjörfylgi Fram-
sóknar. Kjósendum eru gefin þau
skilaboð að þingflokkurinn nái ekki
máli og leita verði út fyrir hann að
hæfu fólki. Þetta eru kjósendurnir
sem glöptust á að kjósa þennan þing-
flokk sem gefur sér svo sjálfur fall-
einkunn við ráðherraval!
Siv eða Jón - flokkur eða klíkal
Takist flokkseigendafélagi Fram-
sóknar að gera Jón Sigurðsson að for-
manni flokksins er það staðfesting
á dapurlegum örlögum framsóknar
sem er þá varla flokkur lengur
heldur miklu nær því að vera lítil
klíka.
I fyrrnefndu viðtali víkur Jón
að þeim möguleika að Siv Friðleifs-
dóttir gefi kost á sér í slaginn um
formannsstólinn. Það er vonandi
að hún láti verða af því. Ef kosið
væri meðal allra kjósenda Fram-
sóknarflokksins er enginn vafi á
hvernig sú kosning færi milli þeirra
Jóns og Sivjar. Siv er sá þingmaður
flokksins sem er með einna mest
atkvæðamagn bakvið sig og á að
baki glæstan og flekklausan feril.
Ef flokksþingsfulltrúar framsóknar
kjósa eins og hjarta þeirra og sam-
viska býður er heldur enginn vafi
á hvernig fer. Hættan er alltaf að
einhver hluti þingfulltrúa meti
meira vilja klíkunnar þegar kemur
að atkvæðagreiðslu. Kosning milli
Jóns Sigurðssonar og Sivjar Friðleifs-
dóttur gæti þannig orðið kosning
um það hvort þetta er flokkur eða
klíka.
Höfundur er ritstjóri
Sunnlenska fréttablaðsins.
Klippt & skorið
regnir af því að Reynir Traustason sé
með nýtt blað í smíðum hafa svo sann-
arlega vakið athygli
fréttaþyrstra íslendinga,
sem seint virðast ætla
að sloka nóg. En ekki
síður hefur þó áhuginn
kviknað hjá fjölmiðla-
mönnum eða þeim sem
vilja gefa sig að þeim starfa. Þannig munu um
20 manns hafa sótt um vinnu hjá Reyni og það
án þess að hafa hugmynd um hvers konar fjöl-
miðli hann hyggst hrinda úrvöríhaust.
Fyrst og fremst velta menn þó vöngum yfir
því hver eða hverjir standi að baki Reyni
en sjálfur talaði hann aðeins um „fjár-
sterkamenn". Íþvísamhengisemöðrum má þó
ekki gleyma því að konur eru líka menn. Vmsir
leiða að því líkum að helsti bakhjarl Reynis sé
Þóra Guðmundsdóttir, löngum kennd við
Atlanta. Minnast menn þess frá fréttastjóra-
dögum Reynis á DV að þar fjallaði hann meðal
annars um málefni flugfélagsins Atlanta á
þann hátt, að Ijóst var að hann hefði heimild-
armann f innsta hring og grunaði marga Þóru.
(fyrsta tölublaðinu eftir að Reynir var ráðinn
ritstjóri Mannlífs skrifaði hann svo einlægt og
ýtarlegt viðtal við Þóru og
Ijóst að þau náðu vel saman.
Þóra er vellauðug og talið
að fjármagnstekjur hennar
séu á annað hundrað á ári,
þannig að hún færi létt með
að snara út fyrir eins og einu
vikublaði. Og vel það.
Klippari les í því frábæra blaði Bæjar-
ins besta á (safirði að enn sé hægt að
jarðsetja í kirkjugarðinum á Eyrinni
þar vestra, þrátt fyrir að garðurinn sé fyrir
löngu orðinn fullur. Undir fyrirsögninni „Enn
einstaka pláss I Eyrarkirkjugarði" má lesa um
stöðu mála í garðinum en þar hefur engínn
verið jarðsettur undanfarin tvö ár. Garðurinn
er nokkuð forn orðinn en við hann hafa að
minnsta kosti þrjár kirkjur staðið. En íljósi þess
að enn eru örfá leiði laus í garðinum og ekki
öll kurl til grafar komin væri kannski ráð fyrir
kirkjugarðsvörðinn að leggjast I markaðsátak
og þá undir slagorðinu: „Fyrstirfara, fyrstirfá."
andres.magnusson@bladid.net